Tíminn - 12.08.1995, Qupperneq 4

Tíminn - 12.08.1995, Qupperneq 4
4 Laugardagur 12. ágúst 1995 W&KN&RtStö’ STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: |ón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verð ílausasölu 150 kr. m/vsk. Listin er hluti af mtrn Það eru sannindi sem ekki verða of oft endurtekin að sjálfstæði þjóðar er ekki einungis efnahagslegt. Hver þjóð sem ætlar að njóta virðingar í samfélagi þjóðanna verður að hafa burði í menningu og list- um. Mjög frjósamur akur á þessu sviði greiddi leið íslendinga til fullveldis og lýðveldis fyrr á öldinni. Þetta tímabil einkenndist af grósku í bókmennt- um og rithöfundar komu upp sem öfluðu sér við- urkenningar á alþjóðavettvangi. Hins vegar segir það ekki alla söguna. íslenskir myndlistarmenn hösluðu sér ekki síður völl með sígildum verkum. Nú stendur yfir í Listasafni íslands sýningin „Ljós úr norðri" sem er sýning á Norrænni aldamó- talist. Það tímabil var gróskumikið í list Norður- landa, en það er sérstök ánægja að sjá að íslenskir listamenn eru fullmektugir í þeim hópi listamanna sem þarna má finna verk eftir. Það er einkennandi fyrir bæði rithöfunda og myndlistarmenn sem hafa náð lengst að verk þeirra hafa íslenskar rætur, en þó standa þeir föst- um fótum í straumum umheimsins í listum. Lista- maðurinn má aldrei verða einangraður og þarf á því að halda að skyggnast um í því sem er að gerast á þeim vettvangi erlendis. Þessi sannindi eru í fullu gildi í dag, rétt eins og fyrr á öldinni. Myndlistarsýningin Ljós úr norðri er ekki það eina sem er að gerast á menningarsviðinu þessa dagana. Nú í vikunni var frumsýnd ný íslensk kvikmynd eftir Þráinn Bertelson. Hann er einn af þeim sem hefur lagt þessa listgrein fyrir sig, en saga hennar er ekki eins löng hérlendis eins og hinna greinanna tveggja. Miklar vonir eru bundnar við að þessi listgrein nútímans geti átt framtíð fyrir sér hér á landi og nauðsynlegt er að búa henni þau skilyrði. Með því ætti að vera hægt að ná góðum árangri á þessu sviði ekki síður en á vettvangi bók- mennta og myndlistar. Hið sama gildir um ræturn- ar. Það er nauðsyn fyrir íslenska kvikmyndagerðar- menn að sækja yrkisefni sinn í íslenskan veruleika, en auðga hann með sinni alþjóðlegu reynslu, án þess að hún verði hluti af alþjóðlegum stóriðnaði eða eftiröpun. Þannig getur hún tæpast átt glæsta framtíö. Sú kvikmynd sem mesta viðurkenningu hefur fengið á erlendum vettvangi fjallar um vandamál gamals fólks, mál sem er alþjóðlegt, en er ljáð ís- lenskt umhverfi. Frumsýning innlendrar kvikmyndar er ávallt nokkur viðburður. íslenskir kvikmyndagerðar- menn eru í sporum brautryðjandans, enn eru þeir að hasla nýrri listgrein völl hérlendis. Sagt er að það sé efnahagslega hagkvæmt að hlúa að kvik- myndagerð í landinu. Það er vissulega gott ef satt er, en það má aldrei gleyma því þegar listir eru ann- ars vegar að þær skapa þjóðinni sjálfstraust og sjálfsmynd. Hafi það verið nauðsynlegt í fortíðinni er það ekki síður nauðsyn í framtíðinni. Listin er hluti af lífinu. Oddur Ólafsson: Áþ j án eða lírsþægindi? Einkabíllinn er stærsti útgjaldaliöur í fjölskyldurekstrinum. Þegar best lét fyrir nokkrum árum var einn og hálfur bíll skráður á hverja meðal- fjölskyldu. Síðan hefur bílaeignin minnkað, en óverulega. Bíllinn gleypir nær 20% tekna heimilisfyr- irvinna. Allur húsnæðiskostnaöur að viðbættu rafmagni og hita er lægri. Og þótt mikið sé kvartað yfir matvælaverði en matarkostnaður heimilis talsvert lægri en þab sem rekstur bílsins eða bílanna kostar. Samt heyrir til undantekninga að kvartab sé yfir öllum þeim fjármun- um sem kastaö er í einkabílinn, nema hvað bensínverð er stundum tíundað og kröfur gerðar til ab þab verbi lækkað svo ab hægt verði ab aka meira fyrir minni pening. Að hinu leytinu stendur bunan út úr ölium fjölmiblum og lýð- skrumurum um voðalegt matvæla- verb og hræðilegan kostnab og greiðsluerfiðleika vegna húsnæðis- og rafmagns- og kyndingarkostnað- ar. í uppbólginni og viðvarandi um- ræðu um skuldir heimila og gjald- þrot fjölskyldna, um vaxtaokur, skattpíningu og almenna örbirgb, er aldrei getið um hvaða þátt hin skylduga bílaeign á í fjárhagslegum örðugleikum þess mikla fjölda sem ekki tekst að vinna fyrir sjálfum sér né sjá fjölskyldu fyrir sómasamlegu lífsframfæri. Bíllinn er tabú vegna þess að hann drottnar yfir því þrælakyni, sem kallar sig bifreiðaeigendur og heldur í sljóleika sínum að ökutæk- ib sé þarfur þjónn, en er í raun harbur og þurftafrekur húsbóndi. Blórabögglar eybslunnar Miklir skattar eru lagðir á þá sem fórna launum sínum og afkomuör- yggi til ab þjóna þeirri landlægu hé- gilju að bíll sé höfuönauðsyn og lífsfylling. En það er hann hjá efna- fólki sem haldiö er bíladellu og þarf á stöðutákni að halda til ab hressa upp á persónuleikann. Mebal hinna efnaminni er bíllinn aftur á móti áþján, sem veldur alls kyns efna- hagslegum hremmingum, sem aör- ir útgjaldaliðir eru gerðir að blóra- bögglum fyrir, svo sem húsnæðis- kostnaður og matvælaverð. Álögurnar á bensín og bíla eiga ab fara til vegakerfisins, sem ku vera afskaplega bágborib ef marka má sí- felldar kvartanir um ab það sé ekki bílum bjóbandi. ísland er afar erfitt yfirferöar og einstaklega illa lagað til vegagerðar. En öllum farartálmum skal úr vegi rutt til ab haégt sé að þjóta í bílun- um um landið þvert og endilagt jafnt sumar sem vetur. Það er sama hvab það kostar, fjöll, firðir, stór- fljót, - flóaflæmi og hraunbreiður skulu láta í minni pokann fyrir þörfum bílsins, sem höfubnauösyn ber til að komist hverja þing- mannaleið á örfáum mínútum hvert á land sem er allan ársins hring. , Engin afsökun er tekin gild þegar úrtölumenn leyfa sér ab efast um hagkvæmni einstakra samgöngu- mannvirkja og láta slíkar skoöanir í ljósi. Allir landshlutar og byggbarlög þykjast mjög afskipt í samgöngu- málum. Torleiði á að standa æski- legri byggbaþróun fyrir þrifum og alltaf þarf meiri og meiri peninga til að bæta samgöngurnar til að bílarn- ir komist leibar sinnar fljótt og vel. Skatturinn sem þjóðin leggur á sjálfa sig til aö þjóna undir bílana sína er léttbær miöað við að halda uppi öðrum þörfum samfélagsins. Eða þannig er látið. Milljónaþorpin á Innnesjum Þéttbýlið á Innnesjum er skipu- lagt með þeim ósköpum að reiknað er með bíl á hvern fjölskyldumeb- lim ef fólk á aö geta hreyft sig um svæðið og ferðast milli allra að- skildu þorpana, sem hrúgað er upp hingað og þangað um kjördæmin. Þar er nú unnið að samgöngu- mannvirkjum sem hæfa vel nokk- ura milljón íbúa borgum. Við Rauðavatn er búib að grafa sundur mikinn háls og þar liggja brýr og vegaslaufur undir og yfir úti í auðn- inni og hafa verktakar fengið þarna nokkuð fyrir sinn snúð, en sam- göngubætur eru þetta ekki. Önnur brúa- og slaufusmíð skammt frá þjónar svipuðum til- gangi. Þá stendur fyrir dyrum að byggja tvær brýr yfir Elliðaárvog með tilheyrandi tengivirkjum og þurfa verktakar ekki að kvíða fram- tíöinni. Formaður Umferðarnefndar Reykjavíkur sagir í blaðaviðtali, að fólk í borginni sé „þrúgab af mikilli umferð og miklum hraða." Umferð- in er miklu meiri en borgin þolir og þurfi að miða ab því að minnka notkun einkabílsins. Samtímis því er verið ab byggja rándýr umferðarmannvirki til að auka enn umferðarhrabann og eru þau miðuð við margfalda bílanotk- un á við þá sem nú þrúga íbúana, sem sífellt er verið að dreifa enn meira út um holt og hæbir, inn með sundum og út á með ströndum. Ekki vantar systemiö í galskap- inn. Aldrei of miklu til kostab Tímasparnaður er mikils virði og skortur á tíma óskaplegur. Þess vegna veröur að aka hratt og vega- kerfið má ekki hamla því að menn komist hindrunarlaust leiðar sinnar þegar mikið liggur við - og það er alltaf þegar sest er undir stýri. Aldrei er of miklu til kostaö að stytta aksturstíma. Það er allt að vinna ef mögulegt er að stytta akst- ursleiðina t.d. milli Reykjavíkur og Akureyrar um svo sem sjö km og spara nokkrar mínútur. Engin brú yfir fjörð er svo dýr að hún réttlæti ekki 12 mínútna spamað á leiðinni milli Innnesja og ísafjarðar. Helstu umferðagapuxar landsins sýna þetta og sanna upp á hvern dag allan ársins hring. Að sinni skal öllu tali um tjón og limlestingar sleppt. Slíkt er hvort sem er algjört aukaatriði í sambandi við umferðarmál eins og allar fréttir frá lögreglum, skippuleggjendum útihátíða og fréttafólki um síðustu helgi bar glöggt vitni. Hörmungarn- ar voru jafnvel minni en við mátti búast og halda ekki vöku fyrir sjálf- skipuðum umferðarsérfræbingum og atvinnufólki hálfsannleikans.' Fátækt og gjörvileiki Spyrja má hvort einkabíllinn sé lífsþægindi eöa áþján. Hann er hvorutveggja. Bíll er þægilegt farartæki fyrir þá sem eiga nóga peninga og ekki er hann síðri sem leikfang og dægra- stytting. Fyrir lágtekjufólk og skuldara er bíllinn áþján sem eykur á kvíða og áhyggjur. Fátækari hluti þjóðarinn- ar verbur líka ab láta sér nægja ódýra og oftast lélega bíla, sem eru dýrir í rekstri. Allar bábyljurnar og ofmatib á naubsyn tímasparnaðar í samgöng- um er hvergi meö í umræðunni, enda er búib að heilaþvo fólk svo rækilega um lífsnauðsyn mikillar bílaeignar og rándýrra og ómerki- legra samgöngubóta, að tómt mál er að tala um án mikils undirbún- ings. Eftir stendur ab einkabíllinn og óþörf og óhagkvæm umferbar- mannvirki halda almennum lífs- kjörum nibri, andstætt því sem sí- fellt er verið að halda að fólki með ótrúlega víðtækum og samhæfðum áróbri skillítilla manna. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.