Tíminn - 12.08.1995, Qupperneq 6

Tíminn - 12.08.1995, Qupperneq 6
6 Laugardagur 12. ágúst 1995 >&£ :. - - ; < '~-r' , íþróttagrein, landkynning og atvinnugrein sem skiiar veruiegum gjaldeyri. Hér er jolly Schrenk á Ófeigi frá Þýskalandi í brautinni. TímamyndÁ Heimsleikarnir í Sviss án efa ein besta landkynning sem hugsast getur: Islensk menning sem veltir milljörðum króna "Mér liggur viö að segja að maður geti ekki hugsað neitt." Sumarexemib er verulegt vandamál Alvarlegasta vandamálið sem íslenskir hrossaútflytjendur og ræktendur standa frammi fyrir er svokallað Sumarexem sem herjar á íslenska hesta eftir að þeir koma út. Um orsakir þessa húðsjúkdóms er ekki nákvæm- lega vitað en hann veldur því að hestarnir klóra sig til blóös und- an exemflekkjunum. Rúna Einarsdóttir, sem nú er búsett í Þýskalandi, segir að sumarexem í íslenskum hestum sé vandamál sem hafi alltaf ver- ið til staðar. Sumir Þjóðverjar sem rætt var við á mótinu full- yrða að exem sé vaxandi vanda- mál og stafi af heitari sumrum og meiri mengun. Þó að exemið leggist einkum og sér í lagi á ís- lenskræktaöa hesta sem fluttir eru út eru engu að síður allmörg dæmi um hesta fædda erlendis sem fá þennnan húðsjúkdóm. Meira að segja eru það ekki ein- ungis íslenskir hestar sem fá sumarexem, það hefur a.m.k. fundist í öðrum hestakynum í Þýskalandi. "Það hjálpar töluvert mikið gegn sumarexeminu að hestar séu hafði inni í húsi og reynt að halda flugunni í burtu frá þeim," segir Rúna. "Smyrsl og meðöl sem reynt er að nota til þess að halda þessu niðri eru dýr en engin af- gerandi lækning hefur fundist á sumarexeminu. Ef íslendingar ætla að halda áfram að rækta hesta og selja þá út úr landi er ekkert mál brýnna heldur en að finna eitthvert lyf við þessu." Heimsleikar íslenskra hesta eru trúlega stærsta stund sem nokkur keppnismaöur í hesta- íþróttum lætur sig dreyma um að taka þátt í. Og ekki bara keppendur. Hestaáhugafólk og aðdáendur íslenska hests- ins láta sig dreyma um næsta stórmót strax að þessu stór- móti liönu. Peningarnir sem hrossaræktin veltir sem at- vinnugrein eru einnig að veröa verulegir. Haft hefur verið eftir sumum framá- mönnum í hrossaræktinni að útflutningsvermætiö sé þegar á milli 1 og 2 milljaröur. Á nýafstöðnum heimsleikum í Sviss var mikið spáð og spek- úlerað í kaupum og sölu á gæð- ingum. Dýrasti hesturinn á mótinu var graðhesturinn Fáni frá Hafsteinsstöðum, sem seldur var fyrir mótið. Ásett verð er sagt hafa veriöl50 þúsund þýsk mörk eða um 6,5 milljónir króna. Kaupendurnir voru hjónin Karly Zingsheim og Rúna Einarsdóttir Zingsheim. Rúna vildi ekki gefa upp ná- kvæmt kaupverð en staðfesti að til stæöi að mynda hlutafélag um hestinn í Þýskalandi líkt og gert var um graðhestinn Orra frá Þúfu hér heima. Einn reyndasti hestaíþrótta- maöur iandsins, Sigurbjöm Báröarson, sagðist á mótinu verða var viö vaxandi áhuga á íslenska hestinum með hverju mótinu sem haldið er. Mótiö í Sviss er þaö fjölmennasta sem haldið hefur verið og jafnframt hafa ekki fleiri útlendir gestir veriö á landsmóti heldur en voru á því síðasta á Hellu 1994. Allt þetta hefur hvetjandi áhrif á söluna. Þeir sem hafa upplifað stemn- inguna í kringum mót sem þessi gera sér grein fyrir að íslenski hesturinn er einhver besta land- kynning sem hugsast getur, þó að hún nái vitaskuld ekki nema til afmarkaös hóps Það er ekki í mörgum tilfell- HEJTA- MOT KÁRI ARNÓRS- SON um öörum aö fólk á meginlandi Evrópu kemur saman í þús- undatali um langan veg, setur niður tjöld og húsvagna, flaggar íslenska fánanum og raeðir sam- an um áhugamál sitt, ísland og íslenska hestinn. Heima á þetta sama fólk bækur um ísland, hestamennskuna, lopapeysur og sumt af því hefur meira aö segja lagt á sig að reyna að læra íslensku. Alla dreymir um að heimsækja- íslenska hestinn í sínu náttúrulega umhverfi og flestir láta verða af því ein- hverntíma á ævinni. Hesta- mennska á íslenskum hestum erlendis snýst ekki bara um hestamennsku heldur ekki síður hestamenningu. Rúna Einarsdóttir: íslendingar verba ab fara ab leggja peninga og vinnu í rannsóknir á sumarexemi. Tímamynd Þ. Elenora íslenska kynbótasveitin. Fáni frá Hafsteinsstöbum er lengst til hœgri á myndinn en hann er talinn dýrasti hestur heimsleikanna. Ásett verb var talib 6,5 milljón- ir króna. Tímamynd ÁC Heimsmeistarinn seldur Hinn nítján ára gamli Sigurð- ur Vignir Matthíasson var stjarna íslenska liösins eftir heimsleikana í Sviss en hann hlaut gullverðlaun í fimmgangi og var jafnframt stigahæsti keppandi mótsins. Hann reið hestinum Hugin frá Kjartan- stöðum.úr öðru sæti í forkeppn- inni upp í fyrsta sæti í úrslitum á síöasta degi mótsins. Siguröur keypti Hugin til þess aö keppa á honum en þar sem ekki má flytja íslensku hestana til baka vegna smithættu var hesturinn seldur. Sigurður staöfesti að Huginn hefði þegar verið seldur á síðasta degi mótsins en hann mun engu að síður keppa á honum og reyna að verja heimsmeistaratitil sinn á næstu heimsleikum sem verða í Nor- egi að tveimur árum liðnum. "Huginn er seldur og fer til Á- gústu Beier, eiganda Pjakks, Eitils og fleiri gæðinga," sagði Sigurður. "En það stendur mér til boða að verja tiltillinn á sama hesti í Noregi." Siguröur lét þau orð falla eftir sigurinn að þetta væri hans stærsta stund í lífinu til þessa, en hann hefur verið í hesta- mennsku frá blautu barnsbeini, undanfarin ár undir hand- leiðslu Sigurbjörns Bárðarsonar. En voru seinustu mínúturnar í úrslitunum erfiðar? "Já, þetta var feiknarlega erfitt," sagði hann. "Það var mikið um að vera og mikið um að hugsa til þess að spila rétt úr hlutunum." -En þú ert ánægöur? "Ég er í skýjunum." -Hvað er þér efst í huga á svona stundu? Mikill kostnaöur ís- lenska liðsins Jón Albert Sigurjörnsson, for- maður Hestaíþróttasambands íslands var mjög ánægður með árangur íslenska liðsins í Sviss eftir að úrslit lágu fyrir. "Það fóru allir hestarnir hjá okkur í A-úrslit og þetta er í fyrsta skipti sem það tekst. Þetta hafa veriö miklir hitar hérna en þrátt fyrir þaö hefur gengið frábærlega vel. Ég er mjög ánægöur." -Er eitthvað sem menn sjá að mætti betur fara í ljósi reynsl- unnar af þessu móti? "Málin eru að sjálfsögðu í stöðugri endurskoðun hjá okk- ur. Sérstaklega verðum við að skoða hvernig við ætlum að fjármagna keppnir sem þessa í framtíöinni. Þetta er að verða gífurlega stórt dæmi. Kostnað- aráætlun fyrir þetta mót er upp á um 7 milljónir króna fyrir ís- lenska landsliðið og viö þurfum að sækja þá peninga eitthvert þaö liggur ljóst fyrir. Núverandi fjármögnun er þannig aö viö sækjum um styrki, erum í söfnunum og ger- um auglýsingasamninga við fyrirtæki o.s.frv. Við höfum til dæmis stóran og góðan auglýs- ingasamning við Flugleiðir, sem hefur reynst okkur mjög mikil- vægur." ■ Venjum unga hestamenn strax á að NOTA HJÁLM! yUMFERÐAR RÁÐ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.