Tíminn - 12.08.1995, Síða 8

Tíminn - 12.08.1995, Síða 8
8 Wmmu Laugardagur 12. ágúst 1995 Meö vaxandi þéttbýli er sífellt meiri þörf á opnum útivistar- svæöum sem hafa almenningi upp á sem mest aö bjóöa s.s. víö- sýni af sjónarhóli og næöi viö lækjarniö og fuglasöng í skjóli skógar. í flestum tilfellum eru þaö einstaklingar eÖa frjáls fé- lagasamtök sem eru brautryöj- endur á því sviöi og opna augu almennings fyrir gildi þess aö eiga aögang aö skemmtilegum útivistarsvæöum. Búseta í land- inu og þaö sem henni hefur fylgt viö misjafnar aöstæöur hefur gert þaö aö verkum aö gróöur landsins er nú ekki nema svipur hjá sjón og aö- eins örfáir staöir eru enn til vitnis um þaö sem áöur var. Á seinni öldum hafa veriö uppi menn sem skildu þörfina á vernd- un og ræktun skóga, en raddir þeirra hafa minnt á rödd hrópand- ans í eyöimörk- inni vegna skiln- ingsleysis almennings, ásamt fá- tækt og þekkingarskorti. Á þess- ari öld má Jdó líkja þróun skógræktar á Islandi viö snjó- bolta, sem sífellt hleður utan á sig og nú má fullyrða að mikill hluti landsmanna skilur gildi skóga bæöi til gagns og ánægju. Skógræktarfélög eru frjáls fé- lagasamtök um skógrækt og gróöurvernd og má sjá skógar- reiti þeirra víöa um land. Þessir reitir bera þess merki aö ekki hef- ur alltaf reynst auövelt aö fá heppilegt land eöa réttar trjáteg- undir. Margir þeirra voru einnig valdir við aöra samgönguhætti en nú tíökast og eru því ekki allt- af auönýtanlegir almenningi. Skógræktarfélag Borgarfjarðar hefur nokkra skógarreiti í sinni vörslu. Svo vel vill til ab Daníels- lundur í Svignaskaröi, sem var opnaöur til almenningsnota áriö 1990, er við þjóbleiö og býöur upp á marga kosti sem útivistar- svæöi. Þar er aðgengi orbib mjög gott og gerðir hafa verið göngu- stígar sem eru orðnir um 2 km. aö lengd. Upplýsingaskilti hefur verið komiö fyrir og á næstunni verða ýmis gróöursvæöi merkt. Einkunnir skammt ofan og vestan Borgarness eru þekktar úr Egilssögu. I hinni fornu lögbók, Grágás, þýbir oröið einkunn eyrnamark á búfé. Það er þannig einkenni enhvers og holtin sem risu ýfir flatlendið milli Borgar og Ánabrekku voru góðar „ein- kunnir" fyrir vegfarendur. Enn er þetta orð mikið notaö í lítt breyttri merkingu. Um og upp úr 1950 var plantað trjám í Einkunnum á veg- um Skógræktarfé- lags Borgarfjaröar og Borgarnesdeild- arinnar Aspar. Þetta er land Borg- nesinga og ung- lingar og fleiri þaöan unnu aö grisjun og stíga- gerð áður en land- iö var opnaö al- menningi 1993 á veglegri hátíö þar sem bæjarstjórnin grillaöi fyrir gesti. Þetta er nú mjög vin- sælt útivistarland. Skógræktarfélag Borgarfjarðar hefur notið velvildar og stuön- ings frá velunnurum sínum, bæöi innan og utan sveitar- stjórna. Þaö ber að meta aö verð- leikum því umhiröa og umönn- un skóglendis og útivistarsvæða kostar mikla fyrirhöfn og fjár- muni. Allir, sem geta, eru hvattir til aö heimsækja skóga sem búiö er aö opna og fá þar upplifun sem of fáir íslendingar hafa not- iö. Sérstaklega er bent á auglýsta skógardaga. Höfundur er forma&ur Skógræktarfélags Borgarfjar&ar. Sjálfbobalibar vinna ab göngu- stígagerb á svcebi Skógrœktarfé- lags Borgarfjarbar, Daníelslundi í Svignaskarbi. Á þessari öld má þó líkja þróun skóg- rœktar á íslandi við snjóbolta, sem sífellt hleður utan á sig og nú má ffdlyrða að mikill hluti lands- manna skilur gildi skóga baeði til gagns og ánœgju. Daníelslundur heitir eftir Daníel heitnum Kristjánssyni frá Hrebavatni, sem um árabil var framkvæmdastjóri Skógrœktarfélags Borgarfjarbar. í skóginum er minnisvarbi um hann, gerbur úr iíparíti úr fjallinu Baulu. Guömundur Þorsteinsson: í skjóli skóganna Einkunnir of- an vib Borg- arnes eru vinsœlt úti- vistarland, en byrjab var ab grób- ursetja þar upp úr 7 950. Þar er vaxinn upp gróskumikill skógur, sem saman- stendur af ýmsum trjá- tegundum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.