Tíminn - 12.08.1995, Page 13
Laugardagur 12. ágúst 1995
msre^-t.----
13
HUSAVIK
eigi að vera auðveldara að bregðast
við breytingum sem verða á ferö-
um fólks hingað til lands og hög-
um þess meðan á dvöl stendur. Páll
Þór Jónsson segir mjög erfitt að
ræða þessi mál af fullri hreinskilni
því mikillar viðkvæmni gæti á
meöal aöila í ferðaþjónustu. Ef illa
gangi virðist menn fremur líta á
það sem eigin mistök en skort á
stefnumörkun og séu því of oft
tregir til að þrýsta á um aö gerðar
verði nauðsynlegar rannsóknir á
atvinnugreininni.
Sem dæmi um stuttan dvalar-
tíma erlendra feröamanna eru far-
þegar skemmtiferðaskipanna en
þeir dvelja í flestum tilvikum að-
eins daglangt á þeim stöðum sem
skipin koma að landi. Oft heyrast
raddir um ab þessar skipakomur
skili litlu til ferbaþjónustunnar í
landinu, farþegarnir gisti og borði
um borð og margir gangi framhjá
verslunum með minjagripi og öðr-
um varningi án þess að eiga nokk-
ur viðskipti við verslunareigendur.
í þessu sambandi hefur einnig ver-
ið bent á ab þessir farþegar séu í
flestum tilfellum vel stætt fólk sem
hafi tök á að veita sér ýmsa fyrir-
greiðslu. Páll Þór Jónsson kveðst
ekki vera sammála þessu sjónar-
miði. „Komur skemmtiferöaskip-
anna skila miklu. Útgerðir þeirra
greiða háar fjárhæðir í hafnargjöld.
Farþegar skemmtiferðaskipanna
kaupa dýrar skoðunarferðir sem
eru meöal annars nauðsynlegar til
að halda rútukosti landsmanna í
sæmilegu horfi. Ýmsir þessara
ferðamanna versla nokkuð en við
verðum að gæta þess ab fæstir er-
lendir ferðamenn koma hingað í
þeim erindum að versla. Ferðir
með skemmtiferðaskipum eru yfir-
leitt seldar með fullu fæði um borð
í skipunum og því finnst fólki
ástæðulaust að greiða tvöfaldan
fæbiskostnað nema ef það langar
til ab reyna eitthvað sem er sérstak-
lega einkennandi fyrir þá staði sem
það kemur til. Við megum því alls
ekki amast við komum skemmti-
ferðaskipa af þeim sökum að þær
skili of litlum arði en þær eru að
sjálfsögðu aðeins einn hluti ferða-
þjónustunnar."
Hálendisferbir, sjó-
stangveibi og hvala-
skobun
Önnur leið til að fá erlenda
feröamenn til Noröurlands er aö
þeir komi þangað meö beinu flugi
án millilendingar á Keflavíkurflug-
velli. Ferðir Saga Raisen frá Sviss
eru dæmi um slíkar ferðir og í þeim
tilvikum stoppa farþegar lengur
eða frá fjórum dögum og allt upp í
viku tíma. Páll Þór Jónsson segir að
ýmsir möguleikar skapist með
komum slíkra farþega. Menn verði
að gera sér grein fyrir eftir hverju
þetta fólk sé að sækjast og skipu-
leggja þjónustu vib þaö út frá því.
Flestir sækist eftir landinu, sér-
kennum þess og náttúru. í tengsl-
um vib beint flug Saga Raisen frá
Zurich til Akureyrar sé unnt að
bjóða margvíslega hluti. Ferðir á
hálendið eða um byggðir. Siglingar
séu einnig vinsælar og frá Húsavík
sé auðvelt að stunda sjóstangveiði.
Þá megi einnig nefna hvalaskoðun
því talsverf sé um hvali á Skjálf-
andaflóa og nú þegar hafi verið
farnar slíkar ferðir meö erlenda
ferðamenn á flóann við miklar vin-
sældir. „Ég vil fullyröa að hvergi er
betri aöstaöa til hvalaskoðunar en
héðan frá Húsavík. Abeins er um
klukkustundar sigling á hvalamið-
in við vestanverðan Skjálfandaflóa
og útsýnisferðin tekur alls um fjór-
ar klukkustundir. Þetta er hæfileg
sjóferð og fólk getur notfært sér
þessa þjónustu án þess ab eyða um
of af tíma sínum. Því tel ég að mun
auðveldara sé ab fá fólk í þessar
ferðir en þegar um lengri skobun-
arferðir er að ræða - ferðir sem taka
ef til vill heilan dag eða meira,"
segir Páll Þór Jónsson.
Vegirnir til skammar
Eitt það fyrsta sem ferðamenn
reka augun í þegar til Húsavíkur
kemur eru undirskriftalistar þar
sem krafist er vegabóta í Norður
Þingeyjarsýslu. Einnig heyrast
sterkar raddir um að ekki sé sinnt
um að opna vegi aö ýmsum mikil-
vægum ferbamannastöðum nægi-
lega snemma á sumrin á sama tíma
og fjálglega er rætt um að Iengja
verði ferðaþjónustutímabilið. Hvað
segir feröamálafrömuðurinn á Hót-
el Húsavík um þessi mál?
„Ástand margra vega hér á Norð-
austurlandi er til háborinnar
skammar. Það er ekkert að undra
þótt íbúar í Norður Þingeyjarsýslu
láti til sín heyra í því sambandi.
Vegagerðarmenn virðast bundnir
við að opna vegina á hálendinu
langt fram á sumar og enginn tími
til að sinna nauðsynlegu viðhaldi
þjóðveganna hér í byggbum. Okk-
ur sem erum að reyna að lengja
ferðamannatímann finnst að opna
þurfi ýmsar leiðir fyrr á vorin.
Einkum hefur leiðin upp að Detti-
fossi brunnið á okkur í feröaþjón-
ustunni. Mjög margir erlendir
feröamann lýsa áhuga á að koma
að fossinum og á síöasta vori urð-
um við að segja fólki að því miður
væri ekki hægt að komast þangað -
leiðin hafi ekki verið opnuð. Lag-
færing vega er eitt af því sem huga
þarf alvarlega að þegar mótuð verð-
ur stefna í feröamálum."
Páll Þór Jónsson hefur ekki í
hyggju að flytjast suður - ekki á
næstunni að minnsta kosti. Hann
hefur fundiö sér farveg við að
byggja upp ferðaþjónustu á Húsa-
vík. Hann rekur nú auk Hótels
Húsavíkur Gistiheimilið Árból
ásamt Dóru Vilhelmsdóttur konu
sinni. Hann segir rekstur gistiheim-
ilisins hvíla að miklu leyti á herð-
um hennar og hann kveðst einnig
hafa mjög góðu starfsfólki á að
skipa. Það sé undirstaða þess að
góður árangur náist og hótel- og
gistihúsarekstrinum sem sé grunn-
ur annarrar ferðaþjónustu. Páll Þór
segir að herða verði sóknina á er-
lendum mörkuðum á næstu árum
en þá verði íslendingar líka að vera
tilbúnir til að taka við auknum
fjölda ferðamanna - ekki aðeins
hvab gistinguna varðar heldur
einnig að vita hvab þetta fólk lang-
ar að gera hér á landi og vera við-
búnir aö koma til móts við óskir
þess og þarfir. Til þess þurfi að
stunda rannsóknir og móta
ákveöna feröamálastefnu í framtíð-
inni. ÞI.
Þ E I R
E R U
K O M N I R
A Ð
N O R Ð A N !
\'S . i -____________________________________________________________________________________________ ' ,<-i
• I
LAMBAKJOTSBITAR TILBÚNIR
O F N I N N
BEINLAUSIR
RASPHÚÐAÐIR
FLJÓTLECIR
FRÁBÆRI R
EFTIR AÐEINS 10 MlNÚTUR Í HEITUM
BÖKUNAROFNI ERU NAGCARNIR
TILBÚNIR. FULLKOMIN MÁLTÍÐ Á AÐEINS
BROTI A F ÞEIM TÍMA SEM ÞÚ ÁTT AÐ
VENJAST! - MEIRA FRÍ MINNA PUÐ!
NAGGARNIR ERU FRAMLEIDDIR ÚR
ÍSLENSKU LAMBAKJÖTI, FORSTEIKTIR
í RASPI OG-LÉTT KRYDDAÐIR.
Þ ETTA E R NORÐLENSK
NÁTTÚRUAFURÐ EINS OG HÚN
GERIST BEST!
NACGARNIR ERU AKAFLEGA
BRAGÐGÓÐIR, ÞEIR ERU HOLLIR
OG FRÁBÆRIR MEÐ HVERSKONAR
M EÐ LÆTI, S E M G E R I R
FRAMREIÐSLUMÖGULEIKA
NÆSTUM ÓÞRJÓTANDI.