Tíminn - 07.09.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 07.09.1995, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 7. september 1995 3 Biskup segir Alþingi verba ab koma ab rábningu prests til Súbavíkur: Hef beðið um að fá héraðs- prest vestur Biskup Islands segir Kristni- sjó5 ekki hafa fjármagn til aí> senda prest til starfa í Súöa- vík. Hann segir ab annaö hvort verbi Alþingi ab veita fé til þess, eba færa verbi til prestsembætti sem aftur krefj- ist lagabreytingar. Hann segist skilja þörf Súbvíkinga og hyggst fara vestur og ræba vib þá í næsta mánuði. Héraösfundur ísafjarðarpró- fastsdæmis hefur skorað á kirkjuleg yfirvöld að ráða prest til þjónustu í Súðavík. í ályktun fundarins segir að brýn nauð- syn sé til þess að sérstakur prest- ur verði settur til þjónustu við Súðvíkinga eftir atburðina sem urðu þar í janúar sl. Herra Ólafur Skúlason, biskup íslands, segist skilja vel naubsyn þess að sérstakur prestur þjóni Súðvíkingum, enda sé álagið mikið á sóknarprestinum á Isa- firði sem einnig þjóni Súðavík. Hann segist hafa beðið um það á liðnum ámm að skipaður verbi héraðsprestur, sem hefbi skyldur við ísafjarðar- og Barða- strandarprófastsdæmi. Þetta BÆIARMAL Húsavík Bæjarráö hafnabi á fundi sínum fyrir skömmu beibni um fjár- stubning til handa Líknarfélag- inu Áföngum. • Æskulýbs og íþróttanefnd hefur veitt Völundi Þorbjörnssyni styrk ab upphæb 50 þúsund krónur en hann keppti í lyftingum í Ind- landi fyrir skömmu. Þá sam- þykkti nefndin ab veita Colf- klúbbi Húsavíkur styrk ab upp- hæb 100 þúsund sem renna á til unglingastarfs. Þá var veittur styrkur ab upphæb 45 þúsund til þriggja blakstúlkna sem vald- ar hafa verib í landlibib, þ.e.a.s. 15 þúsund til handa hverri þeirra vegna landslibsferbar. • Stjórn Framkvæmdalánasjóbs hefur hafnab kauptilbobi Jóns H. Óskarssonar í hlutabréf sjóbs- ins í Prýbi, en tilbobib hljóbabi uppá 2 milljónir króna. Ástæban er sú ab samvæmt mati Kaup- þings Norburlands hf. er verb- mæti eignar sjóbsins í fyrirtæk- inu töluvert hærra en tilbobib hljóbar upp á. Umræddur Jón hafbi ábur bobib 500 þúsund krónur í bréfin, sem er nafnverb þeirra. • Á fundi bæjarrábs nýverib var tekib fyrir bob frá Gulu bókinni um skráningu á henni gegn gjaldi. Bæjarráb hafnabi erind- inu um skráningu, enda kostn- aburinn kr. 124.500 krónur. • Alls bárust fjögur tilbob í 50 milljón króna skuldabréfaútbob Húsavíkurkaupstabar og á fundi bæjarrábs var bæjarstjóra falib ab ganga frá lántökunni á grundvelli hagstæbasta tilbobs- hafi ekki fengist samþykkt á Al- þingi. „Presturinn á Isafirbi er einn með fleiri sóknarbörn en allir hinir prestarnir í ísafjarðarpró- fastsdæmi til samans. Að auki er elliheimili, sjúkrahús og menntaskóli á Isafirði, þannig ab það leggst óskaplega mikið á ísafjaröarprestinn." Eftir að prestsembættið í Súðavík var lagt niður, renna hálf laun prests, sem annars væri þar, í Kristnisjóö. Biskup segir að þrátt fyrir það séu tekjur Kristnisjóðs ekki nægar til að hann geti tekið á sig laun prests í Súðavík. „Ég sé ekki að Kristnisjóður geti risið undir því að taka á sig starfsmann. Tekjur hans eru ekki það miklar. Þannig að ef Al- þingi veitir ekki fé til að fá hér- absprest í prófastsdæmið eða prest í Súðavík, sé ég ekki annað en það verði að stokka upp prestaskipanina. Þá þarf að færa prestsembætti einhvers staðar frá þar sem eru fleiri prestar vib þægilegri aðstæður og flytja það vestur í Súðavík. Til þess þarf hins vegar lagabreýtingu. Þetta er þess vegna svolítið seint kerfi og þungt í vöfum." Biskup segist gera sér fulla grein fyrir þörf Súðvíkinga fyrir prestsþjónustu. Hann fer vestur í næsta mánuði til að ræða við Súðvíkinga og segir málefni þeirra einnig verða rædd á kirkjuráðsfundi á morgun. Nokkrar breytingar eru í um- ræðunni varbandi prestsþjón- ustu í ísafjarðarprófastsdæmi í náinní framtíð, að sögn bisk- ups. Vonast er til að presturinn á Suðureyri geti aðstoðað prest- inn á Isafirði þegar göngin verða endanlega tekin í notkun, og einnig eru bollaleggingar um að þegar prestaskipti verba í Vatnsfirði í Djúpi, flytjist nýi presturinn í Súðavík. ■ Umhverfi Elliöaánna er vinsœlt útivistarsvæbi meöal Reykvíkinga. Þessar konur voru meöai þeirra sem notuöu góöa veöriö í gœr til aö fá sér göngutúr viö árnar. Tímamynd cs Elliðaárnar rannsakaðar Borgarráb hefur samþykkt ab láta fara fram ítarlega vist- fræbiúttekt á Ellibaánum, upptökum þeirra og ósasvæbi. Tilefni athugunarinnar er þær breytingar sem hafa orbið á um- hverfi ánna á síðustu áratugum, endurtekin mengunaróhöpp og sjúkdómar í fiskistofnum ánna. í úttektinni á m.a. að meta áhrif vatnstöku, orkuframleiðslu, aukinnar byggðar og röskunar umhverfis á lífríki ánna. Einnig á að leita leiba til að skapa upp- runalegu lífi í ánum öryggi og viðgang. Samhliða munu fara fram rannsóknir á Rauðavatni, Langavatni og Úlfarsá sem miða að því að takmarka frá upphafi mengunaráhættu frá nýrri byggð á austursvæðum borgar- innar. Embætti borgarverkfræbings mun sjá um stjórn rannsóknar- innar en kostnaður við hana skiptist til helminga á milli borgarsjóðs og Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þokkaleg absókn á Einkalíf Þráins: íslensk týra í amerísku stríbsmyrkri Þráinn Bertelsson, leikstjóri Einkalífs, telur ab myndin gangi betur en íslenskar mynd- ir hafa gert upp á síbkastib. „Þab er stórkostlegt áhyggju- efni ab absókn á íslenskar myndir er ab dragast saman og ekkert síbur á mínar myndir en annarra. Þab er áhyggjuefni öllum þeim, sem hafa áhuga á ab sjá einhverja íslenska týru í öllu þessu ameríska stríbs- myrkri sem grúfir yfir bíó- myndum." Ab sögn Þráins er aðsókn á myndina þokkaleg. Hann segist ekki hafa gert sér vonir til eða frá um aðsókn á myndina. „Ég átti ekki von á neinu. Reynslan hefur kennt mér þab, að það þýbir ekk- ert að giska á aðsókn. Éf menn gætu giskað á aðsókn, þá væm bara gerðar aðsóknarmyndir." „Sem betur fer dró aðeins saman þegar hann hætti að rigna og fólk gat farið að snúa sér ab görðunum sínum eða grillinu. Svo á ég von á því að hún taki vib sér." ■ Yfir 2000 tonna kvótaskerbing hjá ÚA: Gæti þýtt um 50 m. kr. lakari afkomu Aflaheimildir Útgerbarfélags Akureyringa hf. verba skertar um allt ab 2300 tonn á nýbyrj- ubu fiskveibiári og nær skerb- ingin til allra fiskistofna nema skarkola og rækju. Er þetta mesta kvótaskerbing hjá félaginu sem um getur frá því stjórnun fiskveiba var tekin upp. I nýútkomnu fréttabréfi fé- lagsins kemur fram ab karfa- kvóti þess hefur verið skertur um allt að 930 tonn og grálúðu- kvótinn um 935 tonn. Þá hefur þorskkvótinn verið skertur um 150 og ýsukvótinn um 160 tonn. I fréttabréfinu segir að minnkandi þorskkvóti stafi einkum af auknum hlut smá- báta á kostnað togaranna en samdráttur veiðiheimilda í öðr- um stofnum stafi af minnkandi aflaheimildum. Ætlunin er ab bæta kvótasamdráttinn upp með því að auka úthafsveiðar en skip félagsins stunda þær jafnan með kvótaveiðum og eru nú á veiðum í Smugunni, á Reykja- neshrygg og á Flæmska hattin- um. Vægi aflaheimilda hefur breyst þannig að þótt Útgerðar- félag Akureyringa hf. hafi aukið aflaheimildir í þorskígildum tal- ið á undanförnum árum þá hef- ur það misst heimildir ef miðab er við tonnafjölda. Samkvæmt lauslegri áætlun er talið að sá kvótasamdráttur sem félagið hefur orðið að taka á sig á ný- byrjuðu fiskveiðiári geti þýtt um 50 milljónum króna lakari af- komu en hún hefði annars ver- ið. ÞI Sólin er ekkert notaleg... FILMA A GLUGGANN LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ • 3M ''Scotchtint" sólarfílma endurkastar allt að 80% af geislum sólarinnar. • "Scotchtint" filman endurkastar allt að 99% af UV geislum sólar. Munir í sýningargluggum verslana upplitast ekki fyrir vikið. • "Scotchtint" er einnig fáanleg sem öryggisfilma. Ef rúðan brotnar, heldur filman glerinu saman. • Þeir sem hafa sett "Scotchtint" filmuna á gluggann hugsa hlýtt til hennar á meðan öðrum er alltof hlýtt. • Ásetning filmunnar er innifalin í verði. Hafðu samband og fáðu verðtilboð: ÁRVÍK ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.