Tíminn - 13.09.1995, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.09.1995, Blaðsíða 8
8 Miðvikudagur 13. september 1995 Hútúskt flóttafólk frá Rúanda þorir ekki aö snúa heim, enda lík- legt oð margt af því hafi tekiö þátt í fjöldamoröunum þar í fyrra. í fangelsum Rúanda, sem byggö voru fyrir 12.000 fanga, eru fangarnir nú yfir 50.000 Um milljón (lauslega áætlað) flóttamanna frá Rúanda hefst við skammt utan landamæra föö- urlands síns í Saír, og fyrir skömmu hófst her Saír-stjórn- ar handa við að reka þá til- baka. Notuðu saírsku her- mennirnir tækifærið til rána, þótt lítið væri af flóttafólkinu að hafa, og nauögana, aö sögn einhverra fréttamanna. Alþjóbasamfélagið skarst í leikinn og lét Saír þá af brott- rekstrinum. Fyrir alþjóðasamfélagið er flóttafólkið frá Rúanda, sem hefst við í búðum skammt utan landamæra þess, einkum í Saír, ab verða stöðugur höfuðverkur (sem það líklega helst vildi geta gleymt). Jon Swain, fréttamaður frá breska Sunday Times, segir það stafa m.a. af því að hjálpar- aðilum á vegum Sameinuðu þjóðanna og annarra hafi tekist heldur vel til, miðað við ailar aðstæður, aö sjá flóttafólkinu fyrir mat og öðru því sem brýn- ast er. En þetta eigi sinn þátt í að draga úr áhuga flóttafólksins á því að snúa heim. Mikil þátttaka Kostnaburinn við uppihald, læknisþjónustu og annað fyrir flóttafólkið er hins vegar mikill, og nú dregst athygli heimsins meir og meir að hliðstæðum vandamálum annars staðar. Það gerir að verkum að minna fé en áður berst að til hjálpar flótta- fólkinu frá Rúanda. Þarafleiö- andi hefur matarskammturinn í flóttamannabúöum þessum nú verið minnkaður um helming. Mobutu, einræðisherra í Saír, óttast að flóttafólkið kunni að valda ókyrrð í ríki hans, þar sem flest er úr greinum gengið, og vill því losna viö það hið snar- asta. S.þ. reyna nú ab draga úr vanda þessum meb því að hvetja flóttafólkið til að snúa heim viljugt. En flóttafólkið tekur flest dauflega í þab, enda þótt bæbi talsmenn S.þ. og Rú- andastjórnar fullyrði að það hafi ekkert að óttast í Rúanda. Þessi tregba flóttafólksins er tengd því að það er svo ab segja allt Hútúar. Hútúsk Rúanda- stjórn stóð fyrir fjöldamorðinu mikla þarlendis s.l. ár, er hálf eða heil milljón manna var drepin, aðallega Tútsar. Og nú rába Tútsar í Rúanda. Ekki fer á milli mála ab þaö voru ekki aðeins her Hútúa- stjórnarinnar og meira eða minna skipulagt vopnað lið Hútúa sem framdi fjöldamorð- in, heldur og tók þátt í þeim fjöldi óbreyttra hútúskra borg- ara, karlar, konur og jafnvel börn. Sumt af þessu fólki hefur síðan haldib því fram, ab það hafi verið neytt til þátttökunn- ar, en frásagnir sjónarvotta benda frekar til þess að morð- æðið hafi litiö út fyrir að vera Daubvona fangi í Rúanda. Flóttafólk og fjöldamorðingjar Hútúskir flóttamenn á heimleib. En flestir þeirra vilja heldurvera um kyrrt í flóttamannabúbunum, afótta vib ab grimm örlög bíbi þeirra íœttlandinu. fjöldahreyfing, skipulögö og sjálfsprottin í senn. Framganga morðingjanna hafi yfirleitt ekki borið þess merki að þeir væru neyddir til illvirkjanna, nema síður væri. Af öllum stéttum og starfshópum Mannréttindastofnunin Afr- ican Watch, sem hefur aðalab- setur í Lundúnum, hefur nýlega sent frá sér skýrslu um hlutdeild kvenna í fjöldamoröum þess- um. „Konur og unglingsstúlkur ... æddu inn í kirkjur, sjúkrahús og aðrar byggingar þar sem fólk BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON hafði leitað hælis. Þær beittu sveðjum og naglaspýtum af mikilli leikni," er haft eftir ein- um sjónarvottinum í skýrsl- unni. Þar segir einnig að hútúsku konurnar hafi hvab oftast fylgt karlmönnunum eftir til illvirkj- anna og hvatt þá til þeirra með söng og ópum, að fornum stríðssið víða um lönd. Þær hafi síðan gert út af við sært fólk eða manneskjur sem karlmönnun- um hafi sést yfir, þ.á m. börn. Konurnar sem tóku þátt í ill- virkjum þessum voru af öllum stéttum og starfshópum, þ.á m. ráðherrar, opinberir starfs- menn, kennarar, læknar, blaba- menn, skólastúlkur, húsmæður, vinnukonur, kaupkonur og nunnur, segir ennfremur í skýrslu African Watch. Sumar þeirra starfi nú hjá hjálparstofn- unum og við skóla og sjúkrahús í flóttamannabúðunum. Þeirra á meðal sé Pauline Nyiramasu- huko, fyrrum jafnréttismálaráð- herra í Rúanda. Aðspurð af BBC bar hún af sér allar sakir og sagðist ekki einu sinni hafa brjóst í sér til að hálshöggva hænsn. Líkur benda til ab tiltölulega margir morbingjanna hafi flúiö land og að þeir séu þarafleið- andi tiltölulega fjölmennir meðal fióttafólks í grannlönd- um. Það er önnur skýring á tregðu þess til að snúa heim á vald Tútsa. Þúsundir fanga sagbir látnir Tútsastjórn Rúanda hefur lát- ið hefja réttarhöld yfir fólki sem grunað er um hlutdeild í morð- unum. Um 51.000 manns hafa verið handteknir af því tilefni, en fangelsi landsins eru byggö fyrir aðeins um 12.000 fanga. Og réttarhöldin ganga hægt, m.a. vegna þess að átta af hverj- um tíu dómurum og saksóknur- um þarlendis eru látnir, í fang- elsi eða landflótta eftir fjölda- morðin og stríðið í fyrra. Aðbúnaður fanganna er sagð- ur hinn versti og heyrst hefur að þúsundir þeirra hafi þegar látist, kafnað í þrengslum eða oröiö sjúkdómum og vöntun á læknisþjónustu að bráð. Fanga- verðir eru og sagðir auka þján- ingar fanganna, t.d. segist fréttamaður einn hafa heyrt að fangar séu látnir standa klukku- tímum saman berfættir í vatni sem óleskjuðu kalki hafi verið hellt í, með þeim afleiöingum að holdið losni af beinunum og taka verði af föngunum fæt- urna. Foringjar í fyrrverandi hút- úskum her Rúanda undirbúa innrás í föðurland sitt, til að endurheimta völdin (og e.t.v. að ljúka við að útrýma Tútsum þar), og fréttamaður frá New York Times segir þá ráða flótta- mannabúðunum í Saír að „nokkru leyti". Hætt er því við að hjálpin til flóttamannanna komi foringjum þessum að ein- hverju gagni og að S.þ. og hjálp- arstofnanir ýmsar veiti því fjöldamorðingjum þessum stuðning í raun, auðvitað gegn vilja sínum. Fréttamaður frá New York Times segist hafa heyrt að hút- úsku herforingjarnir fái aðstoð til að vopnast á ný frá Frakk- landi (sem var vinveitt hútúsku stjórninni sem stóö fyrir fjölda- morbunum), Saír (sem meb því þykist líklega eygja möguleika á að losna viö flóttafólkiö) og Suður- Afríku. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.