Tíminn - 15.09.1995, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.09.1995, Blaðsíða 4
4 Föstudagur 15. september 1995 HÉÍI STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: |ón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Guömundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmiöja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu 150 kr. m/vsk. Þingiö, þjóöin og launin Urgur er nú í alþýðu manna vegna úrskurðar kjaradóms um 9,5% grunnkaupshækkun til þing- manna og ýmissa embættismanna og ríflegri hækkanir til handa öðrum. í sjálfu sér er þó tæp- lega hægt að saka þingmenn eða embættismenn- ina um að hafa hrifsað til sín þessa hækkun, sem kjaradómurinn ákvað, þó svo að hún sé mun ríf- legri en þær hækkanir sem aðrir hafa fengið og sé á skjön við þá jafnlaunastefnu sem í orði kveðnu hefur verið fylgt. Aðalmál þeirra lagabreytinga, sem þingmenn gerðu í vor, var jú að gefa frá sér ákvörðunina um þingfararkaupið, þannig að ekki væri hægt aö saka þá um að þeir væru að skammta sér sjálfir úr hnefa. Það er líka eftirtektarvert að ennþá í það minnsta hefur ekki verið hreyft mót- mælum við því að sveitarstjórnarmenn fái sjálf- krafa sömu hækkanir og þingmenn og ráðherrar fengu. Niðurstaða kjaradóms er enn ein staðfestingin á því að jafnlaunastefnan, í því formi sem hún hef- ur verið rekin, hefur verið kistulögð. Það er hins vegar ekki kjaradómur einn sem negldi saman þessa kistu. Að því hefur verið unnið sleitulaust frá því í febrúar. Það má því segja að kjaradómur hafi í og með verið að úrskurða um að febrúarsamning- arnir ættu ekki lengur við. Þess vegna er ljóst að aðilar vinnumarkaðarins þurfa að upphugsa nýja stefnu og nýjar útfærslur við gerð kjarasamninga. Það þarf að gefa upp á nýtt og stokka upp sjálft samningaferlið, því það er alveg ljóst að með nú- verandi stefnu munu þeir sem fyrstir semja alltaf fá súru berin. Að Iækka laun þingmanna, ráðherra eða embættismanna, verkalýðsforingja eða ann- arra sem eru með miklu hærri laun en alþýða manna, yrði aldrei nema tímabundin friðþæging — deyfilyf en ekki lækning. Þau ákvæði laganna frá því í vor, þar sem þing- menn ákveða sér sérstök skattafríðindi, eru hins vegar óverjandi og ómögulegt að sjá hvernig þeir ætla að stíga á stokk og tala gegn skattsvikum, ef þeir bakka ekki með þá hluti. Enda virðist raunar sem almenningsálitinu þyki mestur eldsmatur í þeim hluta kjaramálaákvörðunar til þingmanna. Tíminn birtir í gær viðtal við þrjá þingmenn, sem allir eru tilbúnir til að endurskoða skattalega með- ferð á kostnaðargreiðslunum og taka þannig undir hugmyndir sem fjármálaráðherra og starfandi for- sætisráðherra hefur viðrað. Svavar Gestsson, þing- flokksformaður Alþýðubandalagsins, gerir raunar athugasemd við hversu fjármálaráðherra lætur sem sér sé þetta skattamál köstnaðargreiðslna ókunnugt og bendir á að hann hafi komið að því á öllum stigum. Þó gera verði ráð fyrir að Svavar hafi rétt fyrir sér í því, þar sem hann mælti fyrir frum- varpinu og vann að framgangi þess, þá breytir það ekki því að það er þingið sem slíkt sem ber ábyrgð- ina, og stjórn þess hlýtur því að endurskoða skattalega meðferð þessara kostnaðargreiðslna. Inná meb Ólaf og Svavar! Nú styttist í landsfund Alþýðu- bandalagsins og þar með formanns- kjörið í flokknum, sem ýmsir voru búnir að spá að yrði pólitískur sum- arsmellur fyrir Alþýðubandalagið. Slík spá byggði á langri reynslu af slagsmálum hjá Allaböllum þar sem forustukreppur og ágreiningur milli manna hefur jafnan verið afar líf- legur og slegið út allar sápuóperur sjónvarpsstöðvanna að Dallas með- töldu. Öll hin stórkostlegu tímamót Þaö hefur ekki síst gustað í kring- um Ólaf Ragnar Grímsson, sem nú er formaður á síðasta söludegi og verður að draga sig í hlé sem for- maður. Hin miklu „þáttaskil mann- kynssögunnar" og „stórkostlegu tímamót", sem Ólafur Ragnar talar gjarnan um að séu að verða þegar hann tilkynnir fréttamönnum hvab hann ætlar ab gera, virðast horfin úr starfi Allaballa og í staö heimssögulegra viöburða annan hvern dag gerist nánast ekki neitt. Það eru bara tóm leiðindi lítilfjör- leikans, sem virðast koma frá Alla- böllum núorðið, og formannsslag- urinn er svo lítilfjörlegur og lág- reistur ab fréttastofur fjölmibla segja frekar frá aðsókn á einhverjar málverkasýningar en að búa til fréttir af formannskosningunum. Það segir sína sögu, að þegar Garri ætlabi að brydda upp á um- ræbum um málið í sundi í gær, sögðu pottfélagarnir allir sem einn: „Hvaða formannsslag?" Það hefði enginn sagt, ef þeir Svavar og Ólaf- ur Ragnar væru enn að takast á. Það virðist því ekki blása byrlega GARRI fyrir nýrri forustu hjá Alþýðu- bandalaginu og menn eru jafnvel þegar farnir að velta fyrir sér hvort þab ætli sér að verða feluflokkur, þannig að ekki verði einungis spurt „hvaba formannsslagur?" heldur líka „hvaða Alþýðubandalag?" Ab hleypa lífi í slaginn Garri á erfitt með að trúa því að Allaballar með alla sína sögu hressi- legs ágreinings, sundrungar og átaka muni láta það henda sig aö lognast út af í lognmollu og bein- línis deyja úr leiðindum. Það verður því ekki hjá því komist öllu Iengur að þeir Svavar og Ólafur skipi sér opinberlega í lið sinn með hvoru formannsefninu og hleypi þannig almennilegu lífi í slaginn. Menn fengu forsmekkinn af því hversu miklu meira f jör það væri, ef gamalgrónir foringjar létu aðeins af þessu yfirþyrmandi hlutleysi sínu, þegar Einar Karl Haraldsson var í sumar sagður hafa stutt Margréti sérstaklega. Alveg um leið gaus upp fjörið og formannskjörið varð að stórmáli í hugum almennings og flokksmanna og enginn fjölmiðill tíundaði aðsókn að málverkasýn- ingum á meðan. Garri vill því skora á hinar grón- ari kempur, Svavar og Ólaf Ragnar, að láta af afskiptaleysinu og fara að beita sér. Það er brýnt að bjarga þessum fornfræga flokki frá því að deyja úr leibindum. Útaf með hlut- leysið, inná með Ólaf og Svavar! Garri Stjórn Húsnœöisstofnunar 7 994. Myndin er úr ársskýrslu Húsnœöismálastjórnar. Jón og sérajón Það er að sannast aftur og aftur að orð Þorgeirs Ljósvetningagoða á Alþingi vib kristnitökuna fyrir tæpum þúsund árum eru ódauð- leg: Ef vér slítum í sundur lögin, þá slítum vér og í sundur friðinn. Á þessu hafa þingmenn nú brennt sig á því að hafa samþykkt sérstök lög um skattalega meöferð á hluta sinna tekna, lög sem eru öðruvísi en þau lög sem almennt gilda í þjóðfélaginu. Það hefur heldur ekki staðib á því að með þessu hafi friðurinn verið slitinn í sundur, eins og útifundurinn á Ingólfstorgi í gær vitnar um. En svo virðist sem víbar séu lögin slitin í sundur, þó það hafi ekki farið hátt — trúlega til þess að slíta ekki í sundur fribinn. Fjárdráttur hjá Hús- næöisstofnun í ljös hefur komið að fyrir meira en ári varð starfsmabur Húnæðis- stofnunar ríkisins uppvís að fjár- drætti, sem er saknæmt atferli og refsivert og heföi því átt að vera meðhöndlað sem sakamál. Hús- næðisstofnun er sem kunnugt er ekki einkafyrirtæki, heldur opin- ber stofnun, og því er það ekki einkamál stofnunarinnar ef starfsmenn draga sér fé eða brjóta á annan hátt gegn hegningarlög- um. Stjórnendur stofnunarinnar virðast hins vegar ekki líta svo á, og telja að það sé þeirra að upp- götva, rannsaka, upplýsa og Á víbavangi dæma í sakamálum sem upp koma þar innandyra. Enda kemur nú fram í fréttum, að félagsmála- ráðherra eða félagsmálaráðuneyt- ib er ekki látið vita af því að stofn- unin fellur frá kæru á hendur manni, sem hafði dregið sér fé, en semur þess í stab vib sökudólginn um endurgreibslu fjárins á ein- hverjum tilteknum tíma. Þetta er einstök málsmeðferð, því almennt er bannað að stela peningum frá opinberum stofn- unum sem öðrum, og við slíkum stuldi liggja viburlög. Skoða sjálfir vinnufé- lagann Yfirmenn í Húsnæðisstofnun hins vegar hafa kosið að rannsaka meintan fjárdrátt sjálfir og ákveba með hvaba hætti mál fyrrum samstarfsmanns og félaga er af- greitt. Augljóslega ræður kunn- ingsskapur ferðinni, því i staðinn fyrir að meðhöndla málið eins og sakamál er farið meb það eins og einhverja útistandandi viðskipta- kröfu, sem mánuöum saman er í innheimtu! Málib verður síöan margfalt alvarlegra eftir aö stjórn- endur stofnunarinnar hafa tekið þann kost að ganga frá málinu í „kyrrþey". En þá kemur í ljós að það er miklu viðameira en menn töldu í upphafi og teygir anga sína mun víöar. Það er sjálfsagt að ríkisstofnanir njóti ríkulegs sjálfstæðis í starf- semi sinni og hvernig því fé er rábstafað sem í gegnum þessar stofnanir fer. Þab þýðir ekki að þessar stofnanir geti farið með þessa peninga eins og þeim sýn- ist, eða geti ákveðið að geðþótta hvort fjársvikamál séu með- höndluö sem sakamál eða tækni- legt innheimtumál. ítarleg stjórn- sýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á stofnuninni er því brýnt mál. -BG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.