Tíminn - 15.09.1995, Blaðsíða 9
Föstudagur 15. september 1995
WKfatririnnin
9
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
Kvennarábstefnu SÞ ab Ijúka:
Unnib hörbum höndum
ab endanlegri gerb Fram-
kvæmdaáætlunarinnar
Beijing, 14. september— Frá Sjöfn Vil-
helmsdóttur á Kvennará&stefnu Samein-
ubu þjóbanna
Nú er verið að ljúka næst síð-
asta degi ráðstefnunnar. Vinnu-
nefndir hafa skilað tillögum til
allherjarnefndar sem fer yfir oröa-
lag og „fínpússar" kafla Fram-
kvæmdaáætlunarinnar. Það
hanga enn inni nokkrir svigar, en
nú stendur yfir kvöldfundur hjá
allsherjarnefnd þar sem gengið
verður frá öllum svigum svo áætl-
unin verði tilbúin til afgreiðsíu á
morgun. Búist er við því að í það
minnsta 20 ríki geri fyrirvara við
einhverjar greinar áætlunarinnn-
ar.
Meðal þess sem eftirtektarverð-
ast er í Framkvæmdaátluninni má
nefna eftirtalin atriði:
1. Erfða- og eignaréttur kvenna
er viðurkenndur. Að vísu neita
mörg íslömsk ríki að tala um jafn-
an erfðarétt kynjanna þar sem
það stangast á við Kóraninn. Þrátt
fyrir fyrirvara margra íslamskra
ríkja þykir konum í þriðja heims
ríkjum þessi grein mikill sigur.
2. Greinin um sjálfsákvörðun-
arrétt kvenna varðandi barneign-
ir er ekki jafn afgerandi og margir
höfðu gert sér vonir um. I staðinn
fyrir að tala um rétt kvenna til að
ákveða barneignir (reproductive
right) er rætt um heilsu kvenna í
tengslum við barneignir
(reproductive health).
3. í samtölum mínum við ís-
lensku sendinefndina hefur kom-
Laun þingmanna einnig um-
deild í Þýskalandi:
Reyna stjórnar-
skrárbreytingu
Það er víðar en á íslandi sem tekj-
ur þingmanna valda deilum. í
Þýskalandi fá þingmenn nú um
11.000 mörk í iaun (u.þ.b. 500.000
ísl. krónur) á mánuði, en meðaltekj-
ur verkamanna eru um 4.000 mörk
(um 180.000 krónur). Þar hafa
þingmenn komiö sér saman um að
breyta stjórnarskránni þannig að í
henni verði ákvæbi um að laun
þingmanna eigi að miðast við laun
dómara. Reiknað er með aö um
aldamótin verði laun þingmanna
komin upp í u.þ.b. 16.400 mörk
taki þessar nýju reglur gildi, en
meðallaun verkamanna verði þá
tæp 5.000 mörk
í nýjasta hefti tímaritsins Der Spi-
egel er viðtal við Ulrich Klose, vara-
forseta þýska sambandsþingsins,
um launamál þingmanna og vænt-
anlega stjórnarskrárbreytingu. Þar
er hann meðal annars spurður að
því hvort hann hafi slæma sam-
visku út af því að nú séu þingmenn
í fyrsta sinn að breyta stjórnar-
skránni í eigin þágu. „Nei," segir
Klose. „Stjórnarskráin tryggir þing-
mönnum hæfileg laun sem tryggja
sjálfstæði þeirra. Hingað til voru
fjölmiðladeilur um þetta á hverju
einasta ári. Nýja lausnin gerir öllum
kleift að skilja launamálin."
Ennfremur segir hann í viötalinu:
„Við gerum þetta ekki í okkar þágu,
heldur þingsins. Þetta olli þinginu
miklu meiri skaða vegna gagnrýn-
innar sem reis á hverju ári. Fjöl-
miðlar, þar á meðal Der Spiegel,
áttu þar verulegan hlut að máli. Ég
segi það í fyllstu einlægni, svona
getur þetta ekki gengið lengur."
Byggt á Der Spiegel
Umdeild nýjung á svaladrykkjamarkaönum í Bretlandi:
Afengir gosdrykkir koma
unglingunum á bragbib
Nýr gosdrykkur, sem nefnist
Cola Lips og er að bragði og
útliti Iítt frábrugöinn kóki og
pepsí, hefur vakið reibi
margra foreldra og kennara í
Bretlandi, auk annarra sem
láta sig áfengisdrykkju ung-
Iinga varba. Cola Lips er
nefnilega ekki eins saklaus
drykkur og hann lítur út fyrir
ab vera, því áfengismagnib í
honum er 5%.
Cola Lips er ekkert einsdæmi,
því undanfarið hafa verið að
koma á markaðinn í Bretlandi
nýir svaladrykkir af ýmsu tagi,
sem allir eiga það sameiginlegt
að vera áfengir. Og má það telj-
ast all nokkur nýlunda þegar
um gosdrykki er að ræða.
Auk Cola Lips og annarra gos-
drykkja hafa komið á markaö-
inn ýmiskonar svaladrykkir
með ávaxtabragði. Einn þeirra
er MD 20-20 sem er 13,1%
áfengt og er til með ýmsum
bragðtegundum, svo sem ap-
pelsínubragði, kiwi- og sítrónu-
bragði, jarðarberjabragði og
kirsuberja- og bananabragði.
Gosdrykkirnir hafa þó náð
mestum vinsældum þessara
nýju áfengu drykkja, en það
voru Ástralir sem fundu fyrst
upp á því að framleiða áfenga
gosdrykki Ein tegundin er
Hooch, og seldust af henni 2
milljónir flaskna á hverri viku
yfir sumartímann þegar heitast
var rveðri. Sumir kráareigendur
hafa þó neitað því að selja
áfenga gosdrykki vegna þess að
þeir telja að með því sé verið að
hvetja ungmenni til drykkju.
Áfengisvarnarsamtök hafa
varað vib því ab þessir nýju
drykkir komi unglingum og
jafnvel börnum á bragðið miklu
fyrr en góöu hófi gegnir, og
kennarar hafa skýrt frá því að
allt niður í 11 ára börn hafi
mætt í skólann greinilega undir
áhrifum áfengis.
Mark Bennett er talsmaður
samtakanna Alcoholic Conc-
ern, og hann sakar framleiðend-
ur hinna áfengu svaladrykkja
um að vera vísvitandi að höfða
sérstaklega til ungmenna. „Þess-
ir drykkir fela áfengisbragðið og
gera það sætt. Hugmyndin virb-
ist vera sú að ná til unga fólks-
ins eins fljótt og hægt er. Þetta
er mjög siðlaus afstaða," segir
hann. Hann telur ab ungling-
arnir drekki þessa nýju drykki á
sama hátt og hvert annað gos,
bæði hratt og í miklu magni.
Sumir unglingar viröast ekki
einu sinni gera sér grein fyrir að
um áfenga drykki sé að ræða.
Kennarasamtök halda því
fram að þetta sé þegar orbib
töluvert vandamál, og fari vax-
andi.
Hugmyndin að bæta áfengi í
hefðbundna svaladrykki kvikn-
abi í kjölfarib á því að rann-
sóknir sýndu fram á að margir
unglingar drekka miklu minna
áfengi en foreldrar þeirra. Það er
nokkuð algengt ab áfengi sé
ekki á boðstólum í vinsælum
næturklúbbum . og partíum,
jafnvel þótt eiturlyf á borð við
alsælu og kannabisefni séu þar á
hverju strái.
Cola Lips er framleitt af The
Lancaster Group og hafa tals-
menn fyrirtækisins vísað þeirri
gagnrýni á bug ab með fram-
leiðslunni sé einkum verib ab
höfba til ungmenna: „Viö höf-
um tekiö þab skýrt fram í heild-
sölunni að þetta sé áfengur
drykkur og getum því ekki séb
ab um neitt vandamál sé ab
ræöa."
Byggt á The Sunday Times
ið fram ánægja með menntunar-
og heilsukaflana í Framkvæmda-
áætluninni. Þar kveður á um rétt
stúlkna og kvenna til menntunar
og uppfræðslu. Sérstaklega ríkir
mikil ánægja meb greinar sem
kveða á um rétt stúlkna og
kvenna um kynfræðslu, smitleiðir
alnæmis og getnaðarvarnir. Það
tókst aö koma þessum atriðum í
gegn þrátt fyrir mikla andstöðu
strangtrúaðra ríkja (bæði ís-
lamskra og kristinna).
Yfirlýsing rábstefnunnar virðist
ætla að verða útþynnt plagg, ekki
jafn róttækt og afgerandi og
Framkvæmdaáætlunin. Hafa því
heyrst raddir um að sum vestræn
ríki ætli ekki að samþykkja yfir-
lýsinguna. Þykir mörgum sem
engin yfirlýsing sé betri en út-
þynnt yfirlýsing, en verði niður-
staðan sú að ekki náist samstaða
um yfirlýsingu ráðstefnunnar er
það ekki nýtt í sögu alþjóðlegra
ráðstefna SÞ.
Rétt í þessu var verið að til-
kynna seinkun á lokafundi alls-
herjarnefndar, en það er sú nefnd
sem fer yfir alla kafla áætlunar-
innar. Komið var að því ab ræba
greinar sem kveða á um rétt ein-
staklinga til kynhneigðar (sexual
orientation), sem felur þá í sér rétt
til samkynhneigðar. Þessar grein-
ar fara fyrir brjóstið á mörgum
íslömskum ríkjum, og einnig
strangkaþólskum ríkjum.
Þess hefur verið beðið með
nokkurri eftirvæntingu hér að
þessi atriði verði tekin fyrir, þar
sem vinnunefndum hefur ekki
tekist að ná samkomulagi um
þau. Þykja þessar greinar mjög
róttækar og hefur ekki áður verið
minnst á þessi réttindi í sáttmál-
um og yfirlýsingum Sameinuðu
þjóbanna.
Framhaldsfundurinn hefst kl.
23.00 og stendur því fram á nótt,
en ráðstefnunni sjálfri lýkur á
morgun. ■
Aldrabur Bosníu-Serbi
hvílir sig stutta stund skammt frá bœnum Banja
Luka í norburhluta Bosníu. Hann er einn þeirra sem eru á flótta undan hersveitum múslima og Króata sem hafa
sótt hart fram ívestur- og miöhluta Bosníu og náö verulegu landsvœöi á sitt vald. Allt aö 50.000 Bosníu-Serbar
þurftu aö yfirgefa heimili sín í kjölfar innrásarinnar. Sameinuöu þjóöirnar og alþjóölegar hjálparstofnanir hafa
heitiö því aö veita sem svarar tœpum fjórum milljöröum íslenskra króna til aö aöstoöa júgóslavíu, sem nú sam-
anstendur aöeins af Serbíu og Svartfjallalandi, viö aö taka á móti serbneskum flóttamönnum sem streymt hafa
undanfariö frá Króatíu og Bosníu. Reuter