Tíminn - 19.09.1995, Blaðsíða 10

Tíminn - 19.09.1995, Blaðsíða 10
10 Þribjudagur 19. september 1995 Þögnin í æöinu Hlýlegt samband febgina: Þröstur Leó Cunnarsson og Bergþóra Aradóttir í„ Tár úr steini". Tár úr steini Leikstjóri: Hilmar Oddsson Framleibandi: jóna Finnsdóttir Handrit: Hilmar Oddsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Sveinbjörn I. Baldvinsson Tónlist: jón Leifs og Hjálmar H. Ragnars- son Kvikmyndataka: Sigurbur Sverrir Pálsson Hljób: Kjartan Kjartansson Leikmynd: Sigurjón jóhannsson Aballeikarar: Þröstur Leó Cunnarsson, Ruth Ólafsdóttir, Bergþóra Aradóttir, jó- hann Sigurbarson og Benedikt Erlings- son. Glymjandi, hrollvekjandi tónar í samspili við æsilega kvikmynda- töku og stórskorna náttúru er aðall myndarinnar Tár úr steini. Best tekst til þegar hvissið í nótnaskriftinni, tónlistin í hlustun- um og náttúran upphefur læti á tjaldinu og skynhræringnum tekst að framkalla gæsahúð á áhorfanda þannig að hann sogast inn í gjöm- inginn. Sem verður enn magnaðri vegna þess hve umgjörðin — leik- mynd, búningar, filterar, kvik- myndataka og val á sjónarhornum — er geysilega vel unnin. Þó voru sjávarföllin helsti oft notuð og það hefði gjarnan mátt sleppa þeim sek- úndum sem íslenskur hver fékk til að gjósa, en haföi að öðru leyti eng- in tengsl við þau atriði sem fóru á undan og eftir. Myndin hefur ákveðinn og sér- stakan myndstíl, sem rímar einkar vel við efnið, þ.e. baráttu tónskálds við tónana og þá sem völdin hafa í stórsölum sem hýst geta hljómsveit af þeirri stærðargráðu sem tónverk Jóns Leifs þurfa til að njóta sín. Myndin gerist í Þýskalandi nasism- ans og nasistarnir stjórna því hverj- ir fá að flytja sína tónlist opinber- lega. Jón gengst undir ok nasist- anna til þess eins að koma tónlist sinni af blaði og út í loftiö (og síðar reyndar til að koma fjölskyldunni úr landi) við litla hrifningu konu sinnar, sem var gyðingur. Sorgar- sögu gyöinga í seinna stríði þekkj- um við öll æði vel, m.a. fyrir tilstilli KVIKMYNDIR LÓA ALDÍSARDÓTTIR kvikmynda sem hafa valdið því að gyðingar sem Fórnarlömb eru nán- ast orðin föst stærð í huga margra og það er Hilmari til lofs hvernig hann tekur allt öðrum hönskum á þessu máli. Lítið er af statistum og þar sem myndin hverfist einkum um tónlistaráhuga þeirra hjóna og f jölskyldulíf, veröur þarna fyrir okk- ur hversdagslegt líf aría og gyðings, sem eiga í basli með að samræma li- stáhuga sinn vegna þess að kastljós- ið skín skærast á konunni. Þau eiga erfitt með að komast áfram í sínum karríer vegna ytri og innri aðstæðna og því erum við umfram allt að horfa upp á Manneskjur á stríðs- tímum, en ekki búka sem farið er illa með. Sprunginn pottur Myndinni er m.a. annars ætlað að grafa upp ræturnar að tónsmíð- um Jóns Leifs og skýra út fyrir tón- listarunnendum nútímans hvaðan músík hans er ættuð. Eftir áherslum myndarinnar að dæma er hún sprottin af skapmikilli náttúru ís- lands og svo virðist hún líka eiga aö sækja sér líf í tilfinningaleg átök innan fjölskyldunnar. En það er hinn meinti tilfinn- ingalegi suðupottur sem er víða sprunginn í myndinni. Það er sam- band Jóns og konu hans Annie Ri- ethof Leifs, sem og samband Jóns við yngri dóttur sína Líf (sem hann vildi að yrði sonur), sem á að bera uppi tilfinningalíf myndarinnar. En ástríkt samspil næst ekki milli hjónanna, ástin og lostinn nær ekki flugi. Þau virðast lifa tvö einangruð hvort í sínum heimi þar sem tón- listin er efst í forgangsröðinni. Hjónabandið er sambúð misskilda snillingsins og viðurkennda pían- istans, sem er annars vegar þögul og hins vegar blandin öfund. Jafnvel í því glæsilega atriði þar sem þau hjónin spila saman á píanó lagið við vísur Vatnsenda-Rósu skynjar maður ekki ástarhrif þeirra á milli, heldur sameiginlega ást þeirra á músíkinni. Atriðið var, að þessu undanskildu, virkilega sterkt og er- ótísk myndbeitingin kom senunni til skila á afar líkamlegan hátt. En þó senan hafi verið seiðandi og kraftmikil, þá náði hún ekki inn í persónurnar og gat því ekki orðið sá hápunktur á sambandi þeirra sem henni hefur líklega verið ætlað, því þar á eftir segja ytri uppákomur okkur þaö að nú dragi til skilnaðar. En skynjunin segir okkur ekkert slíkt, því þarna var ekkert til að kólna, það var kalt frá upphafi til enda. Sem sést best í lokaatriðinu þar sem skilnaður hjónanna hefur enga vigt, en skilnaður feðginanna er sársaukafullur. Beiskja gagnvart umheiminum Að mínum dómi nær Þröstur Leó ekki að sannfæra áhorfand- ann um aö þarna sé fljúgandi snillingur á ferð með fullkomið öryggi í farteskinu um að tónlist hans sé þess verð að ná eyrum samtímamanna sinna. Og telja verður að Jón Leifs hafi verið viss í þeirri sök, þar sem hann hélt tónsmíöum sínum áfram án þess að samtíðin styddi við hann. Túlkun Þrastar á Jóni er ansi ein- hliða og munnsvipurinn er hertur saman í beiskju gagnvart um- heiminum nánast alla myndina út í gegn. Stundum er biturleik- inn viðeigandi, en hann skilar litlu til áhorfenda í þeim mæli sem hann er sýndur í myndinni. Einnig hefði mátt kenna honum að beita tónsprotanum þannig að leikmaður eins og undirrituð gæti í þaö minnsta þótt hann líklegur til þess að vera að stjórna stór- hljómsveit. Ruth Ólafsdóttir var trúverðug í hlutverki píanistans og listakonunnar, en líkt og hjá Þresti geislar hún heldur takmark- aö af ást til ektamakans. Ást þeirra er steinrunnin og gefur ekki til- efni til aö ætla að Jón hafi getað notfært sér hana í tónsmíöum sínum. Samband Lífar og Jóns var innilegt og áttu þau mjög skemmtilegan samleik þegar Jón segir henni söguna af tröllatárinu sínu, Iukkusteininum. Hlutverk Snótar er lítið sem ekkert, en hún öðlast helst tilverurétt með því að gæta yngri systur sinnar. Af öðr- um aukaleikurum má nefna með- limi áhugamannahljómsveitar- inriar í skemmtilegum senum. Einnig var tengdapabbi Jóns, sem síðar lenti í gasklefanum, sympa- tískur og sannfærandi stoltur fað- ir, og Benedikt Erlingsson, sem lék skrifstofublók nasista, var skemmtilega útsmoginn í ný- fengnum völdum sínum. Sumt tel ég hafa farið miður í þessari mynd, eins og lýst er hér að ofan, en annað var einstaklega vei gert. Flottar jarögular myndir þar sem hvert einasta smáatriði innan rammans fellur hvert að ööru og skapar með því afar sér- stæðan myndstíl. Fáir leikarar, fá- ort handrit, þrumandi tónlist og óvænt sjónarhorn er bæði kostur og galli myndarinnar. Þögnin í samskiptum persóna leiöir til kulda milli Þrastar og Ruthar, en á stundum of hugljúfrar líkams- tjáningar milli Þrastar og Berg- þóru (Lífar). í raun er það þó kuldaleg þögnin mitt í æðis- gengnum hávaðanum sem skapar myndinni frjósama sér- visku. 75 ára: Jón M. Gubmundsson Reykjum Á 25 ára vegferð minni með hestamótum á íslandi hefur mér oft þótt kappreibadómnefndirn- ar eftirtektarverðar. Jafnan valdir í þær einstaklingar, sem allir bera traust til og svo fylgnir sér af sannfæringarkrafti, að ofur- mennum knapastéttarinnar var fullljóst, að ekki þýddi að deila við dómarann. Menn á borð við Jón á Reykjum, Hjalta Pálsson, Svein K. Sveinsson, Sveinbjörn Dagfinnsson, Harald Sveinsson og Svein Guðmundsson. Þessir menn lulcu upp lausnarorðinu: sjónarmun á undan. Annars þekkti ég Jón á Reykj- um löngu ábur en ég sá hann. Ein af hcimasætum Grímsnes- inga, Ingibjörg á Hömmm, hafbi nefnilega farið í læri til hans í ali- fuglaræki Seint og snemma gat stóraristói a tí Grímsnessins glaðst við >á tilhugsun ab heima- sætan fa: æti við smásjána og kíkti í pútíiarassa til að ákvarða varphæm -ða bara ómerkilega hana. Ei ; fór mörgum sögum um frekari örlög hananna eftir kyngreininguna, en þar sem ég kófsveittur stakk upp moldar- barð fyrir varphænurnar á Orms- stöðum, varð þetta mér nokkurt umhugsunarefni um aðstöðu- mun kynjanna í henni veröld. Með auknu veraldargengi eignaðist ég hest og reiö náttúr- lega uppab Reykjum til þess að fá járnað. Þá opinberaðist mér hin undursamlega hrossarækt þeirra feðga með öllum sínum frægu nöfnum. Þá var heldur ekki í kot vísaö fyrir sælkera að knýja þar dyra, með allri þeirri stórkostlegu framleiðslu sem þar á sér stað. Af þessum og mörgum öðrum ástæbum hafa ferðirnar að Reykj- um orðið margar. Alltaf fengið einstaka úrlausn mála. Það er ekki af engu, sem hib fagra byggðarlag Mosfellsbær hefur dafnað svo og stækkað sem raun ber vitni. Eitt sinn sem oftar reib ég noröur í Skagafjörð á Landsmót og í þetta sinn meö Harðar- ARNAÐ HEILLA mönnum með 150 gæðinga. Far- arstjóri var Guðmundur á Reykj- um, sonur Jóns. Aðstoðarfarar- stjórar vom Hreinn í Helgadal og elsti sonur undirritaðs, með merka kortamöppu á maganum. Á Haukagilsheiðinni snarvilltist allur hópurinn og stefndi beint uppá Mælifellið með alla hest- ana. Þegar vemlega fór að verða á fótinn, stóppaði hersingin og skotið var á fundi. „Við fömm þangað," sagöi Guðmundur, sem er höfðinu hærri en flestir og rétti upp hendina. Þetta var nátt- úrlega lausnarorbið, enda hafa fomstuhæfileikar ættarinnar greinilega erfst og Guðmundur orðinn formaður LH. Sumir em þó enn ab reyna ab átta sig á, hvert puttarnir á hendi Guð- mundar sném við dómsupp- kvabninguna, en átta sig þó frek- ar á því í „tidens löb", að hesta- mennskan á það sammerkt með pólitíkinni, að vera list hins mögulega. Með helstu snillinga veraldar- innar í hreppnum, Egil Skalla- grímsson og Halldór Laxness, hefur Jón ekki farið varhluta list- fengis. Hann er með yndislega og volduga baritónrödd, sem hljómab hefur í útvarpinu og í öllum helstu kórum landsins, frá kirkjukómm að telja til Karlakórs Reykjavíkur og Stefnis. Er hann náttúrlega heiðursfélagi í þeim öllum og gullberi. Jón er af Víkingslækjarætt og Svefneyjaætt, en faöir hans var hinn þekkti togaraskipstjóri, Guðmundur á Reykjaborginni, sem m.a. stundabi fiskveiðar í Barentshafi. Jón lætur sér mjög annt um landsins gagn og nauð- synjar, er þrælpólitískur, en met- ur alla menn ab verðleikum. At- gjörvi hans er staðfesting þess, að víkingaþjóðin stökk hæö sína í öllum herklæðum og fann Amer- íku. A merkisdegi óska ég velgjörö- armanni mínum og fjölskyldu hans innilega til hamingju. Megi andi brautryðjandans ljóma þér áfram, hljómur sólskríkjunnar fylla loftin og gæðingsins tök veita þér unað. Guðlaugur Tryggvi Karlsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.