Tíminn - 29.09.1995, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.09.1995, Blaðsíða 5
Föstudagur 29. september 1995 WWMWU 5 Ægir Ceirdal: Höfundur meb eitt sköpunarverka sinna. annig var lítil stúlka vön aö spyrja ef henni blöskr- aði eitthvað. Það hefur sannast nú á síð- ustu dögum að þegar horft er á stjórnvöld þessa lands með aug- um barnsins, þá blasa við nýju fötin keisarans, jafn gegnsæ og í sögu H.C. Andersens, og það er ekki fögur sjón. íslenskur almenningur er seinþreyttur til vandræða og erfitt að ímynda sér að hann hífði sjálfan sig upp af rassgat- inu og svaraði kallinu, eins og frönsk alþýða gerði: „Allir að götuvígjunum!" Þó virðast þeir tímar vera að koma, því stjórn- völd virðast staðráðin í því að fótumtroða allt, sem almennir borgarar þessa lands telja satt og rétt. Þrátt fyrir hverja þjóðar- sáttina á fætur annarri, milli þríveldanna í þjóðfélaginu, vega stjórnvöld aftan að at- vinnurekendum og launþegum, æ ofan í æ. Það stjórnvald, sem almenn- ingur hefur hvað mest sett traust sitt á, Alþingi íslendinga, veður nú fram með rýtinginn á lofti og heggur á báða bóga. Þegar löggjafarsamkunda þjóð- arinnar tekur upp á því að setja sig ekki skör ofar, heldur mörg- um skörum ofar öllum öðrum í þjóðfélaginu, þá er von að mað- ur spyrji: Er ekki allt alveg í lagi? Alþingismenn börðust fyrir sæti á þingi og var sú barátta ansi illvíg hjá sumum. Þegar síðustu atburðir eru skoðaðir í ljósi þess, þá er það engin furða, það er eftir einhverju að slægj- ast. Alþingismenn hafa oft á tíð- um grátið úr sér augun yfir hin- um afskaplega bágbornu kjör- um sem þeir hafi í samanburði við aðra í þjóðfélaginu. Það er enginn að fárast yfir því að 'al- þingismenn hafi góð kjör, en þeir hafa skuldbundið sig að sjá til þess að aðrir í þjóðfélaginu hafi þaö líka. Gamalt máltæki segir: „Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það." En fólkið í landinu getur hvorki né vill haga sér svona. Það vill aöeins sanngirni, réttlæti og heiðar- leika þeirra sem eiga að hugsa um hag þess. Bundinn á klafa atvinnuleysis, kúgunar og ofrík- is er almenningur afskaplega auðsærður og er mál að linni. Afskaplega vinsælt er hjá stjórnvöldum, þessa síðustu og verstu tíma, að tala um að velja íslenskt, efla íslenskt hugvit, styðja við íslenskt frumkvæði, sækja ísland heim. Auðvitað er það gott og blessað og almenn- ingur hefur reynt að verða við þessum tilmælum. Undirritaður var svo barnalegur, eins og fleiri, að halda að þetta ætti við stjórnvöld líka. Allskonar sjóðir í eigu ríkisins hafa auglýst mjög fjálglega að þeir óski eftir að komast í samband við þá sem vilja sýna frumkvæði, hafa hug- vit og hugmynd, sem hægt sé að vinna úr og gæti verið at- vinnuskapandi. Margir hafa fallið í þessa gildru og gengið með frumkvæði sitt og hugvit á fund þessara sjálfumglöðu herra, sem virðast líta á þetta sem leik. Vissulega er þetta leik- ur og hann af ljótara taginu. Þegar maður tekur sig til, í góðri trú, eftir 4 ára þróunarstarf þar sem reynt er að efla íslenska hugmynd, sýna fram á íslenskt VETTVANGUR „ Vissulega er þetta leikur og hann afljótara tag- inu. Þegar maður tekur sig til, í góðri trú, eftir 4 ára þróunarstarf þar sem reynt er að efla íslenska hugmynd, sýna fram á íslenskt frumkvœði og alltafmeð það að leiðar- Ijósi öll þessi ár að sú af- urð mœtti verða sem flestum til góðs, þá býst maður við að það sé rœtt við mann á faglegum nótum." frumkvæði og alltaf með það að leiðarljósi öll þessi ár að sú af- urð mætti verða sem flestum til góðs, þá býst maður við að það sé rætt við mann á faglegum nótum. Iðnþróunarsjóður fékk verk- efni mitt í hendurnar og þetta er íslensk hugmynd, íslenskt lagi? frumkvæði, íslensk afurð úr ís- lensku hráefni og hugsaö til þess að skapa íslenska atvinnu sem víðast á landinu. Iðnþróun- arsjóður gerir þá kröfu að verk- efni, sem hann taki að sér, skili arðsemi, það var sýnt fram á það. Hann gerir þá kröfu að þeir hafi umsjón með verkefninu, það var í lagi. Hann fer fram á að eiga aðild að stjórn verkefn- isins, ekkert mál. Afurðin þarf að geta verið til útflutnings, hún getur það. Afurðin þarf að koma í stað innfluttrar vöru, ekkert vafamál. Iðnþróunar- sjóði líst svo vel á þetta að hann þiggur eintak af framleiðslunni að gjöf og stillir því stoltur á besta stað á skrifstofunni. Þegar haft er samband eftir tæpan hálfan mánuð er um- sókninni hafnað, engin skýring. Það kom enginn að skoða verk- efnið í heild sinni eða ræða það eitthvað nánar ef eitthvað gæti farið betur. Undirrituðum var sagt að enginn væri spámaður í sínu föðurlandi og hlegið um leið og honum var bent á það að endilega að leita eftir aðstoð og fyrirgreiðslu erlendis, ef hann gæti. Það er ekki allt alveg í lagi! Höfnun er enganveginn mælikvarði á þína hæfileika, heldur getuleysi þeirra sem eiga að fjalla um þá. Alltof margir halda að draumar þeirra deyi vegna þess að þeir geti ekki nóg. Það er ekki satt, þeir deyja vegna getuleysis þeirra sem fjalla um þá. Þeirra stjórnvalda sem ekki aðeins skapa atvinnu- leysi, stunda kúgun og sýna of- ríki, heldur klykkja út með fyrir- litningarhlátri þegar þú í góðri trú berð drauma þína á borð. Við, sem erum dreymendurn- ir í þjóðfélaginu og dreymum aðeins í þágu heildarinnar, biðj- um aðeins um að vera sýnt rétt- læti, sanngirni og heiðarleiki. Það er hægt að berja augum afurð þessa 4ra ára þróunarverk- efnis í sýningarglugga verslunar Hans Petersens h.f. í Kringl- unni, þar sem aðeins 6 hlutir af 500 eru til sýnis. Höfundur er verkamabur og listamabur. Hvort fer hér um Gróa á Leiti eöur ei? Svo er almættinu fyrir að þakka að ekki er öll vitleysan eins. Þvert á móti, vitleysa mannanna er fjöl- breytileg og í hæsta máta litskrúð- ug. Eitt dæmi þessa er söfnunin „Samhugur í verki", eða réttara sagt úthlutun þeirra tæpu þrjú- hundruð miljón króna sem söfn- uðust. Ég gerði þetta söfnunarklúður að umræðuefni í spjalli mínu þann 7. júlí s.l. Við þeim skrifum fengust engin viðbrögð frá söfn- unarstjórninni, hvað sem því olli. Nokkrum vikum síðar (3. ágúst s.l.) skrifaði Ragna Aðalsteins- dóttir, bóndi á Laugabóli, grein í Morgunblaðið. Vandaði hún sjóðstjórninni ekki kveðjurnar úr hófi fram. Nú brá svo við, að Mogginn sá ástæðu til að leita álits fyrrver- andi og núverandi sveitarstjóra Súðavíkur og fulltrúa Þjóðkirkj- unnar í söfnunarnefndinni á grein Rögnu (10. ágúst s.l.). Því ber að fagna, enda jafnan ánægjulegt þegar nátttröll rumska. Hér skulu orð sveitarstjóranna látin liggja milli hluta að sinni. Þar í móti er vert að fara nokkrum orðum um það sem haft er eftir kirkjuþjóninum Jónasi Þórissyni. í því sambandi verða lesendur að hafa það hugfast, að eftir því sem best er vitað, var engu söfnunarfé ráðstafað fyrr en þeir, sem af því þáðu, höfðu undirritað þagna- reið. í því felst, að þeir geta ekki upplýst nokkum mann um það, hve mikið fé þeir fengu, eða hvort einhver skilyrði lágu þar að baki, án þess að gerast eiðrofar. Það er rannsóknarefni út af fyr- ir sig, ef slíkar eiðtökur hafa átt- sér stað og það fáum vikum eftir snjóflóðiö, þegar a.m.k. þeir, sem fyrir ástvinamissi höfðu orðið, gátu vart verið í ástandi til að meta þýðingu slíks eiðs. Og til hvers þagnareið? Var sjóðstjórnin fyrirfram viss um, að hún mundi hafa einhverju að leyna? Og þá hverju? Eftir þeim heimildum sem ég hef, voru það aðeins þiggjendur söfnunarfjárins sem undirrituðu þagnareiðinn. Það breytir tæpast því, að sjóðstjórnin er einnig undir þann sama eið seld. Liggur það ekki í hlutarins eðli? Nú bregður svo undarlega við að í Morgunblaðinu, þann 10. ág- SPJALL PjETUR < HAFSTEIN LÁRUSSON úst, tekur Jónas Þórisson eitt fórn- arlamba'umræddra hörmunga út úr hópnum og nefnir það sérstak- lega, sem dæmi um þá sem „hafa fengiö mjög góðan stuðning úr sjóðnum, eins og allir sem til þeirra þekkja geta séð og greint, en við munum hins vegar aldrei nefna neinar upphæðir í því sam- bandi. Menn ættu frekar aö spyrja viðkomandi um hvað þeir fengu." Svo mörg voru þau orð! Með því að nefna umrætt fórn- arlamb snjóflóðanna sérstaklega gerist Jónas Þórisson eiðrofi, þ.e.a.s. sé meintur þagnareiður staðreynd og sá skilningur minn réttur, að hann gildi þá á báða bóga. Þann skilning virðist Jónas raunar einnig leggja í meintan eið, sbr. orð hans „við munum hins vegar aldrei nefna neinar upphæðir í því sambandi". Þó er líkt og kirkjuþjónninn vilji hafa vaðið fyrir neðan sig, þegar hann hvetur áhugasama til að grennsl- ast fyrir um það hjá styrkþegum, hversu mikið fé þeir hafi þegið. En sé eiðurinn staðreynd, er Jónas Þórisson með þessari hvatningu sinni í raun að leggja að fólki, að það biðji styrkþega vinsamlegast að rjúfa þagnareið. Eiðar eiga sér trúarlegar rætur, án tillits til þess hverjum eða hverju þeir eru svarnir. Sé marg- nefndur þagnareiður annað og meira en hugarburður Gróu gömlu á Leiti, eru þau orð Jónasar Þórissonar, sem hér hefur verib vitnað til, lítt skiljanleg því fólki sem hlotið hefur þokkalegt upp- eldi í trúarlegum efnum, ekki síst í ljósi þess að maðurinn er þjónn kirkjunnar. Sé hér hins vegar um að ræða tilhæfulausar sögusagnir, ber að harma það. En úr þessu verður ab fást skorið með opin- berum yfirlýsingum sjóðstjórnar „Samhugar í verki" og einhverra úr hópi þeirra, sem nutu fjárhags- legs stuðnings af söfnunarfénu. ■ FÖSTUDAGS PISTILL ÁSGEIR HANNES ENGILSAXAR Á UNDANHALDI Pistilhöfundur heimsótti New York á frídegi verkalýðsins í Bandaríkj- unum og var boðið til Brooklyn á hátíbarhöld fólks frá eyjum í Kar- íbahafi. Þar héldu þrjár milljónir manna daginn heilagan og allar kolsvartar utan pistilhöfundur og Sigurður Hannes sonur hans. Þab var nú meira mannhafib og ekki nóg meb þab: Á öbrum stab í borginni stigu íbúar frá rómanska hluta álfunnar dansa og á hinum þribja fólk af afrísku bergi brotib. Á þeim fjórba kættust innflytjendur frá Asíu og svo koll af kolli í millj- ónum manna talib og tugmilljón- um. Á sama tíma kvaddi svartur hers- höfbingi sér hljóbs og bobabi komu sína í Hvíta húsib í næstu kosningum, ef honum bybi svo vib ab horfa. Borgarstjórar í stærri borgum landsins eru þeldökkir menn og í kvikmyndum frá Holly- wood er ýmist hetjan eba besti vinur hennar dökkur á brún og brá. Vib landamærin bíba svo land- nemar frá þribja heiminum í löng- um röbum og þeir fjölga sér marg- falt hrabar en fólk af Evrópustofni. Milljónir innfluttra Bandaríkja- manna bera ekki lengur vib ab læra ensku og tala áfram gamla móburmálib sitt í marga ættlibi. Þetta er merkileg þróun og tím- anna tákn. Evrópuþjóbirnar námu land í Ameríku á eftir raubskinnum og Leifi heitnum heppna. Engilsaxar voru í fararbroddi þegar Bandarík- in fengu sjálfstæbi og kom í þeirra hlut ab móta stjórnarfarib í hinu nýja ríki. Bandaríkin hafa síban bú- ib vib betri kjör og meira frelsi en flestar þjóbir heims. Sömu sögu er ab segja af hagsæld hjá þjóbum Evrópu, Ástralíu og Afríku þar sem fólk af stofni Engilsaxa hefur rábib fyrir öbrum. Þar eru mannréttindi frekar virt en í nágrannalöndum og margs konar önnur réttindi. En hvab kemur okkur íslendingum þetta vib? Bandaríkjamenn hafa löngum verib okkar helsta vinaþjób og samskipti ríkjanna bæbi mikil og gób. Mikib er í húfi fyrir íslendinga ab treysta áfram vináttuböndin og að þau haldi um ókomin ár. Engil- saxar eru nú greinilega á undan- haldi í Bandaríkjunum og enginn veit hvaba sibir fylgja nýjum herr- um. Búast má vib ab nýir herrar líti sér nær í utanríkismálum og áherslur þeirra færist í vaxandi mæli yfir á þribja heiminn. Norbur- Atlantshafib og gamla Evrópa verba afskipt og þjóbir álfunnar koma sér betur saman fyrir bragb- ib. íslendingar eru áfram í mibju Atlantshafi og þeirra bíbur lykil- hlutverk á milli tveggja heima. Á sama hátt má vænta gífur- legra breytinga og nánast bylting- ar í þjóblífi Bandaríkjanna þegar Engilsaxarnir og fólk af öbrum Evr- ópustofni lendir í minnihluta. Missa þeir völdin um leib og þeir missa meirihlutann eba stjórnar hvítur minnihluti áfram þrátt fyrir öfug hlutföll? Spurningin er hvort hræsnarar á Vesturlöndum fordæma minni- hlutastjórn hvítra manna í Norbur- Ameríku á sama hátt og þeir of- sóttu kristib þjóbarbrot hvítra manna í Subur-Afríku?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.