Tíminn - 29.09.1995, Blaðsíða 9

Tíminn - 29.09.1995, Blaðsíða 9
Föstudagur 29. september 1995 TyT'f'TY^T 9 ND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . UTLOND . . . Bresk matvœlafyrirtœki stunda þaö aö minnka pakkningar án þess aö lcekka veröiö: Duldar verðhækkanir fara fram hjá neytendum I>ab er hægt ab hækka vöruverb á fleiri en einn hátt, jafnvel þannig ab fáir taki eftir því. Undanfarin tvö ár eba svo hafa matvæla- framleibendur í Bretlandi óspart notfært sér þá leib ab minnka nibursubudósir meb baunum og öbrum matvælum, án þess ab iækka jafnframt verbib á hverja einingu — sem í raun þýbir vit- anlega verbhækkun. Svo virbist sem Heinz hafi ribib á vabið árið 1993, þegar dósir meb bökuðum baunum voru minnkað- ar úr 450g í 420g, en verðið var áfram 29 pence. Bakaðar baunir eru mjög vinsælar í Bretlandi, fyrir- tækið selur meira en 500 milljónir dósa á ári sem er um 45% markaðs- hlutdeild í Bretlandi þar sem bak- aðar baunir eru seldar fyrir um 250 milljónir punda á ári hverju. Fáir virtust sjá ástæöu til ab gera athugasemd við þetta og Heinz fyr- irtækið hélt því ótrautt áfram á sömu braut: Súpudósir frá Heinz minnkubu úr 435g í 405g og minni gerðin af grænmetisdósum minnkaði úr 220g í 205g, vitanlega án nokkurra veröbreytinga. Ekki leið svo á löngu áður en önnur matvælafyrirtæki tóku að fylgja fordæmi Heinz. Crosse & Blackwell, sem er hluti af Nestlé kebjunni, minnkaði stærðina á súpudósunum frá sér úr 425g í 405g, án þess að lækka verðib. Og HP Foods minnkaði síðan dósir sínar meö bökuðum baunum úr 440g í 420g og pastadósirnar minnkuðu úr 425g í 410g. Og verb- ið var áfram óbreytt. Allt var þetta gert í kyrrþey, breytingarnar á stærð pakkning- anna voru ekki auglýstar og af því Hamashreyfingin viöur- kennir sigur Arafats: „Getum ekki stöðvaö þró- unina" Beirút — Reuter Fulltrúi Hamashreyfingarinnar, sem er hreyfing róttækra ís- lamskra Palestínumanna sem hafa verið andvígir friðarsamn- ingum Arafats við ísraelsmenn og sakað Arafat um svik við málstað Palestínumanna, lýsti því yfir skömmu áður en samn- ingur Palestínumanna og ísra- els var undirritaður í Washing- ton í gær ab ekkert gæti lengur komið í veg fyrir þá þróun sem átt hefur sér stað undanfarið. Hamas hreyfingin hefur staðið fyrir sprengjuárásum hvaö eftir annað til þess að koma í veg fyrir að málin þróist í þá átt sem Arafat hefur stefnt að. „Á heildina litið hefur Arafat sigrað andstæbinga sína," sagði Mustapha al-Liddawi, fulltrúi Hamas í Líbanon og sagði að palestínskir andstæðingar Ara- fats hefðu liðið fyrir það að vera ekki sameinaðir í eina sterka hreyfingu. „Friðarþróun- in er í samræmi við alþjóðlegan vilja og hún stöðvast ekki á næstu árum ... Þessi þróun er okkur ofvaxin en við þurfum þó ekki að örvænta ... Með hernaðaraðgerðum okkar get- um við tafib eitthvab fyrir henni," sagbi Liddawi. ■ að verðið breyttist ekkert í hillum verslana virtust fáir taka eftir hinni raunverulegu verðhækkun. Peter Franklin er járnbrautastarfsmaður frá Wolverhampton. Hann segist ekki hafa tekið eftir breytingunni þrátt fyrir að hann reyni að fylgjast vel með til ab geta gert sem hag- kvæmust innkaup. „Við verðum að láta hvert penní nýtast sem best þegar við kaupum inn og ef dósirn- ar eru að verða minni, þá eru það slæmar fréttir," sagði hann. í síöustu viku komu fram mót- mæli frá neytendum vegna þessara duldu verðhækkana, og lýstu margir yfir reiði sinni vegna þessa. Matvælafyrirtækin neita því samt sem áður að hafa fariö á bak við neytendur. Þau bentu á ab stærð dósanna er vandlega merkt á þær. Fáir neytertdur taka eftir því oð niöursuöudósirnar eru minni en áöur. Auk þess báru þau því við að stærð pakkninganna hefði verið minnk- uð til þess að aðlaga þær að evr- ópskum stöðlum, en viðurkenndu reyndar að þau væru ekki skyldug til að gera það samkvæmt neinum lögum. ■ Aðildarfélög Landverndar • Alþýðusamband íslands • Arkitektafélag íslands • Árnesingafélagið í Reykjavík • Bandalag íslenskra farfugla • Bandalag íslenskra skáta • Blaöamannafélag íslands • Búnaðarbanki íslands • Bændasamtök íslands • Dýraverndunarfélag Reykjavíkur • Félag eigenda sumardvalarsvæða • Félag íslenskra bifreiðaeigenda • Félag íslenskra búfræðikandidata • Félag landfræðinga • Félag íslenskra landslagsarkitekta • Félag íslenskra símamanna • Félag leiðsögumanna • Félag Þingeyinga í Reykjavík • Ferðafélag íslands • Framleiösluráð landbúnaöarins • Fuglavemdarfélag íslands • Garðyrkjufélag íslands • Garðyrkjuskóli ríkisins • Hagsmunafélag líffræðinema Haxi • Hiö íslenska náttúrufræöifélag • Hringrás • íslandsbanki • íslenskir ungtemplarar • íþróttasamband íslands • Jarðefnaiðnaður • Kaupmannasamtök íslands • Kennarasamband íslands • Kvenfélagasamband íslands • Kvenréttindafélag íslands Landssamband hestamannafélaga Landssamband íslenskra verslunarmanna Landssamband stangaveiöifélaga Landsvirkjun Landvarðafélag íslands Líf og land I* Líffræðifélag íslands I* Lionsumdæmið á íslandi Náttúruverndarfélag Suðvesturlands Pokasjóður Landverndar sem var stofnaður 1988 með samkomulagi milli fulltrúa verslunarinnar og Landvemdar, neyðist nú til að láta í minni pokann. Stjórn samtaka kaupmanna hefur ákveðið að hætta samstarfmu •NánúruvemdarsamtökAustunands í þeim tilgangi að fá fullkomin yfirráð yfir því fjármagni pokasjóðs •Náttúruvemdareamtöksuðuriands sem Landvemd hefur hingað til haft umsjón með. Almenningur vill að Landvernd sjái um úthlutunina Samkvæmt niðurstöðum Gallup könnunar frá í nóvember 1994* vill mikill meirihluti almennings að Landvernd sjái áfram urn ávöxtun þeirra peninga sem almenningur leggur til umhverfísvemdar með greiðslu fyrir burðarpoka í verslunum. Mikill árangur - einstök ávoxtun Á þeim tíma sem sjóðurinn hefur starfað, hefur um 100 milijónum króna verið úthlutað til um 400 umhverfís- og land- græðsluverkefna. Ætla má að mótframlag styrkþega í vinnu, efni, peningum og tækjakosti hafí numið um 400 milljónum króna. Samanlagt hafa þessi framlög því orðið að 500 milljónum króna! Fjöldi Landvemd 657 Alveg sama 50 5,9% Kaupmenn tZJEJi 1 ~TSfli% ' Landvemd er reiðubúin tíl frekara samstarfs Þrátt fyrir að samtök verslunarinnar hafí slitið samstarfínu er Landvemd öll af vilja gerð til áframhaldandi samvinnu á sviði umhverfis- og landgræðslu. Kaupmenn og kaupfélagsstjórar sem vilja halda áfram samstarfi við Landvemd em hvattir til að hafa samband við skrifstofu Landvemdar því mörg mikilvæg verkefni bíða úrlausnar. Með samstilltu átaki getur minni pokinn orðið stœrri pokinn á ný! : Landvemd Skólavörðustíg 25, 101 Reykjavík Sími 552 5242 Bréfasími 562 5242 * Náttúruverndarsamtök Vesturlands * Ræktunarfélag Norðurlands * Samband dýraverndunarfélaga íslands * Samband íslenskra bankamanna * Samband íslenskra sveitarfélaga * Samtök um náttúruvernd á Noröurlandi - SUNN * Skógræktar- og landvemdarfólag undir Jökli * Skógræktar - og náttúruverndarfélag Ólafsvíkur * Skógræktarfélag íslands * Slysavarnafélag íslands * Stangaveiðifólag Reykjavíkur * Starfsmannafélag ríkisstofnana * Ungmennafólag íslands * Útivist * Verkamannasamband íslands 4 o * Vestfirsk náttúruvemdarsamtök | Vinnuveitendasamband íslands 5

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.