Tíminn - 15.12.1995, Síða 16
Vebrtb (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Su&urland og Faxaflói: Allhvöss S- og SA-átt oq rigning fram eftir
kvöldi en síöan SV-stinningskaldi og snjó- eöa slydduél. Veöur fer kóln-
andi og í nótt og á morgun veröur hiti á bilinu 0-3 stig.
• Vestfiröir, Strandir og Nl. vestra: S-stinningskaldi eöa allhvasst og
víöa rigning fram eftir kvöldi en allhvöss SV-átt meö snió- eöa slyddu-
éljum i nótt. Hvöss SV-átt meö éljum á morgun. Veöur rer kólnandi.
• Nl. eystra: S-kaldi eöa stinningskaldi. Allhvöss V-átt, léttskýjaö til
landsins yfir daginn. Veöur fer kólnandi í nótt og á morgun veröur hiti
nálægt frostmarki.
• Austurland aö Clettingi og Austfiröir: SV-læg átt, súld eöa rign-
ing. Hiti nálægt frostmarki i nótt og á morgun.
• Suöausturland: Suövestlæg átt, stinningskaldi eöa allhvasst og súld
eöa rigning. Léttskýjaö á morgun. Hiti 1-3 stig.
Skiptar skoöanir um fjárfestingar erlendra aöila í ísl. sjávarútvegi. Samtök fiskvinnslustööva:
Áhættufjármagn líklegt
frá lífeyrissjóðunum
Arnar Sigurmundsson, for-
maöur Samtaka fiskvinnslu-
stööva, hafnar alfariö beinni
eignaraöild útlendinga aö ís-
lenskum sjávarútvegsfyrir-
tækjum og vísar í þeim efn-
um m.a. til samþykkta á
tveimur síöustu aöalfundum
samtakanna. Hann telur lík-
legt aö þróunin veröi í þá átt
aö lífeyrissjóöirnir muni
koma í auknum mæli meö
áhættufjármagn í atvinnu-
greinar meö því aö fjárfesta í
fyrirtækjum sem uppfylla
ákvæöi þar aö lútandi, en
ekki erlendir aöilar.
Formaöur Samtaka fisk-
vinnslustöðva segir einnig aö
þaö, sem ráði miklu í afstöðu
manna til fjárfestinga erlendra
aöila í sjávarútvegi, sé einfald-
lega hræðslan við að missa yfir-
ráöin yfir takmarkaðri auðlind-
inni í hendur útlendinga.
Hann segir brýnt að menn
haldi varðstöðu sinni í þessum
efnum, enda hefði ella verið til
lítils unnið í þeirri baráttu sem
háö var fyrir útfærslu landhelg-
innar á sínum tíma.
Afkoma atvinnugreina
milli 1993 og 1994:
Hagnabur óx
Fyrirtæki, önnur en peninga-
og orkufyrirtæki, voru aö
jafnaöi rekin meö 4,1% hagn-
aöi á síöasta ári. Þaö er mikii
framför, miöaö viö aöeins
0,7% hagnaö áriö áöur.
Aðeins í byggingariðnaði
versnaði afkoman milli ára, en
stóð nokkurn veginn í stað í
landbúnaði og þjónustugrein-
um. Að fjármála- og orkufyrir-
tækjum meðtöldum var hagn-
abarhlutfall fyrirtækja 3,8% að
meðaltali, en árið 1993 stób af-
koman á núlli. Velta fyrirtækja
óx líka umtalsvert að raungildi
milli þessara ára, eða um 6,7%
að meðaltali, á sama tíma og
vísitala vöru og þjónustu hækk-
aði um 1,5%.
Þetta er meginniöurstaða
Þjóðhagsstofnunar eftir úr-
vinnslu úr ársreikningum 1.440
fyrirtækja, þeirra sömu bæbi ár-
in, 1993 og 1994. Heildarvelta
þessara fyrirtækja var 338 millj-
arðar króna í fyrra. En það eru
um 45% af heildarveltu at-
vinnurekstrarins í landinu þab
ár. ■
dagar til jóla
Svo virðist sem skiptar skoð-
anir séu um fjárfestingar er-
lendra abila í íslenskum sjávar-
útvegsfyrirtækjum og m.a. hef-
ur þingflokkur Þjóðvaka lagt
fram frumvarp á þingi, sem
heimilar útlendingum að eiga
allt aö 20% eignarhlut í slíkum
fyrirtækjum. Þá hafa einstaka
útgerðarmenn, m.a. hjá Sam-
herja hf. á Akureyri, lýst því op-
inberlega yfir að það geti orðið
atvinnugreininni til góðs að
heimila útlendingum að fjár-
festa í sjávarútvegsfyrirtækjum.
Samtök í sjávarútvegi hafa
hinsvegar samþykkt fyrir sitt
leyti ákvæbi í frumvarpi til laga
um takmarkaða óbeina eignar-
aðild erlendra aðila í sjávarút-
vegi, sem er að stofni til álíka
frumvarp og það sem fékkst
ekki afgreitt á síðasta þingi.
Þetta fr'umvarp er m.a. lagt
fram til að laga lögin að raun-
veruleikanum, en eins og
kunnugt er þá eiga t.d. olíufé-
lög, sem að hluta til eru í eigu
erlendra aðila, hlut í mörgum
íslenskum sjávarútvegsfyrir-
tækjum, þótt það sé bannað
samkvæmt eldri lögum.
-grh
Þessar huggulegu stúlkur, þcer Tara, Hulda og Þorbjörg Sif, nemendur í ísaksskóla, voru vel upplýstar í gœr og létu Ijós
Sin skína. Tímamynd BG
Skátahreyfingin dreifir endurskinsmerkjum til 6-10 ára barna:.
Allir noti endurskinsmerki
Bandalag íslenskra skáta hefur ab
undanförnu sent barmnælu úr
endurskini í alla barnaskóla
landsins, sem dreifa þeim til 6-10
ára barna. Þetta átak skátanna
hefur hlotið heitiö „Verum vel
upplýst" og er framhald af átak-
inu „Látum Ijós okkar skína".
Skátahreyfingin og Umferbarráö
skora á alla landsmenn ab nota
endurskinsmerki alltaf.
Skátahreyfingin hefur í ár sem
undanfarin ár dreift endurskins-
borðum til allra sex ára barna á
landinu. Endurskinsborbarnir eru
bornir utan yfir skjólfatnað og eru
mjög áberandi.
Landlœknir: komiö í Ijós aö bólusetningar borga sig:
Innlögnum fækkar um 50-60%
Rannsóknir hafa leitt í ljós ab
bólusetningar gegn inflúensu og
lungnabólgu eru þær bólusetn-
ingar sem borga sig best, því bæbi
fækka þær sjúkrahúsinnlögnum
af völdum þessara sjúkdóma um
allt ab 50-60% og veikindadögum
sömuleibis verulega. Þetta segir
Ólafur Ólafsson landlæknir hafa
verib stabfest í mörgum vandlega
gerbum evrópskum og bandarísk-
um rannsóknum á síbustu árum.
Enn virbist þó ganga fremur erf-
iblega ab fá menn til ab skilja
þetta. „Okkur vantar t.d. fé til
þess ab bólusetja fleiri gegn
lungnabólgu. Þetta þykir ein-
hvern veginn ekki nógu fínt eba
nógu merkilegt. En þetta er samt
mjög merkilegt mál."
Að sögn landlæknis voru íslend-
ingar fyrstir þjóða í heiminum til að
hefja kerfisbundið að bólusetja fólk,
60 ára og eldra, gegn lungnabólgu.
En bólusetningar séu nú fram-
kvæmdar á öllum heilsugæslu-
stöðvum.
„Já, við erum mjög hlynnt því að
fólk sé bólusett gegn inflúensu og
lungnabólgu, enda tvennt sem orö-
ið hefur ljósara og ljósara í rann-
sóknaniöurstöðum á síðustu árum:
í fyrsta lagi að bólusetning kemur
að gagni; hún gerir fólk ónæmara
gegn inflúensu og fólk sem er bólu-
sett ár eftir ár spjarar sig mun betur.
Og í ööru lagi að þaö borgar sig ekki
síður að bólusetja fullfrískt fólk en
þá sem lasburða eru, því það dregur
svo mikið úr fjarvistum vegna veik-
inda. En áður fyrr hölluðust menn
gjarnan að því að bólusetja einung-
is þá sem væru lasburða eða aldraö-
ir."
Ólafur segir aö þessar niðurstöður
hefðu að vísu ekki átt að koma á
óvart, því atvinnurekendur leggi
jafnan mikla áherslu á bólusetn-
ingu starfsmanna sinna. Enda hafi,
að þeirra mati, komið í ljós að inflú-
ensubólusetning dragi verulega úr
skyndilegum veikindafjarvistum,
sem bæði séu fyrirtækjum dýrar og
valdi oft verulegum óþægindum. ■
Formaöur stjórnar List-
skreytingasjóbs fagnar
tillögu meirihluta fjár-
laganefndar:
Framlag til
sjóbsins
tvöfaldaö
Formaður stjórnar Listskreyt-
ingasjóðs ríkisins fagnar
breytingartillögu meirihluta
fjárlaganefndar við fjárlaga-
frumvarpiö þar sem gert er ráð
fyrir að framlag til sjóðsins
hækki um 4 milljónir.
Hlutverk Listskreytingasjóðs
er að fegra opinberar byggingar
og umhverfi þeirra með lista-
verkum. Um Ieið er honum ætl-
að að stuðla að listsköpun í
landinu.
Samkvæmt frumvarpinu var
reiknað með að framlag til list-
skreytingasjóðs yrði 4 milljónir
á næsta ári, sem er sama fjárhæð
og sjóðurinn fær á þessu ári.
Breytingartillaga meirihluta
fjárlaganefndar gerir ráð fyrir að
framlag til sjóðsins hækki í kr. 8
milljónir.
Sverrir Kristinsson, formaður
stjórpar Listskreytingasjóðs,
segist líta á tillöguna sem skref í
rétta átt.
„Á þessu ári var næstum því
búið að leggja sjóöinn niður
með því að úthluta honum að-
eins fjórum milljónum. Nú er
veriö að tvöfalda þá upphæö og
ég fagna því. Ég leyfi mér að Iíta
svo á að þetta sé skref í rétta átt
og sýni þá stefnu stjórnvalda að
stuðla að listskreytingu og list-
sköpun í landinu."
Sverrir segist líta svo á að sjóð-
urinn hafi mikilvægu hlutverki
ab gegna. Hann telur sérstaklega
mikilvægt að hafa falleg lista-
verk í skólum, en einnig á
sjúkrahúsum og öðrum opin-
berum byggingum. Sjóðurinn
hafi líka stublað að listsköpun,
m.a. meb því að efna til sam-
keppni meðal listamanna.
Svérrir segir að í lögum um
listskreytingasjóð sé gert ráð fyr-
ir að til sjóbsins renni 1% af
byggingarkostnaði ríkissjóðs af
þeim byggingum sem hann
byggi einn eöa með öðrum. Eft-
ir þeim lögum hafi aldrei verið
farið.
Sem dæmi um stofnanir, sem
hafa hlotið styrk úr sjóðnum,
nefnir Sverrir Sjúkrahúsið á ísa-
firði, Fjölbrautaskólann á Sauð-
árkróki, Menntaskólann á Akur-
eyri, Hagaskóla, Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins og
sambýli fatlaðra Giljaseli. Og af
þeim listamönnum, sem hafa
skreytt byggingarnar, má t.d.
nefna Tuma Magnússon, Sigríöi
Ásgeirsdóttur, Hring Jóhannes-
son og Þorbjörgu Höskuldsdótt-
ur. -GBK