Tíminn - 31.07.1996, Blaðsíða 3
Mi&vikudagur 31. júlí 1995
!i$)$SÉm& LANDBÚNAÐUR
9
stefnt ab því aö minnka birgðir.
Það hafi tekist að nokkru leyti
og hækkandi verð séu á út-
flutningsmörkuðum. Ari nefnir
fyrst Svíþjóð, en síðan Tékk-
land, Rússland, Noreg, Færeyj-
ar, Bretland og Bandaríkin þeg-
ar hann er inntur eftir því til
hvaða landa íslenska lamba-
kjötið fari. Hann segir að þótt
verðið hafi heldur hækkað, þá
sé enn verið að selja á tiltölu-
lega lágum verðum, en unnið
verði áfram að markaðsmálum
kindakjötsins í hinum ýmsu
löndum.
Vinnslulína slátur-
húsanna endi í kjöt-
vinnslu, en ekki í
frystiklefa
Ari segir lengingu sláturtíðar-
innar vera eitt af því sem vinna
þurfi að og á komandi hausti
muni slátrun hefjast strax í ág-
úst hjá hluta sláturleyfishafa.
Einnig sé mögulegt að lengja
sláturtíðina allt fram í desem-
ber, miðað við að gimbrarlömb
verði geymd til síðari hluta
sláturtímans. Vitanlega verði
aðeins litlum hluta fjárins slátr-
að utan hins hefðbundna slátr-
unartíma, en með því aukist
engu að síður möguleikar til
sölu á fersku kjöti, sem sé
nauðsynlegt vegna markaðar-
ins. Þá sé einnig stefnt að því
að vinna lambakjötið meira í
sláturtíðinni en tíðkast hafi,
þannig að vinnslulína slátur-
húsanna endi í kjötvinnslu, en
ekki í frystiklefa. Meb því móti
væri hægt að vinna kjötið jafn-
hliða til ferskrar sölu og einnig
til frystingar. Ari segir nauðsyn-
legt að breyta sláturhúsunum
úr frystihúsum í raunverulegar
vinnslustöðvar þar sem fram-
leiðsla á þeim réttum sem
markaðurinn þarfnast eigi sér
stab. Vegna árstíðabundinna
abstæbna í sauðfjárrækt verði
alltaf um frystingu á miklum
hluta saubfjárafurða að ræða,
en meb því ab vinna þær í mun
meira mæli fyrir frystinguna en
tíðkast hefur verbi komið meira
til móts við þarfir markaðarins
og einnig bænda, þar sem gera
megi ráð fyrir aukinni sölu.
Sameining afurba-
stööva — viðkvæmt
en nauðsynlegt mál
Með lengingu sláturtíðar og
stóraukinni vinnslu sauðfjáraf-
urba í tengslum við sláturtíð er
verið að gerbreyta þeim vinnu-
aðferðum sem tíðkast hafa.
Sláturkostnaður hefur verið hár
og oft gagnrýndur harkalega af
bændum og neytendum. En
geta vinnslustöövar, sem ekki
hafa treyst sér til að lækka
kostnað við sauðfjárslátrun,
tekið á sig nýjar vinnsluaðferðir
og nánast gerbreytt um starfs-
aöferðir án þess að umdeildur
kostnaður hækki vemlega?
„Ég geri mér fulla grein fyrir
því að þetta verður ekki gert án
aukins tilkostnaðar með núver-
andi skipulagi afurbastöðva.
Hin hlið þessa máls er sú að
fækka núverandi afurbastöðv-
um með sameiningu. Þetta er
ákaflega vibkvæmt mál víba
um land og ekki eingöngu til
sveita. Fólk í þéttbýlisstöðum á
landsbyggöinni er andvígt
þessu vegna þess að það óttast
um atvinnu sína. Samgöngur
hafa á hinn bóginn breyst mik-
ið til batnaðar á liðnum árum
og því er mun auðveldara að
flytja búfénað um lengri veg til
slátrunar en áður. Atvinnusjón-
armiðin ráða hins vegar miklu
og því skiptir vemlegu máli ab
unnt verði að koma á breyting-
um í afurðastöövakerfinu án
þess ab fólk missi vinnu sína."
Blönduö samvlnnu-
félög hafa fleiri
hagsmuna a& gæta
Ari Teitsson segir annab
vandamál vera í sambandi vib
hagræðingu í afurðastöðvakerf-
inu, því margar stöðvarnar séu í
eigu blandaðra samvinnufélaga
og áhrifa bænda gæti því ekki
sem skyldi í rekstri þeirra.
„Þessi blönduðu félög verða
eölilega að taka tillit til fleiri
þátta í rekstri sínum en afurða-
sölunnar og þjóna hagsmunum
fleiri aðila en bænda. Því er
spurning um hvort ekki sé
kominn tími til þess að afurða-
sölumálin verði fengin í hend-
ur samvinnufélögum bænda
SUMARTILBOÐ
Ford 7740 SL m/Alö ámokst.t.
Árgerð ‘94. Ekinn 600 vst.
Verð 2.850.000.
Góð greiðslukjör I Ath. uppítöku
VELAR&
ÞJéNUSTAHF
JÁRNHÁLSI 2, 110 RE YKJ AVÍK, SÍMI 587 6500, FAX 567 4274
sjálfra, sem einbeiti sér ab
vinnslu og sölu afurða þeirra,"
segir Ari Teitsson og bendir á
að samningur bænda í Vestur-
Húnavatnssýslu við Hagkaup
feli í sér ákveðin nýmæli. Með
honum sé verið að þreifa sig
inn á nýjar brautir og líta megi
á hann sem aðlögun þess að
opinberri verðlagningu á
kindakjöti verði hætt, en sam-
kvæmt búvörusamningnum á
henni að ljúka á árinu 1998.
Ari segir að í nágrannalöndun-
um sé algengasta form afurða-
sölumála með þeim hætti að
sérstök afurðasölufélög bænda
annist sölumál þeirra. Bændur
skuldbindi sig til þess að láta
viökomandi félög annast alla
sölu fyrir sig, en félögin skuld-
bindi sig á móti til þess að fá
sem hæst verð fyrir afurðirnar.
íslenskir bændur verði nú að
íhuga hvort ekki sé kominn
tími til þess ab fara inn á sam-
bærilegar brautir.
Vaxandi möguleikar á
vistvænni framleiðslu
Eitt af því, sem bændur hafa
horft til varðandi nýjungar í
landbúnaðarmálum, er aukin
framleiðsla á vistvænum afurð-
um og einnig framleiðsla líf-
rænt ræktaðra landbúnaðaraf-
urða. Sú framleiðsla á vaxandi
vinsældum að fagna víða í Evr-
ópu og einnig vestanhafs. Á
þessum tveimur framleiðsluferl-
um er þó ótvíræður munur.
Vistvæn framleiðsla miðast
fyrst og fremst við að engin
aukaefni eru notuð við fram-
leiðsluna og em lyf þar með tal-
in. Lífræn ræktun byggir auk
þess á því að tilbúinn áburður
er ekki notaður, en aðeins
byggt á lífrænum áburðarefn-
Framh. á bls. 11
cimis RÚLLUBINDIVÉL - 1,20x1,20 m
2 GARNLEIÐARAR - Fáanleg með netbindibúnaði,
söxunarbúnaði - Einnig 1,20x1,50 m sérpantað
Leitiö
nánari
upplýsinga
litgvar
Helgason hf. VÉLASALA
SwWtða2, SlMI 525-8000
Kverneland
UNDERHAUG
Pökkunarvél
2 gerðir
Barkastýrð
Tölvustýrð
BÆNDUR
Muniö
JEfi Kverneland I^H'ÍSVÍft
RÚLLUBAGGAPLASTIÐ
50 cm kr. 4.000,- + vsk. 75 cm kr. 5.o00,- + vsk
Hafió samband við sölumenn okkar, sem gefa
allar nánari upplýsingar.
Ingvar
Helgason Ivf. vÉLASALA
SamrtiMta*, SÍMI 525-8000