Réttur - 01.11.1968, Qupperneq 29
LEO
HUBERMAN
Leo Huberman, ritstjóri Monthly Review
ásamt Paul Sweezy, andaðist 8. nóvember
1968 í París af hjartaslagi. Voru þeir félag-
arnir þar á ferð til þess að undirbúa franska
og þýzka útgáfu af tímariti sínu, en það
kemur þegar út á spönsku og ítölsku auk
ensku útgáfunnar.
Leo Huberman var fæddur í Newark, New
Jersey 17. október 1903. Hann nam við New
York-háskóla og School of Economics í Lon-
don. Hóf hann ritstörf og kennslustörf, var
m.a! forstjóri félagsfræðideildar New College
í Columbia-háskólanum. 1940 varð hann
meðritstjóri PAf-blaðsins, annaðist verkalýðs-
mál, og 1942—45 var hann forstjóri þeirrar
deildar bandaríska sjómannasambandsins,
National Maritime Union, er annaðist sam-
skipti út á við og uppeldismál. Vann hann
mjög merkilegt uppeldisstarf í verklýðshreyf-
ingunni.
Arið 1949 stofnaði hann svo Monthly
Review með Paul M. Sweezy og er það tíma-
rit nú orðið viðurkennt sem eitt af beztu
marxista-tímaritum heims. Það er rétt að
minna á þá umsögn er tímaritið hlaut 1966,
þegar ritstjórar þess fengu Omegna bók-
menntaverðlaunin, sem nefnd andspyrnu-
hreyfingarinnar ítölsku veitir og Jean Paul
Sartre og Frantz Fanon hafa áður fengið. Um-
sögnin hljóðaði svo: „Höfuðsnilli þessara
tveggja rithöfunda felst í marxistískum hum-
ánisma (manngildisstefnu) þeirra. I heims-
baráttunni gegn auðvaldsskipulagi og heims-
veldisstefnu hafa öll rök og allir atburðir
öðlazt túlkun í rimm Huberman og Sweezy,
er einkennist af frábærum skilningi og sam-
viskusömum skýrleik." — I sambandi við
tímaritið var svo stofnuð útgáfa 1952, sem
Huberman stjórnaði og hefur undir hand-
leiðslu hans vaxið þannig að út eru gefnar
25 bækur á ári.
193