Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.2006, Síða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 14. janúar 2006 | 3
myndlistarmönnum, Daníel Björnssyni, Hugin
Þór Arasyni og Unnari Erni Jónassyni Auð-
arsyni hefur verið falið að sjá alfarið um hug-
myndavinnu, sýningarstjórn og aðferðir. „Þeir
velja verkin á sýninguna sem ætlunin er að
standi fyrir nýjar raddir. Þótt sumir listamann-
anna hafi sýnt í tilraunarýmum af ýmsu tagi,
svo sem í Klink og Bank þá eru þeir þarna að fá
sitt fyrsta safnverkefni, sem er mikils virði.
Sýningin verður í öllum sölum Hafnarhússins
nema í Errósafninu og gefur forsmekkinn að
framtíðarhlutverki safnsins eins og ég sé það
fyrir mér; sem vettvang fyrir samtímalist fyrst
og fremst.“
Ólík starfsemi í Hafnarhúsi
og á Kjarvalsstöðum
Þetta er hluti þeirra breytinga í stefnumótun
sem Hafþór sér fyrir sér á næstu mánuðum.
„Ég er ekkert viss um að allir verði ánægðir
með þær, en ég ætla að gera Hafnarhúsið að
samtímalistasafni – safni sem sýnir nýjustu
stefnur og strauma. Ég vil skilja starfsemi
tveggja meginhúsa safnsins, Kjarvalsstaða og
Hafnarhússins, svolítið að en fram að þessu hef-
ur sýningarstefnan fyrir bæði húsin verið sú
sama. Það hefur gengið mjög vel enda voru góð-
ar ástæður fyrir slíkri stefnu á sínum tíma. Nú
finnst mér þó vera kominn tími til að mynda
meiri breidd, þannig að Hafnarhúsið sé tilbúið
til að taka við sýningum sem eru áhættusamar
og tilraunakenndar, þar sem ungir listamenn fá
að spreyta sig og prófa nýja hluti. Auðvitað allt-
af á faglegum forsendum, aðstaðan sem þeim
verður boðin hér er sem sagt allt önnur heldur
en tilraunarýmin í borginni hafa getað boðið
þeim.“
Það er ljóst að með þessum hætti getur
Listasafn Reykjavíkur valdið ákveðnum
straumhvörfum í íslensku myndlistarlífi, sem
þó hefur verið að fá á sig faglegri blæ með
hverju ári að undanförnu. „Við ráðum yfir
stórum hópi af fagfólki sem getur unnið með
þessum listamönnum hér innanhúss, eða með
öðrum sýningarstjórum sem koma utan frá,“
ítrekar Hafþór. „Kjarvalsstaðir verða þá hefð-
bundinn sýningarstaður – ef svo má að orði
komast – þar sem lögð verður áhersla á að sýna
verk listamanna er hafa unnið með list sína í
lengri tíma.“
Hann vill ekki ganga svo langt að tala um
eldri list í þessu sambandi, „við þurfum að ein-
beita okkur að samtímalist, list sem hefur verið
að þróast frá því að Kjarvalsstaðir voru stofn-
aðir. Því er ég aðallega að tala um núlifandi
listamenn eða listamenn sem hafa nýlega fallið
frá, en hafa verið að skapa góð listaverk á þessu
tímabili. Það er mikið af verkum af þessu tagi
sem þarf að sýna, eftir listamenn sem hafa verið
að þróa sinn miðil. Mér finnst margir listamenn
standa undir merkjum á þessum forsendum.
Eitt af hlutverkum okkar,“ segir Hafþór, „er
að sýna nýjustu stefnur og strauma. Við verð-
um að gera það af heilum hug og Hafnarhúsið
er afar vel til þess fallið, rétt eins og Kjarvals-
staðir eru vel til þess fallnir að þjóna því hlut-
verki sem þeir voru hannaðir fyrir. Byggingin
er orðin klassísk, hún heyrir til þeim módern-
isma er heppnaðist. En hún er ekki hönnuð fyr-
ir innsetningar eða þau straumhvörf sem hafa
orðið í listinni, heldur fyrir málverk og skúlp-
túra. Í Hafnarhúsinu er hins vegar erfitt að
sýna málverk með góðu móti, ekki síst vegna
súlnanna sem eru hluti af strúktúr hússins.“
Hafþór bendir á að listamenn eru í auknum
mæli farnir að taka sjálft sýningarrýmið inn í
list sína eins og mörg dæmi eru um; „þessi
stefnumótandi ákvörðum um ólíka starfsemi í
húsunum er því að hluta til tekin vegna mis-
munandi eiginleika bygginganna.“
Einkaframtakið þarf að koma
að fjármögnun listarinnar
Nú býr ekkert safn á Íslandi yfir jafnmiklu sýn-
ingarrými og Listasafn Reykjavíkur. Listasafn
Íslands býr til að mynd við mjög þröngan hús-
næðiskost. Það er því ekki nema eðlilegt að
velta því fyrir sér hvernig Hafþór ætli sér að
hrinda þessum straumhvörfum í framkvæmd
og halda dampi í metnaðarfullu sýningarstarfi í
öllum þeim sölum er safnið hefur til umráða.
„Ég sé ekki annað en hér á Íslandi sé til það
mikill auður, að það ætti að vera hægt að sækja
fé út í atvinnulífið,“ svarar hann. „Núna þegar
sýningarnar sem hér eru framundan fara að
verða skýrari þá mun ég leita út og virkilega
reyna að fá fólk til liðs við mig. Allt frá því að ég
byrjaði að vinna í listunum hef ég unnið við
þann skilning að það þurfi að fjármagna listina
með einkaframtaki líka. Borgin leggur fram
ákveðna upphæð og vissulega er hægt að gera
eitthvað fyrir hana. En viðhorf mitt er að síðan
bætum við við þá upphæð og getum fyrir vikið
gert miklu meira. Auðvitað er hægt að hugsa
sem svo að maður geri bara eitthvað fyrir þá
peninga sem manni eru réttir, en það er líka
hægt að líta á þá peninga sem byrjunina á ein-
hverju meira.“
Hafþór óttast ekki að hér skorti hefð fyrir
stuðningi við listir og menningu. „Ég held að
það sé hægt að fá töluverða peninga inn á þetta
svið, þótt það sé kannski langt frá því að vera
jafnmikið og ég á að venjast í Bandaríkjunum.“
Ein leið til þess að breyta stöðu safnsins
gagnvart samfélaginu og reyna að mynda
sterkari tengsl út í bæði atvinnulífið og þjóðfé-
lagið sem heild, er stofnun safnráðs sem nú hef-
ur nýlega verið skipað í. Í safnráðinu sitja,
ásamt Hafþóri, þau Hrafnhildur Schram og
Christian Schoen, sem bæði eru listfræðingar,
og þeir Gunnar Dungal og Sigurður Gísli
Pálmason, sem fulltrúar atvinnulífsins og
áhugamenn um samtímalistir.
Hafþór segir safnráðið „allt annað batterí en
það sem var á Kjarvalsstöðum í gamla daga.
Hugmyndin hefur frá upphafi verið sú að safn-
ráðið væri forstöðumanninum innan handar við
„að treysta tengsl Listasafns Reykjavíkur við
aðrar menningarstofnanir og atvinnulífið á Ís-
landi og erlendis“,“ eins og segir í skilgreiningu
um hlutverk þess. Jafnframt er því falið „að
veita safnstjóra og starfsfólki Listasafnsins
stuðning við fjáröflun fyrir einstök verkefni eft-
ir föngum“. „Hugmyndin er sem sagt ekki sú að
búa til fjáröflunarnefnd heldur er ætlast til þess
að þetta fólk sé mér til ráðuneytis,“ heldur hann
áfram. „Ég þarf á því að halda því ég er nýr á
þessum vettvangi hér og svo má heldur ekki
gleyma því að það þarf að mynda ný tengsl svo
það sé ekki alltaf verið að leita til sömu aðila
bara af því þeir hafi verið góðir. Listasafnið hef-
ur fram til þessa verið með öfluga stuðnings-
aðila en nú á að róa á ný mið og til þess þarf
aukið fjármagn og nýja samstarfsaðila.“
Tekjulindir safnsins, eða sértekjur þess, telur
Hafþór að eigi einnig eftir að koma því til góða
og nefnir þar kaffistofur og vísi að bókabúð.
„Alla þessa starfsemi þarf að endurskoða og
gera reksturinn arðbærari. Ég held að þarna
séu mikil tækifæri hér sem hægt væri að nýta
betur með góðri viðskiptaáætlun.“
En fjármálin snúast ekki einungis um rekst-
ur salanna og starfið í húsinu heldur hefur
Listasafn Reykjavíkur, rétt eins og Listasafn
Íslands, ákveðnum skyldum að gegna við inn-
kaup á íslenskri list. „Þetta eru núna um fimm-
tán milljónir á ári, en ég held að það sé líka
hægt að sækja meira fé út í samfélagið til inn-
kaupa á listum fyrir safnið,“ segir Hafþór. „Hér
eru bara tvær stofnanir sem stunda slík inn-
kaup og ábyrgð okkar er feikilega mikil. Við
þurfum að vera virkir kaupendur því það er
okkar hlutverk að safna fyrir framtíðina.“
Spyrja þarf hvort enn eigi eftir
að kaupa mikilvægustu verkin
Hann segir standa til að endurskoða safneign-
ina frá grunni. „Ég ætla að leggja dálitla vinnu í
það að átta okkur á því hvað við eigum af nú-
tímalist síðustu fjörutíu ára eða svo. Þá er ég að
tala um verk utan sérsafnanna; Kjarvalssafns,
Errósafns og Ásmundarsafns. Við þurfum að
greina vel hvað við eigum og hvað var að gerast
í listum á þessu tímabili og gera síðan upp við
okkur hvort við eigum það mikilvægasta. Ef
ekki þá ber okkur skylda til að fylla upp í skörð-
in. Það hefur verið safnað markvisst í mörg ár,
en á fyrri árum fékk safnið líka verk sem voru
keypt fyrir borgina og lenda eiginlega bara í
safninu. Það þarf alltaf að vera að spyrja hvort
réttu verkin hafi verið keypt – eða kannski er
betra að spyrja hvort enn eigi eftir að kaupa
mikilvægustu verkin.
Öll skráning í safninu er fullkomin, en ég vil
gera úttekt á því hvort eitthvað vantar, hvort
safninu hefur einhvers staðar yfirsést. Það er
bara eðlilegt að slík vinna sé stöðugt í gangi.
Nýjar spurningar eru stöðugt að koma upp;
spyrja má hvort safnið hafi til að mynda að-
allega keypt list eftir karlmenn. Þótt sýning-
arstefna hafi verið ábyrg í fortíðinni þá þarf
stöðugt að ræða þessa hluti. Við þurfum að vita
hvar við stöndum; hvort við eigum – ef okkur
dettur það í hug – nóg til að halda góða sýningu
um list frá sjöunda áratugnum úr safneigninni,
þannig að henni séu gerð virkilega góð skil.“
Forskot er orð sem Hafþór notar gjarnan
þegar hann talar um starfsemi Listasafns
Reykjavíkur. „Ég legg höfuðáherslu á að ná for-
skoti á öllum sviðum. Við hér innanhúss verðum
að vita hvað er að gerast í íslenskum listheimi,
hvað er að gerast í vinnustofunum, en ekki bara
bíða eftir opnunum til að sjá hvar landið liggur.
Við viljum fara út og skoða og leita að verkum –
vera á undan í því að merkja þróun. Hin leiðin;
að bíða og sjá hvað kemur inn og fara af stað
þegar sýningar standa yfir og velja það besta úr
þeim, er auðvitað og gild. Ég vil þó frekar vera
skrefinu á undan.“
Hafþór segir þetta eiga við um sýningar
sömuleiðis. „Þótt það sé gott að fá upplýsingar
frá listamönnum þá vil ég að við séum virk í því
að skoða möguleikana og höfum þannig frum-
kvæði að sýningum. Starfsfólk safnsins þarf að
fá tækifæri til að kynna sér myndlistarumhverf-
ið og koma með þá þekkingu sem það aflar sér
hingað inn.“
Viðhorfin til umheimsins eru heilbrigðari
Það er óneitanlega forvitnilegt að heyra hvað
Hafþóri finnst um íslenskan myndlistarheim,
sérkenni hans – eða kannski alþjóðlegan blæ –
eftir að hafa dvalist jafnlengi erlendis og raun
ber vitni.
„Við fyrstu sýn virðist manni myndlistin vera
einn alþjóðlegur pottur. Fólk hefur lært úti í
heimi og kemur með hugmyndir þaðan hingað
heim, auk þess sem flestir ferðast meira, skoða
sýningar utan landsteinanna, lesa tímarit og svo
framvegis, til að vita hvað er að gerast. Eitt af
því sem ég hef áttað mig á er að íslenskir lista-
menn eru hluti af umheiminum og gamli hugs-
unarhátturinn um að Íslands sé bara eyland og
ótengt umheiminum er ekki lengur til staðar.
Auðvitað eru til leifar af eyjarskeggjahugs-
unarhætti, ég verð að viðurkenna það. En mér
finnst þjóðernishyggjan hafa minnkað og ég
vona að það sé rétt tilfinning.
Áður en ég fór má segja að mín kynslóð hafi
verið mörkuð af kaldastríðshugsunarhættinum.
Og kynslóðin þar á undan var mótuð af sjálf-
stæðisbaráttunni. Sú síðarnefnda hafði ákaflega
þrönga heimssýn og dálítið afskræmda – kald-
astríðskynslóðin sömuleiðis, bara með öðrum
hætti. Þær kynslóðir sem hafa komið síðan
hugsa á miklu heilbrigðari hátt um heiminn og
afstöðu Íslands til hans heldur en við gerðum.
Hún sér heiminn eins og einn völl.
Fólk á Íslandi talar mikið um útrás núna, en
kannski er þetta engin útrás heldur bara það að
heimurinn er opnari. Það má alveg líta á Evr-
ópu sem heild, eins og Bandaríkin; það er til
dæmis engin útrás þegar einhver í Boston sinn-
ir viðskiptum í Kalilforníu – það er bara eðlilegt.
Það sama á við um Evrópu, landamærin eru
orðin mun minna áberandi.“
Hafþór segist þrátt fyrir þetta merkja sér-
kenni á íslenskum myndlistarheimi. „Ekki síst í
hugmyndavinnu. Listamenn vinna í því hug-
myndafræðilega umhverfi sem er til staðar með
sínum eigin hætti. Þegar konseptlistin var í
gangi hér voru áherslurnar aðrar en annars
staðar, gekk eiginlega meira út frá skáld-
skapnum heldur en beinu hugtaki. Það sama má
segja um íslenskar útfærslur á minimalisma. Ís-
lenskir listamenn hafa sínar eigin áherslur.“
Samt sem áður vill Hafþór ekki ræða um ís-
lenska fagurfræði sem slíka. „Ég hika við að
setja fagurfræði í svo þjóðernislegt samhengi.
Mér finnst betra að horfa til þess hvað íslenskir
listamenn eru að gera spennandi annars vegar
og svo hvað erlendir listamenn eru að gera
spennandi hins vegar.“
Hann segir þennan samanburð munu eiga
sér stað strax á þessu ári í Listasafni Reykja-
víkur því tveir af fremstu sýningarstjórum
heims, þeir Daniel Birnbaum og Hans Ulrich
Obrist, munu setja upp sýningu í safninu í
haust, er byggist á bandarískri samtímalist –
nýjum straumum í byrjun nýrrar aldar. „Það
verður verulega forvitnilegt að bera hana sam-
an við það sem ungu sýningarstjórarnir okkar
munu setja saman í sumar og skoða þá „sam-
ræðu“ sem verður til úr því. Ég álít þessar sýn-
ingar gefa tóninn varðandi starfið hér í húsinu í
nánustu framtíð.“
Morgunblaðið/Þorkell
Hafnarhúsið Hafþór Yngvason telur Hafnarhúsið eiga að vera „tilbúið til að taka við sýningum sem eru áhættusamar og tilraunakenndar, þar sem ungir
listamenn fá að prófa nýja hluti.“ Á Kjarvalsstöðum verður lögð „áhersla á að sýna verk listamanna er hafa unnið með list sína í lengri tíma“.
Vill vera
skrefinu
á undan