Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.2006, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.2006, Side 5
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 14. janúar 2006 | 5 unum. En við þann þráð bætist stíllinn og hugleiðingar söguhöfundar, sumpart sprottn- ar af sögunni, sumpart ekki, í senn almennar og djúpspekilegar og opnast manni í frásögn- um af einföldum athöfnum: Og um leið og þeir fóru nú inn, tók hann um kertisskarið tveim fingrum. Ljósi er sýnd mest líkn með því, að láta það ekki veslast upp til einskis gagns. Frá Blicher til Conrads Stíll Aðventu er einskonar ævintýri. Gunnar var stílisti, um það vitna bækur hans, og gat brugðið sér í margskonar líki, margorður, jafnvel flæðandi, eins og í Fjallkirkjunni, harður og hrjúfur eins og í Brimhendu, en hvergi eins látlaus og blátt áfram fallegur eins og í Aðventu. Enginn er þó eyland í skáldskap, maður rekst á stíl svipaðrar ættar hjá ólíkum höfundum, ég veit ekki hversu langt aftur er hægt að rekja hann, kannski til hins danska Steen Steensen Blicher, sem skrifaði á fyrrihluta 19. aldar og Gunnar hreifst mjög af, þýddi meðal annars eina af sögum hans, Vaðlaklerk. Þetta er sérstakur stíll, ég veit ekki hvort maður þorir að segja norrænn, en hann nær vissri fullkomnun hjá Knut Hamsun, makalaus galdramaður sem hafði áhrif á marga ólíka höfunda. Heming- way dreymdi um að skrifa eins og Hamsun, dálæti hans á stíl Norðmannsins gæti skotið svo sem einni grannri stoð undir þá kenningu að Aðventa hafi höfðað svo sterkt til hans að gamall maður og haf varð til. En fleiri höf- unda má nefna, Gunnar náttúrlega, Halldór Laxness, William Heinesen, Martin A. Hansen. En hvaðan kemur þessi stíll, hvers- vegna laðast norrænir höfundar að honum, er það sambland af veðráttu og birtu, löngum, dimmum vetrum og sumarnóttum svo björt- um að þær eira engu? Draumlynt raunsæi, ljóðræn frásögn, hljóðlát í eðli sínu en rúmar engu að síður ópið sem Munch fangaði á strigann, æðruleysi sem er einskonar kæru- leysi, líklega sprottið af þunglyndi; það ríkir ekki myrkur í þessum stíl, en heldur ekki birta, kannski húm. Það er unaður að lesa Aðventu á dönsku, frummálinu, og með ólíkindum hversu vel Magnús Ásgeirsson nær að þýða stemn- inguna sem svo erfitt er að lýsa, en svo auð- velt að njóta. Ég ætla ekkert að flækja málin; þýðing Magnúsar er betri en þýðing Gunnars sjálfs, trúrri frumtextanum, hún er mýkri og einfaldari, hér er bara rúm fyrir eitt lítið dæmi, fyrst danskan: Henover dem skrider Natten. Þýðing Magnúsar: Uppi yfir þeim heldur nóttin leiðar sinnar. Gunnars: Uppi yfir þeim halda reikihnettir líðandi stundar að vanda leiðar sinnar. Eitt af því sem situr sterkan svip á Að- ventu, hér má sannarlega bæta Fjallkirkjunni við, er lýsing Gunnars á veðurfari, ég man varla eftir að hafa lesið jafn, hvað skal segja; sterkar, sannferðugar lýsingar á óveðrum eins og hjá Gunnari – nema hjá Joseph Con- rad. Mér verður ósjaldan hugsað til Gunnars þegar ég er staddur í bókum Conrads og hann byrjar að lýsa ofsanum sem býr í veðr- um úthafsins, og síðan hugsa ég til Conrads þegar Gunnar upphefur lýsingar á veðrum fjallanna. Báðir komast þeir svo nálægt manni með þessum ofsafengnu náttúruöflum, að maður hniprar sig ósjálfrátt saman, og það eru kannski eðlislæg viðbrögð andspænis öfl- um sem við ráðum ekki neitt við, eitthvað í dýpstu afkimum minnisins skipar manni að hnipra sig saman, gera sig lítinn, verða aftur að litlu spendýri, hniprandi sig í holunni þeg- ar eitthvað óviðráðanlega stórt nálgast, risa- eðla eða loftsteinn. Er ekki skyldleiki með Gunnari og Conrad, og ég á þá ekki bara við einstaka hæfni þeirra í veðurlýsingum? Gunn- ar er Íslendingur sem skrifar á dönsku, mál sem hann lærir fyrst kominn yfir unglingsár; Conrad Pólverji sem skrifar á ensku, mál sem hann lærir fyrst kominn yfir unglingsár. Báð- ir þekktir fyrir tök sín á málinu, fara þar framúr flestum innfæddum höfundum, báðir heimspekilega þenkjandi og leggja mikið upp- úr byggingu sagna sinna, skáldsagnahöf- undar par exelence. Gunnar hefur án efa þekkt til Conrads, flestar bækur Pólverjans komnar út í danskri þýðingu þegar Gunnar stígur á land í Danmerku, hugsanlega til þess að sigra heiminn. Um djúprættan kunnugleika Benedikt á ferð með hundi og hrút, það eru hans félagar. Frásögn þar sem maður er ein- samall á ferð, síðu eftir síðu, og í ofan á lag ekki með hugann fullan af visku fornalda, eins og Aschenbach í Dauðanum í Feneyjum, viska sem reynist að sjálfsögðu haldlítil and- spænis ofbeldi tilfinningana, heldur maður eins og Benedikt sem veit fátt um gríska guði, sýnu minna um þýska heimspekinga, hefur þó sannarlega lent í ofbeldi tilfinninga eins og Aschenbach, en unnið sinn sigur; höf- undur með slíkan karekter þarf að leysa ýmis tæknileg vandamál. Því hvernig, ef söguhöf- undur vill ekki sífelt vera sjálfur með orðið, á að fylla síðurnar af orðum og atvikum, með hvaða hætti á að skapa hreyfingu og líf kring- um Benedikt sem þrammar, fyrst upp úr sveitinni, síðan einsamall um öræfin, stundum mannhatursfull? Fátt er jafn djöfullegt fyrir höfunda, og fátt er jafn gott, og vandamál, þau gefa þeim tækifæri að koma með snjalla lausn, því eitt er að hafa hund og hrút í föru- neyti, allt annað að gefa þeim jafn skýr, per- sónuleg einkenni og Leó og Eitill hafa. Maður gleymir því yfirleitt að þarna eru maður og dýr á ferð, í huga manns eru þeir þrír félagar, ekki maður og dýr. Eitill alvarlegur, með þungt skap, en traustur, harður, Leó hálf- gerður gosi en ómissandi þegar á reynir. Leó er eiginlega senuþjófur bókarinnar, Gunnar skýtur inn hálfri setningu hér og þar, einfald- ar athugasemdir um hund en samt ein- hvernveginn þannig að lesandinn skælbrosir og finnst um stund að veröldin sé býsna skemmtileg. Gunnar tekur raunar í bláupp- hafi sögunnar allan vafa af að þeir séu fyrst og síðast félagar, ekki maður og dýr, og gerir það á þann hátt að maður skynjar til botns að milli þeirra þriggja liggja þesskonar þræðir sem gerir lífið dýrmætt, heiminn að stað sem vert er að búa í: Þessir þrír höfðu nú um nokkurt árabil verið óað- skiljanlegir, þegar um slíka leiðangra var að ræða, og þekktu nú orðið hver annan út í æsar, með þeim djúprætta kunnugleika, sem ef til vill tekst aðeins milli alveg fjarskyldra dýrategunda, þar sem enginn skuggi eigin sjálfsveru, eigin blóðs, eigin óska eða fýsna, villir um né veldur myrkvun. Þessi lýsing á sambandi Benedikts, Leó og Eitils er jafnframt ágætis dæmi um hvernig Gunnar víkkar út heim bókarinnar, einfaldir hlutir fá almenna, mér liggur við að segja al- tæka skrírskotun, við erum ekki bara með frásögn af atvikum, atburðum, heldur líka vangaveltur um lífið sjálft, um innsta eðlið. Hér er svo annað dæmi, Benedikt er kominn að Botni á sínum fyrsta degi, öll ferðin eftir. Botn er efsti bærinn, sveitin fyrir neðan, sjálf öræfin fyrir ofan, hann er því á einskonar landamærum, og í þessu stutta broti rúmast ekki bara ljóðræn heimspeki, heldur líka hár- fín og dramatísk lýsing á þeim reginmun að vera á meðal manna og uppi á öræfum; les- andinn skynjar hvað bíður Benedikts: Menn, sem eru á gangi í myrkri, missa svo und- arlega hver af öðrum. Þó er einvera manns í myrkri frábrugðin einveru á fjöllum, hérna niðri í byggðinni, er hún ekki eins alger; maður heyrir ennþá aðrar raddir en sína eigin, finnur and- ardrætti í nánd, hinn djúpa tómleika utan úr geimnum og neðan frá grunni grjótsins leggur ekki ennþá eins og ískulda um hársræturnar. Frjósemin í höfði lesandans Aðventa hefur verið túlkuð á ýmsa vegu. „Þetta er stórkostlegt vetrarljóð“, skrifaði Jakob Jóh. Smári í ritdómi árið 1938, og held- ur „athyglinni vakandi, þó að efnið sé í raun og veru ekki mikið“. Matthías Johannessen segir að rauði þráðurinn í verkum Gunnars hafi verið staða mannsins í tilverunni, að „vera ábyrgur, leita sannleikans og kjarna til- verunnar, reyna að skilja stöðu mannsins – þá glímu hefur Gunnar Gunnarsson háð í öll- um verkum sínum...“ Það skal játað að stund- um hefur mér þótt að sú glíma hafi gert skáldskapinn óþarflega þungan í vöfum, jafn- vel heft Gunnar sem skapandi höfund, varnað honum þess að leita nýrra leiða í forminu, eins og hann hafi gleymt því að leitin að skáldskapnum og leitin að sannleikanum sé eitt og hið sama, ef ekki sami handleggur, þá sami líkami. Eða eins og stendur á einum stað: „það er ekki hollt fyrir höfund að hugsa of mikið, látum heimspekingum það eftir.“ Þetta á að sjálfsögðu ekki við hans bestu verk, Svartfugl prýðis dæmi þar um, dimm og alvarleg bók, hin þunga leit að sannleikanum hrífur mann með sér, eins og dimmt fljót. Svartfugl hefur lengi verið lesin í skólakerf- inu, jafnvel þótt hún sé ekki hentugur inn- gangur að verkum Gunnars fyrir ómótaða lesendur, eða hversvegna lesa framhalds- skólanemar ekki upphafið að Fjallkirkjunni; fyrsta eða annan hlutann af Skipi heiðríkj- unnar, stórkostlegt verk þar sem saman fer leikur og sársauki - ljóðrænn frásagnar- flaumur sem Halldór Laxness þýddi svo af- bragðsvel fyrir okkur? Það býr margt í verkum Gunnars, þau eru djúp og leita á mann við ólíkustu tækifæri, til- svör og persónur, jafnvel heilu bækurnar; ný- verið talaði ég við skáld sem sagðist iðulega vera hugsað til Sælir eru einfaldir þegar fuglaflensu ber á góma, eins og sú hugstæða bók væri hreinlega lýsing á þeim heimsfar- aldri sem hugsanlega biði okkar. Margræður er Gunnar, og Aðventa hefur líka verið lesið á ýmsa vegu, sumir hafa gengið og fullyrt að Gunnar hafi markvisst ofið ævi og boðskap Krists inn í söguna, að líta eigi á för Bene- dikts sem sviðsetningu á ævi og boðskap Krists. Það eru engin ný sannindi að Gunnar Gunnarsson hafi talsvert hugsað um Krist og biblíuna; Sælir eru einfaldir gerist á sjö dög- um og vísar það auðvitað í sköpunarsöguna, „söguhetjur kreppusagnanna bera mörg Kristseinkenni,“ skrifaði Matthías Viðar, en Sælir eru einfaldir telst til þeirra, og vissu- lega verður manni hugsað til Krists og hans boðskapar við lestur á Aðventu. Benedikt er fábrotinn alþýðumaður, en það er nú eitt að vera fábrotinn, allt annað að vera einfaldur; sumir myndu segja að Benedikt væri með háa náttúru -og tilfinningagreind, afskaplega næmur á náttúruna, dýrin, þekkir stráið í sumarmóanum jafnvel og vetrarofsann uppi á öræfum, manneskja sem af innsta eðli skilur kjarnann í boðskap Krists. Benedikt hefur þann sjaldgæfa eiginleika að þekkja tæpast hismið, veit hreinlega ekki af því, kjarninn í boðskapnum blasir einfaldlega við honum. Það fara aftur á móti viðvörunarbjöllur af stað í kollinum mínum þegar Benedikt er lýst sem Kristgervingi, og að Aðventa sé helgi- sögn. Ég skil vel að sumum þyki freistandi að túlka hana þannig, Gunnar vísar ósjaldan, beint eða óbeint, í biblíuna, enda er hún Benedikt töm, hans húslestur, hvað þá á þess- um árstíma, sjálfri aðventunni, en það er mjög vafasamt að gera þær vísanir að höfuð- atriði, útgangspunkti sögunnar. Bók sem fær það orð á sig að vera nútíma helgisögn, svið- setning á ævi Krists, á það á hættu að stirðna í hugum lesenda, það er girt fyrir aðrar túlk- unarleiðir og sem verra er: bókin verður ekki lengur lesin á sínum forsendum, forsendum skáldskaparins. Lesendinn klæðir sig í kirkjuföt og les af auðmýkt þiggjandans, en þannig má aldrei umgangast skáldsakap sem byggir framhaldslíf sitt á frjóseminni í höfði lesandans. Gunnar Gunnarsson „Og með tímanum komst sú mýta á flot að allir íslenskir höfundar stæðu í skugga Halldórs, líka Gunnar og Þórbergur, þótt skugginn sá hafi hvergi verið til nema í höfði þeirra sem svo mæltu.“ Myndin var tekin þegar höggmynd Sigurjóns Ólafssonar í anddyri Árna- stofnunar var afhjúpuð. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Höfundur er rithöfundur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.