Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.2006, Page 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 14. janúar 2006 | 15
Kvikmyndir
Borgarbíó, Akureyri
Hostel
A Little Trip to Heaven
(HJ)
Just Friends (HJ)
Cheaper by the Dozen 2
Smárabíó
Hostel
Brothers Grimm (HJ)
A Little Trip to Heaven
(HJ)
Draumalandið (SV)
The Family Stone (HJ)
Brokeback Mountain
Cheaper by the Dozen 2
Regnboginn
Hostel
Brothers Grimm (HJ)
A Little Trip to Heaven
(HJ)
Brokeback Mountain
Laugarásbíó
)Just Friends (HJ)
Draumalandið (SV)
Háskólabíó
Rumor has it
Chronicles of Narnia
(SV)
King Kong (SV)
Harry Potter og eldbikarinn
(HJ)
Babúska
Saint Ange
Lemming
Draumahlutverkið
Sambíóin Reykjavík,
Keflavík, Akureyri
Jarhead
Domino (SV)
Rumor has it (SV)
Chronicles of Narnia
(SV)
King Kong (SV)
Draumalandið (SV)
Harry Potter og eldbikarinn
(HJ)
Litli kjúllinn (SV)
Just Like Heaven (HJ)
Myndlist
Aurum: Ragnheiður Ösp Sig-
urðardóttir vöruhönnuður
sýnir handgerðar fígúrur.
Café Karólína: Aðalsteinn
Svanur sýnir bleksprautu-
prentaðar ljósmyndir á segl-
dúk til 3. febr.
Gallerí + Akureyri: Ingileif
sýnir myndbandsverk og Ás-
laug Thorlacius sýnir ljós-
myndir og teikningar. Til 29.
jan.
Gallerí Sævars Karls: Mynd-
listarmaðurinn Helgi Már
Kristinsson sýnir. Til 26. jan.
GUK+: Hartmut Stockter til
16. janúar.
Hafnarborg: Kári Svensson
frá Færeyjum og Pétur
Bjarnason myndhöggvari.
Til 30. jan.
Hallgrímskirkja: Kristín
Gunnlaugsdóttir og Margrét
Jónsdóttir til febrúarloka.
Hrafnista, Hafnarfirði: Ell-
en Bjarnadóttir sýnir í
Menningarsal til 7. febrúar.
Iða: Þóra Guðrún Benedikts-
dóttir sýnir til loka janúar.
Kaffi Sólon: Dóra Emils. Til
14. jan.
Karólína Restaurant: Óli G.
til aprílloka 2006.
Kling og Bang gallerí : Er-
ling T.V. Klingenberg og
Sirra, Sigrún Sigurðardóttir.
Til 22. janúar.
Listasafn Einars Jónssonar:
Fastasýning.
Listasafn Íslands: Sýning á
Þjóðminjasafn Íslands:
Huldukonur í íslenskri
myndlist, í Bogasal til 28.
maí. Ljósmyndir Marco
Paoluzzo í Myndasal og ljós-
myndir Péturs Thomsen í
Myndasal. Til 20. febrúar.
Leiklist
Borgarleikhúsið: Salka
Valka, sun., fim.Woyzeck,
sun. Kalli á þakinu, sun., lau.
Carmen, lau, fim, fös. Mann-
tafl, lau. Belgíska Kongó,
sun, fös. Glæpur gegn
diskóinu, fim. Naglinn lau,
sun, fös.
Iðnó: Ég er mín eigin kona,
lau., fös.
Leikfélag Akureyrar: Full-
komið brúðkaup, lau., fös.
Þjóðleikhúsið: Túskildings-
óperan, lau., fös. Eldhús eftir
máli, lau., sun., fös. Sunnu-
dagskvöld með Svövu, sun.
verkum 13 íslenskra sam-
tímalistamanna. Til 12. febr-
úar.
Listasafn Reykjavíkur,
Ásmundarsafn: Bernd
Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús: Erró til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjar-
valsstaðir: Jóhannes Sveins-
son Kjarval. Til 19. mars.
Norræna húsið: Haukur
Dór, sýning í tilefni af útgáfu
bókarinnar Úr dýragarði.
Aðeins þessi eina helgi.
Nýlistasafnið: Kees Visser,
Þór Vigfússon og Ívar Val-
garðsson.
Saltfisksetur Íslands: Mar-
grét Bára með málverkasýn-
ingu. Til 27 jan.
Yggdrasill: Tolli til 25. jan.
Þjóðmenningarhúsið: Hjört-
ur Hjartarson. Íslenskt bók-
band.
EITT af mikilvægustu sérkennum leikhússins
sem greinir það frá stóra keppinautnum, kvik-
myndinni, er sambandið við áhorfendur. Ekki
bara nálægðin, ekki bara að það sem við sjáum
er að gerast hér og nú, heldur sá möguleiki að
persónurnar tali hreinlega við okkur. Deili
hugsunum sínum, afhjúpi sinn innri mann. Eða
þá reyni að ljúga að okkur. Í einleik er þetta
hreinlega grundvöllur formsins, áhorfendur
eru mótleikarinn. Þegar vel tekst til eru slíkar
sýningar einhver sterkasta leikhúsupplifunin
og enn magnaðri fyrir þá sök að ekkert annað
listform hefur þessa nálgun á valdi sínu. Í ein-
leiknum er leikhúsið á heimavelli.
Glæpur gegn diskóinu samanstendur af
þremur eintölum. Þrír karlmenn bjóða okkur
með sér inn í líf sitt, fylgja okkur í gegnum eitt
afdrifaríkt kvöld og sýna okkur hvernig for-
tíðin, sem smám saman skýrist, leiðir að at-
burðunum sem verða. Þeir hafa allir beðið
skipbrot, eru strand í tilverunni. Ofbeldi er
miðlægt í lífi þeirra allra, örlagavaldur jafnt
gerenda sem þolenda.
Þetta er fantalega vel skrifað verk. Gary
Owen hefur greinilega á valdi sínu að skrifa
raunsæislega en jafnframt skáldlega, að yrkja
fyrir leiksvið. Hver þáttur er persónulýsing en
jafnframt spennandi saga og fram á síðustu
stundu eru sífellt að bætast við upplýsingar
um hvernig þær tengjast og hvers vegna verið
er að segja okkur þær í sömu sýningunni.
Jafnvægið milli framvindu og sálfræðilegrar
afhjúpunar, og svo hvernig heildarfléttan
skýrist smátt og smátt er frábærlega unnið hjá
höfundinum, sem þykir einn eftirtektarverð-
asti höfundurinn á Bretlandseyjum, ekki síst á
grundvelli þessa magnaða verks. Þýðingin hef-
ur tekist ágætlega hjá þríeykinu sem ber
ábyrgð á henni. Einstöku sinnum verður mál-
farið óþjált en án samanburðar verður ekki
fullyrt um hvort þar sé um að ræða stílbragð
höfundar eða vandræði þýðendanna. Og aldrei
þessu vant truflaði mig ekki að staðfærslan
gengur strangt tekið ekki upp, til þess er
menningin sem mótar líf persónanna of út-
lensk. Það breytir engu, við samþykkjum þann
heim sem okkur er sýndur á sviðinu, þó hann
sé hvorki almennilega velskur né íslenskur.
Raunar er það sem ég hef út á sýninguna að
setja eintóm smáatriði. Íslenska nafnið pirrar
mig, svo og hin táknræna lukkuskífa sem Þór-
arinn Blöndal hefur kosið að gera að brenni-
depli annars þénugrar leikmyndar sinnar.
Þegar leikrit er fullfært um að koma merkingu
sinni til skila er alger óþarfi að reyna að mata
mig á kjarna þess í umgjörðinni.
Í byrjun fannst mér líka eins og hljóðmynd
Halls Ingólfssonar væri ein af þessum hug-
myndum sem er góð sem hugmynd en virkar
ekki í raun. En þó ekki sé hann flinkasti
trommuleikari sem ég hef heyrt spreyta sig á
svona verkefni þá hætti áslátturinn fljótlega að
trufla, og fór smám saman að virka.
Agnar Jón Egilsson eflist sem leikstjóri með
hverju verki. Vonandi er hann ekki hættur
sinni frjóu og mikilvægu vinnu með leik-
félögum framhaldsskólanna þó svo hann sé
óðum að hasla sér völl á „stóra“ sviðinu, en
óneitanlega er meiri agi yfir framsetningu
hans í þessari sýningu en mörgum hinum gal-
gopalegu og anarkísku uppsetningum með
skólunum. Það er eins og hann hafi tekið sitt
óstýriláta leikræna ímyndunarafl og komið því
fyrir inni í leikurunum sjálfum, þar sem það á
best heima í þetta sinn. Flott vinna.
Annars er Glæpur gegn diskóinu sýning
leikaranna. Þeir ná allir að skapa sterkar og
eftirminnilegar persónur, standa með þeim og
skila þeim til okkar.
Fyrstu mínúturnar hélt ég reyndar að þrjú
korter með Kalla Klikk í meðförum Friðriks
Friðrikssonar yrðu hreinræktuð kvöl. Ein-
staklega ógeðfelldur ofbeldismaður, og
óáhugaverður með öllu. Eða hvað? Nei, Frið-
rik og Owen sáu til þess að við fengjum fljót-
lega áhuga á þessum stórhættulega en jafn-
framt aumkunarverða óþokka. Veruleg vel
teiknuð mynd af manngerð sem allir sem sótt
hafa sveitaböll og aðrar slíkar skemmtanir
þekkja, en eðli málsins samkvæmt er ekki á
allra færi að kynnast svona náið. Friðrik nýtur
sín afar vel í svona samleik með áhorfendum,
hefur gott lag á tímasetningum og var flinkur í
að draga upp skyndimyndir af öðrum persón-
um sem urðu á vegi Kalla.
Af þeim þremenningum hefur kannski
minnst sést til Guðmundar Inga, og það er því
þeim mun ánægjulegra að tilkynna að hann
átti sannkallaðan stjörnuleik í hlutverki
karaokekappans Hjartar R. Hjartaknús. Það
sem stefndi hraðbyri í að verða dálítið klisju-
kennd skopsaga um einrænan, ofsatrúaðan og
kúgaðan mömmustrák fékk fljótlega á sig sér-
lega mannlegan og innlifaðan blæ (og varð
auðvitað hálfu fyndnara fyrir vikið). Líkams-
málið var mjög skemmtilega notað hjá Guð-
mundi og rímaði flott við kostulegt málsnið
persónunnar.
Ólafur Darri fékk það verkefni að vera
„venjulegi maðurinn“ í þessu galleríi. Sú per-
sóna sem býður upp á minnst tilþrif, eða alla-
vega er það sú leið sem er farin hér. Aftur var
framan af eins og ekkert væri að gerast og lítið
sem fangaði hugann. En innlifun Darra í hlut-
skipti Rúnars og svo hin listilega hnýtti enda-
hnútur gefa sýningunni merkingu sína,
Glæpur gegn diskóinu er í stórum dráttum
leikhús eins og ég vil hafa það. Fyrst og fremst
krefst ég þess að verða hugfanginn í bókstaf-
legri merkingu þess orðs. Ekki endilega að
„gleyma stund og stað“, heldur verða alger-
lega upptekinn af því sem verið er að tjá mér.
Það er gaman að hrífast af hæfni listamann-
anna, en enn betra ef hún leiðir mig að því að
sökkva mér í innihaldið. Og þegar ég kem upp
á ný er ekki verra ef ég kemst að því að mér
hafi verið sagt eitthvað nýtt, eða allavega bent
á nýjan flöt.
Fullt hús hjá Steypibaðsfélaginu Stút.
Ferðadiskó Kalla Klikk
Þorgeir Tryggvason
Morgunblaðið/Ómar
Eftirminnilegar persónur
„Glæpur gegn diskóinu er
sýning leikaranna. Þeir ná
allir að skapa sterkar og
eftirminnilegar persónur,
standa með þeim og skila
þeim til okkar.“
LEIKLIST
Steypibaðsfélagið Stútur
Höfundur: Gary Owen. Þýðing: Guðmundur Ingi Þor-
valdsson, Friðrik Friðriksson og Álfrún Helga Örn-
ólfsdóttir. Leikstjóri: Agnar Jón Egilsson. Aðstoðar-
leikstjóri: Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann.
Tónlist: Hallur Ingólfsson. Leikmynd: Þórarinn Blön-
dal. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson.
Leikendur: Friðrik Friðriksson, Guðmundur Ingi Þor-
valdsson og Ólafur Darri Ólafsson.
Borgarleikhúsinu 12. janúar 2006.
Glæpur gegn diskóinu