Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.2006, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.2006, Qupperneq 16
16 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 14. janúar 2006 Á gamlársdag birti Lesbók Morgunblaðsins athygl- isverða grein um þann vanda sem fræði- bókaútgáfa hefur átt við að glíma mörg und- anfarin ár. Höfundur greinarinnar, Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur, kemur víða við og kvartar sárlega undan því að umfjöll- un um fræðibækur í fjölmiðlum sé í skötulíki og nánast að engu hafandi. Ljósvakamiðlar sem og prentmiðlar hafa gefið fræðibóka- umræðu upp á bátinn og láta þess í stað stjórnast af vilja stóru forlaganna sem skaffa fjölmiðlum miklar auglýsingatekjur síðustu vikurnar fyrir jól. Ég tek vissulega undir greiningu Sigurðar á ástandinu á bókamarkaðinum því ég hef kynnst þessum blákalda veruleika af eigin raun. Ég tek óhikað við keflinu af Sigurði og mun varpa ljósi á ýmsa þætti bók- menntageirans sem hingað til hafa legið í þagnargildi. Það er orðið löngu tímabært að afhjúpa spillinguna, klíkuskapinn og ójafn- ræðið sem viðgengst hjá stjórn Menning- arsjóðs. Svo ekki sé talað um vanmáttinn og getuleysið. Stjórn Menningarsjóðs var kosin af Alþingi og ber menntamálaráðherra stjórnskipulega ábyrgð á störfum stjórn- arinnar. Ég mun færa fyrir því rök hér á eft- ir hvers vegna þessi verst þokkaða stjórn í sögu Menningarsjóðs verður að víkja. En áður en lengra er haldið skulum við fjalla aðeins um þær fræðibækur sem Sig- urður flokkar með skrautútgáfum, það er fræðibækurnar sem stóru forlögin gefa út og eru iðulega tilnefndar til Íslensku bók- menntaverðlaunanna af, vel að merkja, dóm- nefndum sem stóru forlögin velja sjálf. Eftir að hafa stundað ritstörf í fjögur ár gaf ég út bókina Og ég skal hreyfa jörðina, sem fjallar um sögu stærðfræðinnar. Gríð- arleg vinna var lögð í bókina, heimilda aflað víðs vegar um heim, sögustaða vitjað og margir sem réttu fram hjálparhönd. Verkið er mjög umfangsmikið (704 bls.) og státar af fallegum myndum sem margar hverjar voru keyptar dýrum dómum af erlendum lista- söfnum. Eitt hafði ég þó að leiðarljósi: fræði- mennskan skyldi ávallt höfð í fyrirrúmi. Heimildir grandskoðaðar og skoðaðar aftur þegar komið var að verklokum, því hættan á yfirsjónum er ávallt til staðar. Heimildir skoðaðar í þriðja skipti til að vera alveg öruggur. Þetta eru þau vinnubrögð sem höf- undar fræðirita verða að temja sér svo að verk þeirra megi gagnast almenningi um ókomin ár. Sigurður Gylfi bendir réttilega á að stóru forlögin hafa ekki minnsta áhuga á að gefa út fræðibækur af þessu tagi af ótta við að þær standi ekki undir sér. Þess í stað leggja þau áherslu á ríkulega myndskreyttar skrautútgáfur, gjarnan í stóru broti. Vissulega er eftirsóknarvert að gefa út glæsilega bók en glansvæðingin má ekki vera á kostnað hins ritaða máls – skrautfíknin má ekki bera fræðimennskuna ofurliði. JPV út- gáfa gaf nýlega út bókina Jörðin, sem telst til fræðirita og var einna mest áberandi í þeim flokki á síðasta ári. Bókin státar vissu- lega af fallegum myndum, svo fallegum raun- ar, að hið ritaða mál fellur í skuggann. Allt púðrið fer í myndvinnsluna. Steingrímur Jónsson, prófessor í haffræði við Háskólann á Akureyri, benti á í nýlegri grein í Morg- unblaðinu að svo margar rangfærslur væri að finna í bókinni að réttast væri fyrir for- lagið að koma upp heimasíðu svo að hægt væri að safna saman og leiðrétta allar stað- reyndavillurnar. Betur heima setið en af stað farið? Félag íslenskra bókaútgefenda á villigötum Undirritaður rekur lítið bókaforlag og er því flestum hnútum kunnugur á bókamark- aðinum. Eðlilega taldi ég að ekkert væri því til fyrirstöðu að forlagið mitt ætti greiða inn- göngu í Félag íslenskra bókaútgefenda. En það var öðru nær. Enda þótt bókaforlagið mitt státi af nokkrum bókatitlum voru þeir ekki nógu margir að mati Félags íslenskra bókaútgefenda. Smælingjunum vísað á dyr. Kæfum samkeppni. Hvað er það annars sem fer fram fyrir luktum dyrum hjá Félagi ís- lenskra bókaútgefenda sem á ekki erindi við smærri forlögin? Hugum einnig að Íslensku bókmennta- verðlaununum, sem Félag íslenskra bókaút- gefenda setti á stofn árið 1989. Til að allt sé nú fágað á yfirborðinu er öllum útgefendum leyfilegt að tilnefna bækur. En þá er aðeins hálf sagan sögð því það er einkaklúbbur stóru forlaganna sem skipar dómnefndir sem síðan velja athyglisverðustu bækur ársins. Aðrir útgefendur hafa nákvæmlega ekkert um val dómnefnda að segja – rödd þeirra má ekki heyrast í súlnasölum stóru forlaganna. Trúverðugt? Félag íslenskra bókaútgefenda gefur út Bókatíðindi og þeir sem til þekkja vita mætavel að bókaútgefendur geta tæpast án þess verið að vekja athygli á bókatitlum sín- um þar, enda Bókatíðindum dreift inn á hvert einasta heimili. Lífstími þeirra er miklu lengri en gengur og gerist á hinum al- menna auglýsingamarkaði enda liggja þau á borðum landsmanna svo vikum skiptir. For- lag undirritaðs auglýsti því bókina í Bókatíð- indum, en varð að bíta í það súra epli að borga 25% hærra gjald en forlögin sem eru í Félagi íslenskra bókaútgefenda. Jafnræði? Heilbrigð samkeppnisstaða? Hvað fá stóru forlögin félagsgjöldin sín margfalt til baka í gegnum Bókatíðindin? Það er í meira lagi einkennilegt að félagsskapur sem helgar bókaútgáfu krafta sína, og ætti þar af leið- andi að standa vörð um fjölbreytta bókaút- gáfu, skelli í lás þegar smærri forlög láta á sér kræla. Leggja síðan stein í götu þeirra með því að skattleggja þau sérstaklega í gegnum Bókatíðindin. Þessar samkeppn- ishamlandi aðgerðir stóru forlaganna eru ólíðandi með öllu. Hvar er samkeppnis- stofnun? Fáliðuð. Stjórn Menningarsjóðs rúin öllu trausti Langstærsta verkefni bókaforlags míns og jafnframt skrautfjöður þess er útgáfa bók- arinnar Og ég skal hreyfa jörðina. Vegna gríðarlegs kostnaðar við útgáfuna var leitað eftir styrk hjá Menningarsjóði, en forlagið hefur aldrei í sögu sinni leitað þangað áður. Sigurður Gylfi segir í grein sinni að ein- yrkjar á akri fræða og vísinda eigi í fá hús að venda. Styrkir hins opinbera séu skamm- arlega fábreyttir og lágir. Hann telur þó að Menningarsjóður hafi gert gæfumuninn fyrir fræðiritaútgáfur og að öðrum útgáfustyrkj- um sé tæpast til að dreifa. En er það svo að Menningarsjóður geri gæfumuninn? Ég skora á Sigurð Gylfa að kynna sér þessi mál ögn betur því sennilega hefur hann aðeins séð toppinn á ísjakanum. Eftir að grein mín hefur verið lesin til enda sést jakinn í allri sinni dýrð, ægilegri en nokkurn getur órað fyrir. Förum yfir málið. Hverjir eru það sem raka til sín styrkjum úr Menningarsjóði? Ef við skoðum úthlutun Menningarsjóðs fyrir árið 2005 þá eru það einmitt stóru forlögin sem fá langsamlega stærstan skerf af kökunni. Og hæstu styrk- ina. Klíkuskapur? Hvernig stendur á því að verkið Jóhannes Kjarval, sem var á fjárlögum íslenska rík- isins á árunum 2003–2005 með samtals tvær milljónir í styrk (þar af eina milljón árið 2003), fékk einn hæsta styrk sem um getur í sögu Menningarsjóðs (árið 2003), eða eina og hálfa milljón króna? Er það verjandi að stjórn Menningarsjóðs styrki verk sem er jafnframt á fjárlögum íslenska ríkisins? Og með þessum rausnarlega hætti? Auðvitað ekki, enda úr takti við alla jafnræðishugsjón. Talandi um klíkuskap þá velti ég því einnig fyrir mér í framhjáhlaupi hvort Reykjavík- urborg hafi verið kunnugt um þessa risaháu ríkisstyrki þegar tekin var ákvörðun um að úthluta umræddu verki tveggja milljón króna útgáfustyrk. Ég bið fulltrúa Reykjavík- urborgar vinsamlegast að svara þessari spurningu. Vissulega er það fagnaðarefni þegar bókaforlög fá myndarlega útgáfu- styrki. Leikreglurnar skulu hins vegar vera skýrar og sanngjarnar og jafnræðis gætt í hvívetna. Og gæta skal hófs í styrkveitingum til einstakra aðila þegar ekki er úr meiri fjármunum að spila en raun ber vitni. Hvernig stendur á því að stjórn Menning- arsjóðs, það er Bessí Jóhannsdóttir og Jakob Frímann Magnússon sem kosin voru í hlut- fallskosningu á Alþingi til að sýsla með fjár- muni Menningarsjóðs, veittu félaga sínum sem jafnframt er í stjórninni, Kára Bjarna- syni, myndarlegan styrk úr Menningarsjóði? Og hvernig stendur á því að Kári Bjarnason, sem hafði ríkra hagsmuna að gæta, sagði sig ekki úr stjórn Menningarsjóðs vitandi að verk sem hann er ritstjóri að yrði tekið til umfjöllunar af stjórn Menningarsjóðs. Að sögn Bessíar og Jakobs var Kári ekki við- staddur rétt á meðan honum var úthlutaður styrkurinn – „vék af fundi svo nærvera hans truflaði ekki afgreiðslu málsins“ svo vísað sé orðrétt í varnartilburði stjórnar Menning- arsjóðs. Það var og, skrapp hann kannski fram í eldhús og hellti upp á kaffi á meðan félagar hans hengdu verðmiða á umsóknina? Þetta er fólkið sem hið háa Alþingi treystir til að sýsla með almannafé. Var mennta- málaráðherra kunnugt um þennan gjörning sem einn og sér afhjúpar ótrúlegt dóm- greindarleysi og skaðar þennan málaflokk allan? Undirritaður sótti bjartsýnn um útgáfu- styrk úr Menningarsjóði. Umsóknin var í alla staði mjög vönduð, gerð ítarleg grein fyrir kostnaðaráætlun, frumdrög að verkinu afhent ásamt ítarlegri heimildaskrá. Meira að segja var leitað til fjögurra þungavigt- arsamtaka er láta sig málefni stærðfræð- innar miklu varða til að styðja við umsókn- ina. Í umsögn sinni skrifaði Íslenska stærðfræðafélagið meðal annars: „Mikill fengur er að bók á íslensku sem tekur á þessu efni […] Höfundur hitti okkur að máli fyrir skemmstu og lýsti fyrir okkur verkinu og efnistökum sínum og okkur virðist að fullbúið verði verkið bæði vandað og metn- aðarfullt.“ Þessi orð hreyfðu ekki við stjórn Menningarsjóðs enda upptekin við, svo dæmi sé tekið, að styrkja nokkur verk er fjölluðu um utanríkismál, alþjóðamál og öryggismál. Í lögum um Menningarsjóð segir í fyrstu grein: „Hlutverk Menningarsjóðs er að veita fjárhagslegan stuðning til útgáfu þeirra bóka á íslenskri tungu sem verða mega til eflingar íslenskri menningu.“ Já, stjórn Menning- arsjóðs veit hvað til síns friðar heyrir. Á sama tíma var stjórn Menningarsjóðs einnig upptekin við að veita nokkrum höf- undum, sem væntanlega eru stjórninni þókn- anlegir, fleiri en einn styrk. Svo ekki sé talað um alla viðbótarstyrkina. Stjórninni finnst nefnilega sjálfsagt og eðlilegt að styrkja sama verkið oftar en einu sinni. Hinir? Þeir verða einfaldlega að bíða. Og bíða. Hvað er það annars sem svífur yfir vötnum hjá stjórn Menningarsjóðs? Ekki er það andi jafnræðis, svo mikið er víst. Klíkuskapur ríður þar hús- um. Ástæðan fyrir bjartsýni undirritaðs varð- andi styrkveitingu fólst meðal annars í því að stjórn Menningarsjóðs hafði aldrei frá upp- hafi vega sinna styrkt verk er tengist stærð- fræði með beinum hætti. Það hlaut því að vera eftirsóknarvert fyrir sjóðinn að styrkja loksins einyrkja sem tekur sér fyrir hendur að skrá sögu stærðfræðinnar á íslenskri tungu og rækilega studdan af okkar virtustu og öflugustu fagsamtökum á sviði stærðfræð- innar. Einnig skyldi maður ætla að stjórn Menningarsjóðs hefði það að leiðarljósi að gæta sæmilegs jafnræðis milli fræðigreina ef umsóknir á annað borð eru taldar jafngildar, því ekki viljum við að menning okkar sé einsleit. Því tæpast er það til eflingar ís- lenskri menningu að einblína aðeins á til- tekin fræðisvið og sniðganga önnur – snið- ganga þau svo rækilega að þau fái aldrei styrk. En hver var niðurstaða Jakobs Frímanns Magnússonar og félaga? Umsókn minni var sópað af borðinu nánast í fyrstu umferð því eftir það hélt stjórnin „áfram að grisja um- sóknir“ svo vísað sé í ummæli þremenn- ingaklíkunnar, það er stjórnar Menning- arsjóðs. Stuðningsyfirlýsingar Íslenska stærðfræðafélagsins, Flatar – samtaka stærðfræðikennara, Félags raungreinakenn- ara og Félags um eflingu verkfræði- og tæknimenntunar á Íslandi létu þau sem vind um eyru þjóta. Kom þeim ekki við. Hvenær telur stjórn Menningarsjóðs að rétta tæki- færið sé til að styrkja verk sem fjallar um málefni stærðfræðinnar? Hún fékk tækifærið einu sinni en klúðraði því svo rækilega að lengi verður í minnum haft. Virti álit sér- fróðra manna að vettugi og varð sjálfri sér til ævarandi skammar. Að öllum líkindum verður löng bið þar til næsti höfundur á þessum vettvangi kemur fram á sjónarsviðið og þar af leiðandi löng bið þar til stjórn Menningarsjóðs fær tækifæri til að leggja blessun sína yfir stærðfræðitengt ritverk. Stjórn Menningarsjóðs verður að víkja Undirritaður lagði að sjálfsögðu inn stjórn- sýslukæru til Menntamálaráðuneytisins og bíður nú úrskurðar þess. Hver voru viðbrögð stjórnar Menningarsjóðs við stjórnsýslukæru minni? Fé skattborgaranna var sólundað í rándýrt lögfræðiálit úti í bæ. Þannig vildi stjórnin fá úr því skorið hvort Menning- arsjóður væri ekki sjálfstæð stjórnsýslunefnd gagnvart menntamálaráðherra. Umboðs- maður Alþingis hafði þegar úrskurðað að svo væri ekki – samt var reynt að fá þeim úr- skurði hnekkt. Á kostnað almennings. Var það gert með vitorði menntamálráðherra? Með þessari yfirgengilegu framgöngu vildi stjórnin auðvitað forðast að taka efnislega á kæru minni enda algjörlega ráðþrota. Hafði ekkert fram að færa sem réttlætti gjörðir hennar. Lögfræðiálitið hékk hins vegar á svo þunnum þvengjum að það var að engu haf- andi. Nú eru liðnir meira en sjö mánuðir síðan kæran var lögð fram og Menntamálaráðu- neytið gerir ekki annað en að draga lapp- irnar. Loforð um að flýta málinu margbrotin. Einföldustu fyrirspurnum ekki svarað. Vissu- lega er stjórnsýslukæran viðkvæm í pólitísku tilliti enda ber sjálfur menntamálaráðherra stjórnskipulega ábyrgð á misgjörðum stjórn- arinnar. En eftir hverju er beðið, öll gögn hafa legið frammi svo mánuðum skiptir? Öllum má ljóst vera að stjórn Menning- arsjóðs er rúin öllu trausti – er algjörlega vanhæf að takast á við þau verkefni sem henni er falið. Með þeim ótrúlega gjörningi sínum að styrkja verk sem einn stjórn- armeðlima er aðili að kórónaði hún algjört dómgreindarleysi sitt. Það sjá auðvitað allir í hendi sér að stjórnin átti aðeins um tvo kosti að velja: Að leggja umsóknina sem sneri að Kára Bjarnasyni til hliðar vegna augljósra hagsmunatengsla eða að Kári Bjarnason segði sig úr stjórninni. Þannig eru leikregl- urnar í nútímasamfélagi. Gegntærar og auð- skildar. Stjórn Menningarsjóðs er svo djúpt sokkinn í eigin fúafeni að hún verður að víkja. Strax. Klíkuvæðing á bókamarkaði Morgunblaðið/Kristinn Stærðfræði „Ástæðan fyrir bjartsýni undirritaðs varðandi styrkveitingu fólst meðal annars í því að stjórn Menningarsjóðs hafði aldrei frá upphafi vega sinna styrkt verk er tengist stærðfræði …“ Eftir Jón Þorvarðarson thsnorra@ismennt.is Höfundur er rithöfundur og útgefandi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.