Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.2006, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.2006, Blaðsíða 5
Selmasongs Reynsla Bjarkar af Lars von Trier við gerð Dancer in the Dark gerði hana fráhverfa kvikmyndaleik um sinn, en hún kom síðar fram í Drawing Restraint 9. afhend- Medúlla Eftir að hafa siglt lygnan sjó í nokkurn tíma sneri Björk aftur með sína ævintýra- legustu plötu í langan tíma - engin hljóðfæri, bara raddir. Homogenic Eftir „fyrir og eftir“ plöturnar Debut og Post kom Homogenic - sem er að margra mati vendipunktur á ferli Bjarkar. Vespertine Þrjú ár liðu frá Vespert- ine í næstu plötu, Medúlla. Björk er hér í Barcelona sumarið 2003. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 5 lögin sem höfðu safnast upp fyrir Debut. Plat- an er því heildstæðari að einhverju leyti en jafnframt sundurleit, og þar spilar fjöldi „pró- dúsanta“ vafalaust inn í. Á plötunni er að finna allt frá „You’ve Been Flirting Again“, þar sem Björk syngur einungis við undirleik strengja- sveitar, til amerískra söngleikja í „It’s Oh so Quiet“. Það er kannski dálítið kaldhæðnislegt að stærsti smellur Bjarkar skuli ekki vera eftir hana sjálfa, en jafnframt til marks um hve rödd hennar (bæði bókstaflega og í yfirfærðri merk- ingu) er einstök. Björk innsiglaði forskot sitt í tónlistarheim- inum með næstu skífu, Homogenic (1997). Áhrif tilraunaglaðra raftónlistarmanna skiluðu sér í brotnum og flóknum töktum sem hljóm- uðu oftar en ekki fremur eins og sprengingar, drunur eða brestir en venjulegar trommur. Of- an á taktana var síðan hlaðið strengjaoktett og þar ofan á rödd Bjarkar. Útkoman varð áber- andi besta verk Bjarkar hingað til, og fyrir vik- ið ein besta plata tíunda áratugarins. Homogenic er vissulega plata náttúrunnar, hljóðin virðast hreinlega æpa á viðlíkingu í landslagi. Þetta endurspeglaðist í myndband- inu við „Jógu“ en það er nóg að loka augunum og setja á sig heyrnartól til að standa einn frammi fyrir himninum og sjóndeildarhringn- um. Björk tók ríkari þátt í „pródúksjóninni“ – platan er „hómógenísk“ – á öll rætur sínar í einu og sama hjartanu. Lýsing Bjarkar á „All Is Full of Love“ sem eins konar tónlistarlegri túlkun á augnablikinu þegar tvö tré standa á ströndu við nýtt upphaf í norrænni goðafræði er ótrúlega sönn þegar vel er hlustað, ekki síst vegna þess að sólin sortnar og fold sekkur í mar í ragnarökum lagsins á undan, „Pluto“. Kvikmyndatónlistin á Selmasongs kom út árið 2000 en bætir litlu við Homogenic þó að þar sé vissulega að finna vel úfærð lög. Ve- spertine (2001) var aftur á móti næsta stóra út- spil Bjarkar. Væntingarnar voru gríðarlegar og kannski fékk platan blendnar viðtökur vegna þess. Það var m.a. talað um að Björk hefði tapað áralöngu forskoti sínu hvað varðaði notkun á tækjum og tólum og hljómaði einfald- lega eins og allir aðrir. Það er kannski eitthvað til í því, múm hafði t.a.m. kannað þennan hljóð- heim að miklu leyti á fyrstu plötu sinni, en ef eitthvað er þá hjálpar Vespertine einungis við að fullmóta þennan hljóm. Í dag er auðvelt að skoða Vespertine sem vandaðan samruna „braks og bresta“ (e. clicks and cuts) og melódíu, eins og Debut var sam- runi danstónlistar og popps, og Homogenic samruni raftónlistar og popps. Fyrri hluti plöt- unnar er einstaklega góður, þar má sér- staklega nefna „It’s Not up to You“ sem hrekur allar staðhæfingar þess efnis að melódíuna skorti, en slíkar gagnrýnisraddir heyrðust líka við útkomu plötunnar. Ef Björk missti forskotið á Vespertine þá endurheimti hún það rækilega með Medúllu (2004). Hugmyndin á bak við plötuna er vissu- lega brjálæðisleg: Lögin samanstanda einungis af röddum (og stöku píanói) sem er búið að keyra gegnum tölvu og raða niður svo úr verða taktar, bassalínur og skraut af öllu tagi. Röddin kemur óbreytt fyrir í formi kórs og söng Bjark- ar. Platan er stórfurðuleg en jafnframt stór- skemmtileg. Mannsröddin er teygð og toguð og smám saman rennur upp fyrir hlustandanum að Björk er löngu búin að sprengja allt sem getur kallast popptónlist utan af sér, líklegast fyrir löngu síðan án þess að nokkur yrði þess var. Eftir stendur fullþroskaður listamaður sem smyglar sér óséður inn á vinsældalistana vestan hafs og austan. Margar af pælingunum á Medúllu halda áfram með ólagrænni hætti á Drawing Restra- int 9 (2005), sem inniheldur tónlistina úr sam- nefndri mynd. Þar fer lítið fyrir rödd Bjarkar, en leiðin sem hún fór í lagasmíðum á Medúllu skilar sér þess í stað í hljóðfærum eins og sembal og selestu, auk þess sem japanskt sho (munnorgel) leikur stóra rullu. Eins og var raunin með Selmasongs er þessi plata af nokk- uð öðru tagi en eiginlegar hljóðversplötur Bjarkar en hún virðist jafnframt vera til vitnis um að Björk sé að fjarlægast poppheiminn meira en áður. Eða hvað? Nýjustu fregnir herma að Björk hafi unnið að lögum með hip-hop-„pródúsent- inum“ Timbaland, sem er hvað þekktastur fyr- ir samstarf sitt við Missy Elliott og Justin Tim- berlake. Það var svo sem ekki við því að búast að Björk stefndi í þá átt sem maður vænti, hún er í stöðugri endurnýjun og hver plata hennar hefur einstakan hljóm. Röddin bindur höfund- arverkið að sjálfsögðu saman en það er ekki síst skýlaus krafa um gæði og framsýni sem gerir það að verkum að verk Bjarkar munu standast tímans tönn og hún fær sæti við hlið hinna stóru í Valhöll poppgoðanna. »Hlustið bara á Post (1995), Björk gengur lengra en samtímamennirnir, gerir meira. „Hyper-ballad“ er t.a.m. virkilega fallegt lag ... Höfundur er tónlistargagnrýnandi. eða bara náttúru almennt, sem síðan er á ein- hvern hátt alltaf tengd Íslandi að því marki að Björk, sem Íslendingur, leggur mikla áherslu á mikilvægi náttúrunnar fyrir sköpun sína. Í fyrsta myndbandinu sem fylgdi lagi Bjark- ar, Human Behaviour (Michel Gondry), sjáum við söngkonuna ganga gegnum ævintýralegan skóg. Hún fellur vel að umhverfinu og leikur á stundum hlutverk skordýra og smádýra. Að lokum er hún gleypt af birni, og hniprar sig huggulega saman í kviði hans; tilfinningin er sú að hún hafi verið tekin inn að hjarta náttúrunn- ar. Í myndbandi Spike Jonze, Its in our hands, heimsækjum við aftur ævintýraskóginn, að þessu sinni er vísað til sögunnar um Þumalínu þarsem örsmá Björk skoppar um skóginn og hittir fyrir fjölbreytt skordýr í grænleitri næt- urlýsingu – líkist þeim reyndar þónokkuð með sín glampandi augu. Bæði myndböndin leggja áherslu á ímynd Bjarkar sem annarsheims veru, sem spannar náttúru, yfirnáttúru og þen- ur í raun út mörk náttúrunnar að því marki að hún er alltaf augljóslega tilbúin, ímynd. Þetta birtist á frábæran hátt í „Jóga“, en bæði lagið og myndbandið eru bæði tekin sem dæmi um hvernig Björk fléttar ‘Ísland’ inn í hljóð- og myndheim sinn. Myndbandið er gert af Michel Gondry og sýnir íslenskt landslag í sínu feg- ursta ljósi. En skyndilega grípur landslagið stafræn óreiða, steinar taka að stökkva og sprungur birtast í hinum friðsælu ám og hraunbreiðum, og sér í rauða kvikuna. Þegar á líður birtist einmana vera á fjallstindi. Við sjáum að þetta er Björk sem leggur hendurnar á brjóst sér og opnar gat inn í líkama sinn, en inni í honum birtist meira landslag, hellir og að lokum eyja, sem flýtur á kyrru vatni. Tölvu- tækni blandast átakalaust og óaðfinnanlega við náttúrulega fegurð, og það er söngkonan sjálf sem stendur í miðju slíks samruna. Þannig er náttúrusýn Bjarkar í raun í and- stæðu við hina rómantísku náttúruímynd sem er ávallt háð andstæðunni við tækni. Þetta kemur skemmtilega fram í texta lagsins „The Modern Things“ (Post 1995), en lýsir Björk þeirri hugmynd sinni að allir nútíma hlutir, eins og bílar og aðrar vélar, hafi alltaf verið til. Þeir biðu lengi, inni í fjalli, eftir réttu stundinni til að birtast. En núna er þeirra tími kominn og þeir munu margfaldast og taka yfir. Í text- anum kemur greinilega fram að vélarnar eru ekki líflausar, þvert á móti þá eiga þær sér eig- in tilveru, sem virðist bara í ágætu jafnvægi við náttúrna, ef dæma má af felustaðnum í fjöll- unum. Á þennan hátt er tæknin séð sem félagi, og hluti af mannlegri tilveru. Þetta ítrekar Björk í viðtali við skáldkonuna Sigurbjörgu Þrastardóttur (Tímarit Morgunblaðsins 22.08.04), en þar segir hún að verkefnið sé „að púsla saman tækninni og tilfinningunum, en ekki fara með þær sem tvo ósamrýmanlega þætti“. Þessi blöndun tækni og náttúru heldur svo áfram á Medúllu, þarsem tónlistin sam- anstendur eingöngu af mannsröddum, sem síð- an eru meðhöndlaðar í tölvum. Hér birtist einnig hin sérstæða samfléttun ímyndar söng- konunnar á hinu heima og heimum, bæði hvað varðar fjölþjóðlegt val á tónlistarfólki, en lík- lega þó á mun meira áberandi hátt í laginu „Oceania“, sem var frumflutt við setningu Ól- ympíuleikanna í Aþenu árið 2004. Þar syngur Björk um hafið sem fæðingarstað mannkyns, þarsem meginlöndin eru eyjar í augum drafn- arinnar, „mother oceania“, sem blikkar aug- unum meðan maðurinn telur aldir. Mynd- bandið við lagið er gert af Lynn Fox og þar birtist Björk sem einskonar neðansjávarvera, innanum ýmis furðuleg sjávardýr; sjálf er hún eins og eitt þeirra með andlitið þakið glit- steinum. Lagið og myndbandið gefa til kynna að Björk álíti hafið einskonar tákn sambands eða tengsla, jafnframt því að aðskilja lönd. Hún hefur sungið um hafið áður, í „Anchor Song“ af Debut (1993), þarsem hún segir: „i live by the ocean / and during the night / i dive into it.“ Og hún varpar akkerum og segir: „this is were i’m staying / this is my home.“ Fyrir eyjabúa er það kannski sérlega auðvelt að gera hafið að tákni heima og heiman; hafið birtist hér sem opinn vegur sem liggur í allar áttir og er á sama tíma krossgötur alls. Þannig er óhætt að segja að sú ímynd sem Björk gefur Íslandi, með því einfaldlega að vera héðan, og með því að nýta sér Ísland í ímyndasköpun sinni, er bæði margræð og margþætt og umfram allt, stöðugt umbreyt- anleg líkt og ímynd söngkonunnar fer hamför- um. Hér höfum við náttúru, en líka tækni. Sem náttúruvera er Björk alltaf að einhverju leyti yfir-náttúruleg, og þegar tæknin fléttast sam- an við verður undarleikinn enn meiri. Jafn- framt spinnst saman og sundur hugmyndin um sterka og sjálfstæða konu sem er dæmigerður Íslendingur, en samt bæði alþjóðleg og fjöl- þjóðleg. Með því að sameina alla þessa ólíku þætti vegur Björk uppá móti óþarflega þjóð- ernislegum hugmyndum um hreinleika – blöndun af þessu tagi getur ekki verið hrein – auk þess sem hún skapar rými fyrir nýja, fjöl- breytta og síbreytilega upplifun á þjóðerni og ímynd Íslendingsins og landsins sjálfs. » ... sú ímynd sem Björk gef- ur Íslandi ... er bæði marg- ræð og margþætt og umfram allt, stöðugt umbreytanleg líkt og ímynd söngkonunnar ... Höfundur er bókmenntafræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.