Morgunblaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 2
KNATTSPYRNA 2 C MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins „AUÐVITAÐ voru þetta ekki úrslit- in sem við vildum og við hefðum átt að gera betur, andstæðingurinn var ekki svo öflugur. Það var hins veg- ar erfitt að þurfa að elta þá allan tímann, í áttatíu mínútur eftir að hafa fengið á okkur klaufalegt mark snemma, og fyrir vikið þróað- ist leikurinn öðruvísi en hann hefði þurft að gera,“ sagði Indriði Sig- urðsson, vinstri bakvörður íslenska liðsins, við Morgunblaðið eftir ósig- urinn gegn Trínidad og Tóbagó. „Ég var klaufi að geta ekki hreinsað boltann í burtu þegar við fengum markið á okkur, og svo var vítaspyrnan dæmd fyrir ósköp litlar sakir. Leikmaðurinn lét sig detta og þetta var frekar ódýrt. Það þarf ýmislegt að laga en svo voru þarna ýmsir góðir hlutir til að taka með okkur í næstu leiki. Mér fannst okkar leikur fljóta ágætlega á þeim köflum í leiknum þar sem við náðum að vera rólegir og spila boltanum. Þá komu fínar rispur, sérstaklega hjá Emil upp vinstri kantinn í fyrri hálfleik, en okkur vantaði herslumuninn á sein- asta fjórðungnum á vellinum. En þetta var fyrsti leikur hjá nýj- um þjálfara og það er vonandi að við snúum þessu við frá því í fyrra þegar við unnum alla vináttuleiki en töpuðum alvöruleikjunum. Ég er kannski ekki að segja að við þurfum að tapa æfingaleikjunum, en ef við þurfum á annað borð að bíða lægri hlut er betra að töpin komi í þeim. Þegar Dwight Yorke var farinn af velli fór mestallur vindur úr þeim. Hann fékk mikið pláss og var góður í fyrri hálfleik, gerði okkur nokkrum sinnum erfitt fyrir með því að snúa á vörnina, en við náðum að loka betur á lið þeirra þegar hann var farinn út af. Við sjáum bara hvernig seinni hálfleikurinn var, þeir gerðu ekki nokkurn skap- aðan hlut fyrir utan það að fá þetta víti sem var ekki víti. Við hefðum átt að fá vítaspyrnu, bæði þegar Jó- hannes Karl skaut úr aukaspyrn- unni og þegar Ívar átti hjólhestinn í lok leiksins, beint í hönd varn- armannsins,“ sagði Indriði Sigurðs- son. „Hefðum átt að gera betur“ Svona vináttuleikur er rétti vett-vangurinn til þess að skoða leikmenn og sjá hvaða blanda af leikmönnum vinnur vel saman. Mér fannst þessi leikur mjög fróðlegur fyrir mig sem þjálfara. Ég fékk svör við ýmsum spurningum en ég á kannski erfitt með að segja frá því að hvaða niðurstöðu ég hef komist – svona skömmu eftir leik. Við munum skoða okkar leik nánar og fara yfir það sem við gerðum vel og það sem við gerðum illa,“ sagði Eyjólfur. Hann var ánægður með fram- lagið frá Emil Hallfreðssyni og Helga Val Daníelssyni en þeir voru að leika í fyrsta sinn í byrjunarliði Íslands. Emil og Helgi öflugir „Emil var mjög öflugur í fyrri hálfleik og skapaði usla í vörn Trínidad og Tóbagó. Helgi Valur átti fína spretti upp hægri vænginn af og til og var ógnandi í sókn- arleiknum sem bakvörður. Það fannst mér jákvætt í leik Helga. Að öðru leyti héldum við knettinum ágætlega í okkar röðum og fengum nokkrar fyrirgjafir sem sköpuðu hættu – en það vantaði að binda enda á þær sóknir með skoti að marki. Fyrirgjafirnar voru margar hverjar ónákvæmar og við getum gert betur á því sviði.“ Þjálfarinn var sáttur við hve margar hornspyrnur íslenska liðið fékk í leiknum og telur að þar verði að nýta styrkleika liðsins betur. „Föst leikatriði eins og hornspyrn- ur eiga að vera okkar sterkasta hlið en við náðum ekki að nýta þær að þessu sinni. Ég tel að slík atriði eigi að vera eitt besta vopn okkar og það sást þegar við fengum auka- spyrnur utan við vítateiginn að þar skapaðist ávallt hætta.“ Veikleiki á miðsvæðinu Eyjólfur telur að íslenska liðið hafi ekki snúið nógu vel úr sókn í vörn – og það hafi gert gæfumun- inn að þessu sinni. „Það er veikleiki hjá okkur að við missum of marga leikmenn framhjá okkur á miðsvæðinu eftir að hafa misst knöttinn í sókn. Við erum einfaldlega of lengi að snúa úr sókn í vörn. Þetta atriði var ég ekki sátt- ur við og ég mun leita að lausnum til þess að koma í veg fyrir að þetta gerist leik eftir leik. Við erum ein- faldlega of seinir að loka svæðum og erum því ekki nógu þéttir fyrir í varnarleiknum.“ Ívar Ingimarsson og Jóhannes Karl Guðjónsson fengu tækifæri hjá þjálfaranum en þeir höfðu ekki leikið í nokkurn tíma með íslenska landsliðinu þar sem þeir gáfu ekki kost á sér í liðið. „Ég held að Ívar og Jóhannes hafi komist ágætlega frá sínum hlutverkum og þeir lögðu sig fram eins og allir aðrir leikmenn liðsins.“ Eyjólfur var sammála því að Eið- ur Smári Guðjohnsen og Heiðar Helguson hefðu verið langt frá sínu besta í leiknum. Eiður fann ekki taktinn „Ég vissi að Eiður Smári yrði kannski ekki alveg upp á sitt besta enda hefur hann verið veikur í að- draganda leiksins. Við eigum því mikið inni að mínu mati því Eiður Smári er að sjálfsögðu eitt sterk- asta vopn okkar í sóknarleiknum. Eiður komst aldrei í takt við leik- inn og það vantaði sprengikraftinn sem einkennir hans leik. Að sama skapi var Heiðar ekki eins og hann á að sér. Hann lék í ensku úrvalsdeildinni fyrir tveimur dögum með Fulham og það sást á honum að sá leikur sat í honum. En þetta voru atriði sem ég vissi að gætu komið upp og ég er ekki að velta því mikið fyrir mér núna. Þetta var vináttulandsleikur þar sem ég fékk tækifæri til þess að koma því til skila sem ég vil leggja áherslu á. Við munum byggja á því sem við upplifðum í þessum leik og ég er ekkert að æsa mig yfir því að hafa tapað í vináttuleik á þessum árstíma. Ferðin sem slík þjónaði sínum tilgangi, hópurinn þarf að fá tíma til þess að ná þeim atriðum sem ég legg áherslu á og síðan er það mitt hlutverk að finna réttu leikaðferðina með réttri blöndu af leikmönnum.“ Byggjum á þessum grunni Í gær lék íslenska liðið 4:4:2- leikaðferðina þar sem Eiður Smári Guðjohnsen var í nokkuð frjálsu hlutverki sem framherji fyrir aftan Heiðar Helguson. Þjálfarinn er á því að hann eigi eftir að útfæra leikaðferð liðsins út frá sama grunni og notaður var í gær á Loft- us Road. „Já ég held að það henti vel að hafa Eið í slíku hlutverki og vissulega er hægt að segja að við séum að leika 4:5:1. Ég mun ekki breyta miklu hvað varðar leikað- ferðina en ég vil breyta mörgu hjá okkur hvað varðar framkvæmdina og þá sérstaklega þegar við snúum úr sókn í vörn.“ Næsti leikur íslenska liðsins er ekki á dagskrá fyrr en um miðjan ágúst er Spánverjar koma í heim- sókn á Laugardalsvöllinn en lands- liðsþjálfarinn segir að unnið sé að því að fá fleiri leiki. „Það er allt í vinnslu og ég á von á því að við get- um leikið fleiri leiki áður en við leikum gegn Spánverjum. Á þess- ari stundu get ég ekki svarað því við hverja við munum leika en að sjálfsögðu ætlum við okkur að fá fleiri verkefni,“ sagði Eyjólfur Sverrisson.                                 !" !!      !   "    #$%"$ $&"'(  $  $)  )*+ $ " #   $       %&! '( ,     ,  -              )*   ./ -  0  )12/)$ 3#()$  $) 4 &"'( $  //54 1 )( $ " +,     -   %&  $ .       5              / "  4 '01 &"'( $ +    *) 6 $ " 0      .   %1  ( 4                    1      //  ))+ "       '( 7 / 8 )  90 !  $ " 2      '(((   %1  ((        5               !" !! - '0 1 ))+ ,"    /   : )$ $ " *) $  $)  &)/*)'$2  " #  &   +,     '((3   %45  '      4 4               / " $ 9$1 $ $   0 &)/*)'$2  "   &     '((-   6  76  (' „Leikurinn var mjög fróðlegur fyrir mig sem þjálfara,“ sagði Eyjólfur Sverrisson um frumraun sína „Erum of lengi að snúa úr sókn í vörn“ Morgunblaðið/Kristinn Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska landsliðsins, ræddi við Hollendinginn Leo Beenhakker, hinn reynda þjálfara Trínidad og Tóbago, í leikslok á Loftus Road í London í gærkvöld. ÞAÐ var margt jákvætt í okkar leik og að sama skapi var margt sem við þurfum að laga og við munum fara yfir þessa hluti og finna lausnir á því,“ sagði Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari eftir 2:0- tap íslenska liðsins í vináttulandsleik gegn Trínidad og Tóbagó í gær á Loftus Road í Lundúnum. Leikurinn var sá fyrsti hjá Eyjólfi í starfi sínu sem landsliðsþjálfari en hann bar sig vel og sá margt já- kvætt í leik liðsins þrátt fyrir 2:0-tapið. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Víðir Sigurðsson skrifar frá London vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.