Morgunblaðið - 01.03.2006, Síða 4
KNATTSPYRNA
4 C MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ ríkti sannkölluð karnivalstemning á
Loftus Road í gærkvöldi og stuðnings-
menn Trínidad og Tóbagó voru mættir
fyrir utan leikvanginn löngu fyrir leik.
Gærdagurinn var hátíðisdagur í heima-
landi þeirra, mikið karnival um allar eyj-
arnar, og þeir héldu svo sannarlega upp á
það á vellinum í London með því að
syngja og dansa við taktfasta tónlistina.
Íslenskir áhorfendur voru í miklum
minnihluta á Loftus Road í gærkvöldi,
nokkrir litlir hópar á stangli hér og þar,
og voru að vonum yfirgnæfðir af hávær-
um Trínidadbúum. Þó mátti sjá nokkra
íslenska fána í stúkunni og meira að segja
Íslenska liðið réð ferðinni álöngum köflum í leiknum en átti
á brattann að sækja eftir að hafa
fengið á sig mark strax á tíundu
mínútu. Eftir ódýra vítaspyrnu í
byrjun síðari hálfleiks þar sem
Dwight Yorke skoraði sitt annað
mark vantaði nægilega ógnun til
þess að sigur Trínidadanna kæmist
einhvern tíma í hættu.
Miðað við tölfræðina úr leiknum
eru úrslitin öfugsnúin. Ísland átti
15 markskot en Trínidad og Tó-
bagó fimm, og íslenska liðið fékk 10
hornspyrnur en strákarnir úr Kar-
íbahafinu ekki eina einustu. Eina
markskot Trínidad allan síðari
hálfleikinn var vítaspyrnan fyrr-
nefnda.
En þessar tölur hafa ekkert
vægi, mörkin ráða úrslitum og þau
voru skoruð af Dwight Yorke við
gífurlegan fögnuð tæplega átta
þúsund áhorfenda sem flestir voru
á bandi Trínidad. Það er ekki að sjá
að knattspyrnulegur getumunur á
Íslandi og Trínidad sé teljandi,
allavega er hann ekki í samræmi
við þann 45 sæta mun sem staðan á
heimslistanum gefur til kynna.
Eftir rólegar upphafsmínútur
þar sem Ísland virtist líklegra til
afreka tók Trínidad forystuna á 10.
mínútu. Collin Samuel renndi sér
upp vinstri kantinn, framhjá Helga
Val Daníelssyni, og sendi fyrir
markið. Varnarmenn Íslands sköll-
uðu boltann beint út í miðjan
vítateig þar sem Dwight Yorke tók
við honum og afgreiddi hann af ör-
yggi uppundir þverslána, 1:0.
Eina markskot liðsins fyrstu 25
mínútur leiksins og því 100 prósent
nýting.
Komu framar
á völlinn
Íslenska liðið kom framar á völl-
inn strax eftir markið og náði að
gera usla í óöruggri vörn Trínidada
nokkrum sinnum á næstu mínútum.
Heiðar Helguson skaut framhjá
eftir sendingu Eiðs Smára Guð-
johnsen, Emil Hallfreðsson átti
hörkuskot í hliðarnetið frá vítateig
og Jóhannes Karl Guðjónsson átti
mikinn þrumufleyg úr aukaspyrnu
af 30 metra færi sem Shaka Hislop,
markvörður Trínidad, varði naum-
lega í horn.
Trínidad fékk sannkallað dauða-
færi eftir hálftíma leik. Eftir
hættulitla aukaspyrnu missti ís-
lenska vörnin boltann yfir sig,
Stern John var einn með hann fyrir
miðju marki Íslands en skaut yfir.
Hermann Hreiðarsson fékk síð-
an upplagt færi eftir þunga sókn
Íslands og hornspyrnu á 34. mín-
útu. Hann fékk boltann frá Eiði
Smára við vítapunkt en skaut hátt
yfir mark Trínidad.
Eiður Smári átti síðan góða til-
raun úr aukaspyrnu af 25 metra
færi þremur mínútum síðar en
skaut hárfínt framhjá markinu.
Trínidad náði tveggja marka for-
ystu úr fyrstu sókn sinni í síðari
hálfleik, á 53. mínútu. Eftir fyrir-
gjöf Averys Johns frá vinstri féll
Stern John í vítateignum og dæmd
var vítaspyrna á Hermann sem var
talinn hafa hrint honum. Dwight
Yorke skoraði sitt annað mark úr
vítaspyrnunni, 2:0.
Íslenska liðið náði smám saman
yfirhöndinni og fékk m.a. einar sex
hornspyrnur í röð um miðjan síðari
hálfleik en náði ekki að nýta sér
þær. Ekki heldur aukaspyrnu á
vænlegum stað. Jóhannes Karl
skaut í varnarvegginn, í hönd varn-
armanns vildu íslensku leikmenn-
irnir meina. En í heildina var seinni
hálfleikurinn mun daufari en sá
fyrri.
Allt bit vantaði í sóknarleik ís-
lenska liðsins og það skapaði sér
engin dauðafæri, átti nokkrar
þokkalegar skottilraunir. Vörn
Trínidad var ekki í teljandi vand-
ræðum með að ráða við fyrirgjafir
úr hornspyrnum og aukaspyrnum
og lítið reyndi á Tony Warner,
markvörð Fulham, sem varði mark
Trínidad í síðari hálfleik.
Íslenska liðið má þó eiga það að
það hætti aldrei og reyndi til
síðustu mínútu. Þegar venjulegum
leiktíma var lokið átti Ívar
Ingimarsson góða tilraun, reyndi
hjólhestaspyrnu en í varnarmann,
og Hannes Þ. Sigurðsson skallaði
framhjá rétt áður en flautað var af.
Jákvæðir þættir í leiknum eru
m.a. góð frammistaða nýliðans Em-
ils Hallfreðssonar sem átti margar
góðar rispur á vinstri kantinum og
ágæt innkoma Jóhannesar Karls
Guðjónssonar og Ívars Ingimars-
sonar eftir útlegðina. Verst var að
sjá liðið enn einu sinni fá á sig
ódýrt mark þar sem varnarmanni
mistekst að koma boltanum í burtu,
og að allar hornspyrnurnar og
aukaspyrnurnar skyldu ekki nýtast
betur. Augljóst var að Eiður Smári
og Heiðar Helguson voru þreyttir
eftir mikið álag og það kom ekki á
óvart þegar þeir fengu hvíldina í
síðari hálfleiknum.
Eyjólfur þarf að glíma við
kunnugleg vandamál
EKKI fór það vel af stað hjá Eyjólfi Sverrissyni í frumraun hans með
íslenska landsliðið þegar það beið lægri hlut fyrir HM-liði Trínidad
og Tóbagó á Loftus Road í London í gærkvöldi. Lokatölur urðu 2:0,
kannski ekki alveg í samræmi við gang leiksins en ljóst er að Eyjólf-
ur þarf að glíma við kunnugleg vandamál; fækka varnarmistök-
unum og skerpa betur á sóknarleiknum. Íslenska liðinu mistókst að
skora mark í fyrsta skipti í átta leikjum, frá markalausa jafnteflinu á
Ítalíu í lok mars á síðasta ári.
Víðir Sigurðsson skrifar frá London
vs@mbl.is
Eiður Smári Guðjohnsen
ins, reynir að leika á var
Road í gær. Stefán Gís
HERMANN Hreiðarsson,
leikjahæsti leikmaður íslenska
liðsins í gær, spilaði í gærkvöldi
sinn 65. A-landsleik. Hann er
þar með kominn í 11.–12. sæti á
listanum yfir þá leikjahæstu frá
upphafi, jafn Sigurði Jónssyni.
EIÐUR Smári Guðjohnsen,
fyrirliði íslenska liðsins, spilaði
sinn 40. A-landsleik í gærkvöldi.
Þegar Eiður Smári fór af leik-
velli á 73 mín. tók Brynjar Björn
Gunnarsson, sem hafði komið
inn á sem varamaður rétt áður,
við fyrirliðabandinu.
DWIGHT Yorke er augljóslega
vinsælasti knattspyrnumaðurinn
á Trínidad og Tóbagó. Þegar
liðin voru lesin upp fyrir leikinn
í gærkvöldi ætlaði allt um koll
að keyra þegar nafn hans hljóm-
aði í hátalarakerfinu, enda er
Yorke nánast þjóðhetja á eyj-
unum fyrir frammistöðu sína í
ensku knattspyrnunni á árum
áður.
JACK Warner, einn af sex
varaforsetum FIFA, alþjóða-
knattspyrnusambandsins, sem er
frá Trínidad og Tóbagó, og
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ og stjórnarmaður í UEFA,
heilsuðu upp á leikmenn liðanna
fyrir leikinn.
EYJÓLFUR Sverrisson notaði
alla sex varamenn sína í leikn-
um. Kristján Örn Sigurðsson
kom síðastur þeirra inná á 79.
mínútu.
EMIL Hallfreðsson sem var í
fyrsta sinn í byrjunarliði Íslands,
og lék sinn annan landsleik, spil-
aði allan leikinn, sem og þeir
Hermann Hreiðarsson, Ívar Ingi-
marsson, Indriði Sigurðsson og
Grétar Rafn Steinsson.
DAÐI Lárusson skipti við
Árna Gaut Arason í hálfleik og
lék sinn annan landsleik.
HELGI Valur Daníelsson var í
byrjunarliði Íslands í fyrsta sinn
og spilaði sinn fjórða landsleik.
Punktar
frá Loftus
Road
Karnivals
á Loftus