Morgunblaðið - 01.03.2006, Side 6
ÍÞRÓTTIR
6 C MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
LENGJAN
LEIKIR DAGSINS
Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is
Rússland - Brasilía 3,15 2,80 1,75
Makedónía - Búlgaría 2,90 2,75 1,85
Albanía - Litháen 1,80 2,80 3,00
Senegal - Noregur 1,70 2,85 3,25
Ísrael - Danmörk 2,40 2,60 2,25
Túnis - Serbía/Svart 2,10 2,65 2,55
Bandaríkin - Pólland 2,35 2,60 2,30
Tyrkland - Tékkland 2,15 2,60 2,50
FH - ÍBV 1,50 5,30 2,10
Fram - Valur 1,90 4,75 1,70
Króatía - Argentína 3,70 3,00 1,55
Austurríki - Kanada 1,35 3,35 4,75
Holland - Ekvador 1,20 3,85 6,40
Írland - Svíþjóð 2,25 2,60 2,40
Haukar - KA 1,25 6,00 2,75
England - Urugvæ 1,30 3,50 5,15
Ítalía - Þýskaland 1,80 2,80 3,00
Skotland - Sviss 2,20 2,60 2,45
Frakkland - Slóvakía 1,20 3,85 6,40
Norður Írland - Eistland 1,85 2,75 2,90
Wales - Paragvæ 2,30 2,60 2,35
Spánn - Fílabeinsströndin 1,40 3,20 4,50
Venezuela - Kólumbía 2,20 2,60 2,45
Mexíkó - Gana 1,40 3,20 4,50
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Íslandsmót karla, DHL-deildin:
Austurberg: ÍR – Þór A. .......................19.15
Framhús: Fram – Valur .......................19.15
Ásvellir: Haukar – KA ...............................20
Kaplakriki: FH – ÍBV...........................19.15
Varmá: Afturelding – Fylkir ................19.15
Víkin: Víkingur/Fjölnir – Stjarnan......19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Iceland Express-deildin:
Keflavík: Keflavík – Breiðablik............19.15
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Ísland – Trínidad og Tóbagó 0:2
Loftus Road í London, vináttulandsleikur,
þriðjudagur 28. febrúar 2006.
Mörk Trínidad og Tóbagó: Dwight Yorke
10. 52 (vsp.).
Markskot: Ísland 15 (5), Trínidad 5 (3)
Horn: Ísland 10, Trínidad 0.
Rangstöður: Ísland 1, Trínidad 2.
Lið Trínidad og Tóbagó: Shaka Hislop
(Tony Warner 46.) – Cyd Grey, Marvin
Andrews, Dennis Lawrence, Avery John -
Carlos Edwards (Ricky Shakes 46.), Chris
Birchall, Dwight Yorke (Russell Latapy
57.), Aurtis Whitley (Silvio Spann 46.), Coll-
in Samuel (Keavon Neaves 77.) - Stern
John (Kenwyne Jones 65.)
Lið Íslands: Árni Gautur Arason (Daði
Lárusson 46.) – Helgi Valur Daníelsson
(Kristján Örn Sigurðsson 79.), Ívar Ingi-
marsson, Hermann Hreiðarsson, Indriði
Sigurðsson – Grétar Rafn Steinsson, Jó-
hannes Karl Guðjónsson (Brynjar Björn
Gunnarsson 69.), Stefán Gíslason (Arnar
Þór Viðarsson 57.), Emil Hallfreðsson –
Eiður Smári Guðjohnsen (Gylfi Einarsson
72.), Heiðar Helguson (Hannes Þ. Sigurðs-
son 57.)
Dómari: Mark Dean (Englandi).
Aðstoðardómarar: M. Tingey og M. Yerby
(Englandi).
Áhorfendur: 7.980.
Skotland – Ísland.....................4:0
Glasgow, vináttuleikur ungmennalands-
liðsins, skipað leikmönnum undir 21 árs
aldri, þriðjudagur 28. febrúar 2006.
Mörk Skotlands: Naismith 1., Scott 19., El-
liot 29., 57. – 1,057.
Ísland: Magnús Þormar – Baldur Sigurðs-
son, Kári Ársælsson, Guðmann Þórisson,
Gunnar Þór Gunnarsson – Pálmi Rafn
Pálmason, Davíð Þór Viðarsson, Bjarni Þór
Viðarsson, Theódór Elmar Bjarnason, Eyj-
ólfur Héðinsson – Hjálmar Þórarinsson.
Vináttulandsleikir
Japan – Bosnía-Herzegovina ................. 2:2
Naohiro Takahara 45., Hidetoshi Nakata
90. – Zvjezdan Misimovic vítasp. 57., Emir
Spahic 67. – 6,000.
Kýpur – Slóvenía ..................................... 0:1
Zlatan Ljubijankic 85.
Finnland – Kazakhstan........................... 0:0
Rúmenía – Armenía ................................ 2:0
Vasile Maftei 71., Razvan Cocis 85.
Grikkland – Hvíta–Rússland.................. 1:0
Georgios Samaras 14.
England
2. deild:
Bournemouth – Barnsley .........................1:1
Doncaster R. – Brentford.........................0:0
Port Vale – Scunthorpe ............................1:2
HANDKNATTLEIKUR
HK – Selfoss 37:28.
Digranes, Íslandsmót karla, DHL–deildin,
þriðjudagur 28. febrúar 2006.
Gangur leiksins: 0:1, 2:3, 6:3, 9:6, 14:7,
16:10, 19:12, 19:13, 22:15, 25:18, 30:19,
32:24, 35:25, 37:28.
Mörk HK: Elías Már Halldórsson 11/1,
Remigijus Cepulis 6, Valdimar Þórsson 4,
Jón H. Gunnarsson 4, Tomas Eitutis 4,
Karl Grönvold 3, Brynjar Valsteinsson 2,
Ólafur Ragnarsson 2, Gunnar Jónsson 1.
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 17/2
(þar af fóru 8 skot aftur til mótherja), Guð-
laugur T. Karlsson 4 (þar af fóru 3 skot aft-
ur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Selfoss: Vladimir Duvic 13/2, Ívar
Grétarsson 5/1, Hörður Bjarnarsson 3,
Davíð Ágústsson 2, Einar Örn Guðmunds-
son 1, Gylfi Már Ágústsson 1, Hörður Más-
son 1, Róbert Daði Heimisson 1, Baldur
Elíasson 1.
Varin skot: Sebastian Alexanderson 10/1
(þar af fóru 3 skot aftur til mótherja), Einar
Þorgeirsson 3 (þar af fór 1 skot aftur til
mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guð-
jónsson, voru ágætir mestan part leiksins.
Áhorfendur: 100
Staðan:
Haukar 17 13 1 3 511:460 27
Fram 17 12 2 3 476:435 26
Valur 17 12 1 4 521:469 25
Fylkir 17 9 2 6 469:432 20
Stjarnan 16 8 4 4 467:437 20
KA 16 8 3 5 448:432 19
ÍR 17 7 2 8 544:530 16
HK 18 7 2 9 513:519 16
Afturelding 17 6 3 8 427:442 15
ÍBV 17 7 1 9 504:537 15
FH 17 6 1 10 469:477 13
Þór Ak. 17 4 4 9 477:500 12
Selfoss 18 3 1 14 485:569 7
Vík/Fjöl 17 3 1 13 458:530 7
Meistaradeild Evrópu
Kiel – Flensburg....................................28:32
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Detroit – Cleveland...............................84:72
New Jersey – Atlanta .......................102:104
Toronto – Miami ..................................94:101
Washington – Memphis ......................98:108
New York – San Antonio ....................93:121
Philadelphia – Dallas ..........................92:104
Phoenix – Houston ..............................111:94
Milwaukee – Denver ...........................110:89
Portland – Sacramento .......................91:115
Charlotte – LA Clippers.......................87:95
Utah – Golden State..........................117:108
SVO gæti farið að körfuknattleiks-
mennirnir Kobe Bryant og Sha-
quille O’Neal verði liðsfélagar á ný
með bandaríska landsliðinu á
heimsmeistaramótinu í Japan í
haust en þeir hafa átti í deilum utan
vallar allt frá því að O’Neal yfirgaf
Los Angeles Lakers fyrir tveimur
árum og fór að leika með Miami
Heat. Þeir voru kjarninn í liði LA
Lakers sem sigraði þrívegis í NBA-
deildinni en O’Neal og Bryant hafa
deilt í gegnum fjölmiðla undanfarin
misseri en hafa nú „grafið“ stríðs-
öxina. Jerry Colangelo fram-
kvæmdastjóri bandaríska lands-
liðsliðsins hitti marga leikmenn á
Stjörnuleik NBA-deildarinnar í
Houston um liðna helgi og þar
ræddi hann m.a. við O’Neal og segir
Colangelo að leikmaðurinn ætli sér
að taka ákvörðun á næstu vikum.
Colangelo hefur rætt við 28 leik-
menn sem koma til greina í lands-
liðið en alls verða 22 leikmenn vald-
ir í æfingahóp fyrir HM.
„Shaq sagði við mig að hann
myndi hringja eftir eina til tvær
vikur og gefa endanlegt svar. Ég
sagði að það væri alltaf pláss fyrir
hann í bandaríska landsliðinu,“
sagði Colangelo. Bandaríska liðið
leikur í D-riðli á HM og á þar í
höggi við Púertó Ríkó, Ítalíu, Kína,
Senegal og Slóveníu. Bandaríska
liðið tapaði í átta liða úrslitum á
HM á heimavelli árið 2002 og árið
2004 á Ólympíuleikunum í Aþenu
tapaði liðið í undanúrslitum og varð
að sætta sig við bronsverðlaunin.
Shaquille O’Neill
íhugar að leika á HM
Þau átta lið, sem verða í efstu sæt-unum, leika í efstu deild næsta
vetur en hin í annarri deild. Fyrir-
komulaginu var breytt fyrir þetta
tímabil og eins og svo oft áður eru
menn ekki sammála um ágæti þessa
fyrirkomulags. „Ég var nú á móti
breytingunum á sínum tíma og tel að
fjölmiðlar hafi keyrt þetta í gegn.
Fínt mál ef það hefði þýtt aukna um-
fjöllun, en ég hef ekki orðið var við
hana og mér finnst handboltinn fá
frekar neikvæða umræðu, en ég held
að á næsta ári verði þetta verra en í
ár og óttast virkilega að leikmenn
fari frá þeim liðum sem verða í 2.
deildinni til þeirra sem eru í efstu
deild. Það gæti þýtt að liðin sem eiga
að vera í 2. deildinni hætti hreinlega
enda mun róðurinn verða þeim mun
erfiðari en áður og fá lið munu geta
haldið úti góðum æfingum þannig að
ég held það verði fá lið þar sem eru í
þessu af fullri alvöru,“ segir Erling-
ur Richardsson, þjálfari ÍBV, og
bætir því við að sér sýnist, miðað við
stöðuna í deildinni núna, að fleiri en
átta lið geti verið í efstu deild. „Við
sjáum baráttuna núna, það eru tólf
lið að berjast um þessi átta sæti,“
segir hann.
Stjarnan gæti færst ofar
Flestum sýnist sem baráttan um
Íslandsmeistaratitilinn standi milli
Hauka, Fram og Vals, en Haukar
eru með 27 stig, Fram 26 og Valur 25
en næstu lið, Fylkir og Stjarnan, eru
með 20 stig. „Já, ég held það verði
þessi þrjú lið sem berjast um titilinn,
en ef það er eitthvert lið sem getur
nartað í hælana á þeim þá held ég að
það sé Stjarnan. Vonandi tekst
Stjörnunni aðeins að narta í efstu lið-
in því það yrði bara meira gaman,“
segir Erlingur og útskýrir þessa
hugmynd sína nánar: „Stjarnan er
búin að vinna einn titil og því er
pressan farin af henni og nú er hægt
að keyra á fullu á öllum mannskapn-
um og það gæti orðið til þess að hún
færðist ofar í töflunni. Hin liðin, sem
eru þarna í kring, eiga fullt í fangi
með að einbeita sér að því að vera
meðal átta efstu liðanna.“
Verður erfitt hjá okkur
„Það er alveg ljóst að það verður
erfitt hjá okkur að verða réttum
megin, við eigum eftir leiki við efstu
liðin hér heima en við flest þeirra,
sem eru í kringum okkur, eigum við
eftir að leika á útivelli þannig að það
er mikil barátta fram undan hjá okk-
ur. Þetta verður líka örugglega
skemmtilegt – í það minnsta fyrir
suma – þá sem ná að halda sér í efstu
deild,“ segir Erlingur.
Haukar, sem eru í efsta sæti, eru
búnir að leika bæði við Fram og Val
og einnig við Fylki en eiga útileik
eftir á móti Stjörnunni. Síðasti leikur
Hauka verður síðan nágrannaslagur
við FH í Kaplakrika og svo gæti farið
að sá leikur yrði báðum liðum gríð-
arlega mikilvægur því FH-ingar eru
með í baráttunni um sæti í efstu
deild að ári.
Fram og Valur mætast í kvöld og
Framarar eiga einnig eftir að leika
við Stjörnuna í Garðabænum.
Valsmenn eiga Fylki eftir í Laug-
ardalshöll og Stjörnuna í Garða-
bænum þannig að Hlíðarendaliðið
virðist ef til vill eiga hvað erfiðustu
leikina eftir af toppliðunum þremur.
Hins vegar hefur sýnt sig í vetur að
allir geta unnið alla, eða flestir flesta,
þannig að ekkert er gefið í barátt-
unni sem fram undan er.
Óvenjulegt að hafa
ekki úrslitakeppni í vor
„Þetta hefur gengið ágætlega fyr-
ir sig í vetur, en það er óvenjulegt að
hugsa til þess að eftir öll þessi ár
verði engin úrslitakeppni í vor,“ seg-
ir Júlíus Jónasson, aðstoðarþjálfari
hjá ÍR, sem er eitt þeirra liða sem
eru í kringum strikið sem skilur að
þau lið sem leika munu í fyrstu deild
að ári og þeirra sem verða í annarri
deild.
„Það eru gríðarlega mikilvægir
leikir fram undan og þá er sama
hvort maður skoðar leiki efstu lið-
Mikil og hörð barátta fram undan
á Íslandsmóti karla í handknattleik
Átta lið
berjast um
fimm sæti
MIKIL barátta virðist fram undan á Íslandsmóti karla í handknattleik.
Búið er að leika sautján umferðir og níu eru eftir þannig að 18 stig
eru enn í boði fyrir hvert lið. Stig sem eru flestöllum liðunum mjög
mikilvæg. Segja má að deildin sé þrískipt. Haukar, Fram og Valur eru
í þremur efstu sætunum og neðst eru Selfoss og Víkingur/Fjölnir.
Þar á milli eru hin liðin átta sem öll berjast fyrir því að vera meðal
átta efstu þegar flautað verður til leiksloka í síðasta leik, 29. apríl.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Miðvikudagur 1. mars:
Austurberg: ÍR – Þór Ak.
Framhús: Fram – Valur
Ásvellir: Haukar – KA
Kaplakriki: FH – ÍBV
Varmá: Afturelding – Fylkir
Víkin: Víkingur/Fjölnir – Stjarnan
Föstudagur 3. mars:
Austurberg: ÍR – Afturelding
Laugardalshöll: Valur – Fylkir
Höllin Akureyri: Þór Ak. – HK
KA-heimilið: KA – FH
Selfoss: Selfoss – Víkingur/Fjölnir
Laugardagur 4. mars:
Ásgarður: Stjarnan – Haukar
Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram
Miðvikudagur 8. mars:
KA-heimilið: KA – Stjarnan
Föstudagur 10. mars:
Digranes: HK – ÍR
MICHAEL Ballack, leikmaður
Bayern München í þýsku deildinni,
segist ekki vera búinn að semja við
annað félag, en samningur hans hjá
Bayern rennur út í vor og fjölmörg
lið hafa verið á höttunum eftir þess-
um snjalla leikmanni.
Enskir fjölmiðlar sögðu frá því í
gær að hann væri búinn að gera
samning við Chelsea til fjögurra ára.
„Ég hef ekki skrifað undir eitt eða
neitt. Chelsea bauð mér samning í
janúar en því máli var ekki fylgt
neitt eftir þannig að ekkert varð úr
neinu þá,“ sagði Ballack í gær en
hann er nú með þýska landsliðinu á
Ítalíu þar sem það mætir heima-
mönnum í kvöld.
Ballack:
Hef ekki
skrifað
undir neitt