Morgunblaðið - 01.03.2006, Side 7

Morgunblaðið - 01.03.2006, Side 7
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 C 7  FRANK Lampard, miðvallarleik- maðurinn sterki hjá Chelsea, getur ekki leikið með Englendingum gegn Úrúgvæum á Anfield í kvöld. Lamp- ard tognaði lítilsháttar og mun Mich- ael Carrick hjá Tottenham taka stöðu Lampards. Byrjunarlið Eng- lendinga í leiknum verður þannig: Paul Robinson – Gary Neville, John Terry, Rio Ferdinand, Wayne Bridge - David Beckham, Steven Gerrard, Michael Carrick, Joe Cole - Wayne Rooney, Darren Bent.  CHRIS Coleman knattspyrnu- stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Ful- ham segir að það séu litlar líkur á því að félagið geti samið við vinstri bak- vörðinn Wayne Bridge sem er í láni frá Chelsea hjá Fulham. Coleman hefur áhuga á því að Bridge verði áfram hjá félaginu en hann telur að verðmiðinn sem settur verður á Bridge verði of stór biti fyrir Ful- ham en Bridge var keyptur til enska meistaraliðsins frá Southampton fyrir tæplega milljarð kr. fyrir að- eins tveimur og hálfu ári.  ASHLEY Cole, varnarmaður Ars- enal og enska landsliðsins, verður líklega frá eitthvað lengur en búist var við. Hann lék með varaliðinu gegn Tottenham á mánudaginn og fór meiddur af velli. Hann sneri sig á ökkla og er talið að þetta tefji end- urkomu hans um þrjár vikur. Lands- liðssæti Cole fyrir HM í Þýskalandi er í hættu.  KEVIN Garnett leikmaður NBA- liðsins Minnesota Timberwolves var í gær sektaður um rúmlega 350.000 kr. vegna atviks sem átti sér stað um sl. helgi en þar kastaði Garnett knettinum upp í áhorfendastúkuna. Boltinn fór í einn stuðningsmann liðsins og fór Garnett til viðkomandi og baðst afsökunar á framferði sínu.  RASHEED Wallace framherji Detroit Pistons í NBA-deildinni verður að greiða rúmlega 350.000 kr. í sekt vegna atviks sem átti sér stað gegn Cleveland Cavaliers um sl. helgi. Þar fékk Zydrunas Ilgauskas frá Litháen olnbogaskot frá Wallace og þurfti að sauma fimm spor í ennið á Ilgauskas.  BANDARÍSKI atvinnukylfingur- inn Andrew Magee vonast til þess að geta hafið keppni að nýju eftir um sex vikur en hann fór í aðgerð þar sem krabbameinsæxli var fjarlægt úr nýra. Um 15% af nýranu voru fjarlægð en hann mun fara í lyfja- meðferð á næstu vikum.  MAGEE, sem er 43 ára gamall, fór í rannsókn vegna verkja í mjöðm í lok janúar og kom í ljós að hann var með krabbameinsæxli á frumstigi í nýra. Magee fór að leika á PGA- mótaröðinni árið 1985 en hann hefur fjórum sinnum sigrað á PGA-móta- röðinni og síðast sigraði hann árið 1994. FÓLK HARPA Þorsteinsdóttir, úr Stjörn- unni, er nýliðinn í íslenska lands- liðshópnum í kvennaknattspyrnu, sem Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari, hefur valið fyrir vináttuleikinn gegn Englendingum sem fram fer í Norwich hinn 9. mars. Jörundur valdi 18 leikmenn og koma flestir frá Íslandsmeisturum Breiðabliks, eða sex talsins, og fimm frá Val. Hópinn skipa eftirtaldir leik- menn, fjöldi landsleikja í sviga. Markverðir: Þóra B. Helgadóttir, Breiðabliki (42), Guðbjörg Gunnarsdóttir, Val (2). Aðrir leikmenn: Ásthildur Helgadóttir, Malmö (61), Olga Færseth, KR (52), Katrín Jóns- dóttir, Amazon Grimstad (51), Guð- laug Jónsdóttir, Breiðabliki (50), Edda Garðarsdóttir, Breiðabliki (36), Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Breiðabliki (26), Margrét Lára Við- arsdóttir, Val (18), Dóra Stef- ánsdóttir, Val (16), Hólmfríður Magnúsdóttir, KR (16), Málfríður Erna Sigurðardóttir, Val (13), Dóra María Lárusdóttir, Val (12), Erla Steinunn Arnardóttir, Mal- backens (8), Laufey Jóhannsdóttir, Val (5), Ólína Guðbjörg Viðars- dóttir, Breiðabliki (5), Greta Mjöll Samúelsdóttir, Breiðabliki (1), Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni (0). Harpa eini nýliðinn í kvennalandsliðinu anna sem berjast um Íslandsmeist- aratitilinn eða hinna átta liðanna sem berjast um að vera réttum meg- in við strikið. Ég treysti mér ekki til að segja til um hvaða lið verður Íslandsmeistari, en sem betur fer fyrir boltann hérna heima hefur ekkert lið verið afger- andi í vetur. Fram spilaði vel og fékk mörg stig framan af vetri en liðið virðist eitt- hvað vera að missa flugið núna og maður veltir því fyrir sér hvort hóp- urinn, sem er ungur, hefur þá reynslu sem til þarf til að verða í efsta sæti þegar flautað verður til leiksloka í vor. Ég svona efast aðeins um það. Mér fannst Haukar leika vel fyrir áramótin og þá taldi ég þá vel koma til greina sem meistarar, en ég er að- eins farinn að efast þó svo þeir komi vissulega enn til greina. Valsmenn tel ég með mjög sterkt lið og breiðan hóp sterkra manna. Þeir eru með breiðasta hópinn og það hjálpar þeim örugglega núna í mars því þessi mánuður er mikil- vægur. Það eru margir leikir á til- tölulega stuttum tíma og því á ég al- veg eins von á að línur verði aðeins farnar að skýrast áður en kemur fram í apríl,“ segir Júlíus. Framarar komu á óvart „Það hefur ekkert komið mér á óvart í deildinni til þessa – jú annars. Framarar komu á óvart, ég átti ekki von á að þeir yrðu svona ofarlega, en ef maður skoðar hópinn hjá þeim þá eru þeir bara með fínt lið og því hefði árangur þeirra ekki þurft að koma á óvart. Fylkir hefur ekki komið mér á óvart því Árbæingar eru með fínt sjö manna lið og hafa náð langt á því. Ég er heldur ekki frá því að deildin sé aðeins veikari en í fyrra. Það er rosaleg barátta fram undan og markmiðið hjá okkur er að vera fyrir ofan strik – lenda í einu af átta efstu sætunum. Við byrjuðum mjög vel í haust en hefur fatast flugið að- eins, en möguleikinn á að ná mark- miðinu er enn til staðar og við gerum allt til að ná í gott sæti. Það er ómögulegt að spá hvaða lið verða fyrir ofan strik og hvaða lið þurfa að leika í annarri deildinni næsta ár. Og ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá er mér nokk sama, bara ef við verðum réttum megin,“ sagði Júlíus. Haukar – KA Stjarnan – Haukar Haukar – Selfoss Þór – Haukar Haukar – ÍR HK – Haukar Haukar – Vík./Fjölnir Haukar – Afturelding FH – Haukar Fram – Valur ÍBV – Fram Fram – KA Stjarnan – Fram Fram – Selfoss Þór – Fram Fram – ÍR HK – Fram Fram – Vík./Fjölnir Fram – Valur Valur – Fylkir Afturelding – Valur ÍBV – Valur Valur – KA Stjarnan – Valur Valur – Selfoss Þór – Valur Valur – ÍR Laugardagur 11. mars: Fylkishöll: Fylkir – ÍBV Varmá: Afturelding – Valur Víkin: Víkingur/Fjölnir – Þór Ak. Sunnudagur 12. mars: Framhús: Fram – KA Ásvellir: Haukar – Selfoss Kaplakriki: FH – Stjarnan Föstudagur 17. mars: Austurberg: ÍR – Víkingur/Fjölnir Höllin Akureyri: Þór Ak. – Haukar KA heimilið: KA – Fylkir Selfoss: Selfoss – FH Laugardagur 18. mars: Ásgarður: Stjarnan – Fram Digranes: HK – Afturelding Vestmannaeyjar: ÍBV – Valur Föstudagur 24. mars: Fylkishöll: Fylkir – Stjarnan Kaplakriki: FH – Þór Ak. Laugardagur 25. mars: Framhús: Fram – Selfoss Laugardalshöll: Valur – KA Varmá: Afturelding – ÍBV Sunnnudagur 26. mars: Ásvellir: Haukar – ÍR Víkin: Víkingur/Fjölnir – HK Föstudagur 31. mars: Austurberg: ÍR – FH Digranes: HK – Haukar Höllin Akureyri: Þór Ak. – Fram Selfoss: Selfoss – Fylkir Sunnudagur 2. apríl: Ásgarður: Stjarnan – Valur KA-heimilið: KA – ÍBV Víkin: Vík./Fjölnir – Afturelding Fimmtudagur 6. apríl: Laugardalshöll: Valur – Selfoss Föstudagur 7. apríl: Fylkishöll: Fylkir – Þór Ak. Laugardagur 8. apríl: Framhús: Fram – ÍR Varmá: Afturelding – KA Sunnudagur 9. apríl: Ásvellir: Haukar – Víkingur/Fjölnir Kaplakriki: FH – HK Vestmannaeyjar: ÍBV – Stjarnan Laugardagur 22. apríl: Austurberg: ÍR – Fylkir Ásgarður: Stjarnan – KA Digranes: HK – Fram Ásvellir: Haukar – Afturelding Höllin Akureyri: Þór Ak. – Valur Selfoss: Selfoss – ÍBV Víkin: Víkingur/Fjölnir – FH Laugardagur 29. apríl: Framhús: Fram – Víkingur/Fjölnir Fylkishöll: Fylkir – HK Laugardalshöll: Valur – ÍR Kaplakriki: FH – Haukar KA-heimilið: KA – Selfoss Varmá: Afturelding – Stjarnan Vestmannaeyjar: ÍBV – Þór Ak. LEIKIR SEM EFTIR ERU Það var rétt framundir miðjanfyrri hálfleik sem gestirnir náðu að halda í við heimamenn af einhverju viti. Smám saman jókst forskot HK og var orðið sjö mörk, 19:12, þegar flautað var til leikhlés. Framan af síðari hálfleik tókst Sel- fyssingum að halda í horfinu en tókst ekki að minnka muninn neitt frekar og öruggur og mjög sanngjarn sigur HK því staðreynd. Greinilegt var að talsverður get- umunur er á þessum tveimur liðum HK í hag og virtust leikmenn beggja liða gera sér það nokkuð ljóst allan tímann. Það var helst þjálfari og markvörður þeirra Selfyssinga, hinn gamalreyndi Sebastian Alexand- ersson, sem virtist trúa því að mun- urinn væri ekki eins mikill og töl- urnar gáfu til kynna. Sebastian er líflegur mjög og það heyrist vel í honum hvort sem hann er að skamma sína menn eða hvetja, bæði á íslensku og serbnesku! „Er ekkert skap í ykkur?“ heyrðist hann spyrja leikmenn sína hátt og snjallt í eitt skiptið en lítið var um svör að þessu sinni. Það var aðeins einn leikmaður hjá Selfyssingum sem eitthvað kvað að í þessum leik, Vladimir Duvic, og gerði hann tæplega helming marka þeirra, eða 13 talsins. Hér er á ferð mjög líkamlega sterkur leikmaður, nokkuð þungur, en þrællunkinn og skoraði þessi rétthenti leikmaður meðal annars tvö mörk með vinstri hendi. Áðurnefndur Sebastian var ágætur í markinu en mátti sín oft lít- ils enda skoruðu leikmenn HK úr einum 12 hraðaupphlaupum. Ívar Grétarsson átti spretti en annars má segja að Selfyssingum hafi hentað vel að róa leikinn niður og setja upp leikkerfi því hraðaupphlaup liðsins voru undantekningarlítið skelfileg. Hjá HK fór Elías Már Halldórs- son mikinn í hægra horninu og var einnig eldsnöggur í hraðaupphlaupin og nýtti sín færi afskaplega vel. Hörður Flóki Ólafsson var góður í markinu og Remigijus Cepulis skor- aði nokkur glæsileg mörk. Dómarar leiksins, þeir Jónas Elí- asson og Ingvar Guðjónsson, stóðu sig ágætlega en þó verður að minn- ast á afar umdeilt atvik sem átti sér stað eftir 14 mínútna leik í síðari hálfleik. Þá fékk Hörður Bjarnars- son, leikmaður Selfyssinga, að líta rauða spjaldið eftir brot á Remigijus Cepulis í hraðaupphlaupi og þaðan sem undirritaður sat virtist þetta vera afar harður dómur, svo ekki sé nú meira sagt. Morgunblaðið/Árni Torfason Elías Már Halldórsson lék vel með HK-liðinu gegn Selfossi í gærkvöldi og skoraði ellefu mörk. Öruggt hjá HK HK vann öruggan sigur á Sel- fyssingum í Digranesinu í gær- kvöldi í DHL-deild karla í hand- knattleik. Lokatölur urðu 37:28 í ójöfnum leik en eftir hann er HK í 8. sæti með 16 stig en Sel- fyssingar í 13. sæti með sjö stig. Eftir Svan Má Snorrason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.