Morgunblaðið - 01.03.2006, Qupperneq 8
FLENSBURG vann góðan
sigur á Kiel, 32:28, í fyrri
viðureign þýsku liðanna í
átta liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í hand-
knattleik í gærkvöldi. Liðin
áttust við í Ostseehalle, á
heimavelli Kiel, að við-
stöddum 10.300 áhorfendum.
Kiel var einu marki yfir í
hálfleik, 13:12, en í síðari
hálfleik tóku gestirnir völdin
og náðu mest átta marka for-
skoti, 29:21.
Í liði Kiel var Vid Kavtic-
nik markahæstur með fimm
mörk og þeir Kim And-
ersson, Marcus Ahlm og
Frode Hagen með fjögur
mörk hver. Hjá Flensburg
var Sören Stryger marka-
hæstur með sex mörk og þeir
Kasper Nielsen, Marcin Lij-
ewski og Lars Christiansen
skoruðu fimm mörk hver.
Liðin mætast öðru sinni í
Flensburg á laugardaginn
þar sem Stefán Arnaldsson
og Gunnar Viðarsson munu
dæma.
Flensburg
vann upp-
gjör þýsku
liðanna
ALDA Leif Jónsdóttir körfubolta-
kona hjá hollenska liðinu Yellow
Bikes Amsterdam, gerði 12 stig fyrir
lið sitt þegar það lagði Perik Jump-
ers 94:72 á útivelli á laugardaginn.
HÚN tók síðan þátt í stjörnuleik-
num á sunnudeginum og þar gerði
hún 2 stig líkt og Hlynur Bærings-
son, sem lék í stjörnuleik karla.
SIGURÐUR Ari Stefánsson,
handboltamaður hjá norska liðinu
Elverum, gerði 8 mörk fyrir liðið á
sunnudaginn þegar liðið vann Krag-
erö 34:26 í norsku úrvalsdeildinni.
ANNA Úrsúla Guðmundsdóttir
gerði 4 mörk fyrir Levanger þegar
liðið tapaði 29:26 fyrir Våg.
TERRANCE Trammell, banda-
ríski hlauparinn, náði besta tíma árs-
ins í 60 metra grindahlaupi um
helgina – 7,46 sek.
SIR Alex Ferguson knattspyrnu-
stjóri Manchester United hefur boð-
ið Dwight Yorke, fyrirliða Trínidad
og Tóbagó, að æfa með Manchester
United svo hann geti undirbúið sig
sem best fyrir HM í Þýskalandi í
sumar en þar verða Trínidadar á
meðal þátttökuþjóða. Yorke er á
mála hjá Sydney FC í Ástralíu en
keppnistímabilinu þar í landi lýkur
um næstu helgi.
ÉG er þakklátur Sir Alex fyrir
boðið en ég hef ekki þegið það enn
sem komið er. Ég veit að ég þarf að
spila til að halda mér í leikæfingu og
líklega væri betri kostur að komast á
lánssamning á Englandi,“ sagði
Yorke sem lék á árum áður með
Manchester United og var í liðinu
sem vann þrennuna 1999. Enska 1.
deildarliðið Derby hefur sýnt áhuga
á að fá þennan 34 ára gamla fram-
herja í sínar raðir og útsendarar
nokkurra félaga fylgdust með hon-
um í leiknum gegn Íslendingum í
gær.
GÍSLI Kristinsson, Hallgrímur
Valsson, Ágúst Hilmarsson, Björn
Sigmundsson og Eiríkur Bóasson,
allir úr krulludeild Skautafélags
Akureyrar, verða fulltrúar Íslands á
heimsmeistaramóti leikmanna 50
ára og eldri í krullu en mótið verður
haldið í Tårnby í útjaðri Kaup-
mannahafnar. 14 félög taka þátt í
mótinu en Akureyringarnir kepptu á
sama móti í Skotlandi í fyrra og urðu
í 9. sæti í B-flokki en í 18. sæti af 19
liðum í heildina.
FÓLK
Bein sjónvarpsútsending var frásigurhátíðinni í Stokkhólmi í
sjónvarpi en á sama tíma var íþrótta-
málaráðherra landsins, Bosse Ring-
holm, staddur á Arlanda-flugvelli að
taka á móti öðrum keppendum sem
höfðu unnið til verðlauna á ÓL. Að
sögn sænskra fjölmiðla var Ring-
holm vandræðalegur er hann tók á
móti þeim Björn Lind (tvö gull),
Thobias Fredriksson, Önnu Dahl-
berg, Linu Andersson, kvennalands-
liðinu í krullu, Önnu Carin Olofsson
og Önju Pärsson enda hafði sænska
íshokkílandsliðið leigt einkavél undir
liðið sem lenti tveimur tímum á und-
an öðrum keppendum. Sigurhátíðin
var því hafin í miðborg Stokkhólms
áður en aðrir keppendur höfðu lent á
Arlanda og hefur málið vakið mikla
athygli í Svíþjóð.
Björn Folin, talsmaður sænsku ól-
ympíunefndarinnar, segir að íshokk-
ísambandið sænska hafi farið fram
úr sér í fögnuðinum og það hafi verið
óheppilegt að hefja sigurhátíðina áð-
ur en allir verðlaunahafarnir voru
komnir til heimalandsins. Folin
bætti því við að öðrum verðlaunahöf-
um hefði aldrei verið boðið á hátíðina
enda hefði íshokkísambandið staðið
að hátíðinni að eigin frumkvæði.
Mats Sundin, leikmaður sænska
íshokkíliðsins, leigði þotu til þess að
komast í tæka tíð til Kanada eftir
sigurhátíðina og fóru nokkrir leik-
menn með honum í þá ferð yfir hafið.
Sænskir fjölmiðlar greina frá því að
ferðalagið hafi kostað hátt í 10 millj.
kr. fyrir Sundin en hann leikur með
Toronto Maple Leafs í NHL-deild-
inni.
Gleymdust í
fögnuðinum
SÆNSKA íshokkílandsliðið, sem
sigraði á Ólympíuleikunum í Tór-
ínó, fékk gríðarlega góðar mót-
tökur í Stokkhólmi er liðið kom
frá Ítalíu en talið er að rúmlega
30.000 manns hafi safnast sam-
an á Medborgarplatsen þar sem
sigurhátíðin fór fram. Á meðan
íshokkílandsliðið baðaði sig í
sviðsljósinu fór lítið fyrir öðrum
verðlaunahöfum frá Svíþjóð en
samtals fengu Svíar sjö gull-
verðlaun á leikunum og er það
besti árangur þeirra frá upphafi.
Reuters
Tekið á móti sænska landsliðinu í Stokkhólmi.
Mér leist bara mjög vel á allthjá félaginu og bíð nú bara
og vona,“ sagði Berlind í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Við erum að
ræða málin og þetta ætti allt að
koma betur í ljós á næstu dögum,“
bætti hún við.
Með liðinu leikur Hrafnhildur
Skúladóttir og hefur hún staðið sig
vel með liðinu. „Það skemmir ekki
að hafa hana þarna. Ég er alveg til í
að skoða að fara til félagsins ef ég
fengi gott tilboð. Ég fór á þrjár æf-
ingar hjá félaginu í síðustu viku og
sá einn leik með því. Það er um 16
manna hópur sem æfir hjá aðallið-
inu og það eru tveir markverðir
þar,“ sagði Berglind.
Spurð hvort hún yrði ekki fljót að
koma þeim markvörðum á bekkinn
sagði hún: „Ég veit það nú ekki,
maður sér það ekki svona eftir
þrjár æfingar.“
Í staðarblaðinu Stiftstidende er
grein um heimsókn Berglindar til
félagsins og þar segir Jesper
Holris, þjálfari liðsins, að sér hafi
litist vel á íslenska markvörðinn.
„Ég er mjög ánægður með það sem
ég sá til hennar. Þarna er greini-
lega góður markvörður á ferð og
eins og með fleiri íslenska leikmenn
býr mjög mikið í henni. Íslenska
deildin er talsvert slakari en sú
danska og því þarf Berglind að að-
lagast komi hún til okkar,“ sagði
Holris.
Hann segir einnig að hingað til
hafi liðið stólað á tvo markverði en
það sé ekki gott ef annar þeirra
meiðist. Það hafi ekki gerst og von-
andi gerist það ekki. „Það er ekki
sjálfgefið að Berglind verði fyrsti
markvörður okkar þó að hún komi.
Fyrst verður hún að sýna að hún sé
betri en þær Anne Munk og Lene
Aggerholm,“ sagði þjálfarinn.
Það var íþróttastjóri félagsins,
Henrik Jörgensen, sem ræddi við
Berglindi áður en hún fór heim á
mánudaginn. „Hún hefur allt sem
þarf til að verða góður markvörður
og auk þess býður hún af sér góðan
þokka og hefur mikinn metnað. Ég
get hins vegar ekkert sagt um hvort
af samningum verður,“ segir Jörg-
ensen við Stiftstidende.
Berglind Hansdóttir skoðaði aðstæður hjá danska liðinu SK Århus
Bíður og
vonar
BERGLIND Íris Hansdóttir,
markvörður Vals í handknatt-
leik, kom heim frá Danmörku í
fyrradag þar sem hún æfði með
SK Århus, en félagið hefur
áhuga á að fá hana til sín fyrir
næsta tímabil.
Morgunblaðið/ÞÖK
Berglind Íris Hansdóttir, landsliðsmarkvörður í handknattleik.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
KVENNALIÐ Grindavíkur í
körfuknattleik hefur náð sam-
komulagi við bandaríska leik-
manninn Tamöru Stocks um
að hún leiki með liðinu það
sem eftir er tímabilsins.
Stocks, sem er 1,91 metri á
hæð, hefur leikið með Wash-
ington Mystics og Charlotte
Sting í bandarísku WNBA-
deildinni og þá hefur hún leik-
ið með liðum í Kína, Króatíu
og nú síðast Spáni. Hún er
væntanleg til landsins í vik-
unni og verður með bik-
armeisturunum í næsta leik
þeirra, sem er gegn KR átt-
unda þessa mánaðar.
Stock leysir Jeraicu Watson
af hólmi en hún yfirgaf her-
búðir Grindvíkinga á dög-
unum af persónulegum ástæð-
um og lék Grindavíkurliðið án
erlends leikmanns í leiknum
við ÍS í fyrrakvöld og tapaði
þeim leik með 45 stiga mun.
Stocks
leikur með
Grindavík