Morgunblaðið - 09.03.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 67. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
TIL 21
OPI‹
Í KVÖLD
Prinsessur
í einn dag
Dekrar við konur á Jótlandi á brúð-
kaupsdaginn | Daglegt líf í mars
Viðskipti | Fréttaskýring um bankakerfið Starfsumsóknir og blekkingar
Íþróttir | Arsenal áfram Meistarar Liverpool úr leik Stjarnan vann KA
Brúðkaup | Gátlisti Fegrun og slökun Fræg brúðkaup Brúðarslör
STJÓRN Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar (IAEA) samþykkti formlega í gær að
vísa kjarnorkumálum Írana til Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna en
ráðið á þann kost að
samþykkja viðskipta-
bann á Íran vegna kjarn-
orkuáætlana þarlendra
stjórnvalda. Yfirvöld í
Teheran brugðust
ókvæða við og hótuðu
Bandaríkjunum „skaða
og sársauka“ fyrir fram-
göngu þeirra í málinu.
Embættismenn í
Bandaríkjunum sögðu
að Öryggisráðið myndi byrja að ræða „sví-
virðilegar hótanir og þykjustuviðræður“ Ír-
ana snemma í næstu viku. Bandaríkjamenn
eru sannfærðir um að áætlanir Írana um
auðgun úrans þýði að þeir hyggist koma sér
upp kjarnorkusprengju sem fyrst þvert á
alla samninga. Tími sé til kominn að Örygg-
isráðið grípi í taumana.
Samninganefnd Írana gagnvart IAEA
svaraði hins vegar fyrir sig: „Bandaríkin
eru fær um að valda skaða og sársauka en
það má einnig valda þeim skaða og sárs-
auka,“ sagði í yfirlýsingu hennar. „Þannig
að ef Bandaríkin vilja feta þann stíg þá skul-
um við spyrja að leikslokum.“
Þrátt fyrir þessar afdráttarlausu skeyta-
sendingar Bandaríkjamanna og Írana lýsti
Mohammed ElBaradei, framkvæmdastjóri
IAEA, þeirri skoðun að enn væri mögulegt
að ná pólitísku samkomulagi um úrlausn
deilunnar. Þetta myndi hins vegar ekki tak-
ast nema hlutaðeigandi hættu herskáum yf-
irlýsingum. Sagði hann að fyrirtaka málsins
hjá Öryggisráði SÞ væri einfaldlega áfram-
hald tilrauna til að ná pólitískri lausn.
Stjórn IAEA vísar máli
Írana til Öryggisráðs SÞ
Hóta Banda-
ríkjunum
„skaða og
sársauka“
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Mohammed
ElBaradei
AÐ mati greiningardeildar verðbréfafyrirtæk-
isins Merrill Lynch nema þau lán sem íslensku
viðskiptabankarnir eru með á gjalddaga fram til
ársins 2008 um 17,8 milljörðum dollara eða sem
samsvarar nálægt 1.230 milljörðum íslenskra
kr. miðað við lokagengi krónunnar í gær. Í
skýrslu greiningardeildarinnar um íslenska
bankakerfið er bent á að fjármögnun bankanna
sé til tiltölulega skamms tíma og þeir því sér-
staklega viðkvæmir ef breytingar skyldu verða
á trú og skoðun markaðarins.
Að mati Merrill Lynch hafa íslensku bank-
arnir þó tiltæk ferli og aðgerðir sem geri þeim
kleift að standa af sér hugsanlega og tíma-
bundna erfiðleika við öflun lánsfjár. Mikilvægt
sé að hafa þetta í huga þar sem aðgengi bank-
anna að evrópskum skuldabréfamörkuðum hafi
orðið torveldara að undanförnu. Greiningar-
deildin bendir á að þetta tengist þó frekar þeirri
staðreynd að bankarnir hafi aflað sér mikils
fjármagns fyrir það tímabil sem skýrslan tekur
til og því sé markaðurinn mettaður í bili. Bank-
arnir hafi því haft áform uppi um að selja
skuldabréf til annarra svæða, s.s. Bandaríkj-
anna, Japan, Sviss, Ástralíu og Kanada.
Dagar hagstæðra lánskjara liðnir
Í skýrslunni segir að frá því að Fitch breytti
horfum sínum um lánshæfismat íslenska rík-
isins í neikvæðar horfur hafi íslensku bankarnir
verið meira til umræðu og skuldaraálög þeirra
hækkað. Merrill Lynch gerir ráð fyrir að dagar
tiltölulega hagstæðra lánskjara fyrir íslenska
banka séu taldir, þ.e. að því tilskildu að bank-
arnir geti fjármagnað sig með útgáfu skulda-
bréfa.
Þá segir í skýrslunni að á árinu 2005 hafi bæði
Kaupþing banki og Landsbanki notið óvenju
mikils hagnaðar af hlutabréfafjárfestingum sem
hafi mótað mjög afkomu þeirra. Án þessa hagn-
aðar, sem Merrill Lynch dregur í efa að verði
viðvarandi, líti tekjumyndun þeirra ekki jafn vel
út.
Um 1.230 milljarða kr. lán
banka á gjalddaga til 2008
Dagar hagstæðra | 34
Skýrsla greiningardeildar Merrill Lynch um íslenska bankakerfið
FJÖLDI framhaldsskólanema mótmælti fyrirhugaðri styttingu náms til
stúdentsprófs á Austurvelli í gærdag. Í máli nemenda kom fram að rök-
semdir Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra væru
rökleysa.
„Menntamálaráðherra hefur ekki virt okkur viðlits frá síðasta fundi sem
haldinn var fyrir ári. Við munum halda áfram að láta rödd okkar heyrast
þar til við fáum einhver svör,“ sagði Þórarinn Sigurðsson framhalds-
skólanemi.
Morgunblaðið/RAX
Mótmæltu styttingu náms
„LIGGJA þarf fyrir með skýrari
hætti en nú er hvaða aðilar í stjórn-
kerfinu beri meginábyrgð á og annist
framkvæmd á úrlausn fjármála-
kreppu og hvaða heimildir þeir hafa í
því skyni,“ segir í greinargerð starfs-
hóps þriggja ráðuneyta, Seðlabank-
ans og Fjármálaeftirlitsins (FME)
um viðbúnað stjórnvalda vegna
hugsanlegra erfiðleika á fjármála-
markaði.
Hópurinn skilaði forsætis-, utan-
ríkis-, fjármála- og viðskiptaráð-
herra, auk bankastjórnar Seðlabank-
ans og stjórnarformanns FME,
greinargerðinni 17. febrúar sl. Í
nauðsynlegt við eftirfarandi aðstæð-
ur:
„– Brestur í erlendri fjármögnun
lánastofnana, svo sem í tengslum við
lækkun lánshæfismats lánastofnana
eða íslenska ríkisins eða skyndilegs
þrengra aðgengis að erlendum lána-
mörkuðum.
– Alvarlegir lausafjárörðugleikar
stærri lánastofnana eða hóps lána-
stofnana.
– Alvarlegir eiginfjárörðugleikar
stærri lánastofnana eða hóps lána-
stofnana.
– Alvarlegir erfiðleikar tengdir
greiðslumiðlun og/eða rekstri
greiðslumiðlunarkerfa.“
framhaldi af því var gengið frá form-
legu samstarfi um viðbúnað við hugs-
anlegum áföllum í fjármálakerfinu.
Starfshópurinn leggur m.a. til að
hugað verði að breytingum á lögum
um opinbert eftirlit með fjármála-
starfsemi og lögum um fjármálaeft-
irlit. „Æskilegt er að Fjármálaeftir-
litið geti knúið fram breytingar á
stjórnun og endurskoðun fjármála-
fyrirtækis. Þannig geti Fjármálaeft-
irlitið vikið stjórn, framkvæmda-
stjóra og eftir atvikum endur-
skoðanda úr starfi og skipað nýja í
þeirra stað,“ segir m.a. í tillögum
hópsins.
Þá segir að líklegt sé að samráð
FME, Seðlabanka, ráðuneyta, ríkis-
stjórnar og eftir atvikum Alþingis sé
FME fái vald til að
víkja stjórn fyrirtækis
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Viðbúnaðurinn | 8
Viðskipti, Íþróttir og Brúðkaup