Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
1230 MILLJARÐAR
Að mati greiningardeildar verð-
bréfafyrirtækisins Merrill Lynch,
nema þau lán sem íslensku bankarnir
eru með á gjalddaga fram til ársins
2008 um 17,8 milljörðum dollara, eða
sem samsvarar nálægt 1230 millj-
örðum íslenskra króna.
Viðbúnaður stjórnvalda
Starfshópur nokkurra ráðuneyta,
Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins
telur nauðsynlegt að skýrt verði
hvaða aðilar í stjórnkerfinu beri meg-
inábyrgð á og annist framkvæmd á
úrlausn hugsanlegrar fjármála-
kreppu. Breyta þurfi lögum um eft-
irlit með fjármálastarfsemi og leggur
hópurinn m.a. til að vald Fjármálaeft-
irlitsins verði aukið til ýmissa að-
gerða vegna viðbúnaðar stjórnvalda
við hugsanlegum áföllum í fjár-
málakerfinu.
Yfirvöld í Íran ósátt
Írönsk stjórnvöld brugðust í gær
ókvæða við þeirri ákvörðun stjórnar
Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar að vísa kjarnorkumálum þeirra
til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Höfðu þau í hótunum við Bandaríkja-
stjórn, sögðu að rétt eins og Banda-
ríkjamenn væru færir um að valda
skaða og sársauka þá væri hægt að
valda þeim skaða og sársauka.
Gengisfall krónu hafði áhrif
Gengisfall krónunnar hafði víðtæk
áhrif á erlendum gjaldeyrismörk-
uðum í gær, líkt og gerðist þegar
krónan féll fyrir tveimur vikum.
Gengi íslensku krónunnar lækkaði
um tæp 4% í miklum viðskiptum á
millibankamarkaði í gær. Lækkunin
er rakin til birtingar nýrra talna um
viðskiptahalla og skýrslu greining-
ardeildar Merril Lynch um stöðu ís-
lensku viðskiptabankanna og ofmat á
lánshæfi þeirra.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 36
Fréttaskýring 8 Umræðan 30/43
Úr verinu 14 Bréf 42/43
Erlent 18/19 Minningar 44/51
Minn staður 20 Hestar 55
Höfuðborgin 22 Myndasögur 56
Akureyri 22 Dagbók 56/59
Suðurnes 22 Staður og stund 58
Landið 23 Leikhús 60
Daglegt líf 24/25 Bíó 62/65
Neytendur 26 Ljósvakamiðlar 66
Menning 28/29 Veður 67
Forystugrein 34 Staksteinar 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
ALÞJÓÐLEGUR baráttudagur kvenna var í gær, 8.
mars, og þess minnst með ýmsum hætti. Fjöldi manns
lagði leið sína í Ráðhús Reykjavíkur.
Þar stóðu Menningar- og friðarsamtökin (MFÍK),
ásamt fleirum, fyrir fundi, en yfirskrift hans var „Þró-
unaraðstoð – í þágu hverra?“ Á fundinum var rætt um
þróunaraðstoð frá ólíkum sjónarhornum, en til máls
tóku meðal annars konur sem hafa unnið að þróun-
arverkefnum og hjálparstarfi. Þá spilaði hljómsveitin
Amína fyrir gesti.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjölmargir lögðu leið sína í Ráðhús Reykjavíkur í gær á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Ræddu þróunaraðstoð
á fundi í Ráðhúsinu
TILLAGA um að þýska byggingar-
vöruverslunarkeðjan Bauhaus fái
vilyrði fyrir lóð í Úlfarsfelli verður
lögð fyrir borgarráð í dag. Dagur B.
Eggertsson, formaður skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar, sagði allt benda
til þess að allir borgarráðsfulltrúar
samþykki tillöguna.
„Þá er bara eftir að gera formleg-
an samning um lóðina, sem og skipu-
lagsferlið, en ég á ekki von á því að
það komi eitthvað óvænt upp í því.
Fyrirtækið er einbeitt um að vera
með eina verslun á höfuðborgar-
svæðinu til að efla þar samkeppni og
við erum búin að fara það vel yfir
skipulagsmálin á svæðinu nú þegar
að þetta á allt að geta gengið,“ segir
Dagur.
Hann segist ekki óttast kæru frá
BYKO, sem sótt hefur reglulega um
lóðina sem nú á að úthluta Bauhaus.
„Það er búið að fara rækilega yfir
þeirra athugasemdir, við tökum ekki
ákvarðanir fyrir þeirra hönd, en ég
óttast ekki niðurstöðuna jafnvel þótt
til þess komi, sem ég á raunar ekki
von á.“
Í lögfræðilegri greinargerð sem
unnin var fyrir BYKO kemur fram
að það gæti verið brot á jafnræðis-
reglu stjórnsýslulaga að úthluta
Bauhaus lóð sem BYKO hefur sóst
eftir fyrir svipaða starfsemi árum
saman.
Dagur segir að búið sé að vinna
lögfræðilega greinargerð fyrir
Reykjavíkurborg vegna málsins og
þar sé það niðurstaðan að slíkt
stangist ekki á við stjórnsýslulög.
Formaður skipulagsráðs segir ljóst að Bauhaus fái lóðina
Búið að fara yfir
athugasemdir BYKO
Yfirlýsingar | 14
MANNANAFNANEFND hafn-
aði á síðasta fundi sínum nafn-
inu Twist, hvort heldur sem
karlkyns eiginnafn eða milli-
nafn.
„Eiginnafnið Twist getur ekki
talist ritað í samræmi við al-
mennar ritreglur íslensks máls.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands ber enginn nú-
lifandi Íslendingur nafnið Twist
í þjóðskrá og því er ekki hefð
fyrir þessum rithætti,“ segir í
niðurstöðu mannanafnanefndar
um umsóknina um Twist sem
eiginnafn.
Hvað umsóknina um nafnið
sem millinafn varðar kemst
nefndin að svohljóðandi niður-
stöðu: „Nafnið Twist er ekki
dregið af íslenskum orðstofnum
og hefur ekki unnið sér hefð í ís-
lensku máli. Eins og áður er
getið ber enginn núlifandi Ís-
lendingur nafnið Twist í þjóð-
skrá. Millinafnið Twist er ekki
eiginnafn foreldris umsækjanda
í eignarfalli og ekki er vitað til
þess að alsystkini, foreldri, afi
eða amma umsækjanda beri eða
hafi borið nafnið Twist sem eig-
innafn eða millinafn. Millinafnið
Twist telst því ekki uppfylla
ákvæði 6. gr. laga nr. 45/1996
um mannanöfn, hvorki sem sér-
stakt né almennt millinafn.“
Nafnið Twist
er óheimilt
GRÍMSEYJARBÁTAR hafa aflað
vel að undanförnu. Bæði hafa gæftir
verið góðar og fiskurinn vænn.
„Það er búinn að vera mikill afli og
góður fiskur bæði í net og á línu,“
sagði Garðar Ólason, útgerðarmaður
og fiskverkandi í Grímsey. Hann
gerir út netabátinn Þorleif EA 88 og
einnig landar hjá honum trilla sem
hefur verið á línu og færum. Um há-
degi í gær var Þorleifur búinn að
draga fimm trossur og var rúmt
tonn í hverri trossu.
„Það er miklu meiri fiskur nú en í
fyrra og þetta byrjaði líka miklu fyrr
nú. Við gátum byrjað í janúar, vor-
um að allan febrúar og það sem af er
mars. Það er ekki hægt að bera
þetta saman. Það virðist vera miklu
meira af fiski fyrir Norðurlandi en
er búið að vera í mörg ár. Fiskurinn
er vænn og mjög vel á sig kominn,
mjög feitur og mikil lifur í honum.
Hann er þetta á milli fimm og sex
kíló,“ sagði Garðar.
Fínasta fiskirí undanfarið
„Það er búið að vera fínasta fiskirí
undanfarið,“ sagði Henning Henn-
ingsson, verkstjóri hjá Fiskmarkaði
Grímseyjar. Þar hafa þrír línubátar
lagt upp og sá fjórði bætist við á
næstunni. „Þetta hefur verið alveg
þokkalega góður þorskur, með-
alvigtin svona 2–4 kíló.“
Að sögn Hennings eru aflabrögðin
allt önnur en voru fyrir ári og taldi
hann aflann allt að helmingi meiri
nú. Henning sagði að bátarnir þrír
hefðu yfirleitt komið samtals með
10–15 tonn á dag og stundum meira.
Megnið af aflanum hefur farið til
fiskverkunarinnar Krækis á Dalvík,
sem flakar og frystir aflann.
Ljósmynd/Helga Mattína Björnsdóttir
Þorleifur EA leggur úr höfn.
Góð afla-
brögð í
Grímsey