Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Plúsferðir · Hlíðasmára 15 · 200 Kópavogur · Sími 535 2100
www.plusferdir.is
Glæsilegar borgarferðir í vor
Ó borg
mín borg!
Dublin
13.–16. apríl, verð 43.340 kr.
Innifalið: Flug, gisting á Camden Court Hótel
morgunverður, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
Madrid
6.–9. apríl, verð 54.640 kr.
Innifalið: Flug, gisting á Hótel Regina,
morgunverður, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
Ljubljana
23. mars 13. 19. og 28 apríl,
verð frá 47.340 kr.
Innifalið: Flug, gisting á City Hotel 3 nætur,
morgunverður, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
Luxor
VISA-ferð 21. apríl–1. maí,
verð 79.940 kr.
Innifalið: Flug,
gisting á Luxor Sheraton,
morgunverður,
flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
Njóttu vorsins í Dublin,
Ljubljana, Madrid eða Luxor
RÚMLEGA 9% fjölgun varð á nýjum málum
hjá Stígamótum á síðasta ári og um 27% fleiri
þolendur kynferðisofbeldis fylgdu samtök-
unum á milli ára, þ.e. leituðu sér aðstoðar hjá
samtökunum yfir lengra tímabil. Alls komu
249 ný mál til kasta Stígamóta og af þeim voru
150 vegna sifjaspella, 98 vegna nauðgana, þar
af fimm vegna hópnauðgunar, 10 vegna vænd-
is, 16 vegna kynferðislegrar áreitni og restin
af öðrum toga, en samtals leituðu 543 ein-
staklingar til Stígamóta árið 2005. Þetta var
meðal þess sem fram kom í máli Guðrúnar
Jónsdóttur, talskonu Stígamóta, sem kynnti
ársskýrslu samtakanna í gær.
Guðrún gerði á fundinum hlutfall kærðra
mála sérstaklega að umtalsefni og sagði
áhyggjuefni að það hlutfall fari sífellt lækk-
andi með hverju árinu, auk þess sem dómar í
málaflokknum væru enn teljandi á fingrum
annarrar handar. „Af þeim málum sem hér
voru til umræðu á síðasta ári voru aðeins 4,3%
þeirra kærð. Við höfum aldrei komist í svo
lága tölu,“ sagði Guðrún og ræddi í framhald-
inu hvernig skýra mætti þetta.
Erum enn á því stigi að þær
sem ekki passi sig séu sekar
„Á umliðnum árum þegar ég hef reynt að
skýra það hversu fáir leita réttar síns hef ég
notast við klisjur eins og þær að mörg mál-
anna séu fyrnd, margir treysti sér ekki í gegn-
um erfiðar vitnaleiðslur, ekki síst í ljósi þess
að fólk veit að stór hluti þeirra mála sem eru
kærð eru felld niður. Svona höfum við skýrt
þessar tölur. Núna er ég hins vegar að verða
uppteknari af því að það sé önnur og ríkari
ástæða fyrir því að fólk kæri ekki og ég hef
áhyggjur af þeirri ástæðu,“ sagði Guðrún og
benti í því samhengi á nýlegar rannsóknir,
bæði frá Bretlandi og Danmörku, sem sýna að
almenningur telji konur bera mikla ábyrgð á
því hvort þeim er nauðgað eða ekki. Þannig
sýndi rannsókn Amnesty International í Bret-
landi frá desember sl. að þriðjungur Breta tel-
ur að konur sem daðri beri alla ábyrgð á því
hvort þeim sé nauðgað eður ei og þriðjungi
Breta finnst konur sem eru undir áhrifum
vímugjafa bera alla eða hluta af ábyrgðinni af
nauðgun. Fjórðungi finnst að konur bjóði upp
á nauðgun með því að klæða sig í tælandi fatn-
að.
„Við höfum enga ástæðu til að ætla að Ís-
lendingar séu betur upplýstir en nágranna-
þjóðirnar. Ég hef ástæðu til að ætla að við
séum enn á því stigi að þær sem ekki passi sig
séu sekar,“ sagði Guðrún og benti í því sam-
hengi á að algengustu og erfiðustu afleiðingar
kynferðisofbeldis eins og Stígamót mæli það
séu skömm, léleg sjálfsmynd, þunglyndi og
sektarkennd. „Í ljósi þessa tel ég æ mikilvæg-
ara að beina athyglinni og forvörnunum að
þeim sem ættu að bera skömmina, þ.e. ofbeld-
ismönnunum.“
Guðrún gerði í framhaldinu að umtalsefni
aldur ofbeldismanna þegar kynferðisofbeldið
var framið og vakti sérstaka athygli á því að
10% geranda í skýrslu Stígamóta árið 2005
voru drengir yngri en 15 ára og tæp 23%
þeirra voru yngri en 18 ára. „Ég tel mjög
brýnt að beina fræðslu og forvörnum til
drengja og karla og virkja þá. Það þarf að
grípa þessa ungu stráka áður en það myndast
slóði kynferðisbrotamála á eftir þeim, því ef
ekki næst snemma til þeirra er mikil hætta á
að þeir verði síbrotamenn.“
Fjárhagsstaðan vænkast og
skuldahalinn á bak og burt
Að mati Guðrúnar var árið 2005 á margan
hátt gjöfult fyrir Stígamót. Þannig hafi ríkt
mikil samtaða meðal kvenna, ákveðin vitund-
arvakning hafi orðið meðal almennings,
stjórnvöld hafi sýnt starfi samtakanna áhuga
með því að setja í gang endurskoðun kynferð-
isbrotakaflans auk þess sem vinna hafi hafist
við gerð framkvæmdaáætlunar gegn kyn-
bundnu ofbeldi. Einnig nefndi Guðrún að nor-
ræn ráðstefna á vegum Stígamóta hafi verið
mikilvæg vítamínsprauta fyrir starfið auk
þess sem útgáfa bókar Thelmu Ásdísardóttur
hafi varpað jákvæðu ljósi á starf Stígamóta.
Sagði hún jákvætt hve fjárhagur samtakanna
hefði vænkast vegna meðbyrsins, þannig að
árið sem hófst með 3,5 milljóna króna halla
hafi komið út skuldlaust.
Aðspurð um helstu framtíðarverkefni Stíga-
móta sagði Guðrún æskilegt að beina sjónum í
auknum mæli að klámbransanum hérlendis,
en þar hafi á umliðnum árum orðið ákveðin
þöggun. Benti hún á að á döfinni væri sam-
starfsverkefni Stígamóta og stjórnvalda sem
ætlað sé að fyrirbyggja og vinna gegn man-
sali. „Annað sem við viljum vinna gegn í aukn-
um mæli er kynferðislegri áreitni, því það hef-
ur ekki verið nægileg umræða og fræðsla um
skaðsemi hennar og hversu útbreidd og alvar-
leg hún er í samfélaginu,“ sagði Guðrún.
Einnig nefndi hún mikilvægi þess að koma
upp meðferðarúrræðum fyrir kynferð-
isbrotamenn, en í dag eru engin slík úrræði í
boði.
Rúmlega 9% fjölgun varð á nýjum málum hjá Stígamótum á síðasta ári þegar 543 manns leituðu þangað
Ungur aldur ofbeld-
ismanna áhyggjuefni
Morgunblaðið/Ásdís
Í máli Guðrúnar Jónsdóttur, talskonu Stíga-
móta, kom fram að hlutfall kærðra kynferð-
isbrotamála færi sífellt lækkandi milli ára, en
í fyrra var aðeins kært í 13 af þeim 299 mál-
um sem komu inn á borð Stígamóta. Sagði
Guðrún þetta töluvert áhyggjuefni.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
NORSKI stórmeistarinn Magnus
Carlsen var efstur með 3 vinninga
þegar flestum viðureignum þriðju um-
ferðar Reykjavíkurskákmótsins var
lokið í gærkvöldi. Enn sem fyrr er
nokkuð um óvænt úrslit t.d. gerði
Héðinn Steingrímsson jafntefli við
þriðja stigahæsta keppanda mótsins,
Pentala Harikrishna. Henrik Daniel-
sen og Hannes Hlífar Stefánsson eru
efstir íslenskra skákmanna með 2½
vinning.
Halldór Brynjar Halldórsson, 22
ára Akureyringur, sigraði Inna Gapo-
nenko, alþjóðlegan meistara og
kvennaskákmeistara frá Úkraínu í
gærkvöldi.
Hvítt: Halldór Brynjar Halldórsson
Rd1 g6 15. Bc3 e5 16. Re3!?Rxe4 17.
Bb4 a5
(Eftir17. ...0–0 18. Rc4 f5 19. fxe5
Rxe5 20. Rd4 Hfe8 21. Rxf5! gxf5 22.
Rxe5 dxe5 23. Bxe7 Dxe7 24. Hxf5 á
hvítur góð sóknarfæri.)
18. Ba3 Ref6 19. fxe5 dxe5 20. Bxe7
Kxe7 21.Bc4 Kf8 22.Hd1 Kg7 23. Df2
Hhf8 24. Dh4 Had8 25. Dg5 Rh7?
(Tapleikurinn. Þótt undarlegt
megi virðast er erfitt að benda á gott
framhald fyrir hvítan, eftir 25. ...Rg8
26. Rf5+ Kh7 27. Rd6 f6 o.s.frv.)
26. De7 Kh6 27. Bxf7 Dc8
Sjá stöðumynd.
28. Rf5+! gxf5 29. Hd6+ Rdf6 30.
Hxf6+ Rxf6 31. Dxf6+ Kh7 32.
Dg6+
og svartur gafst upp, því að mátið
blasir við augum: 32. ...Kh8 33. Dh6+
mát.
Óvænt úrslit á Reykja-
víkurskákmótinu
Eftir Braga Kristjánsson
bragikr@hotmail.com
Svart: Inna Gaponenko
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
a6 5. Bd3 Db6 6. Rb3 Dc7 7. 0–0 Rf6
8. Rc3 d6 9. De2 Be7 10. f4 Rbd7 11.
a4 b6 12. Bd2 Bb7 13. Hae1 h5!? 14.
ÞAÐ er ekki svo ýkja langt síðan ís-
lenskum neytendum gafst kostur á
að kaupa niðursneiddan ost í mat-
vöruverslunum. Nýjungin hefur
greinilega fallið í kramið því salan á
niðursneiddum osti jókst um ríflega
45% á síðasta ári.
Að sögn Aðalsteins Magnússonar,
sölustjóra hjá Osta- og smjörsölunni,
hefur eftirspurn eftir niðursneiddum
osti aukist um 50–60% á milli ára frá
því hann kom á markað. Ekki eru
nema þrjú ár frá því að salan á nið-
ursneiddum osti hófst af einhverri
alvöru. Ástæða vinsældanna segir
Aðalsteinn fyrst og fremst vera þæg-
indi. Algengt er að fólk hafi prófað
þessa nýjung á ferðalögum innan-
lands og komist á bragðið, ef svo má
að orði komast. Auk þess kunni
börnin vel að meta þægindin en
klaufskar hendur eiga erfiðara með
að handleika ostaskerann.
En hefur þá sala á osti í hefð-
bundnum pakkningum minnkað að
sama skapi? ,,Nei, alls ekki. Svo virð-
ist sem ostur í sneiðum hafi einfald-
lega aukið ostaneyslu Íslendinga, en
hún hefur aldrei verið meiri en und-
anfarið ár,“ segir Aðalsteinn. Að
meðaltali neytir hver Íslendingur
ríflega 15 kg af osti ár hvert.
Þrátt fyrir að niðursneiddur ostur
sé um 10% dýrari en ostur í pakkn-
ingum hefur það ekki komið að sök,
að sögn Aðalsteins. Ekkert fari til
spillis en nokkuð sé um að afgangur
af pakkaostinum endi í ruslinu þótt
auðvitað séu til hagsýnir neytendur
sem noti afganginn í matreiðslu ým-
iss konar. Aðalsteinn er að vonum
ánægður með þessa þróun og til að
svara neytendum bætist stöðugt við
vöruúrvalið í niðursneiddum osta-
tegundum. Gouda 17% nýtur mestra
vinsælda bæði í sneiðum og í pakkn-
ingum en aðdáendur Gotta-ostsins
geta glaðst því hann kemur á mark-
að í sneiðum síðar í þessum mánuði.
Æ fleiri Íslendingar
kjósa niðursneiddan ost
Söluaukningin
í fyrra var
ríflega 45%