Morgunblaðið - 09.03.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 11
FRÉTTIR
iðunn
tískuverslun
Kringlunni,
s. 588 1680
Laugavegi 40,
s. 561 1690
Ný sending
af yfirhöfnum frá
Á FIMMTA hundrað framhalds-
skólanema fjölmennti á Austurvöll í
gær til að mótmæla fyrirhugaðri
styttingu náms til stúdentsprófs.
Hagsmunaráð íslenskra framhalds-
skólanema, sem stóð fyrir aðgerð-
unum, boðaði Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra á fundinn en þegar ekkert
bólaði á henni hljómaði lagið ,,We
don’t need no education“ með Pink
Floyd. Óhætt er að segja að inntak
lagsins hafi fallið vel að baráttuanda
íslenskra framhaldsskólanema því
þeir voru á engan veginn sáttir við
stöðu mála. Fjöldi nemenda sté á
svið og var málflutningur þeirra
allra á þá leið að hugmyndir
menntamálaráðherra væru rök-
leysa.
,,Menntamálaráðherra hefur ekki
virt okkur viðlits frá síðasta fundi
sem haldinn var fyrir ári síðan. Við
munum halda áfram að láta rödd
okkar heyrast þar til við fáum ein-
hver svör. Menntamálaráðherra
verður að hlusta á rödd skynsem-
innar,“ sagði Þórarinn Sigurðsson
nemandi. ,,Við treystum á að fjöl-
miðlar veki athygli á alvöru málsins
því almenningur þarf að gera sér
grein fyrir því að þetta snertir
marga.“
Allt reynt til að ná
eyrum ráðherra
Halldór Ásgeirsson, nemandi í
MH, var vondaufur um að ná eyrum
menntamálaráðherra eftir að hafa
reynt ýmsar óhefðbundnar aðferðir:
,,Við höfum sent henni nokkur
hundruð þúsund handskrifuð bréf,
níu tölvupósta og tamið 16 bréfdúf-
ur til að senda skilaboð til hennar,“
sagði hann og vonaði að ráðherra
myndi hlusta á brot af þeim mál-
flutningi sem þeir hafa fram að
færa. Halldór sagði að með fyr-
irhuguðum breytingum værum við
að hverfa aftur til gömlu Sovétríkj-
anna, en til stendur að fækka
skyldueiningum í þriðja tungumáli
hjá nemendum á náttúrufræðibraut
í sex einingar úr tólf svo dæmi sé
tekið. ,,Allir skólarnir verða alveg
eins. Öll munum við feta sama veg-
inn, öll munum við fara nákvæm-
lega sömu leiðina og öllsömul verð-
um við með verki í rassinum eftir
sama ráðherrann hvort sem við er-
um í skóla 1, 2 eða 9.“
Við erum ekkert sauðfé!
Oddur Þorri Víðisson bauð áhorf-
endum með sér í ferðalag um hug-
arheima Þorgerðar Katrínar til að
átta sig betur á því að fyrirhugaðar
breytingar verði menntakerfinu til
hagsbóta. ,,Við byrjum á því að
neyða 155 kennara til að taka þá
ákvörðun að fara mjög snemma á
eftirlaun. Svo skellum við námsefn-
inu sem þeir kenndu niður í grunn-
skólann – allt í nafni sparnaðar.
Þetta skilar ríkinu 700 milljónum á
ári en þetta skammast ráðherrann
sín svolítið fyrir.“ Af hverju segir
menntamálaráðherra ekki beint út
að rökin fyrir styttingunni séu í
nafni sparnaðar? spurði Oddur. ,,Jú,
það er stórhneykslanlegt að það sé
verið að spara á kostnað mennt-
unar. Í staðinn kallar ráðherra
þetta jákvæð fjárhagsleg áhrif. Við
erum ekkert sauðfé – við vitum al-
veg hvað jákvæð fjárhagsleg áhrif
eru.“ Hann benti á að á sama tíma
og rætt væri um að stytta nám til
stúdentsprófs hér á landi, væru há-
skólar erlendis, þeir hinir sömu sem
við erum að bera okkur saman við,
að bregðast við aukinni mennt-
unarþörf með því að lengja grunn-
skólann. ,,Já, við leggjum okkur svo
sannarlega fram við að koma þjóð-
inni á hærra menningarstig,“ sagði
Oddur að lokum. Nokkrir þingmenn
fylgdust með fundinum og í þeim
hópi var Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, formaður Samfylkingarinnar.
Aðspurð sagðist hún vona að þessi
fyrirhugaða breyting yrði ekki að
veruleika og sagðist vonast til að
sátt næðist í skólasamfélaginu og
við þá sem málið varðaði. En hver
er hin raunverulega ástæða?
,,Sparnaður. Ég er sannfærð um
það,“ sagði Ingibjörg og vísaði til
þess að nemendum muni fjölga á
næstu árum sem fara í framhalds-
skóla. Fyrir sé skortur á rými fyrir
framhaldsskólanema á höfuðborg-
arsvæðinu sem hafi það í för með
sér að það þurfi að byggja fleiri
skóla og stækka þá sem fyrir eru.
Morgunblaðið/RAX
Á fimmta hundrað framhaldsskólanema mætti á Austurvöll til að mótmæla styttingu náms til stúdentsprófs.
„Munum láta
rödd okkar
heyrast áfram“
Hörð andstaða nemenda við fyrirhug-
aða styttingu náms til stúdentsprófs
Eftir Helgu Ólafsdóttur,
meistaranema í hagnýtri fjölmiðlun
„Það eru allir á móti þessum hugmyndum að Þorgerði Katrínu undanskil-
inni,“ sögðu Rósa Björk og Soffía Arnþrúður, nemar í Kvennaskólanum.
Morgunblaðið/RAX
„Menntamálaráðherra verður að
hlusta á rödd skynseminnar,“ sagði
Þórarinn Sigurðsson.
ÞAÐ VAR fyrsta embættisverk
Sivjar Friðleifsdóttur, nýs heil-
brigðisráðherra, að koma í heim-
sókn á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús (LSH) en það gerði hún
sl. þriðjudag, sama dag og hún tók
við embættinu. Siv heimsótti fyrst
Barnaspítala Hringsins þar sem
hún er öllum hnútum kunnug frá
fyrri tíð þegar hún var formaður
byggingarnefndar spítalans.
Magnús Pétursson, forstjóri LSH,
og framkvæmdastjórn spítalans
tóku á móti ráðherranum ásamt
sviðsstjórunum Ásgeiri Haralds-
syni og Önnu Ólafíu Sigurðar-
dóttur.
Á heimasíðu Sivjar, www.siv.is,
segir ráðherrann að gaman hafi
verið að sjá hversu vel Barnaspít-
alinn nýtist. „Á vökudeild Barna-
spítalans heimsóttum við m.a.
tvær litlar fallegar tvíburasystur
sem fæddust í morgun,“ skrifar
Siv á heimasíðunni.
Ráðherrann sat síðan fund með
framkvæmdastjórn LSH þar sem
farið var yfir ýmis mál sem tengj-
ast rekstri og starfsemi sjúkra-
hússins.
Siv Friðleifsdóttir skoðar tækjabúnað vökudeildar undir leiðsögn Ragnheiðar Sigurðardóttur deildarstjóra.
Nýr ráðherra heimsótti Barnaspítalann