Morgunblaðið - 09.03.2006, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SÚDÖNSK kona heldur á riffli og
barni á mótmælagöngu í Kharto-
um, höfuðborg Súdans, í gær.
Tugir þúsunda manna gengu um
götur borgarinnar til að mótmæla
tillögu um að Sameinuðu þjóðirnar
sendi friðargæslulið til Darfur,
stríðshrjáðs héraðs þar sem
180.000–300.000 manns hafa látið
lífið.
Fólkið krafðist þess að stjórn-
arerindrekum Bandaríkjanna og
fulltrúum Sameinuðu þjóðanna
yrði vísað úr landi.
AP
Friðargæslu í
Darfur mótmælt
YFIRVÖLD í Írak skýrðu frá því í
gær að fundist hefðu lík 24 karl-
manna í Bagdad og hermt er að þeir
hafi ýmist verið skotnir til bana eða
kyrktir. Drápin kyntu undir áhyggj-
um manna af því að allsherjar borg-
arastríð kynni að blossa upp í land-
inu. Sendiherra Bandaríkjanna í
Bagdad tók undir viðvaranir um
borgarastyrjöld og viðurkenndi að
með innrásinni í Írak 2003 hefðu
Bandaríkjamenn og samstarfsríki
þeirra opnað „öskju Pandóru“, upp-
sprettu sífelldra vandræða og
spennu milli súnníta og sjíta í Írak.
Átján líkanna fundust í rútu í Bag-
dad á vegi milli tveggja hverfa súnní-
araba. Læknar sögðu að þetta væru
lík karlmanna á aldrinum 25–35 ára.
Flestir þeirra voru með sár sem
bentu til þess að þeir hefðu verið
hengdir eða kyrktir. Lögreglan taldi
að minnst tveir mannanna væru
arabar af erlendum uppruna.
Lík sex karlmanna fundust á öðr-
um stöðum í Bagdad. Fjórir þeirra
voru kyrktir og tveir skotnir til bana.
Slíkum drápum hefur fjölgað í
Írak frá sprengjuárásinni á einn af
helstu helgidómum sjíta í borginni
Samarra 22. febrúar. Óstaðfestar
fregnir herma að sjítar hafi stofnað
dauðasveitir til að myrða súnní-
araba.
Arabar myndu styðja
súnníta og Íranar sjíta
Sendiherra Bandaríkjanna í Írak,
Zalmay Khalilzad, sagði í viðtali við
Los Angeles Times að Bandaríkja-
menn ættu einskis annars úrkosti en
að halda fjölmennu herliði í Írak
vegna hættunnar á allsherjar borg-
arastríði sem myndi hafa mjög alvar-
legar afleiðingar fyrir alla heims-
byggðina.
„Við höfum opnað öskju Pandóru
og spurningin er: hvað eigum við að
gera? Ég tel að við eigum að reyna
að byggja brýr á milli þessara sam-
félaga,“ sagði sendiherrann og skír-
skotaði til sjíta og súnníta í Írak.
Khalilzad sagði að allsherjarstríð í
Írak gæti orðið til þess að arabar í
grannlöndunum snerust á sveif með
súnnítum og Íranar styddu trúbræð-
ur sína, sjíta.
Sendiherrann varaði enn fremur
við því að ef allt færi á versta veg
gætu íslamskir öfgamenn komist til
valda í hluta Íraks og reynt að
stækka yfirráðasvæði sitt. „Afgan-
istan undir stjórn talibana liti út eins
og barnaleikvöllur miðað við þau
ósköp,“ sagði Khalilzad.
Sakar Írana um að hafa sent
byltingarverði til Íraks
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sakaði á hinn
bóginn fjölmiðla um að hafa gert of
mikið úr ofbeldinu í Írak eftir árás-
ina á mosku sjíta í Samarra 22. febr-
úar.
Rumsfeld sagði að lítil hætta væri
á borgarastyrjöld í landinu en sakaði
stjórnvöld í Íran um að hafa sent
liðsmenn úrvalssveita Byltingar-
varðarins til Íraks í því skyni að
kynda undir spennunni milli súnníta
og sjíta. Varnarmálaráðherrann
bætti við að Írönum yrði ekki kápan
úr því klæðinu og þeir myndu átta
sig á því síðar að þetta væru mistök.
„Við höfum opnað
öskju Pandóru í Írak“
Sendiherra Bandaríkjanna í Bagdad óttast borgarastyrjöld
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Haag. AFP. | Stjórnarflokkarnir í Hol-
landi töpuðu fylgi í sveitarstjórnar-
kosningum í fyrradag, en úrslitin
þykja gefa góða vísbendingu um
fylgi flokka nú þegar fjórtán mán-
uðir eru til þingkosninga í landinu.
Verkamannaflokkurinn PvdA var
sigurvegari kosninganna og hlaut
alls 23,4 prósent atkvæða, eða um
átta prósentustigum meira en í sveit-
arstjórnarkosningunum 2002.
Flokkur Kristilegra demókrata,
CDA, sem fer fyrir ríkisstjórn flokka
hægra megin við miðju, tapaði hins
vegar fylgi og hlaut um 16,9 prósent
atkvæða. Á sama tíma tapaði sam-
starfsflokkur þeirra í ríkisstjórninni,
Flokkur Frjálslyndra, VVD, fylgi og
hlaut 13,8 prósent atkvæða.
Kosningarnar þykja gefa vísbend-
ingu um fylgi hollensku flokkanna,
en kannanir sem framkvæmdar voru
á meðal kjósenda benda til að PvdA,
vinstriflokkur Grænna og Sósíalista-
flokkurinn myndu fá 76 af 150 sæt-
um hollenska þingsins, ef gengið
hefði verið til þingkosninga á þriðju-
dag.
Útkoman er áfall fyrir ríkisstjórn-
ina, sem hefur á síðustu árum glímt
við efnahagslega niðursveiflu, ásamt
því að hafa lagt áherslu á harða
stefnu í málefnum innflytjenda sem
koma ekki frá Vesturlöndum, eink-
anlega múslímum.
Að auki þykja kosningarnar
marka afturhvarf til pólitísks lands-
lags landsins eins og það var fyrir
kosningarnar árið 2002, þegar flokk-
ur kenndur við Pim Fortuyn, harðan
andstæðing þáverandi stefnu stjórn-
valda í innflytjendamálum, hristi
upp í pólitísku lífi landsins með því
að hljóta verulegan stuðning kjós-
enda í borginni Rotterdam.
Flokkur Fortuyns, sem var myrt-
ur skömmu fyrir síðustu þingkosn-
ingar, var upphaflega hluti af ríkis-
stjórn hægri flokka, en féll svo úr
stjórninni eftir innbyrðis deilur.
Spennan á milli innflytjenda, sem
flokksmenn Pims Fortuyns höfðu
spáð að myndi magnast, náði há-
marki í nóvember árið 2004, þegar
kvikmyndagerðarmaðurinn Theo
van Gogh var myrtur af íslömskum
öfgamanni.
Stjórnvöld tapa fylgi í
kosningum í Hollandi
ÞRÍR piltar fórust í eldsvoða í Þórs-
höfn í Færeyjum í fyrrakvöld.
Tveir piltanna voru bræður, sex
og níu ára gamlir, en sá þriðji var tíu
ára og var í heimsókn hjá þeim þegar
eldur kviknaði í húsi þeirra.
Færeyska útvarpið hafði eftir
vaktstjóra á lögreglustöðinni í Þórs-
höfn að talið væri að piltarnir hefðu
dáið úr reykeitrun. Mestar skemmd-
ir hefðu orðið á eldhúsinu og pilt-
arnir hefðu verið í öðrum enda húss-
ins þar sem engar brunaskemmdir
urðu.
Ekkert bendir
til íkveikju
Danskir sérfræðingar fóru til
Þórshafnar í gær til að aðstoða við
rannsókn á upptökum eldsins. Að
sögn færeyska útvarpsins telur lög-
reglan ekkert hafa komið fram sem
bendi til íkveikju.
Tilkynnt var um eldinn um níu-
leytið í fyrrakvöld en lögreglan,
slökkvilið og sjúkrabílar komu of
seint.
Bruninn varð í nýju tvíbýlishúsi og
að sögn sjónarvotta fylltist það af
reyk.
Þrír piltar
fórust í
bruna
Dublin. AP. | Erkibiskup róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar í
Dublin á Írlandi birti í gær
skýrslu þar sem fram kemur að
102 prestar erkibiskupsdæmis-
ins – eða rúm 3,5% allra prest-
anna – eru grunaðir um að hafa
misþyrmt að minnsta kosti 350
börnum kynferðislega eða níðst
á þeim með öðrum hætti.
Í yfirlýsingu frá skrifstofu
erkibiskupsins Diarmuid Martin
sagði að tölurnar byggðust á
tveggja ára rannsókn á skjölum
um rúmlega 2.800 presta sem
hafa starfað í erkibiskupsdæm-
inu Dublin síðustu 66 árin.
Átta prestar dæmdir
Fram kemur í skýrslunni að
átta prestar í Dublin hafa verið
dæmdir sekir um að hafa mis-
þyrmt börnum. 105 fórnarlömb
hafa höfðað skaðabótamál á
hendur 32 prestum og mál
þeirra hafa kostað erkibiskups-
dæmið sem samsvarar 470 millj-
ónum króna. Búist er við að
erkibiskupsdæmið þurfi að
greiða mun meiri fjárhæð þar
sem um 40 mál eru enn óút-
kljáð.
Martin kvaðst telja að erki-
biskupsdæmið myndi þurfa að
selja nokkrar af eignum sínum
til að geta greitt skaðabæturnar
en sagði það nauðsynlega fórn
til að bæta fyrir ranglætið sem
börnin voru beitt.
„Mér þykir það mjög skelfi-
legt að sjá að í nokkrum þessara
mála var svo mörgum börnum
misþyrmt,“ sagði Martin. „Ég
veit á hinn bóginn að mikill
meirihluti presta misþyrmir
ekki börnum, að þeir eru mjög
reiðir og sárir yfir því sem gerð-
ist.“
Prestar taldir
hafa misþyrmt
350 börnum
Fréttir í tölvupósti