Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 20

Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 20
Laugardalur | Eitt af vinsæl- ustu útivistarsvæðum Reykja- víkur er í Laugardalnum. Þar er ýmislegt um að vera á vett- vangi íþróttanna og hægt að bregða sér í Húsdýragarðinn og Grasagarðinn. En það er einnig hægt að fara í gönguferð án þess að hafa mikið fyrir stafni, eins og vinkonurnar Sunna og Elfa gerðu einn góð- viðrisdaginn. Morgunblaðið/Ásdís Gönguferð í Laugardalnum Útivist Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Á heimasíðu Akureyrarbæjar eru tald- ar upp 12 ástæður til að búa í bænum. Meðal annars þessi: „Veðurfar er gott, sólrík sumur, snjór á vetrum.“ Heims- byggðin veit að sólin skín allt sumarið innan bæjarmarkanna en líklega er tímabært að endurskoða þetta með snjó- inn …    Finna þarf nafn á nýtt sveitarfélag sem til verður við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Sverrir Páll Erlendsson, kennari við MA, veltir málinu fyrir sér á heimasíðu sinni á dögunum og bendir m.a. á þann möguleika að nota fyrri partinn úr nafni Siglufjarðar og þann seinni úr nafni Ólafsfjarðar. Vert er að geta þess að Sverrir Páll er fæddur og uppalinn á Siglufirði!    Vinur minn, forfallinn aðdáandi enska knattspyrnufélagsins Arsenal, fann við- eigandi leið til þess að fagna óvæntum en mjög sanngjörnum sigri liðsins gegn Real Madrid á Spáni um daginn. Hann gekk upp að Sigurhæðum, húsi séra Matthíasar.    Um síðustu helgi var opnuð sýning á verkum Bandaríkjamannsins Spencers Tunicks í Listasafninu á Akureyri, náungans sem síðastliðin ár hefur tekið ljósmyndir af nöktu fólki í þúsundatali í borgum og bæjum um allan heim. Tun- ick kom í heimsókn í tilefni sýning- arinnar og hélt fyrirlestur um list sína en það er óskiljanlegt að hann skyldi láta sér það tækifæri úr greipum ganga að mynda alla Eyfirðinga nakta í kirkju- tröppunum. Heyrst hefur – en þó ekki fengist staðfest – að ástæðan sé sú að ég var ekki í bænum …    Frúin í Hamborg við Ráðhústorgið, verslun með gamla muni, er skemmti- legur staður. Það er eins og heimsókn til afa og ömmu á árum áður að ganga þar inn. Nema hvað þau áttu ekki vínylplöt- una Double Fantasy með John Lennon. Úr bæjarlífinu AKUREYRI Eftir Skapta Hallgrímsson blaðamann Neskaupstaður | Hann Skúli Þór, nokkurra mánaða gamall pjakkur, lætur það lítið á sig fá þó að honum sé skellt á bólakaf. Stefanía Freysteins- dóttir, íþróttakennari og ungbarnasundskennari, skellir honum hér í kaf og pabbinn, Ingvar Stef- án Árnason, fylgist með, tilbúinn að taka á móti stráksa þegar hann kemur úr kafi. Ung- barnasundsnámskeiðin hjá Stefaníu eru vinsæl enda frábær leið til skemmtilegra sam- verustunda foreldra og barns. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Á bólakaf í ungbarnasundi Jónas Árnason sat aðsumbli með Eiríkigamla Áslákssyni í kirkjugarðinum og lýsir því þegar Eiríkur fór að yrkja: „En hann ansaði mér nú engu, kaldur sat hann allt í einu gneypur og hugsi, eins og Íslend- ingar sitja svo oft þegar svona stendur á, af því þjóðernið í hjarta þeirra eflist í réttu hlutfalli við magn þess brennivíns sem þeir láta í magann, og fyrr en varir þyrmir yfir þá arfinum mikla.“ Eftir að hafa þrifið flöskuna þrisvar og slokrað úr henni orti Ei- ríkur: Gumum finnst lífið grábölvað. Grimmum bitnir af lúsum, innan um heimsins hrossatað híma þeir líkir músum. En góði vinur, hvað gerir það, þó í grenjum við lifandi dúsum, bara ef okkur blessast að búa dauðir í húsum. Í kirkjugarði pebl@mbl.is Þórshöfn | Hreppsnefndir Þórshafnar- hrepps og Skeggjastaðahrepps hafa ákveð- ið að efna til atkvæðagreiðslu um samein- ingu sveitarfélaganna. Kosningin fer fram 8. apríl næstkomandi. Í Þórshafnarhreppi bjuggu 417 undir lok síðasta árs og 125 í Skeggjastaðahreppi, samtals 542 íbúar. Bakkafjörður er byggðakjarninn í síðarnefnda sveitarfé- laginu. Fram kemur í fréttabréfi Þórshafnar- hrepps að sveitarstjórnirnar hafa að und- anförnu rætt um hagkvæmni þess að sam- eina sveitarfélögin. Auk þess var fundað með starfsmönnum félagsmálaráðuneytis og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, félags- málaráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra og samgönguráðherra þar sem rædd voru nokkur þau helstu áhersluatriði er sveitarstjórnirnar telja að þurfi að ná fram að ganga til að sameining sveitarfélaganna geti talist hagkvæm. Niðurstaða þeirra viðræðna var það jákvæð að sveitarstjórn- irnar ákváðu á fundum sínum um helgina að boða til kosninga um sameiningu laug- ardaginn 8. apríl nk. Stefnt er að því að halda kynningarfundi í báðum sveitarfélögunum laugardaginn 1. apríl nk. en fyrir fundinn verður dreift inn á hvert heimili í sveitarfélögunum skýrslu sem er í vinnslu hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga og samstarfsnefndum samein- ingar sveitarfélaganna. Þar verður velt upp ýmsum atriðum er koma til álita við hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna. Kosið um sameiningu Þórshafnar og Bakkafjarðar AFURÐASTÖÐVAR í mjólkuriðnaði hafa ákveðið að greiða fullt afurðastöðvaverð fyrir alla mjólk umfram kvóta, sem berst til afurðastöðva á þessu verðlagsári en það stendur út ágúst. Kemur það fram á vef Landssambands kúabænda, naut.is. Fram kemur að greitt verður bæði fyrir prótein- og fituhluta umframmjólkurinnar. Sala á mjólkurafurðum gengur feiknavel þessa mánuði, segir á vefnum, og nemur söluaukningin fyrstu tvo mánuði ársins 2006 um hálfri milljón lítra mjólkur á pró- teingrunni, miðað við sama tímabil í fyrra. Þá er vert að geta þess að einnig hefur auk- ist sala á fituríkum afurðum. Greiða fullt verð fyrir alla mjólk ♦♦♦ AÐALFUNDUR FLÖGU GROUP hf. verður haldinn að Síðumúla 24, fimmtudaginn 23. mars 2006 kl.8:30 Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur félagsins 2005 3. Kosning stjórnar 4. Kosning endurskoðanda 5. Ákvörðun um meðferð hagnaðar/taps á árinu 6. Ákvörðun um stjórnarlaun 7. Önnur mál löglega upp borin Dagskrá og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu stjórnar og endurskoðanda munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Síðumúla 24 í Reykjavík, viku fyrir aðalfundinn. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórn Flögu Group hf. www.flagagroup.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.