Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 23

Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 23 MINNSTAÐUR LANDIÐ Mýrdalur | „Við vorum bara að hittast og skemmta okkur en ekki að reyna að leysa landbúnaðarmál- in,“ segir Jóhannes Kristjánsson á Höfðabrekku í Mýrdal, fyrsti for- maður Landssamtaka sauðfjár- bænda. Hann bauð til sín á Hótel Höfðabrekku fyrstu stjórn samtak- anna og guðföður þeirra. Landssamtök sauðfjárbænda voru stofnuð á árinu 1985 og urðu því tvítug á síðasta ári. Áður höfðu ekki verið sérstök samtök sauð- fjárbænda heldur annaðist Stétt- arsamband bænda hagsmunagæslu fyrir sauðfjárbændur. Ekki var eining um stofnun sérstakra sam- banda kúa- og sauðfjárbænda í upphafi og þurfti töluvert átak til að koma þeim á fót og það kostaði mikla vinnu forystumannanna. Jóhannes segir að fram hafi komið í spjalli þeirra félaga á Höfðabrekku núna að Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri nefndi það við Einar E. Gíslason á Syðra- Skörðugili hvers vegna sauðfjár- bændur stofnuðu ekki sjálfstæð samtök, eins og hrossabændur og ýmsir aðrir hópar bænda höfðu lengi haft með sér. Einar fékk síð- ar ýmsa bændur í lið með sér, með- al annars Jóhannes á Höfða- brekku, til að stofna Landssamtök sauðfjárbænda. Einar tók ekki sæti í stjórn en með Jóhannesi, sem kjörinn var formaður, voru Eysteinn Jónsson á Arnarvatni, Aðalsteinn Aðalsteinsson á Vað- brekku, Sigurður Jónsson í Fjarð- arhorni og Rúnar Hálfdánarson á Þverfelli. Eysteinn er látinn en hinir stjórnarmennirnir hittust á Höfðabrekku ásamt Einari á Skörðugili. „Þetta var gaman því við höfum ekki hist saman frá því við vorum í stjórninni,“ segir Jóhannes og bæt- ir því við að það hafi lengi staðið til hjá sér að kalla þennan hóp saman. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Endurfundir Skemmtilegt var hjá fyrstu stjórn sauðfjárbænda á Höfða- brekku, fv. Aðalsteinn Aðalsteinsson, Sigurður Jónsson, Einar E. Gíslason, Jóhannes Kristjánsson og Rúnar Hálfdánarson. Reyndum ekki að leysa landbúnaðarmálin Reykjadalur | „Við höfum mjög gaman af hæn- unum, auk þess sem eggin eru betri á bragðið og fallegri á litinn,“ segir Hildigunnur Jóns- dóttir sem býr á bænum Lyngbrekku í Reykja- dal og hefur ásamt systur sinni, Kristínu Mar- gréti Jónsdóttur, búið með heimilisfugla í meira en tuttugu ár. „Hænur fengum við fyrst árið 1984 en end- urnar komu nokkrum árum síðar og eru sérlega skemmtilegur bústofn,“ segir Kristín Margrét, en fuglabúskapur þeirra systra er um 30 hænur og 10 endur á vetrarfóðrum. Fjölgar á sumrin Á sumrin fjölgar yfirleitt mjög á búinu þar sem alltaf liggja nokkrar hænur á og endurnar unga út víða á landareigninni. Stundum fjölgar hænsnunum um meira en helming og endurnar hafa oft orðið 80 til 100 talsins þegar vel hefur gengið. Þá er útungunarvélin oft í gangi á sumr- in. Fyrir utan að hafa mjög mikla ánægju af fuglunum er af þeim mikið gagn því þær nýta allt sem fiðurféð gefur af sér. Eggin koma að góðum notum fyrir heimilið. Aldrei skortir hænuegg og oft eru endurnar mjög duglegar að verpa enda eru eggin mjög góð í kökur. Þær systur eru auðvitað aflögufærar með þessar afurðir og nágrannar og vinir fá eggja- bakka þegar á þarf að halda. Þá fellur mikið andakjöt til á haustin enda ekki hægt að setja á alla unga. Það er mikið verk að reyta fiðrið, en endurnar eru kjötmiklar og vega frá 1,5–2 kg. Þetta þykir góður matur að mati þeirra sem til þekkja og kunningjar kunna vel að meta að fá gefins endur á veislu- borð sín. Sama má segja um hænsnin, en allir hanar eru aldir til kjöts og aldrei þarf að kaupa kjúklinga í kjötborðum búðanna. Þetta eru auð- vitað ekki holdakjúklingar heldur eru þetta að- allega hænsni af gamla íslenska stofninum og það er ekki mjög kjötmikið kyn. Blikur á lofti En ógnar ekki fuglaflensa íslenskum hænsn- um og aliöndum? „Við höfum reyndar ekki mjög miklar áhyggjur af þessu þar sem nálægðin við þessa fugla er með allt öðrum hætti en í As- íulöndum,“ segir Hildigunnur. „Hér er fólk vel upplýst um þessi mál og við munum fylgjast vel með atburðarásinni og gera það sem fólki með fugla verður sagt að gera.“ „Ef fuglarnir þurfa að vera inni í sumar mun- um við fækka bæði öndum og hænum því erfitt er að loka allt inni á þeim tíma þegar fjölgar í hópnum. Þetta eru útifuglar sem eru mjög ólíkir t.d. búrhænsnum, en seint hættum við alveg því þetta er svo gaman,“ segir Kristín Margrét og ekki eru nein merki um uppgjöf í búskapnum. Endur og hænsni í uppáhaldi Morgunblaðið/Atli Vigfússon Fuglabændurnir á Lyngbrekku hafa ekki áhyggjur af fuglaflensu Eftir Atla Vigfússon Íslenskar Hildigunnur Jónsdóttir með íslensk skrauthænsni. Andarsteggur Kristín Margrét Jónsdóttir með einn andarstegginn. Þegar mest hefur verið hafa verið hátt í 100 endur á Lyngbrekku. Hvammstangi | Byggðaráð Húnaþings vestra samþykkti á dögunum bókun þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna stöðu atvinnumála í sveit- arfélaginu. Á undanförnum vikum hafa fyrirtæki þurft að grípa til uppsagna á starfsfólki. Þar er væntanlega meðal annars verið að vísa til upp- sagna hjá Meleyri hf. á Hvammstanga. Byggðaráð samþykkti að óska eftir fundi með alþingismönnum kjördæmisins um stöðu atvinnumála. Áhyggjur af stöðu atvinnumála Skráning í síma 544 4500 og á www.ntv.is - NTV - Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogur GRUNNNÁM Í BÓKHALDI Helstu námsgreinar: Villt þú læra bókhald og tölvubókhald? 108 kennslustunda hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir þá sem vilja læra bókhald frá grunni til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum. Námið hentar einnig einstaklingum með sjálfstæðan atvinnurekstur og þeim sem eru að hefja rekstur og vilja geta fært bókhaldið sjálfir. Virðisaukaskattur - reglur, skil og öll meðferð vsk. Tölvubókhald í Navision - rauhæf verkefni með fylgiskjölum Verslunarreikningur - það helsta sem notað er við skrifstofustörf Undirstaða bókhalds - mikið um verklegar æfingar Morgunnámskeið: Námið er 108 stundir og kostar 86.450.- stgr. eða með raðgreiðslum. Kennt alla virka daga kl. 8:30 til 12:30. Frá 29. mars til 5. maí. Kennt á mán.- og mið kl. 18:00 - 22:00 og á laugardögum kl. 13:00 til 17:00. Frá 6. mars til 24. apríl. Kvöldnámskeið: „Með auknum umsvifum fyrirtækis okkar fannst mér ég sitja eftir hálf bjargarlaus. Eftir námið treysti ég mér í öll störf á skrifstofunni og get tekið að mér fleiri og stærri verkefni. Nú er ekki spurning um hvort heldur hvað ég ætla að læra næst ...“ Ragnheiður Einarsdóttir - Útgerðafyrirtækinu Pétursey

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.