Morgunblaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 24
Daglegtlíf mars Mikil kaffidrykkjagetur aukiðhættu á að fáannað hjartaáfall hjá þeim sem þegar hafa feng- ið eitt. Kanadísk rannsókn hefur leitt í ljós að kaffi- drykkjan eykur þó aðeins áhættuna hjá þeim sem hafa breytt ensím sem brýtur niður koffein, að því er fram kemur á vef Dagens Nyheter. Í Sví- þjóð er hlutfall þeirra sem hafa þetta ensím sex af hverj- um tíu. Frekari rannsóknir þurfa þó að fara fram til að hægt sé að staðfesta niðurstöðurnar. Líkami okkar brýtur niður ýmis efni, s.s. koffein, með hjálp ýmiss konar ensíma. Ensímið sem brýtur niður kof- fein brýtur einnig niður ýmis þunglyndislyf. Þetta ensím er mismunandi á milli fólks og fer það eftir erfðum. Tvö þúsund manns sem höfðu fengið hjartaáfall voru rannsakaðir og jafnstór hópur sem ekki hafði fengið hjarta- áfall. Í ljós kom að aðeins hjá þeim sem ekki höfðu þetta breytta ensím hafði kaffi- drykkjan þau áhrif að auka líkur á öðru hjartaáfalli. Of snemmt er að ráðleggja fólki sem fengið hefur hjarta- áfall að hætta að drekka kaffi því frekari rannsókna er þörf. Magn kaffis skipti einnig máli. Fólk sem drakk 2–3 bolla á dag var ekki í hættu en þeir sem drukku fjóra bolla eða meira á dag áttu 60% frekar á hættu að fá annað hjartaáfall.  RANNSÓKN Mikið kaffi eykur líkur á öðru hjartaáfalli É g hef ekki undan að bóka hjá mér og það komast færri að en vilja,“ segir Guðrún Júlía Jóhannsdóttir sem rekur fyrirtækið Smukbrud í sveitasælunni á Jótlandi, þar sem hún selur brúðarkjóla, þjónustar og dekrar við konur á brúðkaupsdaginn. „Þetta er nokkurra klukkustunda prógramm ef konur taka allan pakk- ann. Ef brúðkaupið er til dæmis klukkan tvö, eins og algengt er hér í Danmörku, þá kemur brúðurin hing- að til mín snemma morguns og byrjar á því að fara í freyðibað með rósa- blöðum og ilmolíum og slakar vel á. Svo færum við henni kampavín og gerum þetta sem notalegast og henni er velkomið að koma með vinkonu sína eða mömmu með sér. Síðan farða ég brúðina og hér er hár- greiðslukona sem sér um að greiða henni og við klæðum hana líka í brúð- arkjólinn og gerum hana í rauninni tilbúna til að fara beint út í bíl eða hestvagn, eftir því á hvaða farartæki hún fer til kirkju. Stundum dúllum við líka við vinkonuna eða mömmuna, förðum og greiðum þeim líka ef um það er beðið.“ Meðhöndlaðar eins og prinsessur Verðandi brúður getur semsagt fengið allan pakkann á einum stað hjá Guðrúnu Júlíu, sem getur verið mikill kostur, og ekki amalegt að fá þar fyr- ir utan svona notalega meðhöndlun eins og rósablaðafreyðibað. „Ég geri allt sem í mínu valdi stendur til að láta þeim líða eins og þær séu prins- essur, enda er þetta sá dagur í lífi hverrar konu sem þær eru sann- arlega prinsessur. Ég er líka oftast búin að kynnast þeim aðeins áður en stóri dagurinn rennur upp, því þær þurfa að koma hingað og máta kjóla,“ segir Guðrún Júlía sem selur ekki að- eins brúðarkjóla, heldur líka brúð- arskó, slör, hárskraut og alla mögu- lega fylgihluti sem konur sækjast eftir fyrir brúðkaupsdaginn. Jákvætt starf tengt gleðistund Fyrirtækið stofnaði Guðrún Júlía fyrir ári þegar hún og sambýlismaður hennar, Hari, keyptu stórt og fallegt hús á yndislegum stað úti í sveit á Jótlandi. Húsið er hundrað og eins árs gamall skóli í notalegu umhverfi sem hefur verið endurbyggður. „Mig langaði til að hafa vinnuna mína heima og ala börnin mín upp við það að ég sé alltaf á staðnum, svona rétt eins og ég ólst sjálf upp við heima í Neskaupstað. Og svo langaði mig líka til að starfa við eitthvað jákvætt og gleðilegt og þá fékk ég þessa hug- mynd að heildarlausn fyrir brúði og sé ekki eftir að hafa hrint henni í framkvæmd. Umhverfið hér er róm- antískt, svo það hentar mjög vel,“ segir Guðrún Júlía og bætir við að hún sé komin í draumastarfið. Gaman að fá íslenskar konur Ástin dró Guðrúnu Júlíu upp- haflega til Danmerkur fyrir sautján árum og þar lærði hún til snyrtifræð- ings auk þess að ljúka þar stúdents- prófi. „Ég kann vel við mig í Dan- mörku en ég er með heilmikla tengingu við Ísland í fyrirtækinu mínu því ég farða viðskiptavini mína með No name-snyrtivörum sem ég kaupi á Íslandi og ég hef áhuga á að selja Þríkrossinn og aðra skartgripi eftir íslenska hönnuði, hér hjá mér. Hingað kom ein íslensk brúður í fyrra sem ég dekraði við á brúð- kaupsdaginn og önnur er á leiðinni til mín núna í apríl. Mér finnst sér- staklega gaman að fá íslenskar konur til mín,“ segir Guðrún Júlía sem ætl- ar sjálf að gifta sig í ágúst en veit ekki fyrir víst hver tekur að sér að dekra við hana þá. Og auðvitað verður brúð- kaupið í sælureitnum í sveitinni. „Við ætlum að gifta okkur úti í garði hér heima.“ Dekrar við verðandi brúði Guðrún Júlía ásamt tveimur brúðum sem hafa þegið þjónustu hennar fyrir stóru stundina. Sveitasetrið þar sem Guðrún Júlía býr og Smukbrud er til húsa. www.smukbrud.dk  FYRIRTÆKI | Guðrún Júlía stofnaði Smukbrud fyrir prinsessur í einn dag Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.