Morgunblaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 25
Iðnþing 2006
föstudaginn 17. mars
á Hótel Loftleiðum
Nýsköpun
í hnatt-
væddum
heimi
Framtíðarsýn
fyrir atvinnulífið
Vilmundur Jósefsson
formaður
Samtaka iðnaðarins
Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra
Hans Skov Christensen
framkvæmdastjóri
Dansk Industri
Pallborðsumræður
um framtíðarsýn,
atvinnustefnu, hnatt-
væðingu, gjaldmiðla
og Evrópumál
Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og
viðskiptaráðherra
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
Sími 591 0100 - Fax 591 0101
mottaka@si.is - www.si.is
Nánari upplýsingar og skráning á www.si.is
Dagskráin, sem hefst stundvíslega kl. 13:00
í sal-1 á Hótel Loftleiðum, er öllum opin og
aðgangur ókeypis, en tekið er við skráningum
á www.si.is. Ráðstefnulok eru áætluð um
kl. 16:00.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 25
DAGLEG LÍF Í MARS
ÞAÐ getur vafist fyrir fólki hvernig
best er að láta frómasinn heppnast
þegar nota á matarlím. Matarlím
sem nota á í heitan vökva er auðveld-
ara í meðhöndlun en þegar brætt
skal í kaldan vökva.
Auðvelda leiðin –
matarlím í heitan vökva
Til að sýna hvernig best er að fara
að er gefin uppskrift að eftirrétt-
inum panna cotta.
Panna cotta
fyrir fjóra
3 matarlímsblöð
½ l rjómi
100 g sykur
1 vanillustöng
¾ tsk. rifinn sítrónubörkur
Setjið hráefnið í pott og komið
upp suðu. Fjarlægið vanillustöngina.
Síðan er matarlíminu bætt í á eft-
irfarandi hátt:
Leggið matarlímsblöðin eitt í
einu í skál með vel köldu vatni
og látið liggja í 5–10 mínútur.
Þegar tíminn er liðinn eru
blöðin orðin mjúk og þykk.
Takið þau úr vökvanum og
kreistið vatnið úr þeim.
Setjið matarlímsblöðin beint í
heitan vökvann í pottinum.
Hrærið þar til matarlímið hefur
bráðnað saman við.
Hellið vökvanum í þar til gert
form og setjið í kæli þangað til
frómasinn hefur stífnað eða um
fjórar klst.
Erfiða aðferðin –
matarlím í kaldan vökva
Þegar búinn er til sítrónufrómas
er matarlímið sett í kaldan vökva.
Sítrónufrómas
fyrir fjóra
4 matarlímsblöð
4 egg
100 g sykur
2 tsk. rifinn sítrónubörkur
½ dl sítrónusafi
¼ l rjómi
Hrærið egg og sykur uns létt og
ljóst. Bætið í rifnum berkinum. Bæt-
ið matarlíminu í eins og lýst er.
Hrærið rjómann sér.
Leggið matarlímsblöðin eitt í
einu í bleyti í vel kalt vatn í 5–
10 mínútur. Vatnið á að fljóta
vel yfir.
Takið blöðin upp úr vatninu
ásamt því vatni sem loðir við,
þ.e. ekki kreista úr þeim vatn-
ið.
Setjið matarlímsblöðin í hita-
þolna skál, sem er ofan í potti
með vatni sem sýður lítið eitt,
og bræðið í vatnsbaði.
Bætið sítrónusafanum í mat-
arlímið. Athugið hitastigið með
því að láta dropa leka á úlnlið-
inn, ef vökvinn er heitur þarf
að kæla hann aðeins.
Hellið matarlímsblöndunni í
eggjahræruna í mjórri bunu og
hrærið í á meðan. Bætið þeytt-
um rjómanum saman við.
Látið frómasinn stífna til hálfs
í kæli og hrærið í öðru hvoru.
Eftir það er honum hellt í
flotta skál og látinn stífna til
fulls.
MATARGERÐ | Er frómasinn klesstur og blautur?
Galdurinn
við matarlím Í MATARLÍMI er próteinið kollagensem finnst í bandvefjum dýra og er þaraf leiðandi helst unnið úr skinni og
beinum svína. Matarlím fæst annars
vegar sem gegnsæ blöð og hins vegar
sem duft.
Þegar matarlímið hefur bráðnað
myndast gel af því að próteinið í mat-
arlíminu getur bundist miklu magni
vökva og þar af leiðandi stífnar vökv-
inn sem matarlímið er sett í af því að
vökvinn binst matarlíminu.
Grænmetisætur geta fengið mat-
arlím sem unnið er úr þangi, t.d. í
heilsuvöruversluninni Maður lifandi.
MATARGERÐ
Hvað er matarlím og
hvernig virkar það?