Morgunblaðið - 09.03.2006, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 29
MENNING
BÖRN eru enn mjög ung þegar ein-
faldir töfrar litablöndunar ljúkast
upp fyrir þeim. Hvítur og rauður búa
til bleikan, galdur sem gott er að
kunna þegar maður er fjögurra ára
og kvenkyns. Gulur og blár skapa
grænan, o.s.frv. Síðar bætast við
leyndardómar fjarvíddar og hjá þeim
áhugasömu jafnvel möguleikar sjón-
blekkingarinnar. Ótal listamenn
halda alla ævi í hinn barnslega hæfi-
leika til að hrífast af möguleikum lita
og forma, og í víðara samhengi af því
hvað hægt er að skapa með þeim á
fleti málverksins. Sumir hafa helgað
ævistarf sitt rannsóknum af þessum
toga, þar á meðal listamenn sem mál-
arinn og gagnrýnandinn JBK Ransu
vitnar til í sýningarskránni með sýn-
ingu sinni í Galleríi Turpentine; mál-
arar á borð við Josef Albers sem var
frumherji á sviði abstraktlistar með
áherslu á möguleika sjónrænnar
blekkingar og samspil tvívíddar og
þrívíddar, að ógleymdri Bridget Ril-
ey sem hefur tekist að skapa undra-
fögur málverk í anda op-stefnunnar,
listar sem leikur sér með sjónræna
blekkingu.
Ransu hefur frá því um 1999 unnið
markvisst að rannsóknum á mögu-
leikum 20. aldar listastefna á borð við
op-listina og pop-listina, eins og sjá
má af titli sýningar hans,Popop. Ef
litið er til verka hans í dag virðist
hann ætla að halda áfram rann-
sóknum af þessum toga, en þær tíma-
bundnu niðurstöður sem kalla mætti
málverk hans nú sýna fram á að slík-
ar rannsóknir eiga fullan rétt á sér í
dag og að ekki er um endurtekningu
að ræða. Nú er í sjálfu sér ómögulegt
að endurtaka sig eða aðra í listinni,
jafnvel nákvæm eftirmynd listaverka
er auðvitað alltaf nýtt verk eins og
ýmsir listamenn á síðari hluta 20. ald-
ar hafa sýnt og sannað í leik sínum
með eftirmynd og spurningar um
frummynd og eftirmynd. Ransu gerir
ekki eftirmyndir af listaverkum ann-
arra heldur leitar í smiðju hugmynda-
fræði þeirra sem á undan eru gengn-
ir, síðan vinnur hann verk sín í nýju
samhengi, á tímum þegar listasagan
er þegar orðin eins og hvert annað
verkfærabox samtímalistamanna.
Í Galleríi Turpentine sýnir Ransu
þrjú mjög stór málverk og nokkur
minni, þar á meðal seríur með verk-
um sem sýna þróun forma á milli
mynda. Popop er mjög heilsteypt
sýning í alla staði og ásamt bæk-
lingnum með skilmerkilegum texta
listamannsins um eigin verk velkist
enginn í vafa um ætlun og markmið.
Sýningin og hugmyndin að baki henni
er meira að segja svo skilmerkileg og
skýr að það eru á endanum málverkin
sjálf sem bjarga áhorfandanum frá
því að lenda utan rammans, án hlut-
verks. Hér finnur áhorfandinn sitt
rými í líflegum litasamsetningum og
sjónblekkingum sem gera það m.a. að
verkum að sum málverkin líkt og
hlaupast undan í sífellu, neita að láta
negla sig niður, ef til vill eins og líking
fyrir starf listamannsins í víðara sam-
hengi. Seríur þær þar sem form sjást
þróast úr reglulegum formum yfir í
lífræn og óregluleg – eða öfugt? –
gefa til kynna hugsun og leit, skap-
andi ferli, og einnig þar tekur áhorf-
andinn þátt.
Því þegar allt kemur til alls og óháð
allri hugmyndafræði eru það litirnir
og formin sem tala og lifa og þar
klikkar Ransu ekki.
Eitt verka Ransu á sýningunni í Turpentine.
Þar sem grænn
mætir rauðum
MYNDLIST
Gallerí Turpentine
Til 11. mars. Gallerí Turpentine er opið
þri.–fös. kl. 12–18 og lau. kl. 11–16.
Popop, málverk, JBK Ransu
Ragna Sigurðardóttir
SKÓGAR Í ÞÁGU
LÝÐHEILSU Á ÍSLANDI
Ráðstefnan – Skógar í þágu lýðheilsu á Íslandi – verður laugardaginn
11. mars nk., í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Ráðstefnan er á vegum
Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá, Skógræktarfélags Íslands og Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur.
Ráðstefnan er haldin í tengslum við fulltrúafund skógræktarfélaganna.
Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.
Ráðstefnustjórar:
Þuríður Yngvadóttir í stjórn Skógræktarfélags Íslands
og Aðalsteinn Sigurgeirsson, varaformaður Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Dagskrá
13:00 Setning: Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra
Stefnumörkun og skipulag
13:15 Gunnar Einarsson, varaformaður SSH, bæjarstjóri Garðabæjar
Skógrækt frá sjónarhóli bæjarstjóra
13:30 Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands
Skógræktarfélög og Grænir treflar
Lýðheilsa
13:45 Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu
Hafa skógar áhrif á heilsufar fólks?
14:00 Sigrún Gunnarsdóttir, varaformaður Félags um lýðheilsu og fulltrúi félagsins í Landsnefnd
um lýðheilsu
Heilsa í skógi
14:15 Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð
Skógrækt er heilsurækt – Hreyfing í fallegu umhverfi og fersku lofti
14:30 Ingólfur S. Sveinsson geðlæknir
Skógur til að rækta fólk
14:45 Fyrirspurnir
15:00 Kaffihlé
Þéttbýlisskógar og notkun þeirra
15:30 Sherry Curl mannfræðingur og Hrefna Jóhannesdóttir skógfræðingur hjá Skógrækt ríkisins
Viðhorf og notkun Íslendinga á skógum
15:45 Ellý Katrín Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjavíkur
Náttúra í borg
16:00 Herdís Friðriksdóttir skógfræðingur og Ólafur Erling Ólafsson skógarvörður hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur
Hvernig er Heiðmörk í stakk búin að þjóna lýðheilsu? Hverju er ábótavant?
16:15 Jón Geir Pétursson, skógfræðingur hjá Skógræktarfélagi Íslands og Aðalsteinn
Sigurgeirsson, forstöðumaður Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá
Skógrækt og útivist: Straumar og stefnur í Evrópu
16:30 Desiree Jacobsson, verkefnisstjóri hjá sænsku skógarstjórninni (Skogstyrelsen)
Skógar og endurhæfing. Reynsla Svía (Forests for Rehabilitation using the Greenstages
Model)
Erindi flutt á ensku
16:50 Fyrirspurnir
17:15 Dagskrárlok
Í KVÖLD kl. 18 verður tónleika-
kynning á vegum Vinafélag Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands í Sunnu-
sal Hótels Sögu. Þar mun Árni
Heimir Ingólfsson tónlistarfræð-
ingur fjalla um tónlist Jóns Nor-
dals, eins af fremstu tónskáldum
þjóðarinnar.
Jón varð áttræður nú í vikunni
og eru fimmtudagstónleikar Sin-
fóníunnar helgaðir honum. Flutt
verða fimm verk eftir Jón á tón-
leikunum og mun Árni Heimir
veita tónleikagestum gagnlega
innsýn í þau.
Vinafélag Sinfóníunnar hefur
staðið fyrir slíkum samverustund-
um fyrir suma tónleika Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands undanfarin ár
og eru þær mjög vinsælar. Alls
verða tónleikakynningarnar sjö á
þessu starfsári og kynningin í
kvöld er sú fjórða í röðinni.
Vinafélag Sinfóníuhljómsveit-
arinnar var stofnað árið 2002.
Markmið þess er að efla áhuga á
starfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands
og rækta tengsl við þá sem bera
hag hennar fyrir brjósti.
Vinafélagið styrkir fjárhagslega
ákveðin verkefni tengd hljómsveit-
inni og hefur einnig staðið fyrir
málfundum um stöðu Sinfóníunn-
ar.
Aðgangseyrir á tónleikakynn-
inguna í kvöld er kr. 1.200, súpa,
brauð og kaffi er innifalið.
Allir eru velkomnir, en áhuga-
samireru beðnir að skrá sig með
því að senda tölvubréf á netfangið
vinafelag@sinfonia.is. Einnig er
hægt að hringja í síma 545 2500.
Árni Heimir talar
um verk kvöldsins
Tónlist | Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar
Íslands kynnir verk Jóns Nordals
Í DANMÖRKU er
verið að undirbúa
sýningu á verkum
málara sem hafa
unnið á Kristjánsey
(Christiansø). Ís-
lenski málarinn Guð-
mundur Thor-
steinsson eða
Muggur vann þar ár-
ið 1914 með Axel
Salto, Karl Isakson,
Edward Weie og Mo-
gens Lorentzen.
Aðstandendur sýn-
ingarinnar hafa hins
vegar ekki fundið
málverk frá þessum
tíma Muggs í Dan-
mörku, þótt hann muni þá hafa
málað ötullega.
Muggur hélt sýningu á verk-
um frá Kristjánsey í Charlotten-
borg vorið 1915 og sýningu á
fleiri Kristjánseyjarmyndum
með Kristínu Jónsdóttur í
Barnaskólanum í Reykjavík sum-
arið 1915.
Aðstandendur sýningarinnar
vonast til að Íslendingar geti
hjálpað þeim að finna verk
Muggs frá Krist-
jánseyjartíma hans
og sendu því Morg-
unblaðinu bréf með
ósk um hjálp. Í bréf-
inu segir: „Í sýning-
arskrá frá sýningu
Muggs í Reykjavík
árið 1926 eru tvö
málverkaheiti sem
benda til þess að
þar hafi verið mynd-
ir frá Kristjánsey,
þar stendur; Nr. 44
Frá Kristjánsey og
Nr. 220 Frá Krist-
jánsey. Núna vil ég
biðja Morgunblaðið
að lýsa eftir mynd-
unum fyrir mig.“
Þeir sem telja sig geta hjálpað
til við þessa leit eru beðnir að
hafa samband við: Vibeke
Norgaard Nielsen
Hovedgaden 25, Nim
8740 Brædstrup
Danmark
Sími: 0045 75671325
Farsími: 0045 61513085
Tölvupóstur: vibe.nn@mail.te-
le.dk
Myndlist | Leitað að málverkum eftir
Guðmund Thorsteinsson, Mugg
Muggur; Guðmundur
Thorsteinsson
Sýnd í Reykjavík 1926