Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 31
UMRÆÐAN
E
á nauðsyn þess að svona endurhæf-
ingarmiðstöð sé rekin. Þar mega
fjölmiðlar líka bæta sig. Ég veit
núna að reksturinn er erfiður og að
það vantar fjármagn til að gera
betur. Því þörfin á endurhæfingu
er mikil en biðlistar langir. Ég vil
því hvetja þig sem þetta lest, að
kynna þér starfsemi Reykjalundar.
Og ef þú ert aflögufær, að styðja
þetta frábæra starf. Og það getur
þú með því að eiga miða í Happ-
drætti SÍBS. Einnig er hægt að
leggja SÍBS lið með fjárfram-
lögum. Með því að gera það, styður
þú sjúka til sjálfsbjargar. Og hver
veit, hver verður næstur að fá
sjúkdóm eða verða fyrir áfalli og
þurfa síðan endurhæfingu? Kannski
þú, lesandi góður? Það að lifa lífinu
heilbrigður er ekki gulltryggt, frek-
ar en annað í lífinu. Hvorttveggja
er í raun eins og stór happdrætt-
isvinningur. Því er þörf að þakka
fyrir hvern dag.
Ég vil svo í lokin þakka þeim
sem gerðu mér það kleift, að fá að
dvelja á Reykjalundi. Þeim sem
önnuðust mig og endurhæfðu. Þeim
sem voru með mér á deildinni og
þeim sem ég kynntist þar.
Höfundur er öryrki og fyrrv.
skipstjóri.
1994, þarf að hækka launin ennþá
frekar.
Fyrirtækin borga brúsann
Það sem verra er í þessu ein-
faldaða dæmi mínu, þá eru það í
reynd launagreiðendur sem hafa
liðið fyrir þessa auknu skattbyrði
launþega. Af hverju segi ég það?
Jú, af hverjum 100 krónum sem
þeir hafa greitt launþegum sínum
í hærra kaup, hefur hið opinbera
(ríki og sveitarfélög) ákveðið að
hirða um 35 krónur. Það þýðir að
hægt hefði verið að draga talsvert
úr launakostnaði fyrirtækja, ef
ríkið og sveitarfélögin hefðu ekki
verið svo æst að taka fullan skatt
af launahækkuninni sem launþeg-
ar fengu. Það þýðir einnig að
skattmann hefur hirt til sín ríflega
þriðjung af launahækkunum laun-
þega undanfarin ár. Er það nema
von að láglaunafólki finnist sífellt
erfiðara að láta enda ná saman.
Allt tal um að skattar á fyr-
irtæki hafi lækkað er því í reynd
hjóm eitt. Það er rétt að beinir
skattar hafi lækkað, en óbeinir
skattar í formi skatta á laun
starfsmanna hafa hækkað. Það er
kaldhæðnislegt, að það hefði lík-
lega komið sér betur fyrir fyr-
irtæki að greiða einhverjum pró-
sentustigum hærri tekjuskatt, en
að þurfa að hækka laun starfs-
manna sinna aukalega til að
starfsmennirnir eigi fyrir aukinni
skattbyrði vegna þess að persónu-
afsláttur hefur ekki fylgt neyslu-
verðsvísitölu, hvað þá launa-
vísitölu. Það er líka kaldhæðnis-
legt að launavísitala hefur hækkað
meira en þörf er af sömu ástæðu.
Og verst af öllu er að allt endar
þetta í hækkun neysluverðsvísitölu
og veldur þar með aukinni verð-
bólgu.
’Það er rétt að beinirskattar hafi lækkað, en
óbeinir skattar í formi
skatta á laun starfs-
manna hafa hækkað.‘
Höfundur er sjálfstætt
starfandi ráðgjafi.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni