Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 33

Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 33 UMRÆÐAN ÞAÐ er með ólíkindum hvernig einum manni tekst að hræra sam- an mörgum ólíkum málum og óskyldum efnisatriðum í einn grút- argraut eins og prestur Fríkirkj- unnar í Reykjavík gerir í Morg- unblaðsgrein. Kinnroðalaust veður hann elginn án nokkurs samhengis eða sjálfsgagnrýni. Hann skrifar grein í þeim tilgangi einum að rugla bara nógu mikið og staðhæfa það sem fær ekki staðist. Þannig opinberar hann óvart hugsýki sína og blandar nokkuð listilega saman málefnum samkynhneigðra, hags- munamálum Fríkirkjunnar, kyn- ferðisafbrotamálum, almennum mannréttindum, eigin hagsmunum, frelsisstríði, þrælahaldi, kúgun kvenna, bókstafstrú, mannfjölgun í heiminum, misskiptingu auðsins, hungursneyð, alnæmisvandanum, Ku Klux Klan, barneignum, stöðu þjóðkirkjunnar, sakramentisskiln- ingi Katólsku kirkjunnar, hjóna- bandi, ættleiðingum, forræðis- hyggju, staðfestri samvist, mis- munun kynþáttanna, getnaðar- vörnum, hryðjuverkamönnum, sérsveitum lögreglu, fjölkvæni og kærleiksboði Guðs. Þetta flokkast eiginlega undir svo óbærilegan léttleika að það er ekki einu sinni fáránlegt aðhláturs- efni. Síðast þegar ég las svona grein var það grein eftir mann sem var greinilega haldinn ofsókn- aræði. Allir voru á móti honum. Það sem hrekur mig til þeirrar niðurstöðu er ekki síst klifun frí- kirkjuprestsins í Reykjavík á orð- um eins og „stofnun“ og „kirkju- stofnunin“. Það einkennir skrif sr. Hjartar að allir virðast vera að leggjast á eitt við að kæfa það ljós sem hann heldur á lofti í nafni bar- áttu fyrir frelsi. Hann gæti allt eins sagt að „þeir“ séu allir á móti sér án þess að geta nefnt sjáanlegt tilefni. Því miður get ég ekki varist þeirri hugsun að bera þessa bar- áttu saman við sögu Cervantes, Don Kíkóti. Það er dapurlegt að sjá það aft- ur og aftur af málflutningi frí- kirkjuprestsins að hjónabands- skilningur hans er í molum. Hann hefur borist óraveg frá kenning- arlegum grunni hinnar evangelísku lútersku kirkju sem Fríkirkjan var reist á og hefur starfað eftir allt til þessa. Það er hinn sami kenning- arlegi grunnur og Þjóðkirkjan þjónar eftir enda var Fríkirkjan stofnuð af fólki úr þjóðkirkjunni, sem ekki ætlaði að breyta trúar- skilningi sínum þrátt fyrir að breyting yrði á kirkjunni sem stofnun. Hann hefur ekki síður skorið upp herör gegn hinni eilífu alþjóðlegu kirkju með því að kenna hana við fáfræði, afturhald og kúg- un á liðnum öldum, en einnig með því að setja sig í hatrama baráttu gegn kristinni trúfræði, þjóðkirkj- unni á Íslandi, kristnum mönnum í Bandaríkjunum (Suðurríkjunum), rómversk-katólsku kirkjunni, kat- ólskum rétttrúnaði og bókstafs- trúarhreyfingum í heild sinni. Það er ekki annað að sjá en orðið „kirkjustofnunin“, sem eru „þeir“ í hans augum, valdi dauðastefnu, en unni ekki lífi og frelsi. Ég bið þess innilega að Drottinn leiði Fríkirkj- una út úr þessu myrkri til að sjá aftur ljósið af Orði Guðs. Grein sr. Hjartar lýkur svo eðli- lega á því útspili að þótt allir séu svona óguðlega vondir, illir og fylgjandi dauðastefnu og forræð- ishyggju, þá er þó einn maður góð- ur í þessari veröld. Það er hann sjálfur. Hann vinnur að hinni góðu þjónustu þótt þjónusta allra ann- arra presta sé vond. Hann hefur gefið saman hjón þeim til mikillar blessunar og stutt þau í fjöl- skylduerfiðleikum og hjúskap- armálum. Hann er ólíkur þeim prestum sem fjötra hjónabandið í fortíðar- og lögmálshyggju aft- urhaldssamra stofnana. Hann er góður þótt við séum allir ömurlegir og biskupinn okkar verstur, nema ef vera skyldi prófessorinn okkar beggja í trú- fræði. Það er dap- urlegt að sjá hvernig hann þverbrýtur siða- reglur presta með þessum orðum sínum. Það fáránlegasta í málflutningi hans er þó sú hæðni og lítils- virðing sem hann sýnir hjónabandi karls og konu. Það er engu lík- ara en að hann útiloki að kær- leikur og ást geti átt sér farveg í hjónabandi karls og konu. Orðin kærleikur og ást eiga aðeins við um stað- festa samvist í þess- um nöturlegu blaða- skrifum. Þetta verður ekki misskilið því það hefur áður komið fram í málflutningi hans. Á þessu bygg- ist hjónabandsskiln- ingur Fríkirkjunnar í Reykjavík, þessarar gömlu og virðulegu stofnunar á okkar dögum. En það virð- ist ekki vera hægt að finna þessum skilningi hans stað í kenningu Jesú Krists, eða í Orði Guðs. Allir þeir staðir í Biblíunni, sem hann vitnar til eru að hans mati til vitnis um hroðalega framgöngu kirkjunnar í heiminum. Ég tel það frekar vera í anda kærleika Guðs að helga sig sann- leikanum og bera virðingu fyrir manngildinu og ástinni. Fríkirkju- presturinn í Reykjavík getur ekki upphafið sjálfan sig svo bókstaf- lega og ofstækisfullt á kostnað annarra presta í heiminum. Með niðrandi tali um hjónavígslur í há- loftunum freistar hann þess að setja horn í síðu þess prests á höf- uðborgarsvæðinu, sem hann lítur trúlega á sem einn skæðasta keppinaut sinn á markaðnum. Með þessum blaðaskrifum hefur hann unnið málefnum staðfestrar sam- vistar óbætanlegt tjón. Með niðr- andi skrifum hefur hann lítil- lækkað hjónaband karls og konu. Guð hjálpi fríkirkjuprestinum ef hann telur það verða til vinsælda og fjölgunar í söfnuði sínum að halda á lofti slíkum málflutningi og afflytja kenningar kirkjunnar. Verði ljós í Fríkirkjunni í Reykja- vík. Verði ljós í Fríkirkjunni Kristján Björnsson svarar grein Hjartar Magna Jóhannssonar ’Fríkirkjupresturinn íReykjavík getur ekki upphafið sjálfan sig svo bókstaflega og ofstæk- isfullt á kostnað annarra presta í heiminum.‘ Kristján Björnsson Höfundur er sóknarprestur í Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.