Morgunblaðið - 09.03.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 37
UMRÆÐAN Fermingarblað
Morgunblaðsins
Sérblað helgað fermingum fylgir
Morgunblaðinu föstudaginn 17. mars
• Fermingarfötin í ár
• Ljósmyndirnar, albúm, rammar og myndabækur
• Hvað er best að gera við fermingarpeningana?
• Skreytingar á veisluborðið
• Veislan heima eða í leigðum sal
• Fullt af spennandi uppskriftum
• Maturinn og drykkur í veislunni
• Blóm, kerti og servíettur
• Heimilið gert fínt fyrir fermingardaginn
• Draumagjafir fermingarbarnanna: tölvur og hljóðfæri,
klukkur og skartgripir, íþrótta- og útivistarbúnaður.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 12 þriðjudaginn 14. mars
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín
Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
A Ð A L F U N D U R C C P h f .
Aðalfundur CCP hf. kt. 450697-3469, verður haldinn fimmtudaginn
23. mars 2006 kl. 16.00 á Nordica Hóteli, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
DAGSKRÁ
Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.07 samþykkta félagsins. Endanleg
fundargögn, þ.m.t. endanlegar tillögur, ársreikningur, skýrsla stjórnar og
skýrsla endurskoðenda verða lögð fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félags viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 9. mars 2006
Stjórn CCP hf.
Á DÖGUNUM gerði Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra lýðum
kunnugt um þá vitrun sína að Ís-
land yrði orðið að hreppi í Evrópu-
sambandinu fyrir árið 2015. Ekki er
þó ætlunin að fjalla í
þessari grein um til-
finnanlegan og aug-
ljósan skort Halldórs á
spádómsgáfum, enda
bakland hans í því
sambandi svo gott sem
ekkert svo ekki sé
minnzt á forsend-
urnar. Þess gerist því í
raun engin þörf. En
Halldór sagði fleira af
sama tilefni og eitt af
því var að kvarta
sáran yfir skorti á um-
ræðum um Evrópumál
hér á landi sem er
grátkór sem forystumenn íslenzkra
Evrópusambandssinna hafa stund-
að í mörg ár. Skemmst er t.d. að
minnast þess að í áramótgrein sinni
hér í Morgunblaðinu sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar, að Evrópusam-
bandið væri hreinlega bannorð á Ís-
landi og átti þá væntanlega við að
bannað væri að tala fyrir aðild að
sambandinu!
Þetta kemur sjálfsagt mörgum
afar spánskt fyrir sjónir, enda er
alltaf einhver umræða í gangi um
Evrópumálin hér á
landi þó hún hafi sjálf-
sagt stundum verið
meiri en einmitt núna.
Kvartanir umræddra
Evrópusambandssinna
byggjast hins vegar á
því sjónarmiði að það
sé ekki um umræðu að
ræða nema hún gangi
út á það að Ísland eigi
að ganga í Evrópusam-
bandið. Ef umræða um
málið fær þá nið-
urstöðu að hags-
munum okkar sé ekki
borgið með aðild þá er
það ekki umræða heldur eitthvað
allt annað. Þetta stórmerkilega
sjónarmið kristallast t.d. vel í ný-
legri grein Katrínar Júlíusdóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar, í
Blaðinu 24. febrúar sl. en þar sagði
hún m.a.: „Evrópuumræðan þarf nú
að fara fram af krafti á næstu miss-
erum. [...] við getum ekki haldið
áfram að stinga höfðinu í sandinn
og látið telja okkur trú um að við
eigum ekkert erindi inn í Evrópu-
sambandið eins og sjálfstæðismenn
með stuðningi framsóknarmanna
hafa komist upp með alltof lengi.“
M.ö.o. eru einu sjónarmiðin sem
gjaldgeng eru í umræðum um Evr-
ópumál, að mati forystumanna ís-
lenzkra Evrópusambandssinna,
þeirra eigin. Þeir sem leyfa sér að
vera á annarri skoðun eru bara
ekkert að ræða málin heldur að
stinga hausnum í sandinn svo vitn-
að sé í orð Katrínar. Eða eitthvað
þaðan af verra. Sjálfur hef ég t.a.m.
rætt þessi mál mikið á und-
anförnum árum, ritað fjölda greina
um þau, sótt ráðstefnur og fundi
bæði hér heima og erlendis o.s.frv.
En auðvitað er ég ekki að ræða
málin fyrst ég vil ekki ganga í Evr-
ópusambandið! Jafnvel þó sú af-
staða mín sé byggð á vel athuguðu
máli.
Þessir kveinstafir forystumanna
íslenzkra Evrópusambandssinna
virðast annars færast í aukana
fremur en hitt og er sennileg skýr-
ing á því sívaxandi áhyggjur af því
að þeim muni nokkurn tímann tak-
ast að troða Íslandi inn í Evrópu-
sambandið. Enda verður ekki beint
sagt að sambandið sé að þróast í að-
laðandi áttir!
En hvað sem því líður hafa þessir
aðilar kosið að tala máli Evrópu-
sambandsins hér á landi og ef þeim
finnst þeir standa halloka í um-
ræðum um Evrópumálin þá geta
þeir ekki kennt öðrum um en sér
sjálfum. Staðreyndin er hins vegar
sú að það er enginn pólitískur né
annar vilji á Íslandi til að verða
hluti af hinu fyrirhugaða evrópska
stórríki og það af afar skiljanlegum
ástæðum.
Evrópusambandssinnaðar
umræður
Hjörtur J. Guðmundsson
skrifar um Evrópumál ’… það er enginn póli-tískur né annar vilji á Ís-
landi til að verða hluti af
hinu fyrirhugaða evr-
ópska stórríki …‘
Hjörtur J.
Guðmundsson
Höfundur er stjórnarmaður í
Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna
í Evrópumálum – www.heimssyn.is
ÁLFTNESINGAR hafa lengi
beðið eftir nýjum vegi. Um það er
fullkomin samstaða meðal íbúanna,
af hvaða pólitískum
toga sem þeir eru. Á
Álftanesi búa ríflega
tvö þúsund íbúar og
flestir þeirra sækja
vinnu og skóla í
byggðirnar í kring.
Álftanesvegurinn, sem
er tveggja akreina og
ríflega 4 km langur
vegur, er eina sam-
gönguæðin sem íbú-
arnir nota til að kom-
ast leiðar sinnar. Það
skiptir íbúana því
miklu máli að sá vegur
sé sem bestur, greið-
færastur og örugg-
astur.
Slæmt ástand
vegarins
Um langt árabil
hafa íbúar á Álftanesi
vakið athygli á slæmu
ástandi Álftanesvegar
og að öryggi umferðar
þar sé ábótavant. Sér-
staklega hefur verið
bent á hættuleg
gatnamót Álftanes-
vegar og Herjólfsbrautar nálægt
krappri beygju á Álftanesvegi, og
einnig á hættuleg gatnamót Álfta-
nesvegar og Garðavegar sem er á
blindhæð. Þá hefur einnig verið vak-
in sérstök athygli á þeirri hættu
sem fylgir legu göngu– og hjólreið-
arstígsins sem liggur samhliða
Álftanesvegi í eins til tveggja metra
fjarlægð frá veginum.
Fjölmargir gestir heimsækja
Álftanesið heim, ýmist akandi á veg-
inum en sumir vilja njóta útivistar
og nota göngustíginn gangandi eða
hjólandi. Þess eru nokkur dæmi að
bílar hafa ekið út af veginum og
hafa farið yfir göngustíginn. Ég þarf
ekki að fjölyrða hvílík slysahætta
felst í því. Sjálf hef ég orðið vitni að
slíku óhappi er ungur ökumaður ók
út af veginum og bifreiðin veltist yf-
ir göngustíginn. Það hefði tæplega
þurft um að binda hjá þeim sem
hefði verið staddur á göngustígnum.
Í því ljósi getur útafkeyrsla leitt til
töluvert meiri skaða en bara á far-
þegum og ökumanni. Ég tel því
mjög brýnt að framkvæmdum við
nýjan Álftanesveg ljúki sem fyrst. Í
núverandi ástandi er hann algerlega
óviðunandi.
Álftanesvegurinn er vegur sem
hefur þéttbýliskarak-
ter. Um hann aka íbúar
Álftaness til og frá
vinnu daglega. Hann er
því yfirhlaðinn bílum á
álagstímum. Það skipt-
ir líka máli þegar horft
er til þess að um Álfta-
nesveginn fara líklega
allir erlendir tign-
argestir, svo sem þjóð-
höfðingjar sem hingað
koma. Hún er eina leið-
in að bústað forseta Ís-
lands á Bessastöðum,
höfuðbóls okkar Álft-
nesinga.
Álftnesingar bíða
óþreyjufullir
Ég lagði á dögunum
fram fyrirspurn á Al-
þingi til samgöngu-
ráðherra um hvað liði
endurgerð Álftanesveg-
ar. Í svari ráðherrans
kemur fram að áformað
sé að bjóða út endur-
byggingu Álftanesveg-
ar frá Engidal að vega-
mótum Bessastaða-
vegar seint á þessu ári. Ætla megi
að heildarkostnaður við gerð hans
verði 528 millj. kr. Í svarinu kemur
fram að reiknað er með að hann falli
allur til á næsta ári. Því er ekki gert
ráð fyrir neinni fjárveitingu á þessu
ári og verkinu verði ekki að fullu
lokið fyrr en sumarið 2008. Þetta er
að mínu mati allt of hæg og silaleg
vinnubrögð. Það liggja öll gögn fyr-
ir, allri skipulagsvinnu er lokið, og
það er ekkert að vanbúnaði að bjóða
lagningu vegarins út miklu fyrr.
Hvað veldur seinaganginum með út-
boð og endurgerð Álftanesvegarins?
Ég skora á samgönguráðherra að
flýta útboðinu og sjá til þess að nýj-
um Álftanesvegi verði að fullu lokið í
byrjun árs 2008. Að mínu viti er
ekki eftir neinu að bíða. Allar for-
sendur til hefja lagningu nýs Álfta-
nesvegar liggja fyrir. Íbúarnir bíða
óþreyjufullir.
Nýjan Álftanesveg
– sem allra fyrst
Sandra Franks fjallar um
samgöngur til og frá Álftanesi
Sandra Franks
’Ég skora ásamgöngu-
ráðherra að flýta
útboðinu og sjá
til þess að nýjum
Álftanesvegi
verði að fullu lok-
ið í byrjun árs
2008.‘
Höfundur er ökukennari og
varaþingmaður Samfylkingarinnar.