Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 39
UMRÆÐAN
ÞÆGILEG OG ÓDÝR MARGMIÐLUNARLAUSN
FRÁ SONY SEM EYKUR SÖLU.
Láttu athyglina
beinast að þér
Nærð þú 650% söluaukningu?
Ef þú vilt koma þínum skilaboðum á framfæri til að auka sölu þá er Sony
margmiðlunarlausn frá Nýherja rétti kosturinn. Lausn sem samanstendur af
flatskjá og innbyggðum netspilara og jók t.a.m. sölu á auglýstri vöru um allt að
650% hjá 7-11 verslununum í Danmörku.
Ótrúlegur sveigjanleiki með nýrri tækni
Sony netspilarinn er afar auðveldur í notkun þar sem þú setur markaðsefni á
minniskort, bæði myndir og vídeó, stingur því í netspilarann og efnið birtist á
hágæða Sony flatskjá. Einnig getur þú streymt upplýsingum beint á skjáinn í
gegnum netkerfi. Einfaldara gæti það ekki verið.
Fjölbreytt not
Sony margmiðlunarlausnin hentar m.a. fyrir upplýsingagjöf og
markaðssetningu innan verslunar- og þjónustufyrirtækja, í skólum, í móttökum
og fundarherbergjum fyrirtækja, hótel- og veitingastöðum o.fl.
Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík · Sími 569 7700 · www.nyherji.is
Hafðu samband við söluráðgjafa Nýherja sem bjóða þér
faglega ráðgjöf við val á réttu margmiðlunarlausninni.
Síminn er 569 7700 og netfangið er ver@nyherji.is
HINN mæti maður, Ögmundur
Jónasson fjargast út í hugsanlega
atvinnuuppbyggingu á Norður-
landi í Morgunblaðinu 1. mars.
Þar vitnar hann í skoðanakönnun
og ályktar ranglega út frá henni
að landsmenn séu á móti atvinnu-
uppbyggingu sem byggist m.a. á
rekstri iðnfyrirtækis sem er stórt
á norðlenskan mælikvarða. Ög-
mundur fellur í hið dæmigerða
rómantíska sjónarhorn sem ein-
kennir málflutning Vinstri
grænna, sem hvorki er mál-
efnalegt eða praktískt. Í grein
sinni segir Ögmundur að skoð-
anakönnun hafi verið framkvæmd
fyrir Vinstri græna þar sem spurt
var tveggja spurninga. Önnur
spurningin hljómaði svona: „Telur
þú að stjórnvöld eigi að beita sér
fyrir því að byggð verði álver á Ís-
landi á næstu fimm áraum eða tel-
ur þú að stjórnvöld eigi ekki að
beita sér fyrir því?“ Spurningin er
lúmsk því í rauninni er verið að
spyrja að því hvort stjórnvöld eigi
skilyrðalaust að beita sér sér-
staklega fyrir því að byggð verði
mörg álver á næstu fimm árum,
eða ekki. Hver vill það? Ég hef
engan heyrt tala fyrir því að
byggja eigi óskilyrt ótölulegan
fjölda álvera nema þá Vinstri
græna í þessari spurningu. Ög-
mundur er því að mótmæla sjón-
armiðum sem Vinstri grænir lögðu
sjálfir fram í könnuninni en lætur
sem það sé Framsóknarflokkurinn
sem standi fyrir þessu sem er
ekki beinlínis falleg framkoma hjá
Ögmundi.
Hann segir að könnunin sýni að
meirihluti þjóðarinnar sé andvígur
því að ráðist verði í frekari virkj-
anaframkvæmdir vegna álfram-
leiðslu. Svo virðist sem andstaðan
magnist eftir því sem Ögmundi
hitnar í hamsi því fáum línum neð-
ar segir hann að sértaka athygli
vaki hversu hátt hlutfall þjóðar-
innar sé mjög andvígt frekari
virkjunum. Ögmundur er kominn
á skrið. Fáum línum neðar segir
hann: „Þetta þýðir að öfgafull
stóriðjustefna Framsóknarflokks-
ins … Hér varð ég rasandi bit. Er
nú hófstilltasti flokkur landsins
orðin að öfgafullum stóriðjuflokki?
Ögmundur veit náttúrulega að
þetta er röng fullyrðing. En hann
eins og aðrir Vinstri grænir „róm-
antíkerar“, sem boða samfélags-
lega fallega hugmyndafræði sem á
litla stoð í raunveruleikanum, veit
að hugmyndafræðin þeirra byggist
á tálsýn og því verður
að afla henni fylgis
með því að halda uppi
ástemdum dómsdags-
spám. Hræða fólk til
fylgis, en í því eru
Vinstri grænir góðir.
Síðan bregður Ög-
mundur sér í hlutverk
Gróu á Leiti og lumar
inn kjaftasögu um
áhyggjur Sjálfstæð-
isforystunnar á of-
forsi Valgerðar og
Halldórs í samstarfs-
flokknum sem hafa gert virkjun í
þágu erlendra álhringa að köllun
sinni og hugsjón. Hér sýnir Ög-
mundur hversu þraut-
þjálfaður hann er í
hræðsluáróðri sínum.
Roðnar ekki undan
því að ljúga upp á
fólk því sem helgar
meðalið.
Hann heldur því
fram að niðurstaða
könnunarinnar sýni
fram á það sem hann
kallar „stóriðjustefnu
ríkisstjórnarinnar sé í
hrópandi andstöðu við
vilja meirihluta þjóð-
arinnar. Eins og víðar í grein Ög-
mundar er hér um að ræða hressi-
lega Vinstri græna oftúlkun.
Niðurstaða könnunarinnar sýnir
enga hrópandi andstöðu. Það sem
meira er, niðurstaða könnunar-
innar gæti verið röng. Að lokum
er ástæða til að nefna að nið-
urstaða könnunarinnar styður
ekki mikilvægi þess að haldin sé
þjóðaratkvæðagreiðsla um frekari
uppbyggingu iðnfyrirtækja á land-
inu.
Í sama blaði skrifar foringi Ög-
mundar, Steingrímur J. Sigfússon,
um sama mál og á svipuðum nót-
um en reynir að höfða til þjóðern-
isvitund íslendinga. Gerir tilraun
til að hræða til sín fylgi með því
að mála skrattann á vegginn í
formi rökleysu sem á íslensku
kallast Brattabrekka. Hún gengur
út á það að leiða öll mál á versta
veg með skálduðum forsendum í
þeim tilgangi að níða niður skóinn
á andstæðingnum í stað þess að
hysja upp um sig brækurnar og
leggja eitthvað málefnalega fram
sem stenst skoðun. Ég legg til að
Vinstri græn snúi sér nú að því að
girða sig og hætti þessu fitli við
skótau annarra.
Brattabrekka Vinstri grænna
Geir Hólmarsson gerir
athugasemd við grein Ögmund-
ar Jónassonar um atvinnu-
uppbyggingu á Norðurlandi
’… niðurstaða könn-unarinnar styður ekki
mikilvægi þess að haldin
sé þjóðaratkvæðagreiðsla
um frekari uppbyggingu
iðnfyrirtækja á landinu.‘
Geir Hólmarsson
Höfundur er háskólanemi og flokks-
bundinn framsóknarmaður.
tæp 42% atkvæða og fjóra menn
kjörna. Jók fylgið (þá Árborgarlist-
ans) um 14–15%. Þessi sigur vannst
m.a. vegna skýrrar málefnastöðu og
góðra og trúverðugra frambjóðenda.
Nú hefur Samfylkingin í Árborg
stillt upp lista fyrir kosningarnar í
vor. Það er öflugur listi sem ég tók
stoltur sæti á og mun vinna að góðu
gengi hans í vor. Það verða spennandi
kosningar og Samfylkingin gengur til
þeirra af krafti, undir öflugri forystu
Ragnheiðar Hergeirsdóttur bæjar-
fulltrúa, sem er ein fárra kvenna til að
leiða framboðslista á landinu öllu.
Áfram Árborg, segi ég við íbúa
sveitarfélagsins. Höldum áfram góð-
um störfum með ábyrgu áframhaldi
undir forystu Samfylkingarinnar í
Árborg. Vinnum sigur í vor fyrir
sveitarfélagið allt.
’ Tvöfaldur vegur allaleið er mín krafa og það
eina sem hægt er að
sætta sig við til að auka
umferðaröryggi og efla
stöðu Suðurlands.‘
Höfundur er frambjóðandi
Samfylkingarinnar í Árborg.