Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 44

Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík hinn 4. mars 1987. Hún lést af slysförum hinn 28. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Elísabet Björns- dóttir, f. í Álaborg í Danmörku 16. des- ember 1965 og Jón Pálmason, f. í Reykjavík 3. ágúst 1959. Systkini Guð- rúnar eru: 1) Pálmi, f. 5. apríl 1979, sam- býliskona Helena Pétursdóttir. Sonur Pálma er Benedikt Frank, f. 30. apríl 2001, 2) Jónína Bríet, f. 24. maí 1990 og 3) Snæfríður, f. 6. maí 1998. Foreldrar Elísabetar eru Guðrún Jóhannesdóttir, f. 11. nóv- ember 1944 og Björn Jóhannsson, f. 19. maí 1943. Fóst- urfaðir Elísabetar er Aðalsteinn Þórðar- son, f. 18. október 1945. Foreldrar Jóns eru Pálmi Jónsson, f. 3. júní 1923, d. 4. apríl 1991, og Jónína Sigríður Gísladóttir, f. 8. desember 1921. Guðrún ólst upp í Garðabæ en hún stundaði grunn- skólanám við Ísaks- skóla, Flataskóla, Garðaskóla og Tjarnarskóla. Hún stundaði fram- haldsskólanám við Fjölbrautaskól- ann í Garðabæ og Verslunarskóla Íslands. Útför Guðrúnar verður gerð í Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Pabbi hringdi í mig 4. mars 1987 og tjáði mér það að ég væri orðinn bróðir. Daginn eftir fékk ég að fara með pabba og sjá engilinn. Átta ára gamall og alveg hrikalega stoltur bróðir gekk í eftirvæntingu upp á Lansa til að líta augum prinsessuna sem átti eftir að gleðja hjarta mitt sí og æ í framtíðinni með sínu ynd- islega brosi og endalausum prakk- arastrikum. Hennar uppáhalds- áhugamál á fyrri árum var að ögra foreldrum sínum og öðrum sem reyndu að hefta hennar frelsi. Svo þegar orka hennar var búin að setja allt á annan endann kom litla hjart- að til mín og fannst þetta svo ósann- gjarnt allt saman og vildi ekkert heitar en að einhver stæði með henni. Að sjálfsögðu sem eldri bróðir reyndi maður að standa með litlu systur en um leið með gömlu hjón- unum, sem skildu ekkert í viljastyrk og dirfsku þessarar litlu skottu. Hún elskaði adrenalín, hún var sjálfstæðari en allt sem getur staðið eitt, hún elskaði lífið og hvar sem hún kom við í lífinu passaði hún sig á því að skilja eftir ummerki, þannig að hver sem á vegi hennar varð myndi muna eftir þessum engli. Í fyrra fórum við í flúðasiglingu sam- an ásamt fleiri vinum og fannst henni þetta ekkert fútt þar sem ekk- ert hættulegt var búið að gerast. Því hún var sko ákveðin og svo stór- huga! En svo datt litli engillinn út í ána og þá varð henni kalt og svo lítil í sér. Ekki tók hana þó langan tíma að jafna sig og næst á dagskrá var að hoppa af 10 metra kletti. Ekki þurfti að hvetja Guðrúnu í það frek- ar en annað og var hún eina stelpan í ferðinni sem lét sig flakka og á und- an flestum strákunum. Já, hún var stórhuga, orkubolti og hvar sem hún var var stuð! En nokkuð eins lítið, ljúft, brosmilt, umhyggjusamt og fallegt er ekki til og það hafa verið forréttindi að fá að vera þess aðnjót- andi að vera bróðir hennar Guðrún- ar, sem nú vakir yfir okkur sem stóra systir og lifir að eilífu í hjört- um okkar. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Með hárið þitt eldrautt og heilbrigða sýn. Er lát þitt ég frétti brást lífstrúin mín. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Guð fylgi þér engill þá ferð sem þér ber. Þótt farin þú sért, þá veistu sem er. Að sorg okkar hjörtu nístir og sker. Við sjáumst á ný þegar kemur að mér. (KK – þýð. ÓGK.) Elsku besta Guðrún mín, ég veit eiginlega ekkert hvað ég er að skrifa, ég bara græt og græt, þú varst alltaf svo falleg og brosmild að það bræddi hjartað mitt í hvert skipti sem ég sá þig. Þú varst sönn orka og svo undurfagurt ljós sem nú ég geymi í hjarta mér. Allar okkar góðu stundir eru djásn sem ég nú varðveiti og deili með þér í huga mér. Þú hefur breyst úr engli í verndarengil sem munt vaka yfir okkur að eilífu og vísa okkur veginn í myrkrinu með öllu þínu kærleiks- ljósi. Ég elska þig, engillinn minn, meira en allt og veit að næst þegar við hittumst verður þú búin að und- irbúa næstu prakkarastrik fyrir okkur. Pálmi bróðir. Guðrún lítil 2ja ára hnáta ástfang- in af gulum labradorhvolpi sem hleypur emjandi undan ástríðufullu knúsi hennar. Guðrún 4ra ára stendur keik á bleikum kjól syngjandi Maístjörn- una hátt og snjallt og skýrmælt. Guðrún nokkru síðar, í litla raf- magnsbílnum sínum, stödd í kvart- mílu á stéttinni fyrir utan heimili sitt. Guðrún orðin lítil dama, heldur hátíðlega píanótónleika fyrir spennta gesti í fjölskylduboði. Guðrún 9 ára starandi forvitnum augum á nýja kærastann minn. Guðrún í hvítum blúndukjól með slöngulokka í eldrauðu hárinu, brúðarmær í brúðkaupinu mínu. Guðrún 13 ára prakkarinn veldur uppnámi í fjölskyldunni með því að láta tattóvera eldspúandi dreka á mjóbakið á sér. Guðrún á spítalanum, bljúg og undirleit, kappklædd í umbúðir á höndum og andliti. Guðrún feimin í dyragættinni með pakka fyrir litlu frændsystkini sín á aðfangadag. Guðrún skælbrosandi og eins og nýútsprungin rós á náttúrutónleik- unum í janúar, ótrúlega falleg og björt. Vá, hvað þú ert orðin sæt, segi ég. „Ég ætla að fara að læra að fljúga Lilja.“ Elsku Guðrún mín, síðan ég frétti af þessu hörmulega slysi hafa þess- ar litlu fallegu myndir frá því þú varst lítil telpa, óþekkur unglingur og glæsileg ung stúlka sótt á huga minn. Það var alveg sama undir hvaða kringumstæðum ég sá þig, alltaf var stutt í fallega brosið þitt og lífsgleðina. Ég vildi ég hefði séð meira af þér. Fljúgðu hátt og hratt, litla frænka, nú ertu frjáls eins og fugl- inn. Lilja Pálmadóttir. Síðustu dagar hafa verið undar- legir, tómleiki og sorg hafa verið í huga okkar. Spurningin sem brenn- ur á vörum okkar er af hverju? Auð- vitað er ekkert svar. Einn daginn leikur lífið við þig, annan daginn er það tekið frá þér. Það fá því engin orð lýst hvernig tilfinning það var að fá fregnir af andláti Guðrúnar. Hún var fyrsta stúlkan sem fæddist af systkina- börnunum og kom eldrauðhærð í heiminn, litur sem að einkenndi hennar persónuleika að mörgu leyti. Hún var ekki sparsöm á brosið sitt sem ætíð náði út að eyrum, hún virt- ist ljóma af lífsgleði, sama hvað gekk á. Þegar Guðrún fór að fullorðnast fékk rauða hárið að víkja fyrir ljós- um lit en stríðnisglampinn var alltaf til staðar. Fullorðin manneskja var að mótast, góð og falleg manneskja sem geislaði af gleði og hreif aðra með. Við hittumst ekki oft síðustu árin en þó voru þau skipti eftirminnileg og dýrmæt. Hún mætti okkur með útbreiddan faðminn og brosið, og alltaf varð hún fallegri og þroskaðri með árunum. Sársaukinn er mikill, oft óbæri- legur, og maður finnur vanmátt sinn gagnvart öflum sem æðri eru mann- inum. Guð minn, ó, græddu mín geigvænu sár, huggaðu hjartað hrellt, heftu mín tár. Hjá þér ég huggun finn, himneski faðir minn, þar mýkist sérhvert sinn söknuðurinn. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Elsku Elísabet, Nonni, Pálmi, Jónína og Snæfríður. Þið hafið misst svo mikið. Fallega dóttur og lífs- glaðan samferðamann. Við biðjum Guð að vera með ykkur og megi minningarnar um einstaka og fal- lega stúlku líkna í sorginni og reyn- ast okkur sem eftir lifum dýrmætt leiðarljós. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur Ingibjörg, Jón Ásgeir, Sigurður Pálmi, Sól og Melkorka. Elsku frænka, það verður erfitt að venjast þessari nýju mynd sem lífið hefur tekið á sig eftir fráfall þitt. Þú áttir ávallt stóran stað í hjörtum okkar og munt áfram eiga. Ég minnist sérstaklega 5. nóvem- bers 2005, dagsins eftir afmælið mitt, þegar þið Sóley buðuð mér í heimsókn á Bakkaflötina. Þú komst mér heldur betur á óvart, tókst á móti mér með glæsilegri afmælis- köku með logandi kertum, afmæl- isgöf, hjarta fullu af kærleika og ein- staka brosinu þínu sem enginn gat staðist. Þú varst alltaf óhrædd, á alla vegu. Hvort það var að segja skoðun þína eða bruna niður bröttustu skíðabrekkur Norður-Ameríku skipti ekki máli, þú tókst á við öll verkefni af sömu bjartsýni og lést ekkert stöðva þig. Það var alltaf jafngaman að sjá hvernig þú notaðir sannfæringar- kraft þinn til þess að fá ólíklegasta fólk til að gera ótrúlegustu hluti. Þú gast gert menn orðlausa, bókstaf- lega kjaftstopp. Á augnabliki sem þessu missir allt tilgang. Heimurinn nemur staðar. Allt verður hégómlegt, við blasir endalaust hyldýpi sorgarinnar. En við getum fyllt í tómið með góðum minningum og þakklæti fyrir spöl- inn sem við gengum með Guðrúnu. Nú ertu komin úr okkar höndum, úr þessum heimi sem er fullur af hættum, og treystum við því Guði almáttugum fyrir eilífri velferð þinni. Elsku Jón og Elísabet, Pálmi, Jónína og Snæfríður, guð gefi ykkur styrk kærleikans. Megi birta lífsins ná yfirhöndinni á ný. Jón Felix og fjölskyldan Ásenda. Engin orð fá því lýst hve mikil sorg býr í hjarta mínu í dag – það situr stór svart tómarúm innra með mér þar sem áður var ljós – ljós sem hefur fylgt mér frá 3 ára aldri, hlæj- andi, skríkjandi og brosandi. Ljós sem mun fylgja mér alla tíð en nú aðeins sem fögur minning og sár söknuður. Veruleikinn er að Guðrún er far- in. – Sársaukinn nístir og það er erf- itt að anda – klukkustundin er pína og dagurinn heil eilífð að líða. Það eru fáir í mínu lífi sem stóðu mér jafn nærri og Guðrún. Enda var hún ekki aðeins litla frænka mín og besta vinkona, heldur vorum við nánast eins og uppeldissystur. Guð- rún var einstök sál og lýsti upp til- veru allra í kringum sig. Hún var ung en lífsreynd og af fáum þekki ég jafn margar prakkara- og skemmti- sögur og af henni. Hún var lífsglöð sál sem vildi öllum vel, vildi elska alla og vera elskuð. Minningarnar streyma fram eins og flóðbylgja, rautt, svart, ljóst hár, hvort heldur er pinnahælar og brúnkukrem framkalla tár. En minningin er kær því góðvild henn- ar hefur mótað þær allar. Ég mun aldrei komast yfir þetta en ég mun læra lifa með þessu – Guðrún, til þín vil ég segja okkar bæn: Góða nótt og sofðu rótt í alla nótt og dreymi þig vel, svo guð og englarnir varðveiti þig, vaki yfir þér og verndi þig svo þú verðir alltaf frísk og hamingjusöm. Þín, Fjóla Ósk. Elsku Guðrún frænka. Nú ertu farin frá okkur en örugg- lega komin á betri stað. Við erum vissar um að afi Pálmi hafi tekið vel á móti þér og þið passið vel upp á hvort annað. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, það er búið að vera frábært að kynnast þér og við eigum eftir að sakna þín mjög, mjög mikið. Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldr- ei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?“ (Jóhannes 11:25-26.) Elsku Guðrún, takk fyrir allt. Þínar Stella og Melkorka. Kveðja frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ Djúpur söknuður og mikil sorg hvílir yfir. Með stuttu millibili hafa tvær ungar stúlkur úr Garðabæ lát- ist í umferðarslysum. Í dag kveðjum við Guðrúnu Jóns- dóttur sem féll frá á því æviskeiði sem er upphaf afls og atorku. Harmafregnin kom óvænt, atburða- rásin var óskiljanleg og treginn af þeim sökum mjög sár. Það var erfið morgunstund fyrir okkur starfs- menn og nemendur skólans þegar tilkynnt var hvað gerst hefði snemma nætur. Um kvöldið sama dag komu margir saman til bæna- stundar í Vídalínskirkju. Þar var samúð og vinátta í fyrirrúmi. Ég votta foreldrum Guðrúnar, systkinum og öðrum ástvinum hennar innilega samúð mína og ég flyt þeim kveðjur frá nemendum, kennurum og öðru starfsfólki Fjöl- brautaskólans í Garðabæ. Blessuð sé minning Guðrúnar Jónsdóttur. Þorsteinn Þorsteinsson. Harmafregn, sviplegt fráfall Guð- rúnar elstu dóttur vinahjóna okkar kallar fram fallegar hugskotsmynd- ir af yndislegri, glaðbeittri, ungri stúlku, sem átti framtíðina fyrir sér. Við hjónin kynntumst Guðrúnu náið í siglingu sumarið 1998, þegar fjölskyldur okkar leigðu saman skútu á Grikklandi. Þetta var sann- kölluð ævintýraferð. Aðeins einn úr hópnum hafði reynslu af slíkri sigl- ingu en um leið og leystar voru land- festar braust fram víkingurinn í okkur öllum. Skipsfjölin skelfdi ekki Guðrúnu. Hún fylgdist með hverju handtaki um borð af áhuga, vék varla frá stýrimanninum og gerði öllum í áhöfninni ljóst að þótt hún væri ekki nema 11 ára ætlaði hún að vera full- ur þátttakandi í siglingunni en ekki einungis áhorfandi. Andlitið ljómaði af lífsgleði og fjöri, eins og speg- ilmynd af andliti móður sinnar, ein- lægt og fallegt bros. Vakti aðdáun hversu fljótt Guðrún náði góðum tökum á skútunni, var óhrædd við náttúruöflin en næm fyrir öldu og vindum. Þannig var hún í flestu, bæði á sjó og landi, tók vindinn í fangið án þess að hika og vildi njóta þess að vera til. Við áttum ógleym- anlegar stundir saman í þessu fríi og endurtókum leikinn síðar út af ströndum Tyrklands. Guðrún gerði allt vel sem hún tók sér fyrir hendur. Fór þá saman hug- ur og hönd og þessi innri taktur sem var svo auðsær. Hún var sannkallaður víkingur, broshýr og bjartleit. Guðrún skilur eftir skarð í huga og hjarta sem ekki verður fyllt en við þökkum fyrir margar ógleymanlegar stundir. Þær ylja um ókomin ár. Lífið er fjölþætt en dauðinn er einn. Samt er lífið okkar allra. Kæru vinir, Jón og Elísabet, Jón- ína, Snæfríður og Pálmi. Við hjónin og dætur okkar, Kristín og Elísabet, vottum ykkur innilegustu samúð. Ágúst Arnbjörnsson, Bertha Traustadóttir. Þrátt fyrir mikla sorg get ég ekki annað en brosað í gegnum tárin og hugsað um hvað ég er heppin. Í 6 ár hlotnaðist mér sá heiður að vera hluti af lífi Guðrúnar og á 19 ára ævi er það mikið. Guðrún var einstök, ég hef aldrei kynnst neinni manneskju í líkingu við hana og á aldrei eftir að gera. Við gengum í gegnum ýmis- legt saman, t.d. gelgjuna og á því tímabili datt okkur endalaust af hlutum í hug sem við gátum pirrað foreldra okkar með, eins og að læð- ast út á nóttunni. En alveg sama hvað við gerðum af okkur, alltaf var Guðrúnu kennt um – þessari litlu sakleysislegu manneskju. En líkt og með annað mótlæti í lífinu lét hún það ekki á sig fá, heldur hélt alltaf áfram að brosa, jafnvel breiðar en áður. Þetta fallega bros einkenndi hana og ég gleymi því aldrei. Það sem einkenndi Guðrúnu hvað mest var hversu samkvæm sjálfri sér hún var. Hún fór aldrei hefð- bundnar leiðir í lífinu eða gerði það sem ætlast var til. Í staðinn lét hún hjartað ráða för og gerði það sem hana langaði og þess vegna, þrátt fyrir stutta ævi hafði hún gert meira en margir gera á helmingi lengri ævi. Ég sakna hennar meira en orð fá lýst og mun elska hana að eilífu. Hún á alltaf eftir að fylgja mér í hjartanu og þrátt fyrir söknuð mun ég alltaf hugsa til hennar með gleði vegna þess að Guðrún var frábær. Sóley María. Elsku Guðrún mín. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum þegar ég frétti af slysinu, get ekki ennþá trúað þessu. Þú sem áttir allt lífið framundan og skemmtir þér alltaf svo vel. Ég skil ekki af hverju Guð ákvað að taka þig til sín svona unga og nokkrum dögum fyrir af- mælið þitt en eins og sagt er þá tek- ur Guð þá til sín sem honum þykir mest vænt um. Ég man eftir þessum fáránlegu rifrildum okkar þegar þú varst í 7. bekk og ég í 9. bekk, hvað við vorum klikkaðar. En sem betur fer náðum við að sættast og kynnast og komst ég þá að því hversu frábær stelpa þú varst. Þú varst alltaf svo hress og það var alltaf gaman að hitta þig. Ég man best eftir tíman- um í FG þegar ég, þú og Sóley vor- um alltaf saman. Við gerðum svo margt saman, sumarbústaðaferð- irnar, fórum á hestbak, öll djömmin okkar saman, þú varst alltaf að knúsa mann og kyssa, þú varst alltaf svo ánægð. Þetta voru mjög góðir tímar. Man sérstaklega eftir sum- arbústaðaferðinni sem ég, þú, Sóley og Þóra fórum í, þetta var snilldar ferð og þar fórst þú á kostum. Áttir þín „ljóskumoment“ og þegar þú söngst Barbie girl-lagið, það var bara snilld, rosalega gátum við hleg- ið að þér. Ég þakka guði fyrir það að hafa hitt þig fyrir 3 vikum og náð að tala við þig, ég man að þú komst til mín á Hressó og talaðir við mig og við sættumst enn á ný, mér leið rosalega vel eftir það. Ég man að ég hugsaði til þín þriðjudagsmorgun- inn þegar ég var í tíma áður en ég frétti af slysinu, ég ætlaði að athuga hvort þú værir á msn þegar ég kæmi heim og ætlaði að tala við þig og endurnýja vinskap okkar. Ég kveð þig með miklum söknuði og þú munt ávallt eiga stað í hjarta mínu. Mér þykir rosalega vænt um þig. Blessuð sé minning þín. Elsku Jón, Elísabet, Pálmi, Jón- ína, Snæfríður og aðrir ættingjar og vinir, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og sendi hlýjar kveðjur á þessum erfiða tíma. Megi guð vera með ykkur. Þín vinkona Kristín Erla. Ég trúi því ekki að ég sitji hérna núna og sé að skrifa minningargrein GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.