Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 48

Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ RannveigÁgústína Sig- urðardóttir fæddist á Akureyri 10. júní 1935. Hún lést á líknardeild Landa- kots 24. febrúar síð- astliðinn. Hún var dóttir hjónanna Sig- urðar Olgeirs Rós- mundssonar, f. 5. maí 1905, d. 23. júní 1986 og Stefaníu Sigurðardóttur, f. 4. júní 1906, d. 18. ágúst 1983. Systkini Rannveigar eru Sigurður Bárðar- son, kvæntur Sigríði Einarsdótt- ur, Haukur Sigurðsson, ekkill eft- ir Þyrí Jónsdóttur, og Kolbrún Sigurðardóttir, gift Skarphéðni Gunnarssyni. Rannveig giftist 19. janúar 1958 Herði Sigtryggssyni, f. 14. sept. 1929, d. 5. febrúar 2003. Hann er sonur Áslaugar Bjargar Árna- dóttur, f. 4. janúar 1909 og Sig- tryggs Árnasonar, f. 6. desember 1902, d. 21. ágúst 1933, fósturfaðir Steingrímur M. Guðmundsson, f. 22. apríl 1907, d. 25. nóvember 1992. Börn Rannveigar og Harðar eru: a) Ás- laug Björg, f. 24. mars 1958, gift Sverri S. Björns- syni, f. 13. mars 1958, dætur þeirra eru Hrefna Björk, í sambúð með Bjarna Sigurðssyni og Sunneva. b) Sigurður Haukur, f. 13. nóvember 1959, kvæntur Selmu Baldvinsdóttur, f. 10. apríl 1958, börn þeirra eru Rakel Ýr, Íris Dögg og Hörður Freyr og c) Daði, f. 23. apríl 1969, sambýlis- kona Maríanna Brynhildardóttir, f. 21. maí 1968, börn þeirra eru Viktor, Nína Rannveig og Diljá. Útför Rannveigar fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Rannveig Sigurðardóttir lést að morgni 24. febrúar á líknardeild Landakotsspítala með börnin sín þrjú, Áslaugu, Sigurð og Daða og tengdadótturina Selmu við dánar- beð sitt. Friðsæl stund á fallegum degi, Landakotskirkja böðuð sól- skini í vetrarstillunni fyrir utan gluggann á fimmtu hæðinni. Þar með lauk veikindum sem Rannveig hafði átt við að stríða um nokkurra ára skeið. Hún var með fádæmum æðrulaus kona og í gegnum veik- indi og slys sem gerðu síðustu ár hennar erfið, heyrðist hún aldrei barma sér eða harma hlutskipti sitt. Sjálfsvorkunn og barlómur var aldrei á dagskrá, hún var ekki þannig týpa. Systkinin stóðu þétt að baki móður sinni í veikindum hennar og gerðu það sem í þeirra valdi stóð til að létta henni lífið og lét Selma tengdadóttir hennar sannarlega ekki sitt eftir liggja. Veikindi einkenndu síðustu æviár Rannveigar því að eiginmaður hennar, Hörður Sigtryggsson, lést árið 2003 eftir langvarandi veikindi. Í þeim erfiðu veikindum Harðar stóð Rannveig vaktina af árvekni. Rannveig var ekki manneskja sem flíkaði tilfinningum sínum, hún var jafnlynd og tók lífinu eins og það er með einstöku jafnaðargeði. Rannveig var samt engin gufa og hafði skoðanir á öllu milli himins og jarðar. Hún fylgdist einstaklega vel með því sem var að gerast, las öll blöðin í þaula daglega og var stál- minnug. Það var sérstaklega skemmtilegt að ræða við hana póli- tíkina og heimsmálin, hún var rétt- sýn og sanngjörn í skoðunum. Eins og margar góðar manneskjur, hafði Rannveig hjartað á réttum stað – vinstra megin. Rannveig hafði yndi af að ferðast og gaf sér tíma til að fara nokkrum sinnum utan eftir að Hörður veikt- ist og hún hafði enn heilsu til og fór þá til dæmis að skoða menninguna í hinni sólbökuðu Madridarborg. Eft- ir að barnabörnin fóru að tínast í heiminn hafði Rannveig gott sam- neyti við þau og var alltaf til í að fá þau í heimsókn í Lautarsmárann þar sem hún bjó og var þá gerður margur happasæll leiðangurinn yfir götuna í Smáralindina. Lengst bjó Rannveig á Lindarflöt 18 í fallegu einbýlishúsi. Skjólgóður og sólríkur staður þar sem læk- urinn liðast niður framan við hraun- ið. Rannveig var heimakær og undi sér vel á þessum fallega stað. Þar hitti ég Rannsý fyrst, þegar við Ás- laug vorum að skjóta okkur saman. Okkur varð strax vel til vina og féll aldrei skuggi á þá vináttu. Þannig var ég ekki aðeins einstaklega heppinn með konu heldur líka heppinn með tengdamömmu. Hún og Hörður voru mjög hjálpleg börn- um sínum og veittu þeim aðstoð við að koma sér fyrir. Ráðdeild var þeim í blóð borin og fóru þau líkt og margur sem hefur byggt sig upp af eigin afli vel með fjármuni. Þau voru örlát í stuðningi sínum við börnin sem þau ólu upp við ráðdeild og vinnusemi, góður skóli sem börnin búa ennþá að. Við Áslaug nutum hjálpar þeirra þegar við vor- um að byggja í Garðabænum og var á tíma nokkur skuld á viðskipta- reikningi okkar við þau en einmitt þá gafst okkur kostur á að kaupa notað litasjónvarp. Þetta var rætt við Rannsý sem sýndi því mikinn skilning að listaskólanemandi yrði að sjá heiminn í lit, en taldi um leið óráðlegt að Hörður frétti af svo léttúðugri fjárfestingu í miðjum byggingaskuldahala ungu hjónanna. Því var það svo um nokkurra ára skeið að áður en Rannsý og Hörður komu í heimsókn lét hún okkur ávallt vita svo við gætum skrúfað niður litinn í sjónvarpstækinu. Rannveig vann um margra ára skeið við að keyra út Sómasam- lokur og þar áður Brauðbæjarsam- lokur ásamt Herði. Þar var alltaf mætt og alltaf stóð allt upp á punkt og kommu. Ég naut góðs af því að fá far í bæinn með henni á hverjum morgni þegar ég var í Myndlista- skólanum. Það var hægt að stilla klukkuna eftir tímanum sem hún kom á, síðan keyrðum við Hrefnu í leikskólann og héldum svo í bæinn. Þetta voru skemmtilegar ferðir því Rannsý var viðræðugóð og málefni stundarinnar alltaf á dagskrá á leið- inni. Einu sinni vorum við svo heppin að lenda í stórhríð um leið og við beygðum út á Hafnarfjarð- arveginn og vorum við sex tíma á leiðinni í bæinn. Það var gaman að vera veðurtepptur með Rannsý því hún var ræðin, vel lesin og skemmtileg. Hún hafði þessa fornu íslensku kímnigáfu þar sem hrak- farir og óhöpp eru uppspretta gam- anmála en þó var fjarri henni ill- kvittni í garð annarra. Ég held ég hafi mætt betur en nokkur nemandi í Listaskólanum síðan Erró svaf þar á næturnar, þökk sé Rannsý sem ekki aðeins keyrði mig, heldur hvatti mig áfram. Kann ég henni miklar þakkir fyrir það og ekki síð- ur góðan hug í gegnum árin. Þau hjónin ferðuðust mikið miðað við hvað tíðkaðist áður en sólar- landaferðir urðu almenningsafþrey- ing. Hörður vann lengi hjá Útsýn og skapaði það þeim hjónum tæki- færi til að fara oft utan, í siglingar eins og sagt var þá. Nutu þau þess að fara ein og sér og með börn sín í sólarlandaferðir til margra landa við Miðjarðarhaf og allt til Mexíkó. Sólskin og suðrænir vindar áttu vel við Rannsý. Þó hún gerði ekki mik- ið af því, fannst henni gaman að skemmta sér á góðri stund og eru góðir og gamlir sving-smellir í plötusafninu eins og Herb Albert og Patti Page og Útsýnarböll voru fastur liður í samkvæmislífinu um árabil. Rannsý var smekkvís og hafði gaman af því að eiga fallega hluti eins og silfurgljáandi Audi-inn og fleiri bíla sem Daði sá um að væru alltaf skínandi eins og ný- komnir úr kassanum. Rannsý og Hörður voru frumbýl- ingar á Flötunum. Þegar þau voru að koma sér upp húsinu var hafta- tími og þurfti mikla útsjónarsemi til að ná í byggingarefni, innréttingar og tæki. Fólk flutti inn um leið og húsin voru rúmlega fokheld og bjó í glampandi skini áleinangrunar í nokkur ár á meðan klárað var að innrétta. Flatirnar voru eitt mold- arflag og ekkert rennandi vatn svo kúnst var að þrífa ungana sem birt- ust alsælir en moldugir upp fyrir haus í útidyrunum eftir viðburða- ríka daga við leiki í læknum, í hús- grunnum og moldarbingjum. Siggi var sérstaklega duglegur garfari og kom inn vaskahúsmegin árum sam- an segja mér nú uppkomnir pollar. Áður en hægt var að flytja inn á Lindarflötina bjuggu þau á Rauða- læknum í nábýli við Kiddý systur Harðar, hennar mann Jón í Straumnesi og þeirra barnaskara. Fyrsta bú sitt settu þau saman á Lynghaganum skömmu eftir að brilljantíngreiddi töffarinn á gos- bílnum féll fyrir hinni norðlensku mey sem hafði komið til höfuðborg- arinnar ásamt Lillu æskuvinkonu sinni frá Akureyri að leita að lífinu. Þær stöllur bjuggu í litlu þakher- bergi á elliheimilinu Grund þar sem þær unnu. Rannsý líkuðu umönn- unarstörfin vel og Haukur bróðir hennar sagði mér að yfirlæknirinn á Grund hefði boðist til að greiða götu hennar til hjúkrunarnáms í Osló, en af ókunnum orsökum varð ekkert af því. Rannsý var ekki mik- ið fyrir að tala um líf sitt eða sig yf- irleitt og var ekki haldin sjálfhverf- unni sem nú einkennir tímana. Áður en hún fór suður vann hún í heimabæ sínum Akureyri í verk- smiðjunni Gefjun. Rannsý lauk fullri skólaskyldu 12 ára gömul frá Barnaskóla Íslands á Akureyri. Hún og systkini hennar, Sigurður, Haukur og Kolbrún, ólust upp á Laxagötu, reisulegu húsi efst á eyrinni og hafa systkinin verið í góðu sambandi alla ævi. Á sumrin fór hún í sveit inn í Hörgárdal og undi sér vel í hlýju sólskini norð- lensks sumars. Sigurður Rós- mundsson faðir Rannveigar og Stefanía Sigurðardóttir móðir henn- ar voru aldamótabörn borin á þeim tíma er handafl og hestafl knúðu at- vinnulífið. Þegar Rannsý var að slíta barnsskónum var gaman að vera barn á Akureyri, mikið af krökkum í stórum leikjum og æv- intýrin biðu allt frá fjörunni til fjallsins. Þar fæddist Rannveig 10. júní 1935 í fallegri stillu í glamp- andi sólskini, því eins og Rannsý sagði oft með glampa í auga og bros á vör: „Það er alltaf sólskin á Akureyri.“ Sverrir Björnsson. Okkur langar til að minnast ömmu okkar í nokkrum orðum. Amma Rannsý var okkur mjög kær. Það var gott að koma til henn- ar og afa á Lindarflötina og alltaf var tekið vel á móti okkur, hvort sem það var þegar við komum til að vera hjá þeim eftir skóla eða til að gista. Amma var best í að elda lambalæri og var dugleg að hafa það þegar við vorum í mat hjá þeim. Stundum fengum við líka Kentucky og er okkur minnisstætt þegar afi kom heim með „risastóra“ fötu fulla af kjúklingi. Alltaf fattaði amma þegar minnst var á þessa fötu að þá var áhugi fyrir að fá kjúkling í matinn. Aldrei var frysti- rinn hennar ömmu án íss og var Hörður Freyr duglegur að hjálpa henni við að klára hann. Amma var alltaf tilbúin að hjálpa okkur og gott var að leita til hennar eins og þegar strætisvagnabílstjórar voru í verkfalli eitt sumarið og mamma og pabbi erlendis þá kom amma á hverjum degi og keyrði okkur í og úr vinnu. Þegar horft var á íþrótta- leiki í sjónvarpinu var amma vön að halda bara með þeim sem voru und- ir í leiknum því hún var ekki mikið að fylgjast með í íþróttum en bar- áttan var meiri ef haldið var með tapliðinu. Það var skrýtin tilfinning þegar var farið að tala um að amma væri að flytja af Lindarflötinni og yfir í Smárann því við áttum svo margar góðar minningar þaðan. Í Lauta- smárann var ekki síður gott að koma og þar var lambalærið ekkert verra þó svo að kjúklingur væri þar frekar á borðum. Okkur þykir mjög vænt um það sem amma gaf okkur þegar við urð- um stúdentar. Hún fór þá ein út í Smáralind og keypti þríkrossinn og færði okkur og höfum við borið hann nær daglega síðan. Elsku amma takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur, við munum alltaf sakna þín. Rakel Ýr og Íris Dögg. Smá kveðja til ömmu minnar. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, – augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann – lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans. breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum.) Takk fyrir allt, amma mín. Þinn sonarsonur Hörður Freyr. Fyrstu kynni mín af Rannsý frænku minni voru sumar eitt fyrir um það bil 60 árum. Ég var í sum- ardvöl hjá afa okkar og ömmu sem bjuggu í Brekkugötu á Akureyri. Í minningunni var þetta sumar sólar og gleði. Við Rannsý léttklæddar í stuttum sumarkjólum með sveifl- andi fléttur langt niður á bak. Árin liðu og Rannsý fluttist til Reykja- víkur og þar endurnýjuðum við kynni okkar sem hafa haldist órofin síðan. Ég minnist ljúfra stunda á Lindarflötinni og Hrauntungunni og ógleymanlegar utanlandsferðir sem við fórum saman í. Rannsý kynntist eiginmanni sín- um, Herði Sigtryggssyni, ung að árum. Þau voru ein af þeim mörgu sem byggðu sér hús í Garðabæ og bjuggu þar ásamt börnum sínum meðan Hörður lifði. Hún frænka mín var vel gefin og hafði sterkar skoðanir á litrófi lífsins. Hún var sérlega smekkleg og báru heimili hennar þess einkenni. Síðustu árin voru Rannsý erfið vegna endurtekinna veikinda. Viku fyrir andlátið heimsótti ég hana á sjúkrahúsið og varð mér þá ljóst að hún átti ekki langt eftir ólifað. Kæra frænka mín, ég þakka þér samfylgdina á lífsins braut. Guð vaki yfir þér. Börnum Rannsýjar og fjölskyldum votta ég samúð mína og bið góðan guð að styrkja ykkur. Sigrún Óskarsdóttir. Elskulega frænka okkar, Rann- veig Sigurðardóttir, eða Rannsý eins og við krakkarnir kölluðum hana alltaf, er nú farin yfir móðuna miklu. Minningar okkar systkin- anna af Rannsý og Herði eru flest- ar samofnar þeirra ljúfa heimili í Garðabænum, og einkennast af ró, öryggi og væntumþykju. Móðir okkar og Rannsý voru nánar systur og oft hljóp Rannsý í skarðið þegar þurfti á pössun að halda. Hrund systir á margar góðar minningar frá Garðabænum þar sem hún var oft í pössun hjá Rannsý. Ég man þegar ég fór oft með móður minni í heimsóknir í Garða- bæinn, yfir sumarið var þar alltaf þvílíkur hiti og veröndin einsog suðupottur. Ég man líka hvað mér þótti alltaf gaman að koma í heim- sókn á sunnudögum því í Garða- bænum gat ég horft á ítalska bolt- ann, sem ég áleit mikinn lúxus. Meðan systurnar drukku sitt kaffi og spjölluðu gat maður alltaf fundið sér eitthvað að gera hjá Rannsý, sjaldan kom maður að tómum kof- unum. En nú er svo komið sem kemur fyrir okkur öll, leiðin er á enda fyr- ir yndislega manneskju og maður getur ekkert gert nema látið hug- ann reika aftur í tímann. Þar í minningunni lifir Rannsý enn og mun alltaf gera. Við viljum þakka þér elsku frænka fyrir allan þann hlýhug og væntumþykju sem þú hefur gefið okkur, megi minning þín lifa. Að kvöldi dags er kveikt á öllum stjörn- um, og kyrrðin er þeim mild, sem vin sinn tregar, og stundum skýla jöklar jarðarbörnum, og jafnvel nóttin lýsir þeim til vegar. (Davíð Stefánsson.) Heimir Skarphéðinsson, Hrund Skarphéðinsdóttir, Tjörvi Skarphéðinsson. RANNVEIG SIGURÐARDÓTTIR Faðir okkar og tengdafaðir, ÞORBERGUR JÓNSSON fyrrum bóndi í Prestsbakkakoti á Síðu, lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum 22. febrúar síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Steinunn Þorbergsdóttir, Tómas J. Pálsson, Helga Guðrún Þorbergsdóttir, Jónatan Á. Líndal, Jón Þorbergsson, Sólveig Pálsdóttir og fjölskyldur. GUÐMUNDUR P. BJARNASON frá Sýruparti, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, andaðist laugardaginn 25. febrúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.