Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 49

Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 49 MINNINGAR ✝ GuðmundurJónsson fæddist á Seyðisfirði hinn 6. október 1925. Hann lést á Landspítalan- um í Reykjavík hinn 23. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Jón Árna- son, skipstjóri á Seyðisfirði, f. í Hlíð- arhúsum í Reykja- vík 15. september 1886, d. 21. ágúst 1972, og Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja, f. á Seyðisfirði 2. nóv- ember 1898, d. 13. júní 1990. Systkini Guðmundar eru Geir, f. 20. sept. 1919, Jakobína, f. 28. apr- íl 1922, látin. Arnbjörg, f. 19 ágúst 1923, Bjarni, f. 4. des. 1928, látinn, og Jónas, f. 31. janúar 1942. Guðmundur kvæntist 24. ágúst 1947 Ingunni Erlu Stefánsdóttur frá Minni-Borg í Grímsnesi, f. 3. janúar 1925. Foreldrar hennar voru Stefán Diðriksson, oddviti og bóndi á Minni-Borg, f. í Vatnsholti í Grímsnesi 15. desember 1892, d. 18. janúar 1957, og Ragnheiður Böðvarsdóttir, póst- og símstöðv- arstjóri, f. á Laugarvatni 7. nóv- ember 1899, d. 10. september 2000. Börn þeirra Guðmundar og Ingunnar Erlu eru: 1) Jón Örn, f. 4. nóv. 1949, var kvæntur Karen Johansen, börn þeirra eru a) Ing- unn Margrét, f. 19. nóv. 1973, dóttir hennar Astrid, f. 26. nóv. 2003, og b) Jens Maríus, f. 1. apríl 1979. 2) Ragnheiður, f. 19. sep. 1953, maki Eiríkur Þorgeirsson, f. 20. mars 1953. Börn þeirra eru Ása Margrét, f. 13. nóv. 1981, Ing- unn Erla, f. 21. jan. 1984, Hrafn- hildur Hekla, f. 5. maí 1988, Þor- gerður Edda, f. 21. des. 1993, og Eiríkur Ari, f. 7. maí 1996. 3) Guð- björg Gróa, f. 21. apríl 1955. Dæt- ur hennar og Harðar Kristjáns- sonar, f. 6. júní 1951, eru a) Ágústa Hera, f. 8. ágúst 1978, og b) Heba Margrét, f. 29. ágúst 1980. Sonur þeirra Ágústar Guðmunds- sonar, f. 29. júlí 1947, er c) Guð- mundur Ísar, f. 16. okt. 1985, d. 27. des. 1998. Börn Guð- bjargar og Kristjáns Matthíassonar, f. 6. júní 1961, eru d) Ingunn Erla, f. 21. maí 1994, og e) Matthías Már, f. 19. sept. 1997. Sambýlismaður Guðbjargar er Sigurður Torfi Jónsson, f. 5. sept. 1955. 4) Stefán Már, f. 18. júlí 1961, var í sambúð með Dagbjörtu Aradóttur, f. 1959. 5) Guðmundur Ingi, f. 28. ágúst 1963. Synir hans eru Theodór Már, f. 11. júní 1994, móðir hans er Vilborg Auðunsdóttir. Gaukur Steinn, f. 7. jan 1997, móðir hans er Rúna Hilmarsdóttir. Guðmundur lauk námi frá Eiða- skóla árið 1943, Iðnskólanum í Reykjavík 1946, iðnnámi í járn- smíðum í Reykjavík 1947, vél- stjóraprófi frá Vélskólanum í Reykjavík 1950 og rafmagnsdeild 1951. Hann var um tíma á togur- um og flutningaskipum en var vél- stjóri í Áburðarverksmiðju ríkis- ins frá 1953–1993. Hann sat í stjórn Vélstjórafélags Íslands 1946–49 og gegndi ýmsum nefnd- arstörfum á vegum félagsins, í varastjórn Farmanna- og fiski- mannasambands Íslands (FFSÍ) frá 1971 og aðalstjórn 1975–83. Guðmundur var stofnandi Seyð- firðingafélagsins í Reykjavík, sat í stjórn þess í mörg ár og var heið- ursfélagi þess síðustu árin. Útför Guðmundar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku afi minn, ég sakna þín sárt og finnst skrýtið að sjá þig ekki sitja í stofunni heima hjá þér og ömmu og brosa. Það er svo sárt að hafa þig ekki lengur til staðar, því hjá þér mátti alltaf búast við hlýjum mót- tökum, þú hlustaðir og skildir og varst jafnframt svo kátur og frá- sagnaglaður. Heill heimur er horfinn með fráfalli þínu en ég mun ávallt hugsa hlýlega til þín og nota ráðlegg- ingar frá þér sem veganesti á lífsleið- inni. Elskulegi afi minn, veröldin er skrýtin án þín. Mig hefði aldrei grun- að að tíminn væri kominn, varla á næsta leiti. Nú ert þú horfinn og að- eins minningar um frábæran afa til að fylla upp í tómarúmið. Minning- arnar eru margar, allt frá því ég var lítil afastelpa. Við systkinin vorum alltaf meira en velkomin á heimilið ykkar ömmu, sátum í fanginu á þér og þú sagðir okkur sögur. Þú varst líka svolítill stríðnispúki og sagðir oft: „ekki ég!“ Þegar ég kom í heim- sókn á seinni árum sagðir þú alltaf „komdu sem oftast“ að kveðju. Þú hefur verið svo góður við mig öll þessi ár, gafst svo mikið af þér og sýndir mér mikla væntumþykju og alúð. Þú gafst mér bílinn þinn í fyrra, sagðir mér að hann væri algjört lukkutröll og varst nýbúinn að spyrja mig hvernig bíllinn hefði það. Þið amma hafið svo sannarlega stutt mig eftir ykkar bestu getu, en fyrir það eigið þið skilið mikið hrós. Ný- lega sást þú kött sem amma var nýbúin að prjóna og sagðir „Þetta get ég nú alveg, kannski ætti ég bara að prjóna einn svona kött!“ Ég og amma tókum þig á orðinu, amma dró fram prjónana og fitjaði upp og þú tókst síðan við prjónunum og byrj- aðir að prjóna. Og mikið var hlegið að prjónaskapnum. Afi minn, ég mun aldrei skilja við þig á nokkurn hátt, þú verður alltaf með mér. Gott er að hafa engil eins og þig til staðar. „Blað skilur bakka og egg, en anda sem unnast fær aldr- egi eilífð að skilið.“ Afi minn, ég mun ávallt sakna þín meðan ég lifi. Megi minningin um þig lifa. Blessuð sé minning þín. Ég bið guð að vera með ömmu og þér á þessum sorgardegi. Þín afastelpa, Heba. Elsku besti afi er farinn, söknuð- urinn er mikill en við vitum að hann er kominn á betri stað. Afi hafði ánægju af því að segja frá og hafa hlustendur og fengum við því oft að heyra skemmtilegar sögur frá því þegar hann var ungur eða af framtíð- arplönunum. Afi var rosalega sterk- ur og gat allt, fannst manni; smíðaði sumarhúsið sitt og ömmu á Minni Borg nær alveg frá grunni og var bú- inn að búa til alls kyns skemmtilega fylgihluti, s.s. nákvæma eftirlíkingu af gömlu Minni Borg sem stendur í bæjarhlaðinu. Hann var vinnusamur og mikill listasmiður og smíðaði marga kertastjaka og aðra skúlptúra úr járni. Við erum svo lánsamar syst- urnar að eiga kertastjaka eftir hann sem við höldum mikið upp á og munu halda minningunni á lofti. Seinna færði hann sig yfir í að skera út í tré og búa til útskornar klukkur. Afi hafði alltaf gaman af veiðum og átti bát sem hann fór oft og fiskaði á og amma bjó svo til æðislegar fiski- bollur. Við eigum margar minning- arnar um ferðirnar á Laugarvatn þar sem farið var í bátsferðir með afa og svo bökuð hverabrauð með ömmu. Afi var rólegur maður en með lúmskan og skemmtilegan húmor. Í minningunni sjáum við hann fyrir okkur með axlabönd og hatt en það voru meðal þeirra sérkenna sem ein- kenndu hann. Afi var áhugasamur um hvað við krakkarnir tókum okkur fyrir hendur og fylgdist ævinlega með árangri okkar í leik og starfi. Hann átti úrklippubók og í hana safnaði hann öllum blaðagreinum sem viðkomu fjölskyldunni. Hvíldu í friði, elsku afi, þú munt ávallt eiga stað í hjörtum okkar. Þínar afastelpur, Ása, Inga og Hekla. Það er komið að kveðjustund, mágur minn Guðmundur Jónsson er látinn. Við gátum auðvitað búist við þessu þá og þegar, og enginn ræður sínum næturstað. Guðmundur var ekki heill heilsu nú síðustu ár, en við erum nú ekki alltaf að hugsa um hvenær ævin tekur enda. Dauðinn er svo fjarlægur hinu daglega lífi. Margar minningar um Guðmund koma í hugann. Sérstaklega eru mér minnisstæð hin fyrstu kynni. Þetta var fallegt sumarkvöld á Minniborg. Inga systir í heimsókn með ungan og myndarlegan mann, ljóshærðan með liðað hár, ættaðan frá Seyðisfirði. Ættir hans voru okkur ókunnar þá. Við mamma stóðum við eldhúsglugg- ann og horfðum forvitnar á þennan unga mann sem lék listir sínar norð- ur á túni. Hástökk og hlaup af öllum gerðum. Mikill vaskleikamaður er þetta, hugsuðum við mamma. Guðmundur Jónsson sigraði alla viðstadda. Gummi Boggu var hann kallaður á Seyðisfirði, dálítið sérstakt að þó nokkrir menn voru kenndir við mæð- ur sínar þar. Það átti fyrir okkur fjórum systrum að liggja að menn okkar urðu allir Austfirðingar. Að sjálfsögðu ekki ákveðið fyrirfram. Foreldrar Guðmundar voru sæmd- arhjón, vel metin og hugþekk. Jón Árnason skipstjóri og Guðbjörg Guðmundsdóttir kona hans Þau bjuggu lengst af í sama húsi og Guð- mundur og Inga, eftir að þau fluttu til Reykjavíkur. Það var orð að sönnu að Guðmundur Jónsson var vaskleikamaður og allt of langt yrði að telja upp öll þau störf sem hann vann á milli vakta. Aðalstarf Guð- mundar var yfirvélstjóri í Áburðar- verksmiðju ríkisins, Gufunesi í 40 ár. Guðmundur og Inga eru margt og mikið búin að afreka um dagana hugsuðu stórt í íbúðabyggingum vin- mörg og félagslynd bæði. Gestrisin og góð heim að sækja. Þau bjuggu lengst af í Austurgerði 10, stóru húsi sem var með tvær íbúðir niðri. Þar bjó Guðbjörg móðir Guðmundar með Jónasi yngsta syni sínum eftir að hún missti mann sinn. Það skiptast á skin og skúrir hjá fólki sem lifað hefur langa ævi. Sárt var fyrir þau hjón og fjölskylduna alla að missa bráðefnilegan dóttur- son og nafna Guðmund Ísar af slysförum aðeins 13 ára. En gott er líka að eiga ekkert nema fallegar og góðar minningar um hann. Við eig- um líka góðar og skemmtilegar minningar um Guðmund. Oft var glatt á hjalla heima hjá honum við hátíðleg tækifæri, ekki síst þegar vinur þeirra hjóna var mættur með harmónikkuna, eða þrjár dætur Ragnheiðar dóttur þeirra sem allar spila á harmónikku. Mörg önnur barnabörn þeirra spila á hin ýmsu hljóðfæri. Við systur allar sem vor- um 6 og menn okkar höfum alltaf haft mjög gaman af að dansa, fórum á Borgarböllin næstum því um leið og við gátum gengið. Foreldrum okkar fannst það alveg sjálfsagt. Það tilheyrði á þeim árum. Ungir og gamlir skemmtu sér saman. Guð- mundur gat verið gamansamur og var oft með skemmtilegar frásagnir af ýmsum frá Seyðisfirði, Það kom fyrir að honum fannst að við Minni- borgarsystur gætum aldrei hlustað og það verður að viðurkennast að oft gerðist það að við urðum að grípa til reglu sem var á Minniborg á upp- vaxtarárunum, að við æfðum okkur í að vita hver gæti þagað lengst. Við tókum upp þessa reglu og hlustuðum á Guðmund segja frá fyrri dögum og minningum frá Seyðisfirði. Allt var þetta í góðu gamni, og allar konur hafa gott af því að lofa mönnum sín- um að komast að, en að sjálfsögðu ekki of oft. Guðmundur og Inga keyptu minna húsnæði að Dalbraut 20 í fyrrahaust, ákjósanlegan stað þar sem Guð- mundur var sérstaklega sáttur og ánægður með. En eins og áður er sagt enginn ræður sínum næturstað, ekki reyndist það langur tími sem hann bjó þar. Við Einar þökkum Guðmundi tryggð og vináttu sem aldrei bar skugga á og vottum Ingu systur minni og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Ólöf Stefánsdóttir. Kveðja frá Seyðfirðinga- félaginu í Reykjavík Guðmundur Jónsson vélstjóri er látinn. Guðmundur fæddist á Seyð- isfirði 6. október 1925. Það voru æskufélagarnir, þau Guðmundur Jónsson, Ingólfur A. Þorkelsson og Bryndís Jónsdóttir, sem stóðu fyrir fyrsta Sólarkaffi Seyðfirðinga, sem haldið var í félags- heimili Fóstbræðra í Reykjavík hinn 15. febrúar 1980. Það leiddi svo af sér stofnun Seyðfirðingafélagsins í Reykjavík hinn 15. nóvember 1981. Guðmundur var kjörinn í fyrstu stjórn félagsins og var í stjórn þess fram til ársins 1996. Guðmundur var ákaflega virkur félagsmaður. Þegar félagið festi kaup á húsi á Seyðisfirði 1987, til út- leigu fyrir félagsmenn, þurfti að ráð- ast í talsverðar endurbætur á því. Þá var það Guðmundur sem fór austur og eyddi sumarfríi sínu í að hreinsa út úr húsinu gamlar innréttingar og fleira og hófst handa við uppbygg- ingu hússins, hann sá síðan um út- leigu þess á meðan hann var í stjórn félagsins. Guðmundur var alltaf boð- inn og búinn til starfa fyrir félagið, þar á meðal til þátttöku í skemmti- atriðum á samkomum þess. Fyrir störf sín í þágu Seyðfirð- ingafélagsins var Guðmundur gerð- ur að heiðursfélaga þess í nóvember 2001, á 20 ára afmæli Seyðfirðinga- félagsins. Fyrir hönd Seyðfirðingafélagsins í Reykjavík vill stjórn félagsins votta honum virðingu sína og þakka hon- um samfylgdina og ánægjulegt sam- starf. Við viljum einnig votta eftirlifandi eiginkonu hans, Ingunni E. Stefáns- dóttur og afkomendum öllum, okkar dýpstu samúð. Edda Lýðsdóttir formaður. Látinn er í Reykjavík Guðmundur Jónsson vélfræðingur, rúmlega átt- ræður að aldri. Guðmundur var einn af fyrstu starfsmönnum Áburðar- verksmiðjunnar, réðst þar til starfa árið 1953 er verið var að byggja verksmiðjuna. Varð hann verkstjóri við uppsetningu véla í tvær deildir verksmiðjunnar og nutu menntun hans og forystuhæfileikar sín vel við þau störf. Er rekstur verksmiðjunnar hófst fyrrihluta árs 1954 varð Guðmundur vaktstjóri á einni vaktinni sem sett var á við framleiðsluna, en áburður var framleiddur allan sólarhringinn, alla daga ársins. Kom í hlut Guð- mundar að sjá um rekstur fjögurra af fimm verksmiðjum fyrirtækisins á sinni vakt og varð svo allan hans starfsferil þar til hann lét af störfum sökum aldurs. Guðmundur var ákaf- lega farsæll og traustur í öllum störf- um sínum fyrir Áburðarverksmiðj- una og það var mönnum eins og Guðmundi að þakka að rekstur verk- smiðjunnar gekk eins vel og raunin varð. Guðmundur var þéttur á velli og traustur forystumaður sem und- irmenn hans virtu og þótti gott að vinna með. Að leiðarlokum minnist undirrit- aður með þakklæti góðra stunda í leik og starfi. Guðmundur Jónsson skilur eftir sig góðar og ánægjulegar minningar. Ingunni og fjölskyldunni allri eru sendar innilegustu samúðarkveðjur. Runólfur Þórðarson. Þeir falla líka sterkustu stofnarn- ir. Mikill öndvegismaður, kær mér og mínu fólki, Guðmundur Jónsson, hefur kvatt þetta líf. Hann var um 35 ára skeið samstarfsmaður föður míns í Áburðarverksmiðjunni, báðir vélstjórar með vaktstjórn á öðru verksmiðjusvæðinu. Sjálfur vann ég þar mörg sumur og var iðulega á vakt hjá Guðmundi, en hef þekkt hann sem fjölskylduvin í miklu lengri tíma. Rétt eins og hann sjálfur kom oft til okkar, var ég um langt árabil heimagangur hjá þeim Ing- unni og börnunum í Rauðagerði og Austurgerði, enda urðum við Jón Örn, sonur þeirra, miklir vinir strax á æskuárum. En í Gufunesi byrjuðu tengslin. Þaðan eiga fyrrverandi starfsmenn góðar minningar. Guð- mundur verður ávallt minnisstæður af þeim vettvangi, svipmikill maður og drífandi, einarður, en léttur í lund, þægilegur í öllum samskiptum og naut óskiptrar virðingar og vel- vildar allra sem með honum unnu. Mér er tjáð, að Áburðarverk- smiðjan sé ekki nema svipur hjá sjón, eftir að framleiðsla hætti þar. Hún er því að kalla horfinn heimur, en þar kynntust menn tæknifram- förum og flókinni, stórtækri efna- vinnslu sem var sífellt í gangi hvern sólarhring ársins. Þar var þörf snjallra vélfræðinga, um tíu talsins, þriggja verkfræðinga og tæknifræð- inga til að allt gengi sem skilvirkast fyrir sig, enda mikil verðmæti í húfi. Þessir menn voru sjálfur heilinn í starfseminni og lögðu fjölda vakt- manna grunnreglur í meðförum fín- stilltra véla og framleiðslutækja af stærstu gerð í Vetnis-, Ammoníaks-, Sýru- og NPK-verksmiðjunum. Þá voru þar tugir dagvinnumanna sem sáu um frágang og afgreiðslu áburð- ar í skip og á bíla, viðhald og við- gerðir, byggingarvinnu o.fl., einnig rafvirkjar og bifvélavirkjar á stórum verkstæðum, efnafræðingar á sinni spennandi rannsóknarstofu, auk skrifstofu- og mötuneytisfólks í sam- eiginlegri byggingu. Var verksmiðj- an einn stærsti vinnustaður landsins, með hátt á annað hundrað starfs- manna. Fyrstu áratugina var sölu- varan nær eingöngu Kjarni, fyrir ut- an súrefni og ammoníak. Sívaxandi samkeppniskröfur kölluðu síðar á aukinn metnað sem birtist í fram- leiðslu fleiri áburðartegunda fyrir ís- lenzkan markað, sem og í aukinni sjálfvirkni sem leiddi til fækkunar starfsmanna. Á sínum tíma var þetta mikið sam- félag. Menn hristust saman í mötu- neytinu og hverjum verkstað, áttu sínar rabbstundir í rútunni á leiðinni til og frá vinnustað, en verksmiðjan var þá kippkorn fyrir utan bæinn og flestir keyrðir heim. Samheldni manna var mikil, ekki aðeins daglega og í Starfsmannafélaginu (SÁV), sem stóð undir myndarlegum sum- arbústaðarekstri, heldur liðsinntu þeir hver öðrum, og minnist ég Guð- mundar sem eins hjálparmanna föð- ur míns við að steypa upp hús hans. Fengum við krakkarnir fljótt nasa- þef af hálf-háskalegu verksmiðju- svæðinu. Árlega var okkur boðið til veglegr- ar jólaskemmtunar, þar sem Sverrir Guðjónsson gekk einhver sín fyrstu söngvaraspor. Síðar áttum við innhlaup í fjöl- breytta, vel launaða sumarvinnu á staðnum, í kófryki í skemmunum jafnt sem hafblænum á bryggjunni, á lyfturum og í sekkjun og aflraun- um við tvo til þrjá áburðarpoka í einu. Þetta getum við þakkað nú, en dýrmætari er sá hlýhugur sem eftir varir í garð traustra, hressilegra sálufélaga. Í vélgæzlunni vorum við oft einangraðir í stórum húsum og hávaða; þá lífgaði mann vitjun vél- stjórans og gjarnan tekið gott spjall á staðnum. Þar var sá maður, sem nú er til grafar borinn, jafnan aufúsugestur, hlýr og leiðbeinandi og sjálfum mér föðurlegur. Guðmundur var vel ættaður, bæði austan og vestan af fjörðum, í beinan legg af Kristjáni sterka á Borg í Arn- arfirði. Var faðir hans, áður skipstjóri, seglasaumari verksmiðjunnar á mín- um fyrstu árum þar. Sem fleiri af ættinni var Guðmundur kraftamað- ur, þótt hann léti lítt á því bera. Há- vaxinn var hann og glæsilegur, ljós á hár og með hýrri brá, átti sjálfur föngulega dugnaðarkonu og bar mikla umhyggju fyrir börnum sínum og fjölskyldu. Hann var stórhuga og hafði mik- inn metnað fyrir heimili sitt, sem birtist í glæsilegum húsakynnum sem hýstu m.a. ekkjurnar, móður hans og tengdamóður, á efri árum þeirra. Ég vil með þessum fátæklegu orð- um þakka fyrir dýrmæta, órofa vin- áttu Guðmundar við föður minn, sem nú er látinn. Ingunni ekkju hans, börnum og barnabörnum sendir móðir mín og við systkinin öll okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jón Valur Jensson. GUÐMUNDUR JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.