Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 50

Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Daðey Svein-björnsdóttir var fædd hinn 31. mars 1922 á Uppsölum í Seyðisfirði við Ísa- fjarðardjúp. Hún lést á heimili sínu á Hrafnistu í Hafnar- firði hinn 24. febr- úar síðastliðinn. Faðir hennar var Sveinbjörn Rögn- valdsson, f. á Svarf- hóli í Súðavíkur- hreppi í N-Ís. 15. september 1886, d. 28. mars 1975, bóndi á Uppsölum og síðar verkamaður í Bolungar- vík. Móðir Daðeyjar var Kristín Hálfdánardóttir, f. á Hvítanesi í Ögurþingum í N-Ís. 22. nóvember 1896 d. 2. janúar 1951, húsfreyja á Uppsölum í Seyðisfirði, N-Ís. Systkini Daðeyjar voru alls 16 fædd. Af þeim komust 13 upp. Eft- irlifandi eru Kristín Guðrún (1920) í Bolungarvík; Halldóra Þórunn (1926) í Reykjavík; Einar Jónatan (1928) í Bolungarvík; Jónína Þur- íður (1930) í Bolungarvík; Svein- björn Stefán (1932) í Bolungarvík; og Marta Kristín (1935). Látin eru Hjálmar Rúnar Hafsteinsson (1974) og börn þeirra eru Halla Líf Hjálmarsdóttir (1996) og Jökull Mar Hjálmarsson (2001). Fóstur- dóttir er Ingrún Ingólfsdóttir (1949), búsett í Hafnarfirði. Eigin- maður (1976) er Magnús Gíslason (1949). Sonur Ingrúnar er Hersir Gíslason (1971), sambýliskona hans er Carola Falk. Börn Ingr- únar og Magnúsar eru Vala Magn- úsdóttir (1977) og Daði Magnússon (1978). Börn Daða og Gyðu Gunn- arsdóttur (1984) eru Tara Daða- dóttir (2002) og Íris Daðadóttir (2004). Dóttir Sigurðar er Sigurrós Helgadóttir (1944). Eiginmaður hennar er Þorsteinn Guðlaugsson (1936). Sigurrós á tvær dætur af fyrra hjónabandi, Önnu Garðars- dóttur (1965) og Guðrúnu Karitas Garðarsdóttur (1971). Anna á syn- ina Garðar Þór Þorkelsson (1989) og Agnar Frey Þorkelsson (1994) og Guðrún dæturnar Védísi Elvu Þorsteinsdóttur (1994) og Ásdísi Eir Þorsteinsdóttur (1998). Daðey, eða Dadda eins og hún var alltaf kölluð, ólst upp í for- eldrahúsum á Uppsölum í Seyðis- firði vestra. Þau Daðey og Sigurð- ur giftu sig 19. júní 1946 og bjuggu alla tíð í Hafnarfirði, lengst af í Köldukinn 28, en síðustu þrjú árin á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Daðeyjar fór fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði 3. mars. Ragnar (1916–2000) í Bolungarvík og síðar á Akranesi; Elísabet (1917–1995) í Súða- vík, Bolungarvík og á Akranesi; Kristján (1918–1994) í Súða- vík og síðar í Hafn- arfirði; Rögnvaldur (1921–1943) á Upp- sölum við Seyðis- fjörð; Hálfdan (1924– 1954) á Uppsölum og í Bolungarvík, Jónat- an Helgi (1925–1925), Sigurjón (1931–2003) í Bolungarvík; Marta (1934–1934); og andvana fæddur drengur (1936–1936). Eiginmaður Daðeyjar er Sigurð- ur Jóhannsson, fyrrum sjómaður, fæddur í Hafnarfirði, 16. júní 1921. Fósturforeldrar hans voru Sigurð- ur Magnússon (1876–1955) og Kristrún Einarsdóttir (1883–1963) í Hafnarfirði. Dóttir Daðeyjar og Sigurðar er Kristín Halla Sigurð- ardóttir (1957), búsett í Hafnar- firði. Eiginmaður hennar (1987) er Guðmundur K.G. Kolka (1957). Dóttir Höllu er Kristrún Gunnars- dóttir (1975). Hennar maki er Tengdamóðir mín, Daðey Svein- björnsdóttir, ólst upp að Uppsölum í Seyðisfirði við Ísafjarðardjúp. Í hvert skipti sem ég kom að Uppsöl- um fyllti maður flösku af vatni úr Uppsalaánni fyrir Döddu, því engan drykk mat hún meira. Minnisstæðar eru þær stundir sem við áttum með henni á æskuslóðum þar sem hún sagði frá staðháttum og uppvexti í stórum systkinahópi. Margir ætt- ingjar muna hlátrasköll úr fjöl- skylduboðum þegar Uppsalasyst- urnar komu saman og rifjuðu upp atburði frá æskuárunum. Dadda hélt ætíð mikið upp á dæt- ur sínar, barnabörn og svo síðar barnabarnabörn. Hún fylgdist einkar vel með uppvexti þeirra og gladdist innilega yfir framförum og sigrum þeirra. Hún var mjög stolt af þeim og þreyttist hún aldrei að segja mér frá þeim. Hún sýndi reyndar allri fjölskyldunni sinni sérstaklega mikla ræktarsemi. Þegar ég kynnist Höllu dóttur hennar tók hún mér fagnandi. Hún átti auðvelt með að samfagna okkur hjónum og samgleðjast þegar vel gekk. Dadda trúði mjög á hið góða í manninum og hún vildi öllum vel. Ég minnist þess ekki að hún hafi talað illa um nokkurn mann. Dadda var trúuð, guðrækin og þann tíma sem ég þekkti hana sóttu þau Sigurður vel Fríkirkjuna í Hafnarfirði. Við söknum Döddu, en brosum í gegnum tárin og yljum okkur í ljósinu sem Dadda veitti okkur af mikilli rausn. Ég kveð tengdamóður mína með djúpri virðingu og þökk fyrir sam- veruna. Guðmundur K. G. Kolka. Elsku Dadda amma mín. Ég trúi því varla að þú sért farin. Ég sit við eldhúsborðið og skrifa til þín hinstu kveðju, það er sunnudagur og köld rigningin fellur lóðrétt af himnum ofan. Ég á alveg eins von á ykkur afa í kaffisopa, en það var venjan hjá ykkur að koma við í Erluásnum um helgar, bara rétt til að knúsa Höllu Líf og Jökul Mar. Þú lifðir fyrir að vera með langömmubörnunum þín- um og talaðir alltaf um hversu falleg þau væru og vel uppalin, varst ekk- ert að spara kossana til þeirra og spáðir mikið í fallega hárið hennar Höllu Lífar. Jafnframt talaðir þú líka um hversu Jökull væri líkur pabba sínum, með fallega brosið hans. Morguninn sem þú kvaddir, kom ég til þín, kyssti þig bless og það var svo mikill friður yfir þér, elsku amma mín. Jafnmikill friður var í veðrinu, en það var fallegt að horfa út um gluggann þinn og sjá sólina koma upp, dagurinn var rétt að byrja hjá okkur öllum en hjá þér var hann að enda. Það var svo skrítið að þegar ég kom heim eftir að hafa ver- ið hjá þér þennan morgun, tók ég að- eins til, kveikti á kertum, og það ríkti svo mikill friður á heimilinu og yfir Höllu Líf og Jökli Mar. Það var eins og þú værir þarna hjá okkur, að hugga okkur og passa upp á litlu langömmubörnin þín. Halla Líf skil- ur þetta allt saman betur en Jökull, en hann veit að Dadda langamma er orðin engill uppi í skýjunum sem er að passa okkur öll. Þú ert konan sem ég man alltaf eftir frá minni æsku. Það var alltaf gott að koma í Köldukinnina, því þar var alltaf tekið vel á móti öllum. Ég man eftir öllum bíltúrunum um helg- ar, sem náðu út fyrir borgina, oft keyrðum við Hvalfjörðinn og það var stoppað í hverri sjoppu og keypt gotterí handa mér. Við sungum mik- ið saman, bæði í bílnum og heima í stofunni í Köldukinn. Ég var ósjald- an í pössun hjá ykkur afa, þegar mamma var í skólanum. Alltaf var jafngott að fá að vera næturgestur hjá ykkur. Það var nú oft líka hama- gangur og mikið líf þegar við barna- börnin vorum hjá ykkur. Þú bjóst um okkur í gestaherberg- inu. Þar sofnuðum við en þegar við vöknuðum morguninn eftir vorum við fjögur, komin á milli ykkar afa. Þú áttir alltaf til búðing og ís handa litlum sælkerum og nóg af kexi og kökum. Elsku amma mín, þú varst konan sem kenndir mér Faðir vor og fórst alltaf með bænirnar með mér og þú varst konan sem passaðir alltaf upp á að litlum tásum yrði aldrei kalt. Þú prjónaðir ullarsokka í tonnavís og varst óspar á þá. Þú varst kirkju- rækin mjög, hélst mikið upp á sr. Einar og hélt ég að þú myndir aldrei taka öðrum presti eins og honum, en þá kom sr. Sigríður honum til að- stoðar í Fríkirkjunni og varð hún strax í miklu uppáhaldi hjá þér líka. Þegar þið afi fluttuð á Hrafnistu varð mér mikill léttir að vita af ykkur á stað þar sem svo mikið félagslíf væri og alltaf einhver til staðar ef eitthvað skyldi gerast, því þú varst orðin þreklaus eftir síðustu veikindi en ótrúleg varstu nú samt. Þú varst handsterkasta kona sem ég þekkti og ótrúlega hress að eðlisfari. Sr. Sigríður sagði mér meira að segja að þú hefðir gengið til altaris hjá henni daginn áður en þú kvaddir. Sigríður og Einar komu til okkar þar sem við vorum að kveðja þig, og höfðu smá bænastund með okkur og ég veit að þú hefðir ekki viljað hafa þetta öðru- vísi. Hvað er betra á svona stundu en að hafa hjá sér fjölskylduna sem unni þér svo heitt og sömuleiðis prestana tvo sem voru þér svo kærir. Elsku amma, ég kveð þig nú og við DAÐEY SVEIN- BJÖRNSDÓTTIR Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR HANNESDÓTTIR, Gullsmára 9, Kópavogi, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 10. mars kl. 15.00. Sjöfn Stefánsdóttir, Guðgeir Einarsson, Sigríður Stefánsdóttir, Reynir Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, TOVE RIGMOR GUÐMUNDSSON, Eyjabakka 1, Reykjavík. Helen G. Guðmundsdóttir, Jón G. Guðmundsson, Eiríkur G. Guðmundsson, Ágúst G. Guðmundsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HERDÍS BJÖRNSDÓTTIR, Varmalæk í Skagafirði, verður jarðsungin frá Reykjakirkju á morgun, föstudaginn 10. mars klukkan 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Jóhanns Péturs Sveinssonar hjá Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra. Lovísa Sveinsdóttir, Björn Sveinsson, Magnea K. Guðmundsdóttir, Gísli Sveinsson, Ásta B. Ólafsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir, Smári Borgarsson, Ólafur Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR, Reykhúsum, Eyjafjarðarsveit, áður til heimilis á Miklubraut 58, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grundarkirkju laugardaginn 11. mars kl. 14:00. Hallgrímur Ingvarsson, Lísbet Ingvarsson, Brynjólfur Ingvarsson, Rósa S. Aðalsteinsdóttir, Páll Ingvarsson, Anna Guðmundsdóttir, Guðrún María Ingvarsdóttir, ömmu- og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Hólmgarði 64, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 6. mars. Útför verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. mars kl. 15.00. Örn Edvardsson, Lena Anderssen, Sigrún M. Guðnadóttir, Sesselja I. Guðnadóttir, Markús Þorvaldsson, Sigurður Guðnason, María Lilja Ilfante, Sverrir Ó. Guðnason, Steinunn Jensdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, GUÐMUNDUR HELGI JÓNASSON lést á gjörgæsludeild Landspítala háskólasjúkra- húss fimmtudaginn 2. mars. Jarðarförin verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnar- firði föstudaginn 10. mars kl. 13.00. Pétur Georg Guðmundsson, Guðrún Kristín Bachmann, Rúna Guðmundsdóttir, Heimir Karlsson, Bragi Guðmundsson, Hjördís Sævarsdóttir, Snævarr Guðmundsson, Brynhildur Kristinsdóttir, Snorri Guðmundsson, Linda Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðs- ins: mbl.is (smellt á reitinn Morg- unblaðið í fliparöndinni – þá birt- ist valkosturinn . Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birt- ing dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.