Morgunblaðið - 09.03.2006, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 53
HUNDASÝNING
„ÍSLENSK hundarækt
hefur tekið miklum fram-
förum á síðustu árum og
ég sé heilmikinn mun síð-
an ég var hér síðast fyrir
þremur árum,“ segir
portúgalski dómarinn
Luis Pinto Texeira, en
hann kom til landsins
ásamt þremur öðrum er-
lendum dómurum til að
dæma rúmlega 600
hunda á alþjóðlegri
hundasýningu Hunda-
ræktarfélags Íslands um
síðustu helgi.
Þetta var stærsta og
viðamesta hundasýning
sem haldin hefur verið
hér á landi. Hundarnir
voru af ólíkum tegundum
og á ýmsum aldri, allt frá
4 mánaða upp í 11 ára
gamlir. Keppt var í mörg-
um tegunda- og aldurs-
flokkum.
Tæplega tveggja ára
whippet-tík að nafni Co-
urtborne Keyzers Ar-
wens stóð uppi sem sigurvegari sýn-
ingarinnar. Whippet-hundar eru af
svokölluðu mjóhundakyni og hafa
stundum verið kallaðir veð-
hlaupahestar fátæka mannsins.
Ástæðan er sú að þetta eru afar
sprettharðir hundar og fyrr á tíðum
notuðu námuverkamenn í Bretlandi
whippet-hunda í hundaveðhlaupum.
Víðast hvar eru whippet-hundar þó
einkum ræktaðir sem heimilis-
hundar, enda þykja þeir hafa einkar
ljúft viðmót og gott lunderni. Þeir
hænast mjög að eiganda sínum og
eru afar húsbóndahollir.
Keppni ungra sýnenda nýtur vax-
andi vinsælda meðal barna og ung-
linga í hundaheiminum og má þakka
það öflugu starfi unglingadeildar
Hundaræktarfélagsins. Ólöf Karitas
Þrastardóttir dæmdi 9–13 ára börn í
keppni ungra sýnenda. „Þá er ekki
verið dæma hundinn heldur hæfni
barnanna til að sýna hunda. Það er
ákveðin kúnst að sýna hund vel, því
sýnandi þarf að draga fram kosti
hundsins og sýna af sér prúð-
mennsku inni í sýningarhring. Mér
finnst líka skipta miklu máli að gott
og einlægt samband sé milli barns
og hunds,“ segir Ólöf Karitas, en í
fyrsta sæti hjá henni var Theodóra
Róbertsdóttir. Finnski dómarinn
Gunnel Holm dæmdi unglinga í
flokki 14–17 ára og taldi Þorbjörgu
Láru Leifsdóttur verðugan sig-
urvegara. „Hún hefur allt sem góðan
sýnanda má prýða.“
Allir dómararnir eru sammála um
að afar ánægjulegt hafi verið að
koma til landsins og áhugavert að
sjá hversu margir fallegir hundar
séu hér, ekki síst í ljósi þess að bann-
að var að flytja hunda til landsins
þar til fyrir 16 árum.
„Vissulega eru gæðin misjöfn en
ég sá fleiri fallega hunda en ég átti
von á,“ segir sænski dómarinn Nina
Karlsdotter og sú finnska tekur í
sama streng. Rui Oliveira frá Portú-
gal kveðst hafa hrifist mjög af sum-
um hundanna sem hann dæmdi, sér-
staklega af labrador retriever. „Í
hópi þeirra voru nokkrir verulega
glæsilegir hundar.“
Allir dómarar sem dæma á hunda-
sýningum HRFÍ hafa réttindi al-
þjóðlegu samtakanna FCI og
áhersla er lögð á að fá aðeins til
landsins virta og reynda dómara. Af
þeim fjórum sem dæmdu að þessu
sinni er Luis Pinto Texeira sá sem
mesta reynslu hefur, en hann segist
ferðast um heiminn þveran og endi-
langan um það bil aðra hvora helgi,
til að dæma á hundasýningum. „Sýn-
ingar Hundaræktarfélags Íslands
eru með þeim glæsilegustu og mér
finnst ég lánsamur að eiga þess kost
að heimsækja þetta fallega land og
dæma á jafnfágaðri og fallegri sýn-
ingu.“
Yfir 600 hundar á sýningu HRFÍ um síðustu helgi
Sprettharður mjóhundur
rauk beint í fyrsta sætið
ÞEIR voru glæsilegir
hundarnir í verðlauna-
sætum á hundasýningu
um síðustu helgi.
Brynja Tomer fylgdist
andaktug með og
spjallaði við hundadóm-
ara sem voru ánægðir
með sýninguna.
Boxer-tík Bjarkeyjar, Donna Karan, þótti fríðust allra hvolpa í aldurs-
flokki 4–6 mánaða. Hún er hér ásamt Ólöfu Karitas Þrastardóttur sem
sýndi hana og Gunnil Holm dómara.
Theodóra Róbertsdóttir tók þátt í keppni
ungra sýneneda í fyrsta sinn og fór beint í
fyrsta sætið. Írska setter-tíkin hennar
Cararua Alana er hér með henni og dóm-
aranum Ólöfu Karitas Þrastardóttur.
Þorbjörg Ásta Leifsdóttir sigraði í keppni
ungra sýnenda 14–17 ára. Hún sýndi ís-
lensku fjárhundatíkina Arnarstaða
Romsu. Dómarinn Gunnel Holm er með á
myndinni.
Fallegasti hvolpurinn í aldursflokki 6–9 mánaða var þessi gerðarlegi ís-
lenski fjárhundur, sem heitir Kersins Freyr og er í eigu Helgu Gúst-
afsdóttur. Sænski dómarinn Nina Karlsdotter er til vinstri.
Ljósmynd/Johan Frick-Meijer
Whippet-tíkin Courtborne Keyzers Arwen sem rauk beint í fyrsta sætið,
ásamt Ritu Hoff sem ræktaði hana.
Íbúð í 101 Skuggi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð í
101 Skuggi eða nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Barcelona er einstök perla sem
íslendingar hafa tekið ástfóstri
við. Heimsferðir bjóða þér nú
tækifæri til að njóta vorsins í
þessari einstöku borg á frábærum
kjörum. Þú kaupir 2 flugsæti en
greiðir aðeins fyrir eitt. Fjölbreytt
gisting í boði í hjarta Barcelona.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Barcelona
26. mars
frá kr. 19.990
Munið Mastercard-
ferðaávísunina
Gisting frá kr.4.600
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
á mann á nótt.
Verð kr.19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Út 26. mars
og heim 30. mars. Netverð á mann.
2 fyrir 1 – síðustu sætin
Skemmtileg endaíbúð, 111,6
fm á 3ju hæð, í fallegu fjór-
býlishúsi á frábærum stað.
Glæsilegt útsýni í suður og
austur yfir Bláfjöll, Perluna o.fl.
Íbúðin skiptist í forstofu með
skápum. Tvö góð herbergi.
Baðherbergi flísalagt með bað-
kari. Eldhús með góðri innrétt-
ingu. Þvottahús og geymsla á
hæðinni. Glæsilegar stórar
stofur með útgengi út á suður-
svalir og frábært útsýni. Agnes
á bjöllu. Verðtilboð.
Fálkagata 1
Stórglæsilegt útsýni - Opið hús
Síðumúla 27 • Sími 588 4477 • Fax 588 4479
www.valholl.is • opið 9-17 00 virka daga, lokað um helgar
Opið hús í dag,
fimmtudag 9. mars,
frá kl. 17:00-20:00
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Extra sterkt
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR