Morgunblaðið - 09.03.2006, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Ótrúlegt úrval af öðruvísi
vörum beint frá Austurlöndum.
Frábært verð. Sjón er sögu ríkari.
Vaxtalausar léttgreiðslur.
Opið virka kl. 11-18, laug. 11-15.
Sigurstjarnan,
Bláu húsin Fákafeni,
sími 588 4545,
netfang: postulín.is
Dýrahald
Great Dane.
Gullfallegur og yndislegur Stóri
Dan hvolpur til sölu. Upplýsingar
í síma 691 7306.
Dverg- og risaschnauzer. Eigum
ólofaða hvolpa í báðum stærðum
undan meisturum í leit að góðum
heimilum. Ekkert hárlos, sjaldan
ofnæmisvaldandi. HRFI ættbók.
www.svartskeggs.com og sími
846 8171.
Fatnaður
Ferðalög
Fossatún –Tíminn og vatnið
Fyrirtæki og hópar!
Glæsileg aðstaða, skemmtileg
afþreying, frábærar veitingar og
sanngjörn verð.
www.steinsnar.is S. 433 5800
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf í Hveragerði. Gott
verð, áratuga reynsla. Teiknum
eftir óskum kaupenda, sýningar-
hús á staðnum. Einnig höfum við
áhugaverðar lóðir til sölu. Símar:
660 8732, 660 8730, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
SAUÐSKINNSSKÓR
Námskeið laugardag og sunnu-
dag 11.-12. mars.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2, 101 Reykjavík.
Símar 551 7800 - 895 0780,
hfi@heimilisidnadur.is,
www.heimilisidnadur.is.
PhotoReading lestrar- og nám-
stækni. Kynningarfundur um
PhotoReading og PhotoReading
námskeiðin verður haldinn í
Seljakirkju fimmtudagskvöldið
9. mars kl. 20-21. Ókeypis að-
gangur. Námstækni ehf.
Föndur
Geisladiskasaumur -
www.fondurstofan.is Allt inni-
falið kr. 2.900. Saumað í disk og
sett í ramma. Síðumúli 15, 2. hæð,
s. 553 1800. Perlusaumur - Skart-
gripagerð o.fl. Opið virka daga
13-18 - Líttu við!
Viðskipti
Viltu skapa þér algjört fjár-
hagsfrelsi? Sé svo skaltu kynna
þér frábært námskeið þar sem
fagfólk kennir þér að búa til
hörkutekjur í heimavinnu.
Skoðaðu www.Kennsla.com fyrir
allar nánari upplýsingar.
Leitar þú að góðri og öruggri
tekjuleið? Áttu tölvu? Ertu í net-
sambandi? Af hverju þá ekki að
læra sjálfstæð netviðskipti? Frá-
bær leið til að margfalda tekjurn-
ar. Kynntu þér málið á
www.Hagnadur.com.
Byggingar
Arkitektúr Verkfræði Skipulag
Leysum öll vandamál hvað varðar
byggingar og skipulag.
Arkitekta og Verkfræðistofan
VBV, fast verð. Allur hönnunar-
pakkinn s 557 4100 824 7587 og
863 2520.
Ýmislegt
Víngerðarefni - Dúndurtilboð
20-40% afsláttur af öllum vínþrúg-
um. Allt fyrsta flokks efni úr
hreinum þrúgusafa. Víngerðin
Bíldshöfða 14, s. 564 2100. Opið
virka daga 13.00-18.00.
Kínaskór
Svartir flauelsskór, svartir satín-
skór, Allir litir í bómullarskóm.
Verð 1 par kr. 1290, 2 pör kr. 2000.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Hárspangir frá kr. 290
Langar hálsfestar frá kr. 990.
Síðir bolir kr. 1.990
Mikið úrval af hárskrauti.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Ferlega sætur í BC skálum kr.
1.995, buxur í stíl kr. 995.
Rosalega falleg blúnda og gott
lag í BCD skálum kr. 1.995, buxur
í stíl kr. 995.
Mjög fallegur í CDE skálum kr.
1.995, buxur í stíl kr. 995.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Vélar & tæki
Rafstöðvar 3-5kW dísel, verð:
105-155 þús. m. vsk. 1 og 2,5kW
bensín, verð 28-59 þús. m. vsk.
13kw dísel, verð 560 þús. m. vsk.
Loft og raftæki, s. 564 3000.
www.loft.is
Bílar
VW Golf Comfortline 1.4, árgerð
1999, ekinn aðeins 71 þ. km.
Dökkgrænn, 5 dyra, 5 gíra, ný
skoðaður. Fallegur og vel með
farinn frúarbíll á tilboðsverði kr.
620.000. Upplýsingar í síma
895 6895.
Toyota Corolla H/B 1600 VVTI
sjálfskiptur árg. 2003, 5 dyra, raf-
magn í rúðum og margt fl. Verð
aðeins 1.390 þ. stgr.
Upplýsingar í síma 662 5363.
MMC L200 38" breyttur árg. '99,
dísel, bsk., með húsi, vel með far-
in bíll á aðeins 1.290 þ. stgr.,
áhvílandi 1.050 þ., afb. 25 þ. Upp-
lýsingar í síma 662 5363.
Honda CR-V RVSi 2.0 árg. '98.
Ekinn 115 þús. km, 5 g.,, bein-
skiptur, með loftkælingu, mjög vel
með farinn bíll, reyklaus. Verð
800 þús. stgr. Uppl. í s. 862 9085.
Ford Explorer XLT (V6) árg.
2004, 7 m., ek. 40 þús. Dráttar-
beisli, hraðastillir, stigbretti, CD-6
magasín, 6 hátalarar o.fl. Verð
2.950.000. Tilboð 2.650.000 stgr.
Upplýsingar s. 821 7100.
Árg. '03, ek. 64 km. BMW x 5 3.0
með loftpúðafjöðrun og sjónvarpi
og öllum öðrum hugsanlegum
aukabúnaði. Ásett verð 5.500,
b.lán 4.950 fæst gegn yfirtöku á
láni. S. 691 4441.
Pallbíll
Ford King Ranch F350 2006. Nú
er trukkamánuður í USA. Frábær
afsláttur. Dæmi um verð F350 KR
topphlaðinn á verði frá 4 m. Af-
greiðsla í apríl. Upplýsingar á
www.automax.is og 899 4681.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
FRÉTTIR
ÞESSA vikuna stendur yfir sérstakt átak hjá
hjálparsíma Rauða kross Íslands varðandi mál-
efni barna og unglinga. Er þessum hópi bent á að
hægt er að fá ráðgjöf og upplýsingar um úrræði
sem standa þeim til boða með því að hringja í
hjálparsímann 1717 en síminn er opinn allan sól-
arhringinn allt árið um kring. Ekki þarf að geta
nafns þegar hringt er.
Elfa Dögg S. Leifsdóttir, verkefnisstjóri hjá
hjálparsímanum, segir börn og unglinga hringja
með margs konar vandamál og að mælanleg
aukning hafi verið í símtölum frá þessum aldurs-
hópi nú í átaksvikunni. Að jafnaði eru ungmenni
um 20% þeirra sem leita leiðbeininga hjá hjálp-
arsímanum en Elfa segir vilja til að auka hlutfallið
og því hafi verið ákveðið að efna til þessarar
átaksviku.
Undanfarin ár hafa símtöl frá börnum og ung-
lingum í hjálparsímann 1717 verið á bilinu 2.000–
3.000 talsins og eru ástæður þeirra af margvísleg-
um toga. Flest símtölin eru vegna félagslegra
vandamála en einnig berast mörg símtöl vegna
þunglyndis, fíkniefnavanda, einmanaleika, einelt-
is og heimilisofbeldis. Unglingar hringja einnig
gjarnan með spurningar um kynlíf, þunganir og
getnaðarvarnir og margir eru að velta fyrir sér
sjálfsmynd sinni og kynhneigð.
Elfa segir hlutverk þeirra sem svara í hjálp-
arsímann m.a. að ráðleggja ungmennunum hvert
þau eiga að leita með ólík vandamál. Hjálparsím-
inn hefur yfir að ráða upplýsingum um margs
konar félagasamtök, stofnanir og önnur úrræði
sem þeir sem þar leita aðstoðar geta nýtt sér sem
leið úr vanda sínum.
„En oft þurfa þau eins og aðrir sem hringja að
fá að tala og orða hluti sem þau hafa ef til vill verið
að hugsa um,“ segir Elfa.
Hjálparsíminn stendur fyrir átaksviku tvisvar
á ári. Á síðasta ári var spjótum beint að kyn-
hneigð og heimilisofbeldi. „Núna vildum við nota
tækifærið og minna börn og unglinga á að þessi
sími er enn þá ætlaður þeim,“ segir Elfa. Jafn-
framt er tilgangur átaksins að hvetja til umræðu í
þjóðfélaginu um vandamál sem börn eiga við að
stríða.
Um 100 manns svara í símann
Hátt í 100 manns, um 90 sjálfboðaliðar auk
launaðs starfsfólks, skiptast á að svara í hjálp-
arsímann 1717.
Til að undirbúa starfsfólkið fyrir átaksvikuna
voru fengnir sérfræðingar til að kynna sín
áherslumál og einnig var útbúið fræðsluefni um
málefni unglinga og barna. Umboðsmaður barna
var með fræðsluerindi fyrir hópinn, einnig starfs-
maður Fjölskyldumiðstöðvarinnar sem og fulltrúi
Neyðarlínunnar sem ræddi m.a. um barnavernd-
armál. Þá hafa allir starfsmennirnir aðgang að
sálfræðingi sem getur veitt þeim ráðleggingar.
SPRON styrkti hjálparsímann
Hjálparsíminn hlaut nýlega 3 milljónir króna í
styrk frá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis.
Katla Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, segir
það ómetanlegt og mikla viðurkenningu að fá
stuðning sem þennan frá utanaðkomandi aðila.
Styrkurinn geri Rauða krossinum kleift að kynna
símann betur og ná til enn fleiri aðila sem þurfa
nauðsynlega á hjálp að halda.
Átaksvika hjá hjálparsíma Rauða krossins
Málefni barna og ung-
linga í brennidepli
Morgunblaðið/Jim Smart
Elfa Dögg S. Leifsdóttir hefur umsjón með
þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem svara í
hjálparsímann 1717.
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist
frá Osta- og smjörsölunni:
„Að gefnu tilefni vill Osta- og smjörsalan
taka fram að fyrirtækið stundar ekki und-
irverðlagningu á framleiðsluvörum sínum
eins og Mjólka hefur haldið fram í fjöl-
miðlum og í kvörtun til Samkeppniseftirlits.
Osta- og smjörsalan veitir smásöluaðilum
tilboðs- og kynningarafslátt, eins og flestir
framleiðendur gera, enda er þá keypt
ákveðið magn, eins og tíðkast í almennum
viðskiptum. Þetta hefur verið gert í fjölda
ára. Þessi afsláttur hefur skilað sér til neyt-
enda í formi sértilboða hjá verslunum.
Í viku hverri bjóða verslanir viðskiptavin-
um sínum tilboð á völdum vöruflokkum,
neytendum til góða. Ef verslun ákveður að
hafa einstakar vörur Osta- og smjörsölunnar
á tilboðsverði tekur fyrirtækið þátt í að
kynna tilboðið á sama hátt og aðrir mat-
vælaframleiðendur og heildsalar gera með
sínar vörur.
Til hagsbóta fyrir neytendur hefur Osta-
og smjörsalan árum saman verið með lands-
tilboð á einstökum vöruflokkum sínum sem
þá eru auglýst sérstaklega. Þekkt dæmi þar
að lútandi eru tímabundin tilboð á smjöri
sem neytendur hafa kunnað að meta.
Osta- og smjörsalan starfar á samkeppn-
ismarkaði og fagnar allri samkeppni. Engu í
markaðsaðgerðum Osta- og smjörsölunnar
er sérstaklega beint gegn Mjólku og fram-
leiðsluvörum þess fyrirtækis.“
Yfirlýsing frá Osta-
og smjörsölunni