Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 55
HESTAR
Athygli vekur hve styrkleiki barna- ogunglingaflokka á hestamannamótumer orðinn mikill. Þar má sjá þraut-
þjálfaða knapa, oft á hestum sem myndu sóma
sér vel í fullorðinsflokkum og er aðdáunarvert
hversu vel unga kynslóðin stendur sig í
keppni.
Þetta gerist ekki af sjálfu sér og hafa flestir
þessara flinku ungu knapa fengið mikla þjálf-
un og reiðkennslu.
Hestamannafélögin reka mörg hver öflugt
æskulýðsstarf og er hestamannafélagið Fákur
í Reykjavík enginn eftirbátur annarra félaga.
Æskulýðsnefnd Fáks hefur verið iðin við kol-
ann í vetur. Stærstu verkefni nefndarinnar
eru reiðnámskeiðin og stunda meira en áttatíu
börn og unglingar nám í hestamennsku á veg-
um Fáks í Reiðhöllinni í Víðidal.
Haldin eru svokölluð pollanámskeið fyrir
yngstu börnin og í vetur eru 45 sex til tólf ára
börn á þeim námskeiðum. Kennarar eru Sig-
urður Matthíasson og Edda Rún Ragnars-
dóttir en þau reka eigin reiðskóla á sumrin. Í
fyrravetur voru innan við 20 krakkar á þessum
námskeiðum svo þátttakan á þessum nám-
skeiðum hefur aukist gífurlega.
Æskulýðsnefndin stendur einnig fyrir
knapamerkjanámskeiðum sem er stigskipt
samræmt nám í hestamennsku, stigin eru alls
fimm og heldur Landbúnaðarháskólinn á Hól-
um utan um námið. Þetta er annað árið sem
Fákur býður sínum börnum upp á þetta nám
og kennarar eru Sigurbjörn Bárðarson og
Tómas Snorrason, báðir menntaðir reiðkenn-
arar. Á þessum námskeiðum eru 36 krakkar,
tólf ára og eldri. Knapamerkjanámið er metið
sem val og til eininga í bæði grunn- og fram-
haldsskólum og er að auki kennt sem fag í
nokkrum framhaldsskólum. Á vegum Fáks
eru unglingar á aldrinum 12–16 ára í þessu
námi.
Mikill spenningur er ár hvert fyrir stórsýn-
ingunni Æskan og hesturinn í Reiðhöllinni í
Víðidalnum sem hestamannafélögin á suðvest-
urhorninu standa að. Þessi sýning verður um
næstu helgi, 11. og 12. mars. Tómas Ragn-
arsson sér um undirbúning sýningaratriðis
Fáks og í ár fengu allir sem mættu í úrtöku að
vera með.
Síðar í vetur verður svo boðið upp á keppn-
isnámskeið fyrir börn sem vilja spreyta sig í
úrtöku fyrir landsmót sem verður í sumar.
Tómas Ragnarsson stýrir einnig kennslu þar
og hefur hann með sér gott fólk til aðstoðar.
Fákur verður því með á annað hundrað
börn á námskeiðum í vetur og á bak við hvert
barn er fjölskylda sem stendur spennt á hlið-
arlínunni. Kennarar eru ekki af verri endan-
um, allt þrautþjálfað keppnisfólk með mikla
reynslu af reiðkennslu. Enginn efast um mik-
ilvægi þess að hlúa að barnastarfinu í hesta-
mannafélögum, það mun alltaf skila sér til
baka, bæði sem forvarnarstarf og svo eru
börnin knapar framtíðarinnar.
Gróskumikið æsku-
lýðsstarf hjá Fáki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjö og átta ára gömul börn á pollanámskeiði hjá Fáki, kennarinn er Sigurður Matthíasson.
Þegar best lætur er hesta-mennskan frábært fjöl-skyldusport og margarfjölskyldur eiga góðar
stundir saman í hesthúsinu þar sem
kynslóðirnar sameinast í áhugamál-
inu. En nú á tímum er margt sem
glepur og til að halda börnunum við
efnið er nauðsynlegt að eiga góðan
hest sem er öruggur og skemmti-
legur fyrir börn. Á auglýsingasíðum
hestavefjanna er mikið auglýst eftir
góðum barnahestum og virðist sem
nokkur eftirspurn sé eftir hinum
fullkomna fjölskylduhesti sem allir
geta riðið, sama hvar viðkomandi er
staddur í hestamennskunni.
Óla vantar hest
Óli Kristjánsson er sex ára gam-
all og í þeirri erfiðu stöðu að hafa
brennandi áhuga á hestum en eiga
engan hest. Hestar fjölskyldunnar
eru þannig að enginn þeirra hentar
litlum 25 kg dreng. Einn er of vilj-
ugur, annar of klárgengur og hast-
ur, sá þriðji lullar bara undir óvön-
um og engum þeirra er algjörlega
treystandi fyrir litlu barni. Fjöl-
skylda Óla er með hesthús í And-
varahverfinu og þar er að hefjast á
næstu dögum reiðnámskeið fyrir
börn. Óli vill ólmur vera með á
námskeiðinu, foreldrar hans vilja
virkja áhugann hjá barninu og er
því aðeins eitt til ráða; nú skal
finna hinn fullkomna barnahest.
En hvernig á góður barnahestur
að vera? Er hann latur, gamall lull-
ari sem ekkert hræðist? Eða er
hann fulltaminn, fullorðinn hestur,
léttur í taumi, með gott geðslag og
fer á tölti undir léttum dreng? Já,
það er málið, vel taminn, traustur
hestur sem sækir í tölt, helst tíu
vetra klár með mikla reynslu og
hreingengur er lykilorðið. Best
væri auðvitað að hesturinn væri
það skemmtilegur í reið að allir
fjölskyldumeðlimir gætu notið hans.
En hvar finnur maður svona hest
og ef einhver á þennan fullkomna
fjölskylduhest er hann þá falur?
Leitin að barnahestinum
Hófst nú þrautagangan, leitin að
barnahestinum. Fyrst voru settar
inn auglýsingar á 847.is og hest-
ar.net. „Óskum eftir að kaupa full-
mótaðan töltgengan 10–12 vetra
barnahest.“ Það var nákvæmlega
enginn sem svaraði auglýsingunum
og ljóst var að ef árangur ætti að
nást yrði leitin að barnahestinum
að fara fram með „maður-á-mann“-
aðferðinni, spyrjast fyrir, hringja í
þekkta hestasölumenn, tala við alla
hestamenn sem maður hittir, láta
vita að nú sé alvara á ferð, nú skal
keyptur góður hestur.
Fyrst fréttist af átta vetra brúnni
hryssu fyrir austan fjall undan
Kjarval, með reynslu af hestaleigu,
ásett verð 200 þúsund. Brunað var
af stað með tóma hestakerruna til
að prófa dýrið og hryssan tekin
með í bæinn til frekari reynslu. Við
nánari kynni fór sjarminn hins veg-
ar af hryssunni, hún reyndist sækja
í brokk undir Óla og þótti ekki
nógu traust. Henni var því skilað
eftir nokkra daga.
Næst var litið á brúna tíu vetra
hryssu í hesthúsahverfi Gusts í
Kópavogi, ásett verð 150 þúsund.
Hún var lítil og sæt og ósköp góð-
leg á svip. Hún myllutölti við slak-
an taum, var ótrúlega þýð og taum-
létt en fráleitt glæsileg í reið og
lyfti fótunum ekki hærra en nauð-
syn krefur til að fóta sig – tíkalla-
sparkari. Hún kemur ágætlega til
greina vegna þess hve þýðgeng hún
er og hentar því vel litlum og létt-
um Óla og hún er vel tamin. En
væri ekki gaman ef fegurð í reið
fylgdi með, svona í bónus?
Þéttriðið tenglanet
Þar sem tenglanetið var orðið
nokkuð þéttriðið, og margar góðar
konur og menn komin í málið, var
ákveðið að leita lengra og prófa
fleiri hesta, bara svona upp á sam-
anburðinn.
Eitt símtalið leiddi til ferðar í
hesthúsahverfi Sörla í Hafnarfirði,
þar var tíu vetra bleikálóttur hest-
ur undan Degi frá Kjarnholtum,
ásett verð 150 þúsund. Hann
reyndist ekki nægilega hreingengur
og tók taugaveiklað hliðarhopp þeg-
ar bíll kom honum að óvörum,
þannig haga traustir barnahestar
sér ekki og óþarft að hugsa meira
um hann.
Daginn eftir var farið í hesthúsa-
hverfi Harðar í Mosfellsbænum.
Gummi vissi af sjö vetra jarpri
hryssu sem Siggi átti og var í þjálf-
un hjá Pétri en Jónas ætlaði að
sýna okkur hana – svona er hesta-
bransinn. Hryssan reyndist hin
myndarlegasta á allan hátt, með
fallegar hreyfingar og nokkuð
hreingeng, undan Roða frá Múla,
ásett verð 400 þúsund. Það vildi
hins vegar ekki heppilegar til en
svo að í miðri sölusýningu rifnaði
upp gömul sprunga í hæl svo foss-
blæddi. Þar með endaði sýningin og
hryssan er líklega úr leik næsta
mánuðinn eða svo. Hún var líka
kannski aðeins of lítið tamin til að
hún hentaði Óla en hún lofar góðu.
Barnahesturinn fundinn?
Guðmundur Hauksson í Ási í
Ásahreppi er einn af þeim sem
komnir voru á kaf í málið og hafði
hann fundið hest undan Páfa frá
Kirkjubæ sem hann taldi henta Óla.
Aftur var brunað austur yfir fjall,
með tóma hestakerru í farteskinu.
Þetta var tíu vetra klár, rauð-
blesóttur, ásett verð 250 þúsund.
Hann bauð strax af sér góðan
þokka, var hinn prúðasti og geðs-
legasti á allan hátt. Hann var
reyndar ekki í þjálfun, hafði verið
járnaður fyrir aðeins tveimur dög-
um en þetta er hestur sem rennur
á töltinu, er þýður á brokki, taum-
léttur, fer vel undir manni og með
góðan höfuðburð. Óli reið honum í
nokkra hringi inni í skemmu og
gekk vel bæði að hvetja hann áfram
og að láta hann tölta. Saga hestsins
er þekkt og er það mikill kostur.
Hann er fæddur á Hárlaugsstöðum
í Ásahreppi, taminn af Guðmundi í
Ási, var eitt sumar í hestaleigu en
var bundinn á gangi og stífur þegar
hann kom þaðan eftir frjálslegt
reiðlag túristanna, en vel gekk að
laga það. Síðan var hann seldur
konu sem hafði algjörlega misst
kjarkinn en nú hefur hún með að-
stoð hans og góðra manna fengið
kjarkinn aftur og er komin af byrj-
andastiginu. Hún fékk sér meiri
reiðhest og því var þessi til sölu nú.
Eftir nokkrar vangaveltur var
ákveðið að slá til. Ekki reyndist
unnt að fá hestinn lánaðan, það
hefði verið ákjósanlegt að prófa
hann í nokkurn tíma en fjölskyldan
öll hreifst af honum þannig að hann
var sleginn á staðnum. Hann sýndi
engin merki um frekju eða yf-
irgang, var taumléttur, tölti hreint
og fór vel undir Óla.
En eins og með alla hesta sem
óvanir knapar ríða er nauðsynlegt
að vanur knapi ríði honum af og til
svo hann freistist ekki til að fara út
í einhverja vitleysu, fari að frekjast
á tauminn eða leiðast út í að binda
sig á tölti. Það ætti ekkert að fara
úrskeiðis með þennan hest ef hann
er riðinn til reglulega. Hann hefur
gott upplag, geðslagið er eins og
best verður á kosið og hann er
hreingengur og það er einmitt það
sem leitað var að. Nú getur Óli far-
ið að hlakka til að mæta á nám-
skeiðið á honum Blesa sínum og
vonandi gengur þeim vel.
Barnahestur óskast, traustur,
hreingengur og taumléttur
Eftir Berglind Karlsdóttur
Ljósmynd/Kristján Þór Finnsson
Leitin að barnahestinum fékk farsælan endi, hér er hinn sex ára gamli Óli
Kristjánsson á baki honum Blesa sínum og fer vel á með þeim.
Óli tekur Blesa til kostanna. Blesi er á hreinu tölti og lætur vel að stjórn.