Morgunblaðið - 09.03.2006, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 57
DAGBÓK
70ÁRA afmæli. Í dag, 9 mars, ersjötugur Magnús Einarsson
fasteignasali. Af því tilefni bjóða hann
og eiginkona hans Guðrún Jóhanns-
dóttir ættingjum og vinum að gleðjast
með fjölskyldunni í dag á Grand Hotel
Reykjavík (Ársalir 4. hæð) milli kl. 17 og
19. Gjafir vinsamlega afþakkaðar, en ef
vilji er til að færa einhverjum glaðning í
tilefni dagsins er bent á Styrktarsjóð
krabbaneinssjúkra barna. Reikn. nr.
0301 - 26 - 545 kt. 630591-1129.
50 ÁRA afmæli. Hinn 6. mars sl.varð Hjalti Björnsson, dag-
skrárstjóri hjá SÁÁ, fimmtugur. Hann
tekur á móti gestum í Glersalnum,
Salavegi 2, Kópavogi, föstudaginn 10.
mars kl. 20.
60 ÁRA afmæli. Í dag, 9. mars, ersextugur Brynjólfur Lár-
entsíusson, Glósölum 7, Kópavogi.
Hann er að heiman á afmælisdaginn.
Að bjóða gamla
fólkinu í heimsókn
ÉG ER orðin öldruð en þegar ég
var yngri fór ég oft til gamals fólks,
las fyrir það, söng með því og
reyndi að gleðja það. Þá fann ég að
margir voru einmana svo mér datt í
hug að í stað þess að koma til
þeirra, þá bauð ég heim til mín.
Stundum bauð ég upp á mat, stund-
um kaffi og meðlæti og var yfirleitt
búin að undirbúa mig. Síðan fékk
ég einhvern til að keyra fólkið heim
til mín og saman áttum við góðar
stundir.
Mér fannst þetta virkilega
skemmtilegt og mér virtist að fólk
hefði meira gaman af að heimsækja
fólk heldur en fá fólk í heimsókn.
Þess vegna datt mér í hug að
einhverjir mættu taka sér þetta til
fyrirmyndar.
Ragnheiður, fv. sjúkraliði.
Ólseigar nautalundir
FYRIR nokkrum dögum keypti ég
nautalundir í Nóatúni í Austurveri
og var mér tjáð að hér væri um
gæðavöru að ræða, „ungnautalundir
úr miðju stykki“, eins og það var
orðað. Mér fannst verðið hátt, 4.398
krónur á kílóið, en samt átti þetta
að vera á tilboði. Ég lét mig hafa
það, en þegar ég fór að matreiða
lundirnar reyndust þær ólseigar.
Ég fór aftur með lundirnar og af-
greiðslumaðurinn mundi eftir mér,
en ég fékk enga leiðréttingu minna
mála af því að ég var ekki með
kvittun.
Mér finnst svona lagað vera al-
gjör svik við viðskiptavini versl-
unarinnar. Það á ekki að selja fólki
svikna vöru.
Gyða Jóhannsdóttir,
Miðleiti 7, Reykja-
vík.
Þakkir til Kórs MH
INNILEGAR þakkir til kórs
Menntaskólans við Hamrahlíð og
stjórnanda hans Þorgerðar Ingólfs-
dóttur. Þau héldu tónleika í Siglu-
fjarðarkirkju sl. sunnudagskvöld
svo unun var að hlusta á. Einnig
sungu þau fyrir börn Grunnskólans
við góðar undirtektir. Ég hvet alla
til, að láta ekki tónleika með þess-
um kór fara farm hjá sér.
Bestu þakkir.
Hörður Júlíusson, Siglufirði.
Bíllyklar töpuðust
BÍLLYKILL, einn á kanadískri
kippu, tapaðist föstudaginn 3. mars
sl. á svæðinu frá Garðastræti að
Landakotskirkju. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma 693-
4217. Fundarlaunum heitið.
Knútur.
Týnd kisa
KISAN Mist týnd-
ist frá heimili sínu,
Hjallahlíð 25 í
Mosfellsbæ föstu-
daginn 3. mars.
Hún er grá og hvít
með gráa hálsól.
Fundarlaun í boði!
Upplýsingar í
síma 692 5666.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Demantsbrúðkaup | Í dag, 9. mars, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli þau Sigríð-
ur Gunnarsdóttir og Tómas Grétar Sigfússon, Kelduhvammi 1, Hafnarfirði.
Þau eru stödd erlendis af því tilefni.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Samtökin ’78 standa, ásamt fleiri félögumog stofnunum, fyrir röð fyrirlestra ávormánuðum. Á föstudag, 10. mars,flytur dr. Susan Stryker erindi um líf
og reynslu þverkynjaðs (e. transgender) fólks.
„Ég mun ræða um hvernig orðið hefur til, á
síðasta áratug, hið nýja fræðasvið þverkynja-
fræða (e. transgender studies), og fjalla um hin
mörgu viðfangsefni þeirra fræða og hvaða skír-
skotun þau hafa til annarra fræðasviða,“ segir
Susan. „Ég ræði ekki aðeins þróun og framfarir
innan fræðasviðsins, heldur einnig um þá
reynslu að vera þverkynja manneskja, og hvaða
áhrif það hefur haft á rannsóknir mínar á svið-
inu.“
En hvað eru þverkynjafræði? „Almennt séð
eru hinseginfræði (e. queer studies) og þver-
kynjafræði (e. transgender studies) náskyld:
bæði fást við hvernig félagsleg norm verða til,
og hvernig þeim er viðhaldið, með tilliti til kyn-
ferðis og kyns. Hinseginfræði eru hins vegar
oftar álitin fást meira við málefni kynferðis og
þrár, á meðan þverkynjafræði fást við kyn-
ímyndina og birtingarmyndir kynja. En bæði
þessi svið eru að mínu viti mjög skyld innbyrðis,
og nátengd fræðum s.s. á sviði femínisma, fötl-
unar og kynþáttar. Öll þessi svið gagnrýna þær
mörgu leiðir sem fjölbreytileiki líkama og anda
er varpað yfir á félagslega virðingarröð, oft með
því að gefa mismuninum sem er manna á milli
sjúkdómsheiti,“ útskýrir Susan. „Það kom mér á
óvart þegar mér var greint frá að fyrirlestur
minn verður líklega sá fyrsti sem haldinn hefur
verið á Íslandi um fyrirbærið „þverkynjun“
(transgender). Raunar er ég ekki viss um að svo
sé, því ég hef séð fræðileg skrif frá 7. áratugn-
um sem minnast á transsexúalisma á Íslandi.
Hitt er þó rétt að fræðisviðið þverkynjafræði,
ólíkt þeim fræðasviðum sem áður fengust við
efnið og þá sem líkamlegan eða andlegan krank-
leika, hefur fram að færa nýjar samfélagslegar
hugmyndir. Þessar hugmyndir hafa sprottið úr
nýjum félagslegum heildum femínista, homma
og lesbía í Bandaríkjunum og Evrópu, og er ég
spennt að fræðast nánar um hvernig þróun um-
ræðunnar hefur verið á Íslandi. Ég vona einnig
að erindi mitt muni hreyfa við fólki og koma af
stað umræðu.“
Erindi sitt flytur Susan Stryker í Stofu 101 í
Odda kl. 12, á föstudag. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill. Nánari upplýsingar má nálgast á
heimasíðunni www.samtokin78.is
Kvikmynd Susan „Skrækjandi drottningar“
(e. „Screaming Queens“) verður sýnd á Hinsegin
bíódögum í mars.
Kynjafræði | Susan Stryker, sagnfræðingur og rithöfundur, fjallar um þverkynjafræði
Líf og reynsla „transgender“ fólks
Dr. Susan Stryker
fæddistí Fort Still,
Oklahóma, árið 1961.
Hún lauk doktorsprófi í
Bandaríkjasögu frá
Kaliforníuháskóla,
Berkeley árið 1992,
gegndi rannsókn-
arstöðu við Stanford-
háskóla 1998–2000,
var gestakennari við
Macquireháskóla, Ástr-
alíu, 2003 og gegndi rannsóknarstöðu við
Queensland-háskóla 2006. Susan hefur verið
virk í skrifum og fræðistörfum á sviði kynja-
fræða og skrifaði, framleiddi og leikstýrði
kvikmyndinni „Screaming Queens: The Riot at
Compton’s Cafeteria“ ásamt Victor Silver-
man. Susan skrifaði einnig heimildarritin „Gay
by the Bay“og „Queer Pulp“. Maki Susan er
Kim Klauser og eiga þær samanlagt fjögur
börn.
KVIKMYNDIN Húsið, frá
1983, verður sýnd í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, í Hafnarfirði,
laugardaginn 11. mars kl. 16.
Ungt par fær inni í gömlu
húsi í Reykjavík og verður
þess fljótlega vart að húsinu
fylgir eitthvað sem er þeim yf-
irsterkara. Forsaga hússins
tekur völdin. Aðalhlutverk eru
í höndum þeirra Lilju Þór-
isdóttur og Jóhanns Sigurðs-
sonar. Myndin hlaut menning-
arverðlaun DV 1983 og þrenn
verðlaun á alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Brussel það
sama ár (besta mynd, leikkona
og kvikmyndataka). Leikstjóri
er Egill Eðvarðsson.
Miðar verða seldir í Bæj-
arbíói, Strandgötu 6, ca hálf-
tíma fyrir sýningu og kosta
500 krónur.
Húsið í Bæjarbíói
Fréttir í tölvupósti
TEPPI Á STIGAHÚS
- got t verð -
komum og gerum verðtilboð
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
120-140 fm íbúð í Fossvogi óskast
fyrir ákveðinn kaupanda.
Nánari upplýsingar veitir
Kjartan Hallgrímsson
ÍBÚÐ Í FOSSVOGI ÓSKAST
Kringlunni, sími 553 2888
Ný sending af
skóm
Opið í kvöld til kl. 21.00