Morgunblaðið - 09.03.2006, Side 59
Einbýlishús í Seljahverfi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 250 fm einbýlis-
húsi í Seljahverfi, gjarnan á einni hæð.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 59
DAGBÓK
Gamlir meistarar.
Norður
♠10
♥ÁG96 S/Allir
♦ÁG3
♣KDG105
Vestur Austur
♠KD3 ♠54
♥K1087 ♥532
♦1098 ♦6542
♣432 ♣9876
Suður
♠ÁG98762
♥D4
♦KD7
♣Á
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 3 spaðar
Pass 3 grönd Pass 4 spaðar
Pass 5 hjörtu Pass 6 spaðar
Dobl Allir pass
Charles Goren (1901–1991) tók við leið-
togahlutverkinu í bridsheiminum af Ely
Culbertson og var um langt árabil
áhrifamesti spilari heims – oft kallaður
Herra Brids. Eins og Culbertson, var
Goren allt í senn: fræðimaður, höfundur
og kennari, sem helgaði líf sitt bridsí-
þróttinni. Bækur hans um sagnir nutu
sérstakra vinsælda og er talið að þær
hafi selst í yfir 10 milljón eintökum.
Goren var öflugur spilari, einkum á
yngri árum. Spilið að ofan kom upp
1937 og var Goren í suður, sagnhafi í
sex spöðum dobluðum. Útspilið var tíg-
ultía.
Eftir doblið taldi Goren víst að vestur
ætti spaðahjónin og ákvað að spila út
frá þeirri forsendu – reyna að stytta sig
niður á ÁG9 í trompi. Hann tók fyrsta
slaginn heima og lagði niður laufás.
Spilaði svo hjartafjarka og svínaði gos-
anum.
Nú átti hann nægar innkomur til að
trompa tvisvar lauf og tvisvar hjarta
heima. Vestur varð að fylgja lit alla leið
og var svo sendur inn á spaða í þriggja
spila endastöðu til að spila upp í ÁG.
Glæsilegt innkast í trompi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16, handavinna
kl. 9–16.30, smíði/útskurður kl. 9–
16.30, boccia kl. 9.30, helgistund kl.
10.30, leikfimi kl. 11, myndlist kl. 13.30.
Bergmál líknar- og vinafélag, | Berg-
mál verður með opið hús í Blindra-
heimilinu Hamrahlíð 17, 2. hæð, 12.
mars kl. 16. Gestir koma í heimsókn,
m.a. sr. Sigfús B. Ingvason og Bar-
dukha. Sigmundur Júlíusson leikur
undir fjöldasöng. Matur að hætti
Bergmáls, veislustjóri verður Kolbrún
Karlsdóttir. Tilkynn þarf þátttöku hjá
eftirtöldum: Karl Vignir s. 552 1567,
864 4070 og Hólmfríður 862 8487.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, bókband og fótaaðgerð. Fé-
lagsvist á morgun kl. 13.30.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega. Hægt er að fá dagskrána
senda heim í pósti eða rafrænt: asdis-
.skuladottir@reykjavik.is. Síminn er
588 9533. Handverksstofa Dal-
brautar 21–27 opin virka daga.
FEBÁ, Álftanesi | Útskurð-
arnámskeið í smíðastofu Grunnskól-
ans, fimmtudaga kl. 15.30–18.30.
Leiðbeinandi Friðgeir H. Guðmunds-
son. Upplýsingar gefur Guðrún í síma
565 1831.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13. Fræðslufundur 10. mars kl. 15,
Ögmundur Jónasson alþingismaður
kemur á fundinn. Leikfélagið Snúður
og Snælda sýnir leikritið Glæpi og
góðverk í Iðnó 12. mars kl. 14, miða-
pantanir í Iðnó s. 562 9700. Nokkrir
miðar óseldir.
Félag kennara á eftirlaunum | Kóræf-
ing í KHÍ kl. 17–19.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og 9.50, rammavefnaður kl.
9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30, ró-
legar æfingar kl. 10.50, bókband kl. 13,
gömlu dansar kl. 20 og línudans kl. 21.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Bridsdeild FEBK Gullsmára spilar tví-
menning alla mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13.
Kaffi og meðlæti fáanlegt í spilahléi.
Félagsmiðstöðin Selið | Gleðigjafarnir
syngja 10. mars kl. 14, undir stjórn Sig-
ríðar Norðkvist. Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Glerbræðsla kl. 9 í Kirkjuhvoli, vatns-
leikfimi kl. 9.45 og karlaleikfimi kl.
13.15 í Mýri. Í Garðabergi er opið
12.30–16.30 og þar er handa-
vinnuhorn. Spilakvöld í Garðabergi kl.
19.30 á vegum FAG og Kristínar Jó-
hannsdóttur.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund
kl. 10.30, umsj. sr. Svavar Stefánsson.
Vinnustofur opna kl. 12.30, m.a.
myndlist, geisladiskasaumur o.fl. List-
sýningar Sigrúnar Björgvins og Judit-
har Júlíusd. standa yfir. Veitingar í há-
degi og kaffitíma í Kaffi Berg. Strætó
S4, 12 og 17 (ný leið) stansa við
Gerðuberg. S. 575 7720.
Félagstarfið Langahlíð 3 | Hár-
greiðslu og fótaaðgerðarstofur opnar
frá kl. 10, handmennt almenn kl. 13,
kaffiveitingar kl. 14.30 og bingó kl. 15.
Furugerði 1, félagsstarf | Bandalag
kvenna verður með skemmtun kl. 20,
söngur, grín og gaman. Allir velkomnir.
Aðstoð vegna framtals verður veitt
13. mars. Skráning í s. 553 6040.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun, hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kaffi, spjall, dagblöðin, hár-
greiðsla. Kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl.
12 hádegismatur, kl. 14 félagsvist, kl.
15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9,
pútt kl. 10, leikfimi kl. 11.20, gler-
bræðsla kl. 13, bingó kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá
Halldóru kl. 9–16, boccia kl. 10–11, fé-
lagsvist kl. 13.30, kaffi og meðlæti í
hléi. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir
s. 588 2320. Hársnyrting s.
517 3005.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Hægt að fá dagskrána
senda heim í pósti eða rafrænt; asdis-
.skuladottir@reykjavik.is. Lagt af stað
í Lögregluferðina um kl. 14.30, 10.
mars. Fullbókað. Síminn er 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug á morgun kl.
9.30.
Norðurbrún 1. | Framtalsaðstoð verð-
ur 10. mars frá kl. 9–12, panta þarf
tíma í síma 568 6960. Smíði, leir, opin
vinnustofa, boccia kl. 10, leirnámskeið
kl.13–16.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9–10 boccia, kl. 9.15–
14 aðstoð v/böðun, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 10.15–11.45 spænska,
kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–14
leikfimi, kl. 13–16 kóræfing, kl. 13–16
glerbræðsla, kl. 14.30–15.45 kaffiveit-
ingar.
Vesturgata 7 | Flóamarkaður verður
fimmtud. 9. og föstud. 10. mars frá kl.
13–16. Kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9, bókband og pennasaumur kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10,
handmennt alm. kl. 13, glerskurður kl.
13, frjáls spil. kl. 13. Félagsvist spiluð
kl. 20.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12, hádegisverður á
eftir. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 15.
Gestur: Guðjón Davíð Karlsson leikari.
Gunnar Tryggvason og Rafn Sveins-
son flytja létta tónlist. Bænarorð: Sr.
Svavar A. Jónsson.
Áskirkja | Foreldrum er boðið til sam-
veru með börn sín í safnaðarheimili II
kl. 10–12. Kynning frá Borgarbóka-
safni. Opið hús kl. 14–16. Samsöngur
undir stjórn organista, kaffi og með-
læti. Samvera í safnaðarheimili II kl.
17–18 í dag. Spilafundur (allir mega
koma með spil).
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10, Leikfimi IAK kl. 11, bænastund kl.
12, barnastarf 6–9 ára kl. 17–18 á neðri
hæð. Unglingastarf kl. 19.30–21.30, á
neðri hæð. (www.digraneskirkja.is)
Dómkirkjan | Opið hús alla fimmtu-
daga kl. 14–16, í safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a.
Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar- og
bænastund kl. 12.15.
Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 22. Tekið er við bænarefnum
af prestum og djákna. Boðið upp á
kaffi í lok stundarinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12, ýmiss konar fyrirlestrar.
Heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla kl.
17.30–18.30, fyrir 7–9 ára. Kirkju-
krakkar kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára.
Helgistundir alla virka daga föstunnar
kl. 18–18.15. Ráðherrar og alþingis-
menn lesa. Í dag les Ásta Möller al-
þingismaður.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl.
19–19.45, Þorvaldur Halldórsson leiðir
söng. Altarisganga.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 7–9 ára
starf, er kl. 16.30–17.30.
KFUM og KFUK | Samkoma kl. 20.
Ræðumaður er Kjartan Jónsson.
Vitnisburð hefur Helgi Hróðmarsson,
kristniboðsþáttur. Djasstríó.
Langholtskirkja | Opið hús kl. 10–12
fyrir foreldra ungra barna. Spjall, kaffi
og söngstund fyrir börnin. Fræðsla
annan hvorn fimmtudag. Umsjón hef-
ur Lóa Maja Stefánsdóttir móðir og
sjúkraliði. Upplýsinga í síma
520 1300.
Neskirkja | Samtal um sorg kl. 12.
Samtal um sorg er opinn vettvangur
þeirra sem glíma við sorg og missi og
vilja vinna úr áföllum sínum. Þar kem-
ur fólk saman til að tjá sig eða hlusta
á aðra. Prestar kirkjunnar leiða fund-
ina.
TÓNLEIKAR Kammermús-
íkklúbbsins á sunnudagskvöldið ollu
hálfgerðum vonbrigðum. Þar var
boðið upp á þrjár tónsmíðar eftir
Mozart og Shostakovich, og verður
að segjast eins og er að tvær þeirra
stóðust ekki væntingar.
Upphafið að strengjakvartett nr.
2 í A-dúr ópus 68 eftir síðarnefnda
tónskáldið var reyndar hressilegt,
en hægur og dulúðugur annar kafl-
inn kom ekki nægilega vel út þrátt
fyrir að fiðluleikur Hildigunnar
Halldórsdóttur hafi oftast verið
sæmilega fókuseraður. Útfærsla
hinna strengjaleikaranna, þeirra
Sigurðar Halldórssonar sellóleikara,
Sigurlaugar Eðvaldsdóttur fiðluleik-
ara og Jónínu Auðar Hilmarsdóttur
víóluleikara, á löngum, liggjandi
hljómum, var gjarnan svo klaufaleg
að það var beinlínis neyðarlegt.
Hljómarnir skiptu gríðarlegu máli
fyrir stemninguna í tónlistinni og að
heyra þá bjagaða aftur og aftur var
pínlegt áheyrnar.
Valsinn sem á eftir kom var betri
og oft skemmtilegur, en síðasti þátt-
urinn var fremur bragðlaus og óneit-
anlega var þreytandi að heyra
óhreina tóna hvað eftir annað.
Enn síðra var strengjatríó (Di-
vertimento) K 563 eftir Mozart, sem
var flutt af sömu hljóðfæraleikurum
að Sigurlaugu undanskilinni. Eins
og kunnugt er er músík Mozarts
vandmeðfarin, hún segir margt í
fáum tónum; tærleiki hennar og hóf-
samt tónmálið gerir að verkum að
feilnótur og ójafnir tónstigar mega
ekki vera tíðir. Því miður moraði allt
í feilnótum í leik þremenninganna,
og þar sem túlkunina skorti að auki
nauðsynlegan léttleika og markvissa
uppbyggingu var útkoman óbærileg
áheyrnar.
Langbesta atriði dagskrárinnar
var hitt verkið eftir Mozart, kvartett
fyrir flautu og strengi í D-dúr K 285.
Þar munaði mest um hástemmdan
og tæknilega öruggan flautuleik
Hallfríðar Ólafsdóttur, sem unaður
var á að hlýða þótt hinir hljóðfæra-
leikararnir hafi stundum átt erfitt.
Annar kaflinn, þar sem flautuleik-
arinn spilaði sóló við mjúkt strengja-
plokk, var einstaklega fallegur og
verður örugglega lengi í minnum
hafður. Af hverju í ósköpunum gátu
ekki allir tónleikarnir verið svona?
Vonbrigði á kamm-
ertónleikum
TÓNLIST
Bústaðakirkja
Tónsmíðar eftir Mozart og Shostakovich.
Flytjendur: Hildigunnur Halldórsdóttir,
Hallfríður Ólafsdóttir, Sigurlaug Eðvalds-
dóttir, Jónína Auður Hilmarsdóttir og Sig-
urður Halldórsson. Sunnudagur 5. mars.
Kammermúsíkklúbburinn
Jónas Sen
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 c6 4. Rf3
Dc7 5. Bd3 e5 6. h3 Be7 7. Be3
Rbd7 8. 0–0 Rf8 9. Re2 Re6 10. c3
Bd7 11. a4 a5 12. Dd2 0–0 13. Rg3
g6 14. Re2 Rh5 15. Rh2 Rf6 16. f4
Had8 17. f5 Rg7 18. g4 Rfe8 19. g5
f6 20. Rg4 Bc8 21. h4 Rh5 22. Dc2
Reg7 23. dxe5 dxe5 24. Db3+ Kh8
25. Bb6 Dd6 26. Had1 Hde8 27. Rh6
fxg5
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
í Hastings í Englandi sem lauk í
upphafi ársins. Guðmundur Kjart-
ansson (2.257) hafði hvítt í stöðunni
gegn John Rety (1.992). 28. Dg8+!
og svartur gafst upp enda verður
hann kæfingarmát eftir 28. …Hxg8
29. Rf7#.
Það er óvenjulegt að geta fæðing-
arkæft andstæðing á alþjóðlegu móti
en Guðmundi gekk vel á mótinu,
fékk 6 vinninga af tíu mögulegum.
Guðmundur tekur þátt í Reykja-
víkurskákmótinu sem fer fram þessa
dagana í Faxafeni 12.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik