Morgunblaðið - 09.03.2006, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 61
MENNING
Síðustu forvöð!!!
9. mars
15. mars
16. mars
23. mars
24. mars
25. mars uppselt
30. mars
31. mars
1. apríl
Landið í maí
Vestmannaeyjar
4. maí sýning
5. maí sýning
6. maí sýning
7. maí sýning
Seyðisfjörður
10. maí sýning
11. maí sýning
12. maí sýning
13. maí sýning
14. maí sýning (aukas.)
Landið í maí
Akureyri
17. maí sýning
18. maí sýning
19. maí sýning
21. maí sýning
Ísafjörður
25. maí sýning
26. maí sýning
27. maí sýning
Aðeins þessar sýningar:
í Reykjavík
Viðskiptavinir Landsbankans
fá 500 króna afslátt á
ofangreindum stöðum„Frábærlega gert. Staðhæfingarnar
frábærar og hnyttinn texti.
Hvílíkur gimsteinn sem þessi kona
er á sviðinu.
Að sjá hverning hún rúllaði
áhorfendunum upp.
Til hamingju með það.“
Bragi Hinriksson
AÐ mínu mati var fallegasta atrið-
ið á fjölskyldutónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands Söngur
Dimmalimm eftir Atla Heimi
Sveinsson. Þar sungu stúlkur úr
Kór Kársnesskóla, en einsöngvari
var Elísa Auður Aðalmundar-
dóttir, sem er meðlimur í kórnum.
Miðað við að hún er barn að aldri
var söngur hennar sérlega skýr,
öruggur og sjarmerandi. Hljóm-
urinn í stúlkunum í kórnum var
líka notalega skær og var útkoman
einstaklega hrífandi.
Í Söng götustrákanna úr óp-
erunni Carmen var komið að
drengjunum að spreyta sig, en það
var eiginlega ekki fyrr en í næsta
atriði, lögum úr söngleiknum Óli-
ver eftir Lionel Bart, að þeir kom-
ust almennilega á flug. Sérstak-
lega verður að nefna einsöng
Höskuldar Gunnlaugssonar, en
hann var hinn ágætasti. Hraustir
menn eftir Sigmund Romberg var
sömuleiðis prýðilega sungið og
merkilega karlmannlegt hjá
drengjunum. Óþarfi er að telja upp
hvert einasta lag dagskrárinnar,
en í það heila voru þetta skemmti-
legir tónleikar. Kóratriðin voru yf-
irleitt vel heppnuð, t.d. var Sí-
gaunakórinn úr La Traviata, sem
flestir ættu að muna eftir úr
dömubindaauglýsingunni frægu í
sjónvarpinu, afar fjörlega fluttur.
Auðheyrt var að stjórnandi kórs-
ins, Þórunn Björnsdóttir, hefur
unnið gott starf með börnunum.
Ég verð að nefna lag eftir Þóru
Marteinsdóttur, Hér á ég heima,
en ég minnist þess ekki að hafa
heyrt það áður. Það var grípandi í
einfaldleika sínum og féll greini-
lega í kramið hjá tónleikagestum.
Helst mátti finna að nokkuð
ómarkvissum leik hljómsveitar-
innar, Carnivalforleikur Dvoráks
var t.d. illilega bjagaður og forleik-
urinn að Vilhjálmi Tell eftir Ross-
ini virkaði dapurlegur, a.m.k. þar
sem ég sat, en það var of aft-
arlega. Hver ástæðan er fyrir því
að gagnrýnendum Morgunblaðsins
er gert að sitja á versta stað í Há-
skólabíói er mér ekki kunnugt.
Frammistaða hljómsveitarinnar
var samt ekki aðalatriðið á tónleik-
unum; kórinn var númer eitt og
hann var í góðu formi. Enda var
honum ákaft fagnað í lokin.
Hrífandi barnasöngur
TÓNLIST
Háskólabíó
Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti ásamt
Kór Kársnesskóla tónlist eftir Romberg,
Bizet, Dvorák, Rossi, Atla Heimi Sveins-
son, o.fl. Stjórnandi: Bernharður Wilk-
inson. Kórstjóri: Þórunn Björnsdóttir.
Laugardagur 4. mars.
Sinfóníu- og kórtónleikar
Jónas Sen
EINLYNDI og marglyndi er titill á
málþingi sem Stofnun Sigurðar Nor-
dals efnir til á föstudaginn um
menningu á Íslandi og Íslensk fræði
í nútíð og framtíð. Þingið er í sam-
vinnu við Ritið, tímarit Hugvís-
indastofnunar Háskóla Íslands.
„Tilgangurinn með þessu mál-
þingi er að ræða íslenska menningu
almennt nú og í framtíðinni. Að und-
anförnu hefur verið mikil umræða
um hana í sambandi við framtíð ís-
lenskrar tungu og það má segja að
þingið komi svolítið í kjölfar þess,“
segir Úlfar Bragason, forstöðumað-
ur Stofnunar Sigurðar Nordals og
fundarstjóri á málþinginu. „Stofn-
unin verður 20 ára á þessu ári og það
eru 120 ár frá fæðingu Sigurðar
Nordals svo málþingið er líka haldið
í tilefni þess.
Titillinn á málþinginu er heiti á er-
indum sem Sigurður Nordal flutti
um einlyndi og marglyndi Íslenskr-
ar menningar þegar hann kom heim
frá námi. Erindin komu út á bók árið
1986.“
Úlfar segir þau hafa valið frum-
mælendur í yngri kantinum og bæði
þá sem eru almennt að vinna í menn-
ingarlífinu og þá sem eru innan há-
skólans að vinna í rannsóknum í
bókmenntum, sagnfræði og málvís-
indum, en á þeim sviðum vann Sig-
urður Nordal.
Frummælendur verða: Ása Rich-
ardsdóttir, framkvæmdastjóri Ís-
lenska dansflokksins, Björn Ægir
Norðfjörð, aðjunkt í kvikmynda-
fræði við Háskóla Íslands, Gauti
Kristmannsson, lektor í þýð-
ingafræði við Háskóla Íslands, Har-
aldur Bernharðsson, málfræðingur
og stundakennari við Háskóla Ís-
lands, Haukur Ingvarsson, bók-
menntafræðingur og skáld, og
Hilma Gunnarsdóttir, sagnfræð-
ingur og ritstjóri Kistunnar. Að
loknum framsöguerindum fara fram
pallborðsumræður undir stjórn Jóns
Karls Helgasonar, bókmenntarit-
stjóra hjá bókaútgáfunni Bjarti.
Málþingið verður haldið í Nor-
ræna húsinu milli kl. 14:00 og 17:00 á
föstudaginn. Ókeypis er inn og allir
velkomnir.
Menning | Stofnun Sigurðar Nordals efnir til málþings
Einlyndi og marglyndi
íslenskrar menningar
Morgunblaðið/RAX
Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn