Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 62

Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Nýt t í b íó Óþekkustu börn í heimi hafa fengið nýja barnfóstru sem er ekki öll þar sem hún er séð. TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA YFIRVOFANDI HÆTTA OG SAMSÆRI LÍF OKKAR ER Í HÖNDUM TVEGGJA EINSTAKLINGA e e e e L.I.B. - topp5.is G.E. NFS eeeee V.J.V. / TOPP5.is eeee „…listaverk, sannkölluð perla“ DÖJ – kvikmyndir.com eeee HJ MBL eeee „Stjörnuleikur Hoffman er burðarás magnaðs byrjendaverks um sannsögulega siðferðislega togstreitu rithöfundar“ G.E. NFS Blaðið STEVE MARTIN BEYONCÉ KNOWLES ... og heimsins frægasta rannsóknarlögregla gerir allt til þess að klúðra málinu… Bleiki demanturinn er horfinn... KEVIN KLINE JEAN RENO e e e M.M.J. Kvikmyndir.com eee Ó.H.T Rás 2 eee VJV Topp5.is eee DÖJ – kvikmyndir.com F U N BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI PHILIP SEYMOR HOFFMAN Stórkostleg verðlaunamynd Byggð á sönnum atburðum BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI RACHEL WEISZ síðustu sýningar THE PINK PANTHER kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 CONSTANT GARDENER kl. 8 og 10.45 B.I. 16 ÁRA NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50 UNDERWORLD síð. sýn kl. 8 B.I. 16 ÁRA ZATHURA M / ÍSL TALI kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA ZATHURA M /ENSKU TALI síð. sýn. kl. 5.50 B.I. 10 ÁRA WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA WALK THE LINE LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40 og 10.20 síð. sýn THE PINK PANTHER kl. 6, 8 og 10 THE CONSTANT GARDENER kl. 10.25 síð. sýn B.I. 16 ÁRA NANNY McPHEE kl. 6 BROKEBACK MOUNTAIN kl. 8 B.I. 12 ÁRA Vinsælasta myndin á Íslandi í dag RALPH FIENNES RACHEL WEISZ e e e S.K. DV e e e Ó.H.T Rás 2 A nnar er að nálgast þrí- tugt, býr í Reykjavík og á kærustu. Hinn býr á Egilsstöðum og má ekki enn kaupa sér áfengi. Finnur Torfi Gunn- arsson og Jónas Reynir Gunn- arsson þekkjast ekkert sér- staklega vel, og eiga fátt sam- eiginlegt, nema þá helst að þeir eru skaparar Arthúrs, kaldhæð- innar og meinfyndinnar teikni- myndasögu sem slegið hefur í gegn í netheimum og eignast fleiri lesendur með hverjum deginum. Tveir piltar úr Fellabæ „Við þekktumst lítið. Hann vissi hver ég var og ég vissi hver hann var,“ segir Finnur, sá eldri þeirra tveggja, en bæði hann og Jónas eiga rætur sínar að rekja til Fella- bæjar við Lagarfljót. „Við spjöll- uðum saman á netinu og hann las mikið grínbloggsíðu sem ég hélt úti, þar til loks að Jónas spurði hvort ég væri ekki til í að gera þessa myndasögu með honum.“ Ekki leið á löngu uns sagan spratt fram fullsköpuð og birtist Arthúr fyrst á netinu í ágúst. Það var samt ekki fyrr en fyrir skömmu að Jónas og Finnur töl- uðu fyrst saman í síma, og taka báðir undir að það hafi verið hálf- vandræðalegt: „Við höfum bara kynnst í gegnum netið, ekki hist oft, og þá aldrei lengi. Raunar hittumst við eiginlega aldrei, nema á netinu,“ segir Jónas. „Ég veit ekki alveg hvernig á að tala við hann, þegar ég hringi. Þekki hann ekki alltof vel,“ gantast Finnur, og Jónas bætir við glettinn: „En sam- bandið er gott. Það er eitthvað spes við samband okkar. Einhver rómantík blundar undir niðri.“ Leita ekki langt yfir skammt Sögurnar vinna piltarnir þannig að Jónas sér um teikningarnar og Finnur sér mestmegnis um sögu- þræðina, þó Jónas sé einnig ólatur að finna upp á sögum: „Við bjugg- um sameiginlega til sögupersón- urnar; þann ljóshærða og þann dökkhærða. Sá ljóshærði er mjög líkur Jónasi í útliti og sá dökk- hærði svipaður mér. Svo vorum við komnir með stereótýpur eins og vinnualkann og einhverja gellu,“ útskýrir Finnur. Þó persónurnar séu lauslega byggðar á Jónasi og Finni hafa þær allt annan persónuleika, að sögn Jónasar: „Við Finnur erum frekar líkir, og sögur byggðar á okkar persónuleikum yrðu ekki mjög skemmtilegar.“ Einfalt og tæknivætt Þó Jónas sjái um alla mynda- gerð fyrir söguna segist hann vera afleitur teiknari: „Einhvern veg- inn náði ég samt að móta þennan einfalda stíl. Það tók smátíma að þróa hann en eins og ég vinn þetta núna er þetta mjög einfalt og krefst ekki mikillar teiknivinnu – bara „copy-paste“. Sagan verður til með nokkrum músarhreyf- ingum.“ Finnur setti upp spjallborð á netinu þar sem hann og Jónas skiptast á hugmyndum, hvor frá sínum enda landsins. Þar eiga þeir sinn söguforða, og meitla og móta sögurnar þar til þær eru loks teiknaðar upp – allt án þess að þeir þurfi nokkurn tíma að hittast. Arthúr í útrás Vinsældir Arthúrs hafa farið vaxandi með hverjum deginum: „Kunningjar og vinir byrjuðu að skrifa inn á bloggsíðurnar sínar og setja hlekki á söguna. Svo fór þetta inn á hlekkjasíður eins og B2.is og Geimur.is og aðsóknin fór upp úr öllu valdi.“ segir Finnur. „Við vorum, til að byrja með, með tvö þúsund gesti á mánuði, en er- um nú komnir upp í fimmtíu þús- und á mánuði og þrefalt fleiri flettingar, sem er skrambi fínt.“ Arthúr er í örum vexti, og hefur tímaritið Sirkus samið við þá fé- laga um birtingar á einni strípu í hverju tölublaði og birtist fyrsta sagan á föstudag. „Við erum líka að fara að prófa enska útgáfu; þýða nokkrar sögur svo fleiri geti notið þeirra,“ segir Jónas. „Aðaláhyggjuefnið er hvort húmorinn týnist í þýðingunni. Sumt af þessu er kannski bara fyndið á íslensku.“ Myndasögur | Teiknimyndasagan um Arthúr slær í gegn á netinu Sá ljóshærði og sá dökkhærði Myndræman „Viðarkallar“ er ágætis dæmi um það skopskyn sem ræður ríkjum hjá Arthúri. Jónas, sá ljóshærði og Finnur, sá dökkhærði. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Arthúr má lesa á www.fjand- inn.com/arthur EINN þekktasti „drum’n’bass“- plötusnúður heims leikur í skemmti- höllinni NASA við Austurvöll á föstudagskvöld. Grooverider er ekki að koma í fyrsta skipti til landsins en hann spilaði í Laugardalshöll með Björk og Goldie og einnig á Tungl- inu fyrir allnokkrum árum. Að sögn Agnars „Agzilla“ Agnars- sonar sem stendur fyrir komu kapp- ans til landsins átti Goldie upp- haflega að spila í Tunglinu þetta kvöld. Hann lenti hins vegar í slysi á sjóskíðum og lærbrotnaði og þarf að gangast undir aðgerð. Grooverider brást vel við og mætir á klakann í hans stað. Vonandi að Goldie jafni sig sem fyrst. Þótt Goldie sé mikil kanóna eru það ekki slæm skipti að fá kappa eins og Grooverider í hans stað. Hann sló í gegn með alræmdum ólöglegum partíum í vöruskemmum hér og þar í London á níunda ára- tugnum. Grooverider hefur m.a.s. fengið nafnbótina guðfaðir „drum’n’bass“-tónlistarinnar. Þrátt fyrir að hafa verið lengi í bransanum er hann enn eftirsóttur plötusnúður. Til viðbótar er hann þáttastjórnandi á BBC og plötuútgefandi, eigandi hinnar þekktu Prototype-útgáfu sem hefur menn á borð við Dillinja, Ed Rush, Photek og Optical innan- borðs. Sjálfur hefur Grooverider sent frá sér eina plötu með frumsömdu efni, Mysteries of Funk, auk fjölda þekktra endurhljóðblandana. Sem stendur er hann með plötu í burð- arliðnum og geta dansóðir gestir NASA fengið forsmekkinn af góð- gætinu annað kvöld. Tónlist | Mikil tónlistarveisla á NASA um helgina Grooverider er guðfaðirinn Grooverider hefur jafnan góð tök á fólkinu á dans- gólfinu. Grooverider á NASA föstudaginn 10. mars. Húsið verður opnað kl. 23 og er miðaverð 1.400 kr. auk miðagjalds. Forsala er á www.midi.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.