Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 68

Morgunblaðið - 09.03.2006, Síða 68
GENGISFALL krónunnar hafði víðtæk áhrif á erlendum gjaldeyr- ismörkuðum í gær, líkt og gerðist þegar krónan féll fyrir tveimur vik- um, en gengi íslensku krónunnar lækkaði um tæp 4% í miklum við- skipum á millibankamarkaði í gær. Er lækkunin rakin til birtingar nýrra talna um viðskiptahalla og skýrslu greiningardeildar Merrill Lynch um stöðu íslensku viðskipta- bankanna og ofmat á lánshæfi þeirra. Þá hækkaði vaxtaálag á skuldbréfum íslensku bankanna á eftirmarkaði um 0,05% til 0,2%, allt eftir lengd bréfa og eins eftir því hver íslensku viðskiptabankanna var útgefandi að þeim, en vaxtaá- lag á skuldabréfum Kaupþings banka og Landsbanka hækkaði meira en hjá Íslandsbanka. Náði til fleiri mynta Veiking gjaldmiðla nokkurra svokallaðra nýmarkaðslanda var í frétt Financial Times rakin til gengisfalls krónunnar og er komist svo að orði í fréttinni að um end- urtekningu á „Íslendingasögunni“ fyrir tveimur vikum sé að ræða. Hins vegar geti afleiðingarnar af gengisfallinu nú orðið alvarlegri þar sem þær taki til fleiri gjald- miðla. Þannig féll pólska zlotið um 1,4%, ungverska forintan um 1,5%, tékkneska korunan um 1% og sló- vakíska korunan um 0,9%. Þá féll brasilíski realinn um 1,4%, tyrk- neska líran um 1,4% og indónes- íska rúpían um 0,6% í gær. Rétt eins og fyrir tveimur vikum voru það fjárfestar, sem taka lán í gjald- miðlum með lágt gengi til að fjár- festa í gjaldmiðlum með hátt gengi, sem voru drifkrafturinn í þessari almennu gengislækkun. Hafa þeir orðið fyrir fjárhags- legu tapi við gengisfall krónunnar og því orðið að loka stöðum í öðr- um gjaldmiðlum með þeim afleið- ingum að þeir falla líka. Hér á landi urðu töluverðar sviptingar á hlutabréfamarkaði í gær, en al- menn lækkun varð á hlutabréfum í Kauphöll Íslands, einkum í fjár- málafyrirtækjum. 3,03% lækkun úrvalsvísitölu Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,03% og var lokagengi hennar 6.297 stig við lok markaðar. Bréf FL Group lækkuðu um 5%, bréf Straums-Burðaráss um 4,6%, bréf Landsbankans um 4,5%, bréf Íslandsbanka um 4% og bréf KB banka um 3,3%. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 7,6% frá því að greint var frá breyttum horfum alþjóðamatsfyr- irtækisins Fitch Ratings á lánshæf- ismati ríkissjóðs, úr stöðugum í neikvæðar hinn 21. febrúar síðast- liðinn. Gengisvísitala krónunnar var í lok gærdagsins 116,25 stig en var 111,85 stig við upphaf dags. Geng- isvísitala krónunnar hefur hækkað um 10,1% og krónan veikst sem því nemur frá því að skýrsla Fitch Ratings var birt.                   E F    E F  !" #$ %  #&#'(#%                     ) ) G  E  E E E F E  E  H  H E H F !" #' *+ #$  Áhrifa af lækkun krónunnar gætti víða um heim í gær Eftir Arnór Gísla Ólafsson og Bjarna Ólafsson Vaxtaálag á skuldabréfum íslensku bankanna á eftirmarkaði hækkar enn  B1 og B10–B14 ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi 2 + 6 =1 „ÞETTA er ótrúlega skemmtileg tilviljun. Lengi vel trúði ég þessu ekki því þetta eru svo litlir mögu- leikar,“ segir Ingibjörg Ingólfsdóttir, en hún vann fyrir skemmstu bíl, sem var aðalvinningur í jóla- happdrætti Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra. Þetta er hins vegar ekki í fyrsta sinn sem Ingibjörg vinnur bíl í happdrætti á vegum Sjálfsbjargar, því það gerði hún einnig í jólahappdrættinu árið 1999. „Mér fannst þetta mjög svo ánægjulegur atburð- ur,“ segir Ingibjörg. Hún segist afar ánægð með nýja bílinn, sem er af gerðinni Subaru Impreza. „Ég er farin að nota bílinn en annars er ég dálítið spar- söm á hann svona fyrstu dagana. Ég þarf að keyra dálítið á malarvegum og maður tímir því varla,“ segir Ingibjörg, en hún er búsett á bænum Hálsum í Skorradal. Ingibjörg segist í gegnum tíðina hafa keypt happ- drættismiða við og við til þess að styrkja góð mál- efni. Hún kveðst ákveðin í að halda áfram að kaupa happdrættismiða af Sjálfsbjörg. „Ég vinn með fötl- uðum en ég er í hlutastarfi á sambýli rétt hjá Borg- arnesi. Þetta er þarft og verðugt málefni og mik- ilvægt að styðja svona fólk ef maður getur,“ segir Ingibjörg Ingólfsdóttir. Ingibjörg, Rúnar Bridde, sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni og Edda Hólmsteinsdóttir, fjármálafulltrúi Sjálfsbjargar. „Ég trúði þessu ekki“ Vann bíl í annað sinn í happdrætti á vegum Sjálfsbjargar ÚTBREIÐSLA hafíss er nú meiri en í meðallagi fyrir norðan landið, að sögn Þórs Jakobssonar, veð- urfræðings og verkefnisstjóra sjó- veður- og hafísþjónustu Veður- stofu Íslands. Venjulega er hafísinn um þetta leyti við mið- línuna milli Íslands og Grænlands. Um sama leyti í fyrra var hafísinn mun nær landi og hamlaði m.a. veiðum fyrir Norðurlandi. Þór sagði legu hafíssins nú til dæmis um hvað hann gæti breiðst út þeg- ar liði á vetur, hvernig sem haustið væri. Landhelgisgæslan fór í ískönn- unarflug 3. mars síðastliðinn. Þá var hafísinn næst landi 42 sjómílur norðvestur af Deild og 49 sjómílur norðvestur af Kögri. Þéttleiki haf- ísbrúnarinnar var mikill, eða 7–9/ 10. Þór sagði að siglingaleiðir væru opnar en hafísinn hefði færst austur á bóginn. Í gær var spáð suðvestlægri átt á miðunum þarna, sem er óhagstæð átt með tilliti til útbreiðslu hafíssins. Þór taldi fullsnemmt að fara að óttast að ísinn kæmi nær landi. Enn eru siglingaleiðir vel greiðar fyrir vestan og norðan landið. Þór taldi að ísinn gæti í mesta lagi ver- ið að hamla veiðum á einhverjum tilteknum fiskimiðum. Mikill hafís í fyrra Í mars í fyrra barst mikill hafís allt austur fyrir Langanes og olli hann erfiðleikum á miðunum. Með- al annars urðu Grímseyingar að sigla bátum sínum til hafna á fastalandinu. Ísinn er öllu minni nú en í fyrra. Í gær var spáð suðvestanátt á Breiðafjarðarmiðum og Vest- fjarðamiðum en hagstæðari norð- austanátt á djúpmiðum. Þegar nær dregur helginni er spáð austlæg- um áttum. Þór taldi því ekki ástæðu til að óttast að ísinn nálg- aðist landið næstu daga. Útbreiðsla hafíss meiri en í meðallagi                                      Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.